03.mar. 2010 - 08:00 Snæfríður Ingadóttir

Allir til Grundarfjarðar um helgina: Frítt í bíó og ókeypis fiskisúpa

Kvikmyndabærinn Grundarfjörður lokkar gesti til sín með alþjóðlegum stuttmyndum, tónleikum og fiskisúpu um helgina. Um helgina verður alþjóðlega stuttmyndahátíðin “Northern Wave” haldin í þriðja skipti í Grundarfirði á Snæfellsnesi. Frítt er inn á alla viðburði hátíðarinnar og heimamenn ætla að elda fiskisúpu ofan í gesti.
26.feb. 2010 - 20:52

Íslensk ævintýramynd í bígerð: Algjör Sveppi og dularfulla hótelherbergið frumsýnd í haust

Plakatið fyrir fyrri kvikmyndina um algjöran Sveppa. Íslenska kvikmyndin Algjör Sveppi og Dularfulla Hótelherbergið verður frumsýnd í Sambíóunum í september næstkomandi. Er þar um að ræða aðra kvikmyndina um aðalpersónuna Sveppa sem er ungur grallari. Það er Sveppi sjálfur, Sverrir þór Sverrisson, sjónvarpsmaður og grínisti sem fer með aðalhlutverkið eins og í fyrri myndinni, Algjör Sveppi og leitin að Villa, sem fékk góðar viðtökur hjá íslenskri æsku sem og þeim sem eldri eru.
23.feb. 2010 - 20:37

Indverskur leikstjóri: Gefur ríflega milljón þeim sem þorir að horfa á hryllingsmynd hans

Myndin á ekkert skylt við kvikmyndina indversku. Leikstjóri frá Delhi á Indlandi, Ram Gopal Varma,  fer nýstárlegar leiðir í að markaðssetja hryllingsmynd sína. Hann hefur nú boðið þeim háa upphæð, sem þorir að horfa á myndina aleinn í kvikmyndahúsi allt til enda. Varma hefur lagt 10.000 Bandaríkjadali undir til þess sem tekst áhorfið, sem samsvara ríflega einni milljón íslenskra króna.
06.feb. 2010 - 18:35

Konan skildi við James Cameron því hún fékk hvergi frið fyrir hjákonunni Títanik

Sú var tíð. Linda Hamilton og James Cameron saman á rauða dreglinum. Linda Hamilton, fyrrum eiginkona kvikmyndaleikstjórans og Óskarsverðlaunahafans James Cameron, sem nýverið sendi frá sér stórvirkið Avatar, segist hafa skilið við hann á sínum tíma því hann var alltaf með hugann við vinnuna.
31.jan. 2010 - 19:08 Gagnrýni

Bryndís Schram fór í Nemendaleikhúsið í Smiðjunni: Að lifa til að deyja

Ef þú býrð utan bæjar, eins og ég, lest bara Moggann og DV (Fréttablaðið er ekki borið út í sveitinni), verslar í Bónus og Krónunni, ert hætt að leyfa þér þann munað að fara í bakaríið eða blómabúðina, ert alltaf með hugann við Kreppuna og úrlausnir hennar – en  lætur það samt einstaka sinnum eftir þér að kaupa rándýrt bensín á bílinn og aka inn í borgina – þá kemstu að því, að kreppan virðist bara vera í úthverfunum.
21.jan. 2010 - 18:59

Bryndís Schram skrifar um Maybe I Should Have: Nýju fötin keisarans í nýjum búningi

Það var ömurlegt að horfa upp á og heyra Björgólf Thor junior fara með rulluna sína um, að hann skildi ekki sjálfur þann köngurlóarvef eignarhaldsfélaga, sem sérfræðingar í hans þjónustu höfðu spunnið utan um öll hans lánasöfn,  til þess að rugla eftirlitsstofnanir í ríminu og forða illa fengnu fé frá skattlagningu í þjónustu samfélagsins.
03.jan. 2010 - 14:19

Nærgöngul ævisaga Warren Beatty komin út: Sængaði með 13.000 konum eða um það bil

Ævisaga Warren Beatty er komin út. Nærgöngul og frökk ævisaga leikarans og framleiðandans Warren Beatty er komin út, How Warren Beatty Seduced America, eða Hvernig Warren Beatty táldró Bandaríkin. Titillinn er vísun í hversu mörgum konum Beatty sængaði með, en höfundur bókarinnar telur þær hlaupa á þúsundum. „12.775 konur, eða kringum það, en sú tala inniheldur ekki allt,“ segir höfundurinn, Peter Biskind við miðilinn New York Post.
28.okt. 2009 - 19:10 Harpa Pétursdóttir

Mamman sigrar og vekur athygli um allan heim!

