23.feb. 2010 - 11:03 Bryndís Schram

Bryndís Schram gagnrýnir Sjöundá Halaleikflokksins: Fyrir augliti Guðs?

Halaleikflokkur ræðst ekki á garðinn þar sem hann er lægstur, eins og áhugleikflokkum hættir til, heldur skelllir sér í ferð, sem er bæði áhættusöm og erfið. Eflaust hefðu þau aldrei komist klakklaust úr þessari ferð, nema vegna öruggrar og fagmannlegrar leiðsagnar Ágústu, sem hefur stjórnað eftirtektarverðum sýningum á undanförnum árum.
13.feb. 2010 - 16:00 Bryndís Schram

Bryndís Schram um Gerplu: Sjálfsmynd þjóðar - í spéspegli

Þetta leikverk – sem á eflaust eftir að öðlast sinn eigin tilverurétt, aðskilið frá bók Halldórs Laxness – er svo auðskilið, svo skemmtilegt, fyndið, andríkt og einfalt, að ég óska þess heitast, að allir landsmenn megi njóta og læra af.
10.feb. 2010 - 17:00 Gagnrýni

Thriller í Loftkastalanum: Minning Michael Jackson heiðruð með frábærri sýningu

Ívar Örn hefur náð því besta út úr afar efnilegum hópi leikara, söngvara og dansara sem nýta vel rýmið í Loftkastalanum, gera hluti sem þau ráða yfirleitt vel við og virðast næm á stemmninguna í salnum. Það er ekki sanngjarnt að taka út einstaka leikara, söngvara eða dansara og hrósa þeim, því þetta er fyrst og fremst sigur hópsins, heildarinnar sem skapar svo skemmtilega og lifandi sýningu.
03.feb. 2010 - 16:54 Bryndís Schram

Bryndís Schram gefur Tilbrigði við stef þrjár stjörnur: Sælla er að gefa en þiggja

Hvar í heiminum nema á Íslandi getur maður farið í leikhús í hjarta borgar  – þar sem þögnin í umhverfinu er slík, að gluggar standa galopnir og eina hljóðið sem berst inn, er gargið í gírugum gæsum – eða álftakvak í umvöndunartón?  Hvergi, hugsa ég – en  þannig er einmitt stemningin á efri hæðinni í Iðnó þessa dagana. Kaffileikhús –  og það í orðsins fyllstu merkingu, því að það er boðið upp á kaffi, jafnvel heitt súkkulaði með rjóma og kruðeríi, í upphafi leiks og áhorfendur deila því með leikendum.
03.feb. 2010 - 09:00 Björg Magnúsdóttir

Sveppi í yfirheyrslu: Hef reynt að vera fyndinn og skemmtilegur alla mína ævi

Sveppi í forgrunninn. Sverrir Þór Sverrisson, eða Sveppi, eins og allir kalla hann, segir í samtali við Pressuna segir að hann hafi verið fæddur til þess að skemmta fólki og vera gleðigjafi. Hann leikur þessa dagana í leikritinu Algjör Sveppi - Dagur í Lífi stráks sem Bryndís Schram hefur dæmt hér á Pressunni.
01.feb. 2010 - 18:20 Gagnrýni

Bryndís Schram gagnrýnir Sveppa: Góðar undirtektir í salnum mælikvarði á gæðin

Dagur í lífi stráks er að vísu ekki snilldarverk – samtölin eru oft á mörkum þess að standa undir kröfum leikhússins – enda viðurkenna bæði leikstjóri og aðalleikarar að þetta sé svo sem ekki fullkomið leikverk byggt á viðurkenndum formúlum, heldur bara eins konar kabarett fyrir krakka, “ekkert rosalega spennandi eða dramatískt, bara skemmtileg sýning, sem fjallar um dag í lífi stráks og þær uppákomur, sem hann þarf að glíma við yfir daginn”.

