07. feb. 2010 - 13:10Kaffistofan
Tengsl Milestone og Seðlabankans
Nokkuð var gert úr því á dögunum að nafn Sigurðar Sturlu Pálssonar, framkvæmdastjóra alþjóða- og markaðssviðs Seðlabanka Íslands, hafi verið á 110 manna lista yfir þá sem flugu í einkaþotu Glitnis og Milestone og DV birti á dögunum.
Sigurður Sturla hefur verið meðal hæst settu starfsmanna Seðlabankans um árabil, var meðal annars formaður íslensku sendinefndarinnar sem fór til Moskvu í fyrra vegna viðræðna um risalán sem svo varð aldrei neitt úr.
Á það var m.a. bent að þetta gæti hafa brotið í bága við siðareglur Seðlabankans sem banna viðtöku hverskyns gjafa frá viðskiptavinum, en Sigurður Sturla hefur á hinn bóginn sagt að hér hafi engin viðskipti verið um að ræða, heldur séu hann og Steingrímur Wernersson í Milestone einkavinir og þeir eyði miklum frítíma saman.
Á kaffistofunni rifjaðist upp af þessu tilefni, að viðskipti blandast engu að síður inn í hinn mikla vinskap þeirra Steingríms Wernerssonar og Sigurðar Sturlu Pálssonar. Þeir eiga nefnilega saman einkahlutafélagið Winterhouse, sem stofnað var í mars 2008, og þar er Steingrímur stjórnarformaður og prókúruhafi...
Ertu með athyglisverða ábendingu sem gæti átt heima á Kaffistofu Pressunnar?
Sendu okkur póst á
kaffistofan@pressan.is - fyllsta trúnaðar gætt.
13.mar. 2010 - 09:30
Kaffistofan
Á kaffistofunni er nú fullyrt að margboðuð skýrsla Rannsóknarnefndar Alþingis sé loksins að verða tilbúin og nú séu prentvélarnar byrjaðar að rúlla.
12.mar. 2010 - 14:45
Kaffistofan
Margir eru um hituna í kapphlaupinu um starf dagskrárstjóra Ríkisútvarpsins, eins og sést á listanum yfir umsækjendurna 37 sem Pressan birti í dag.
11.mar. 2010 - 16:28
Kaffistofan
Enn heyrist ekkert frá Gunnari I. Birgissyni, fyrrverandi bæjarstjóra í Kópavogi, um hvort hann ætli að una niðurstöðu prófkjörs sjálfstæðismanna.
10.mar. 2010 - 14:29
Kaffistofan
Unnið er að því finna mögulega forsetakandídata fari svo að Ólafur Ragnar Grímsson gefi ekki áfram kost á sér í kosningunum eftir tvö ár. Á kaffistofunni heyrist eitt nafn nefnt oftar en önnur...
09.mar. 2010 - 22:26
Kaffistofan
Á kaffistofuna berast nú þau stórtíðindi að besti skopmyndateiknari landsins, Halldór Baldursson, hafi nú sagt upp störfum á Morgunblaðinu og ráðið sig á aðalkeppinautinn, Fréttablaðið.
09.mar. 2010 - 13:02
Kaffistofan
Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, má eiga það að hann bindur bagga sína ekki sömu hnútum og samferðarmennirnir.
08.mar. 2010 - 15:06
Kaffistofan
Honum var hampað, svo var hann skammaður og nú er honum hampað aftur, bóndanum á Bessastöðum.
08.mar. 2010 - 11:07
Kaffistofan
Það er óhætt að segja að tíðindin úr fjölmiðlaheiminum hafi komið á óvart - Ellý Ármanns er hætt á Vísi.
08.mar. 2010 - 09:14
Kaffistofan
Það er óhætt að segja að skilaboð íslensku þjóðarinnar hafi verið skýr í þjóðaratkvæðagreiðslunni um helgina. Dúndrandi nei, sagði stærsta blað Noregs til að mynda.
07.mar. 2010 - 16:19
Kaffistofan
Enginn vafi er á því að maður helgarinnar er forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, sem synjaði Icesave-lögunum staðfestingar, og hefur síðan baðað sig í sviðsljósi heimspressunnar og talaði máli þjóðarinnar hvar og hvenær sem er.
06.mar. 2010 - 23:00
Kaffistofan
Á kaffistofunni telja menn að engum geti hafi dulist hversu mjög Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra og Steingrími J. Sigfússyni fjármálaráðherra var þrátt fyrir allt brugðið í beinni sjónvarpsútsendingu úr Ráðhúsinu í kvöld þegar fyrstu tölur úr þjóðaratkvæðagreiðslunni um Icesave lágu fyrir.
06.mar. 2010 - 17:48
Kaffistofan
05.mar. 2010 - 16:05
Kaffistofan
Éttu úldinn hund, kona, söng Sniglabandið um árið en á kaffistofunni voru menn að horfa til allt öðruvísi matargerðar.
05.mar. 2010 - 09:37
Kaffistofan
Magnað viðtal Inga Vilhjálmssonar blaðamanns við athafnamanninn Pálma Haraldsson í helgarblaði DV kom til umræðu á kaffistofunni í morgun. Telja menn að viðtalið sé ákveðinn sigur fyrir Pálma og blaðið sjálft.
04.mar. 2010 - 11:55
Kaffistofan
Það er stundum hægt að ímynda sér hvað geti gerst ef allt fari úrskeiðis. En svo gerist það...