Aðalleikarinn Víðir Guðmundsson og Davíð Jóel Jógvansson. Stuttmyndin Mamma veit hvað hún syngur var frumsýnd á Frameline33 kvikmyndahátíðinni í San Francisco í júní síðastliðinn en hún sýnir myndir um og eftir samkynhneigða. Myndin fjallar um Nönnu sem er einstæð móðir í Reykjavíkuborg og son hennar Guðna Geir sem er 23 ára. Nanna reynir að eyðaleggja öll sambönd sonar síns því hún vill alls ekki að hann fari að heiman. Samband þeirra er því stormasamt á köflum  en hann leitar að ástinni eins og flestir jafnaldrar hans.

Myndinni var geysilega vel tekið í San Francisco, mikið var hlegið og kanarnir elskuðu hreinlega Helgu Brögu. Síðan þá hefur myndin farið víða í Bandaríkjunum, til Oslóar, Nýju Delhi og að sjálfsögðu á RIFF hátíðina.
14.okt. 2009 - 14:30 Harpa Pétursdóttir

Amnesty-bíó á morgun

Einn liður aðgerðarviku Íslandsdeildar Amnesty International sem stendur yfir þessa vikuna er sýning á myndinni The End of Poverty? Think again. Sýningin fer fram annað kvöld, fimmtudaginn 15. október klukkan átta í húsakynnum Amnesty að Þingholtsstræti 27, þriðju hæð.

leikjstóri myndarinnar er Philippe Diaz en söguskýrandi er leikarinn Martin Sheen. Meðal þeirra sem fram koma í myndinni eru Nóbelsverðlaunahafarnir Joseph Stiglitz og Amartya Sen ásamt fjölda annarra.
02.okt. 2009 - 13:20

Ástarsaga kapítalismans eftir Michael Moore: Í hruninu var trampað á lýðræðinu - Myndband

Nýjasta mynd kvikmyndagerðarmannsins Michael Moore, Ástarsaga kapítalismans, verður frumsýnd í Bandaríkjunum í dag. Í myndinni tekur Moore, eins og nafnið gefur til kynna, fyrir fjármagnseigendur, kapítalismann eins og hann birtist í Bandaríkjunum, stjórnmálamenn og efnahagskreppuna og hrunið. Myndin hefur hlotið góða dóma.

29.sep. 2009 - 18:00 Harpa Pétursdóttir

Bruce Willis er framtíðarlöggan

Kvikmyndin Surrogates er nýjasta mynd leikarans Bruce Willis en í henni leikur hann lögreglumanninn Greer en hann er sérfræðingur í að leika flottar löggur. Í myndinni, sem gerist í nálægri framtíð, fer fólk ekki út á götu heldur hefur það staðgengla sér til halds og trausts sem sinnir fyrir það verkum sínum. Staðgenglarnir fara í vinnuna, á kaffihúsið að hitta staðgengla vinanna, í búðina að kaupa inn og þar fram eftir götunum. Á meðan situr raunverulega fólkið heima hjá sér og hefur ekki samskipti við neinn.
26.sep. 2009 - 17:00 Gunnar Gunnarsson

Brjálaðasta bíósýning ársins: Búningasýning á Rocky Horror - MYNDIR

Flest allir gestir sýningar Rocky Horror á kvikmyndahátíðinni RIFF mættu íklæddir búningum úr myndinni. Stemmningin í salnum var mikil og náði hápunktur þegar stór leikhópur í fullum skrúða fór upp á svið undir laginu „Sweet Transvestite“ og fylgdi eftir atriðinu á hvíta tjaldinu. Ljósmyndari Pressunnar var viðstaddur sýninguna.
23.sep. 2009 - 18:00 Harpa Pétursdóttir

Karlar sem hata konur burstar Harry Potter

Kvikmyndin um Lisbeth Salander og félaga hefur gert sér lítið fyrir og burstað litla galdrastrákinn hann Harry Potter en nú hafa 50.000 manns séð þessa frábæru mynd.