31.jan. 2010 - 19:08 Gagnrýni

Bryndís Schram fór í Nemendaleikhúsið í Smiðjunni: Að lifa til að deyja

Ef þú býrð utan bæjar, eins og ég, lest bara Moggann og DV (Fréttablaðið er ekki borið út í sveitinni), verslar í Bónus og Krónunni, ert hætt að leyfa þér þann munað að fara í bakaríið eða blómabúðina, ert alltaf með hugann við Kreppuna og úrlausnir hennar – en  lætur það samt einstaka sinnum eftir þér að kaupa rándýrt bensín á bílinn og aka inn í borgina – þá kemstu að því, að kreppan virðist bara vera í úthverfunum.
23.jan. 2010 - 18:49

Bryndís Schram skrifar um leiksýninguna Góðir Íslendingar: Eins og í spegli

Hallur Ingólfsson og Halldóra Geirharðsdóttir í hlutverkum sínum í sýningunni Góðir Íslendingar í Borgarleikhúsinu. Fyrir nokkrum dögum sá ég kvikmyndina “Maybe I should have”. Aðalpersónan í myndinni hljóp út um víðan völl með kvikmyndavélina í eftirdragi, hvort sem það var í Reykjavík, Lúxemburg eða Tortolu, og spurði spurninga. Hann spurði erfiðra spurninga og heimtaði heiðarleg svör. Hann fékk svörin og okkur leið ekkert vel – fannst þó að við hefðum komist eitthvað nær kjarnanum  -  jafnvel fundið sökudólgana, gripið á meinsemdinni.
16.jan. 2010 - 19:04

Bryndís Schram skrifar um sýninguna Faust: Eru lögfræðingar (líka) í helvíti?

Sýningin var magnþrungin ekki síst fyrir beitingu ljósa, rimla, neta og hengilása, sem hvirfluðust um salinn og brutu niður hin hefðbundnu mörk leikhússins. Leikendur æddu um hvolfið yfir höfðum okkar, dunkuðu í netið eins og skotnar gæsir eða eins og púkar á fjósbita.
02.jan. 2010 - 17:16

Bryndís Schram gagnrýnir Ókyrrð: Fleiri orð, færri stóla

Ég er enn (fjórum dögum seinna) að velta því fyrir mér, hvað stólarnir stóðu fyrir og hvort þeir voru yfirleitt nauðsynlegir. Skruðningur og óþægilegt ískur, þegar þeir voru dregnir eftir hörðu steingólfinu, fór í taugarnar á mér. Mér finnst einhvern veginn, að höfundar hefðu getað sagt okkur meiningu sínar um  firringu, snertifælni, ótta og einmanaleik í harðsnúnum heimi á hljóðlátari hátt  -  kannski nota fleiri orð og færri stóla.
27.des. 2009 - 16:45

Bryndís Schram skrifar um Oliver!: Um þjófa, hórur og herramenn

Það sem hreif mig mest á á sýningunni um Oliver Twist frumsýningarkvöldið voru börnin og framlag þeirra. Það er ótrúlegt, hvað þau voru fagmannleg, frjálsleg, glöð, fim, skýrmælt og tónviss. Það var engu líkara en þau hefðu unnið í leikhúsi frá fæðingu og hefðu að baki áralanga þjálfun.
07.des. 2009 - 20:00

Bryndís Schram skrifar um Maríuhænuna: Leikhús fyrir leikskólann

Fjörutíu og fimm mínútur eru langur tími fyrir lítil börn. Margt getur komið upp á á ekki skemmri tíma. Því fannst mér í rauninni athyglisverðast við þessa óvenjulegu leiksýningu, hvað börnin, áhorfendur -  þrátt fyrir allt - sýndu mikla hæfileika til að einbeita sér, hlusta, taka undir og svara af skynsemi og rökvísi. Enginn fór að gráta, enginn fór að blaðra eða öskra. Það ríkti þokkaleg þögn í salnum, sem lofar góðu um framtíðina.
30.nóv. 2009 - 20:15

