04. feb. 2010 - 10:39Kaffistofan

Þráir sviðsljósið

Það er óhætt að segja að Steinunni Valdísi Óskarsdóttur, þingmanni Samfylkingar, séu sendar kaldar kveðjur á ritstjórnarsíðu Morgunblaðsins í dag. Þingmaður sem þráir sviðsljósið, er hún titluð þar.

Það er blaðamaðurinn Kolbrún Bergþórsdóttir sem heldur þar um penna og hefur pistilinn með þessum orðum:

„Steinunn Valdís Óskarsdóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, hefur upplýst þjóðina um að hún horfi á sjónvarp og sæki þangað hugmyndir. Einn daginn horfði Steinunn Valdís á sjónvarpsstöð og sá yfirheyrslu yfir Tony Blair, fyrrum forsætisráðherra Bretlands, um aðdraganda innrásarinnar í Írak árið 2003. Hún virðist hafa lifað sig mjög inn í það sem hún sá og steig fram með miklum lúðrablæstri og tilkynnti að brýnt væri að rannsaka ákvörðun íslensku ríkisstjórnarinnar um að styðja innrásina í Írak.


Árið 1999 studdi Samfylkingin loftárásir NATÓ á Júgóslavíu en þær voru án samþykkis Sameinuðu þjóðanna. Það var siðferðilega umdeild ákvörðun en því kýs Steinunn Valdís sennilega að gleyma.“

Segir Kolbrún svo að þeir Davíð Oddsson og Halldór Ásgrímsson hafi lýst yfir stuðningi við innrásina í Írak, en „þar hafði vitfirringurinn Saddam Hussein árum saman dundað við að myrða landsmenn sína og brotið gegn öllum samþykktum Sameinuðu þjóðanna.“ Segir hún þetta vissulega umdeilt en í raun smávægilegra en Steinunn Valdís vilji halda fram því þetta hafi einunigs verið já á pappírsblaði sem enginn velti fyrir sér í umheiminum.

„Nú er næsta víst að flestallir óska þess að aldrei hefði komið til innrásar í Írak. En það er engin ástæða til að kalla íslenska ráðamenn til ábyrgðar fyrir að hafa stutt á pappírsbleðli helstu vinaþjóð Íslendinga, Bandaríkin. En þingmaður sem þráir sviðsljósið æpir á nefnd sem á að ræða gamla ákvörðun.

Þingmaðurinn virðist halda að enn sé góðæri á Íslandi og þess vegna hægt að stofna nefnd um mál sem skiptir ekki lengur nokkru máli. Það væri nær að þingmaðurinn beindi þeirri fyrirspurn til ríkisstjórnarinnar hvað hefði orðið um aðgerðina »sláum skjaldborg um heimilin«. Jafnframt ætti þingmaðurinn að leggja til að stofnuð yrði nefnd til að rannsaka af hverju lítið sem ekkert hefur orðið úr fögrum loforðum velferðarstjórnarinnar til hinna skuldsettu þegna. Slík nefnd ætti vitaskuld að starfa fyrir opnum tjöldum og kalla ráðherra í yfirheyrslur þar sem þeir svara fyrir vanrækslusyndir sínar. Beinar útsendingar ættu að sjálfsögðu að vera frá fundum nefndarinnar. Þjóðin myndi taka slíkri nefnd fagnandi, enda væri þar verið að fjalla um mál sem skiptir landsmenn öllu máli.“

Þetta myndu menn kalla breiðsíðu...

 

Ertu með athyglisverða ábendingu sem gæti átt heima á Kaffistofu Pressunnar?
Sendu okkur póst á kaffistofan@pressan.is - fyllsta trúnaðar gætt.


11.mar. 2010 - 16:28 Kaffistofan

Gunnar þögull sem gröfin

Enn heyrist ekkert frá Gunnari I. Birgissyni, fyrrverandi bæjarstjóra í Kópavogi, um hvort hann ætli að una niðurstöðu prófkjörs sjálfstæðismanna.
10.mar. 2010 - 14:29 Kaffistofan

Nýtt forsetaframboð í bígerð?