Önnur myndin í Millenium þríleiknum sem ber nafnið Stúlkan sem lék sér að eldinum verður frumsýnd hérlendis þann 2. október en það eru eflaust margir sem bíða hennar með óþreyju. Það má allavega gera ráð fyrir að myndin verði gríðarlega vel sótt miðað við hversu hratt bókin seldist upp þegar hún loksins kom í bókabúðir hér heima en hún er mest selda bókin um þessar mundir.
23.sep. 2009 - 10:25 Gunnar Gunnarsson

Áttu engan bíl en fóru samt í bílabíó: Vantaði ullarsokka og heitt kakó

Bíllausar: Ásgerður, Valgerður og Ásdís létu kuldann ekki á sig fá. Vinkonurnar Ásgerður, Valgerður og Ásdís voru meðal gesta á bílabíói kvikmyndahátíðarinnar RIFF í gærkvöldi. Þær áttu engan bíl en sátu á tréverki úti fyrir aftan bílana, vel klæddar undir teppi með útvarpstæki til að geta hlustað á myndina.
22.sep. 2009 - 18:00 Harpa Pétursdóttir

Kjötsúpa og gæðavín á hressilegri opnunarhátíð RIFF - Myndir

Hrafn Gunnlaugsson  kvikmyndaleikstjóri í góðum félagsskap. Alþjóðleg kvikmyndahátíðin RIFF var sett í Háskólabíói 17. september síðastliðinn. Gestir fengu alvöru, íslenska kjötsúpu og margvísleg gæðavín frá Mekka við komuna en það hefur vafalaust fallið vel í kramið. Opnunarmynd hátíðarinnar var eftir hinn 20 ára Kanadabúa, Xavier Dolan, en hún ber nafnið Ég drap mömmu. Dolan var boðið á RIFF en afþakkaði boðið vegna þess að hann er óstjórnlega flughræddur og fer ekki upp í flugvél.
16.sep. 2009 - 17:10

Eru það töfrar? Harry Potter fær sinn eigin skemmtigarð á næsta ári í Orlando

Aðdáendur töframannsins unga, Harry Potter, brosa breitt þessa dagana, því tilkynnt hefur verið að nýr skemmtigarður til heiðurs Potter verði opnaður á vegum Universal Studios í Orlando í Flórída í Bandaríkjunum á næsta ári.
11.sep. 2009 - 14:36 Harpa Pétursdóttir

Bandslam hljómsveitaveisla frumsýnd í kvöld

Tónlistar- og gamanmyndin Bandslam verður frumsýnd í kvöld. Myndin fjallar um Will Burton, sem leikinn er af Gaelan Connell, en hann er einn af þeim sem er annað hvort strítt af samnemendum sínum eða hunsaður og á því nokkuð erfitt uppdráttar í skólanum.
10.sep. 2009 - 17:18 Kaffistofan

Ömurlegur dagur hjá Jóhannesi

Þetta var árans ólukkudagur í lífi myndlistarkennarans Jóhannesar.
09.sep. 2009 - 18:00 Harpa Pétursdóttir

Ljótur sannleikurinn

Leikkonan vinsæla Katherine Heigl fer á kostum í nýju rómantísku gamanmyndinni The Ugly Truth. Í myndinni leikur hún á móti hjartaknúsaranum Gerard Butler en Katherine leikur framleiðanda morgunþáttar sem gengur ekki nægilega vel. Þá er karakter Gerard, sem er mikil karlremba, fenginn til að ganga til liðs við hana og fjalla um samskipti kynjanna í þættinum. Hann tekur þá upp á því að reyna að hjálpa meðstjórnanda sínum að ganga út en henni virðist ekki takast að eignast kærasta. Honum tekst þó misvel til.

01.sep. 2009 - 11:20 Kaffistofan

Heimsfrumsýning á kaffistofunni: Brjáluð fjöldamorð í Hvalfirði!

Kaffistofu Pressunnar hlotnast sá heiður að heimsfrumsýna stutt brot úr íslenska spennutryllinum Reykjavik Whale Watching Massacre, sem frumsýndur verður hér á landi næstkomandi föstudag.

Pressupennarnýjast
Guðmundur Steingrímsson
Guðmundur Steingrímsson - 16.3.2010
Vaknað við vondan draum
Olga Björt Þórðardóttir
Olga Björt Þórðardóttir - 16.3.2010
Frítt inn fyrir alla í heiminum!
Ólafur Arnarson
Ólafur Arnarson - 16.3.2010
Fórnarlömb eða kúlulánakóngar?
Teitur Guðmundsson
Teitur Guðmundsson - 16.3.2010
Að hagnast á heilbrigðisþjónustu
Sölvi Tryggvason
Sölvi Tryggvason - 16.3.2010
Mottu á forsetann!
Fleiri pressupennar


Skipta um leturstærð

Breyta um tungumál



Leit