Leiklistargagnrýni Bryndísar Schram: Fíngerður vefur sem hvergi slitnar

Þegar ég gekk aftur út í raunveruleikann og ískalt náttmyrkrið að sýningu lokinni, fór ég  að velta því fyrir mér, hvar ég mundi setja aldurstakmarkið. Þetta er ekki barnaleikrit, þó að titill  verksins villi mönnum  kannski sýn – Jesús litli. Nei, síður en svo. Leyfum börnunum að vera Jesúbörn, leyfum þeim að hlakka til jólanna, trúa í blindni á bókstafinn og  draga sinn eigin lærdóm. Þeirra er framtíðin, nógur tími til að efast. Þetta er leikrit fyrir fullorðið fólk, sem þarf á því að halda, fremur nú en nokkru sinni, að leita griða undan  neyslufylliríinu, helgislepjunni og hræsninni.

 

20.nóv. 2009 - 17:15

Leiklistargagnrýni Bryndísar Schram: Hrátt og kalt

Þegar ég stóð upp að lokinni sýningu í gækvöldi var mér efst í huga, hvað Hjálmar Helgi Ragnarsson, rektor Listaháskólans, hlyti að vera stoltur á þessari stundu. Það er mikil gleði fólgin í því að sjá árangur verka sinna – sjá  ungt fólk, sem maður hefur haft til leiðsagnar árum saman, skila árangri. Listaháskólinn er farinn að sanna sig, nemendur eru farnir að láta að sér kveða í atvinnuleikhúsum borgarinnar – ekki bara leikarar heldur líka leikhöfundar.
31.okt. 2009 - 18:30

Leiklistargagnrýni Bryndísar Schram: Stjörnuleikur sem endar með flugeldasýningu

En svo gerðist eitthvað óvænt þarna frammí. Það var eins og flugvélin sneri af leið, færi af braut. Hún nötraði og skókst eins og lauf í vindi.. Spennan hríslaðist aftur í myrkvaðan farþegasalinn og enginn gat setið kyrr í sæti sínu lengur. Þegar flugvélin loks lenti heilu og höldnu, stóðu allir upp og fögnuðu farsælum ferðalokum. Farþegarnir grétu og hlógu í senn.
24.okt. 2009 - 17:00 Gagnrýni

Leiklistargagnrýni Bryndísar Schram: Græðgin, hrokinn, fallið, hefnd guðanna

Ef leikkonana Pálína Jónsdóttir hefði verið uppi um miðja seinustu öld og hefði  flutt Völuspá með slíkum tilþrifum sem hún gerði í fyrrakvöld  á litla sviði Þjóðleikhússins (Kassanum) – og  hefðu íslenskukennarar Menntaskólans í Reykjavík  haft hugrekki eða hugmyndaflug til að kalla hana inn á gólf til okkar og leyfa henni að takast það sem þeim tókst ekki,  þá er ég næstum því viss um, að  þessi rammi kveðskapur stæði okkur enn lifandi fyrir  hugskotssjónum. Og kannski hefðum við líka dregið einhvern lærdóm af forspánni  - hver veit? 
21.okt. 2009 - 20:00 Gagnrýni

Leiklistargagnrýni Bryndísar Schram: Spillingin étur börnin sín í Eftirlitsmanninum

Gleðin og nautnin leyndi sér heldur ekki í leik þessa unga fólks. Öll náðu þau ótrúlega góðum tökum á persónum sínum og gáfu þeim líf, sem vakti áhuga, forvitni.  Og ég sé ekki betur en að þarna innan um séu efni í gamanleikara framtíðarinnar.
19.okt. 2009 - 22:20 Björn Ingi