Unnið er að því finna mögulega forsetakandídata fari svo að Ólafur Ragnar Grímsson gefi ekki áfram kost á sér í kosningunum eftir tvö ár. Á kaffistofunni heyrist eitt nafn nefnt oftar en önnur...
09.mar. 2010 - 22:26 Kaffistofan

Stjörnuteiknari yfirgefur Moggann fyrir Fréttablaðið

Halldór Baldursson flytur sig um set. Á kaffistofuna berast nú þau stórtíðindi að besti skopmyndateiknari landsins, Halldór Baldursson, hafi nú sagt upp störfum á Morgunblaðinu og ráðið sig á aðalkeppinautinn, Fréttablaðið.
09.mar. 2010 - 13:02 Kaffistofan

Ráðherra kyndir undir andstöðu

Jón Bjarnason er með og á móti sinni eigin ríkisstjórn. Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, má eiga það að hann bindur bagga sína ekki sömu hnútum og samferðarmennirnir.
08.mar. 2010 - 15:06 Kaffistofan

Forsetanum fyrirgefið

Honum var hampað, svo var hann skammaður og nú er honum hampað aftur, bóndanum á Bessastöðum.
08.mar. 2010 - 11:07 Kaffistofan

Ellý Ármanns hætt á Vísi

Það er óhætt að segja að tíðindin úr fjölmiðlaheiminum hafi komið á óvart - Ellý Ármanns er hætt á Vísi.
08.mar. 2010 - 09:14 Kaffistofan

Gáfu fingurinn!

Það er óhætt að segja að skilaboð íslensku þjóðarinnar hafi verið skýr í þjóðaratkvæðagreiðslunni um helgina. Dúndrandi nei, sagði stærsta blað Noregs til að mynda.
07.mar. 2010 - 16:19 Kaffistofan

Lýðskrumarinn á Bessastöðum

Róbert Trausti Árnason, fv forsetaritari segir forsetann lýðskrumara. Enginn vafi er á því að maður helgarinnar er forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, sem synjaði Icesave-lögunum staðfestingar, og hefur síðan baðað sig í sviðsljósi heimspressunnar og talaði máli þjóðarinnar hvar og hvenær sem er.
06.mar. 2010 - 23:00 Kaffistofan

Steingrími og Jóhönnu brugðið

Er Norræna velferðarstjórnin komin að fótum fram? Á kaffistofunni telja menn að engum geti hafi dulist hversu mjög Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra og Steingrími J. Sigfússyni fjármálaráðherra var þrátt fyrir allt brugðið í beinni sjónvarpsútsendingu úr Ráðhúsinu í kvöld þegar fyrstu tölur úr þjóðaratkvæðagreiðslunni um Icesave lágu fyrir.
06.mar. 2010 - 17:48 Kaffistofan

Öðruvísi mér áður brá


05.mar. 2010 - 16:05 Kaffistofan

Éttu úldinn hund...

Éttu úldinn hund, kona, söng Sniglabandið um árið en á kaffistofunni voru menn að horfa til allt öðruvísi matargerðar.
05.mar. 2010 - 09:37 Kaffistofan

Jón Ásgeir og Pálmi hættir að talast við

Pálmi Haraldsson. Magnað viðtal Inga Vilhjálmssonar blaðamanns við athafnamanninn Pálma Haraldsson í helgarblaði DV kom til umræðu á kaffistofunni í morgun. Telja menn að viðtalið sé ákveðinn sigur fyrir Pálma og blaðið sjálft.
04.mar. 2010 - 11:55 Kaffistofan

Ef allt fer á versta veg...

Það er stundum hægt að ímynda sér hvað geti gerst ef allt fari úrskeiðis. En svo gerist það...
03.mar. 2010 - 22:14 Kaffistofan

Ófriður í VG

Stefán Pálsson hefur verið óþreytandi friðarsinni og hernaðarandstæðingur. Herþoturnar fjórar frá danska flughernum sem komnar eru til landsins til þess að sinna loftrýmisgæslu í tengslum við samkomulag Íslands og NATO um loftvarnir landsins, sýna vel að í raun hefur ekkert breyst í utanríkisstefnu þjóðarinnar enda þótt Vinstri grænir, með fjölmarga herstöðvarrandstæðinga og friðarsinna innanborðs, séu nú ráðandi um stjórn landsins.
03.mar. 2010 - 18:22 Kaffistofan

Áfall fyrir Steingrím J.

Steingrímur J. Sigfússon. Þau tíðindi, sem urðu í dag, að Fjármálaeftirlitið hafi tekið yfir stjórn VBS Fjárfestingabanka, er mikið pólitískt áfall fyrir Steingrím J. Sigfússon fjármálaráðherra.

Pressupennarnýjast
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir - 11.3.2010
Sverðaglamur innan stjórnarinnar
Ólafur Arnarson
Ólafur Arnarson - 11.3.2010
VBS fallinn ári eftir ríkisstyrk
Ágúst Borgþór Sverrisson
Ágúst Borgþór Sverrisson - 11.3.2010
Kominn tími til að setja á sig sparkskóna með stáltánni?
Sölvi Tryggvason
Sölvi Tryggvason - 11.3.2010
Opin spurning til nýju bankanna
Fleiri pressupennar


Skipta um leturstærð

Breyta um tungumál



Leit