Aukin menningarumfjöllun: Bryndís Schram ráðin leiklistargagnrýnandi Pressunnar

Bryndís Schram, leik- og sjónvarpskona, hefur verið ráðin leiklistargagnrýnandi Pressunnar. Ráðning hennar er liður í stóraukinni umfjöllun um menningu og listir á Pressunni, en Pressan hefur fengið til liðs við sig fjölmarga aðila sem munu gagnrýna bókmenntir, kvikmyndir, tónlist og margt fleira í menningar- og listalífinu.
14.okt. 2009 - 13:00 Harpa Pétursdóttir

Brennuvargarnir á næsta leiti í Þjóðleikhúsinu

Leikritið Brennuvargarnir eftir Max Frisch verður frumsýnt að kvöldi föstudagsins 16. október í Þjóðleikhúsinu. Verkið er eitt af frægustu leikritum 20. aldarinnar og er bráðfyndin og óvægin þjóðfélagsádeila. Umfjöllunarefni verksins er hugelysi manneskjunnar og græðgi, og tilhneyging okkar til að trúa því fyrst og fremst sem hentar okkur hverju sinni og afneita því sem kemur okkur illa.

Verkið hefur víða verið sýnt í eftirmála hryðjuverkaógnar og nú í miðri efnahagskreppunni enda sagði það einhver að verkið væri nánast skrifað um hrunið á íslenska bankakerfinu.
26.sep. 2009 - 17:00 Gunnar Gunnarsson

Brjálaðasta bíósýning ársins: Búningasýning á Rocky Horror - MYNDIR

Flest allir gestir sýningar Rocky Horror á kvikmyndahátíðinni RIFF mættu íklæddir búningum úr myndinni. Stemmningin í salnum var mikil og náði hápunktur þegar stór leikhópur í fullum skrúða fór upp á svið undir laginu „Sweet Transvestite“ og fylgdi eftir atriðinu á hvíta tjaldinu. Ljósmyndari Pressunnar var viðstaddur sýninguna.
24.sep. 2009 - 16:00 Harpa Pétursdóttir

Dansandi skemmtilegur matarslagur

Íslenski dagsflokkurinn mun hefja sýningar sínar nú á sunndaginn með skemmtilegri fjölskyldusýningu. Þessar sýningar hafa alltaf verið gífurlega vinsælar enda eitthvað fyrir alla fjölskylduna. Þá hefur dansflokkurinn boðið börnum á sýninguna og börn frá 13-16 ára borga helming uppsetts verðs.

Tilgangur sýningarinnar er að kynna nútímadans fyrir yngri kynslóðinni en þar að auki foreldrunum og aðstandendum sjálfum. Verkið
24.sep. 2009 - 09:00 Harpa Pétursdóttir

Grillaður kjúklingur með undarlegri blárri sósu og fimm morð

Á Nýja sviði Borgarleikhússins hefur verið ákveðið að sýna aðeins verk sem spyrja áleitinna spurninga og eru ögrandi á sama tíma og þau eru í náinni samræðu við samtímann. Fyrsta verkið sem hefur orðið fyrir valinu er leikritið Heima er best eftir írska leikskáldið Enda Walsh. Verkinu stýrir Jón Páll Eyjólfsson en leikarar eru Þröstur Leó Gunnarsson, Guðjón Davíð Karlsson, Jörundur Ragnarsson og Dóra Jóhannsdóttir.
15.sep. 2009 - 16:22

Borgarleikhúsið setur nýtt met í sölu áskriftarkorta: Aldrei meira selst í leikhúsi hér

Enn setur Borgarleikhúsið met í áskriftarkortasölu, því aldrei hafa fleiri áskriftarkort selst í leikhúsi hérlendis en nú. 6.000 áskriftarkort eru þegar seld eftir aðeins þriggja vikna sölutímabil og stefnir í að 10.000 kort seljist alls. Gríðarleg sala er að auki á stakar sýningar leikhússins.
10.sep. 2009 - 14:00 Harpa Pétursdóttir

Stjörnurnar sprungu úr hlátri á frumsýningu Hellisbúans - Myndir

Jóhannes Haukur fór á kostum í hlutverki Hellisbúans Hellisbúinn var frumsýndur með pompi og prakt síðastliðinn fimmtudag í Íslensku óperunni. Það var auðvitað margt um manninn enda hefur fólk beðið með óþreyju eftir því að fá að kitla hláturtaugarnar. Handritið að Hellisbúanum var í þetta sinn afrakstur samvinnu þeirra Jóhannesar Hauks Jóhannessonar leikara, Rúnars Freys Gíslasonar leikara sem leikstýrir einnig verkinu og Sigurjóns Kjartanssonar sem þýddi handritið úr ensku. Saman unnu þeir frábært handrit og má sannarlega segja að Jóhannes Haukur hafi átt salinn enda hlógu gestir ótæpilega.
09.sep. 2009 - 08:10 Steingrímur Sævarr Ólafsson

Ráðning Þjóðleikhússtjóra: Einstaka umsækjendur boðaðir í viðtöl í næstu viku

Menntamálaráðherra hefur ákveðið að boða einstaka umsækjendur um stöðu leikhússtjóra Þjóðleikhússins í viðtöl í ráðuneytinu. Viðtölin fara fram í næstu viku og að þeim loknum mun ráðherra taka ákvörðun um hver verði næsti leikhússtjóri.

03.sep. 2009 - 07:00 Harpa Pétursdóttir

Hellisbúinn í nýjum búningi og með nýtt andlit: Viðbrögðin gríðarlega góð

Leiksýningin Hellisbúinn hefur nú verið tekin til sýninga í Íslensku óperunni. Sýningin er í splunkunýjum búningi  og með nýtt andlit. Sýningin verður frumsýnd í kvöld, en að auki hafa verið haldnar nokkrar forsýningar. „Viðbrögðin hafa verið alveg gríðarlega góð og þakið ætlaði hreinlega að rifna af húsinu“ segir Jóhannes Haukur Jóhannesson sem er eini leikari sýningarinnar.

„Sýningin fjallar um stöðu karlmanna í dag, hvað það er sem gerir okkur að því sem við erum og það í samanburði við frummanninn. Hlutverk karla og kvenna í dag eru efnistökin og náttúrulega hvað liggur þar á bakvið“ segir Jóhannes Haukur um inntak sýningarinnar
02.sep. 2009 - 15:28

96 þúsund sáu sýningar Leikfélags Akureyrar á síðasta leikári

Rúmlega 96 þúsund gestir sá sýningar Leikfélags Akureyrar á síðasta leikári sem er helmingi meira en árin á undan. Miklar væntingar eru gerðar fyrir leikárið sem framundan er, en sala árskorta hefst á morgun, fimmtudag.
30.ágú. 2009 - 17:33

Mikill áhugi á starfsemi Borgarleikhússins - Níu þúsund mættu á opið hús

Það var líf og fjör í Borgarleikhúsinu í gær þegar ríflega níu þúsund manns heimsóttu leikhúsið á opnum degi eins og venja er í upphafi leikárs. Starfsfólk tók vel á móti gestunum með fjölbreyttri leikhúsveislu, atriði voru á öllum sviðum og í forsalnum iðaði allt af lífi og fullt var út úr dyrum í öllum sölum.

Pressupennarnýjast
Guðmundur Steingrímsson
Guðmundur Steingrímsson - 16.3.2010
Vaknað við vondan draum
Olga Björt Þórðardóttir
Olga Björt Þórðardóttir - 16.3.2010
Frítt inn fyrir alla í heiminum!
Ólafur Arnarson
Ólafur Arnarson - 16.3.2010
Fórnarlömb eða kúlulánakóngar?
Teitur Guðmundsson
Teitur Guðmundsson - 16.3.2010
Að hagnast á heilbrigðisþjónustu
Sölvi Tryggvason
Sölvi Tryggvason - 16.3.2010
Mottu á forsetann!
Fleiri pressupennar


Skipta um leturstærð

Breyta um tungumál



Leit