05. feb. 2010 - 09:48Kaffistofan

Svavar og stóru orðin

Svavar Gestsson.

Svavar Gestsson.

Mörg orð og ekki öll falleg hafa fallið í opinberri umræðu að undanförnu um framgöngu Svavars Gestssonar, fyrrverandi ráðherra og sendiherra, sem formanns íslensku samninganefndarinnar í Icesave-málinu gagnvart Bretum og Hollendingum.

Mörgum hefur þótt þar fulllangt gengið, enda ekki öfundsvert hlutverk að taka að sér slíkt verkefni fyrir land og þjóð og nánast vonlaust að gera öllum til hæfis í þeim efnum.

En einmitt af þessum sökum þótti ýmsum á kaffistofunni kyndugt að lesa viðtal DV í dag við Svavar, þar sem hann ræðir Icesave-deilurnar í samfélaginu og skýtur föstum skotum að fjandvini sínum úr Alþýðubandalagspólitíkinni forðum daga; sjálfum forseta Íslands og segir hann beinlínis hafa skaðað ímynd landsins.

Á kaffistofunni er nafn Ólafs Ragnars nefnilega ekki það fyrsta sem mönnum kemur í hug, þegar rætt er um þá sem mögulega hafa skaðað ímynd landsins. Þar þykir mönnum sem ýmsir fleiri af forystumönnum þjóðarinnar gerðu betur í að tala máli þjóðarinnar á alþjóðavettvangi eins og forsetinn gerir nú, í stað þess að gagnrýna framgöngu hans.

Og allra síst finnst mönnum að Svavar Gestsson hafi efni á stóryrðum af þessu tagi...

Ertu með athyglisverða ábendingu sem gæti átt heima á Kaffistofu Pressunnar?
Sendu okkur póst á kaffistofan@pressan.is - fyllsta trúnaðar gætt.


11.mar. 2010 - 16:28 Kaffistofan

Gunnar þögull sem gröfin

Enn heyrist ekkert frá Gunnari I. Birgissyni, fyrrverandi bæjarstjóra í Kópavogi, um hvort hann ætli að una niðurstöðu prófkjörs sjálfstæðismanna.
10.mar. 2010 - 14:29 Kaffistofan

Nýtt forsetaframboð í bígerð?

Unnið er að því finna mögulega forsetakandídata fari svo að Ólafur Ragnar Grímsson gefi ekki áfram kost á sér í kosningunum eftir tvö ár. Á kaffistofunni heyrist eitt nafn nefnt oftar en önnur...
09.mar. 2010 - 22:26 Kaffistofan

Stjörnuteiknari yfirgefur Moggann fyrir Fréttablaðið

Halldór Baldursson flytur sig um set. Á kaffistofuna berast nú þau stórtíðindi að besti skopmyndateiknari landsins, Halldór Baldursson, hafi nú sagt upp störfum á Morgunblaðinu og ráðið sig á aðalkeppinautinn, Fréttablaðið.
09.mar. 2010 - 13:02 Kaffistofan

Ráðherra kyndir undir andstöðu

Jón Bjarnason er með og á móti sinni eigin ríkisstjórn. Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, má eiga það að hann bindur bagga sína ekki sömu hnútum og samferðarmennirnir.
08.mar. 2010 - 15:06 Kaffistofan

Forsetanum fyrirgefið

Honum var hampað, svo var hann skammaður og nú er honum hampað aftur, bóndanum á Bessastöðum.
08.mar. 2010 - 11:07 Kaffistofan

Ellý Ármanns hætt á Vísi

Það er óhætt að segja að tíðindin úr fjölmiðlaheiminum hafi komið á óvart - Ellý Ármanns er hætt á Vísi.
08.mar. 2010 - 09:14 Kaffistofan

Gáfu fingurinn!

Það er óhætt að segja að skilaboð íslensku þjóðarinnar hafi verið skýr í þjóðaratkvæðagreiðslunni um helgina. Dúndrandi nei, sagði stærsta blað Noregs til að mynda.
07.mar. 2010 - 16:19 Kaffistofan

Lýðskrumarinn á Bessastöðum

Róbert Trausti Árnason, fv forsetaritari segir forsetann lýðskrumara. Enginn vafi er á því að maður helgarinnar er forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, sem synjaði Icesave-lögunum staðfestingar, og hefur síðan baðað sig í sviðsljósi heimspressunnar og talaði máli þjóðarinnar hvar og hvenær sem er.
06.mar. 2010 - 23:00 Kaffistofan

Steingrími og Jóhönnu brugðið

Er Norræna velferðarstjórnin komin að fótum fram? Á kaffistofunni telja menn að engum geti hafi dulist hversu mjög Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra og Steingrími J. Sigfússyni fjármálaráðherra var þrátt fyrir allt brugðið í beinni sjónvarpsútsendingu úr Ráðhúsinu í kvöld þegar fyrstu tölur úr þjóðaratkvæðagreiðslunni um Icesave lágu fyrir.
06.mar. 2010 - 17:48 Kaffistofan

Öðruvísi mér áður brá


05.mar. 2010 - 16:05 Kaffistofan

Éttu úldinn hund...

Éttu úldinn hund, kona, söng Sniglabandið um árið en á kaffistofunni voru menn að horfa til allt öðruvísi matargerðar.
05.mar. 2010 - 09:37 Kaffistofan

Jón Ásgeir og Pálmi hættir að talast við

Pálmi Haraldsson. Magnað viðtal Inga Vilhjálmssonar blaðamanns við athafnamanninn Pálma Haraldsson í helgarblaði DV kom til umræðu á kaffistofunni í morgun. Telja menn að viðtalið sé ákveðinn sigur fyrir Pálma og blaðið sjálft.
04.mar. 2010 - 11:55 Kaffistofan

Ef allt fer á versta veg...

Það er stundum hægt að ímynda sér hvað geti gerst ef allt fari úrskeiðis. En svo gerist það...
03.mar. 2010 - 22:14 Kaffistofan

Ófriður í VG

Stefán Pálsson hefur verið óþreytandi friðarsinni og hernaðarandstæðingur. Herþoturnar fjórar frá danska flughernum sem komnar eru til landsins til þess að sinna loftrýmisgæslu í tengslum við samkomulag Íslands og NATO um loftvarnir landsins, sýna vel að í raun hefur ekkert breyst í utanríkisstefnu þjóðarinnar enda þótt Vinstri grænir, með fjölmarga herstöðvarrandstæðinga og friðarsinna innanborðs, séu nú ráðandi um stjórn landsins.
03.mar. 2010 - 18:22 Kaffistofan

Áfall fyrir Steingrím J.

Steingrímur J. Sigfússon. Þau tíðindi, sem urðu í dag, að Fjármálaeftirlitið hafi tekið yfir stjórn VBS Fjárfestingabanka, er mikið pólitískt áfall fyrir Steingrím J. Sigfússon fjármálaráðherra.

Pressupennarnýjast
Ásdís Rán Gunnarsdóttir
Ásdís Rán Gunnarsdóttir - 11.3.2010
Díva mánaðarins - BrianX.com
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir - 11.3.2010
Sverðaglamur innan stjórnarinnar
Ólafur Arnarson
Ólafur Arnarson - 11.3.2010
VBS fallinn ári eftir ríkisstyrk
Ágúst Borgþór Sverrisson
Ágúst Borgþór Sverrisson - 11.3.2010
Kominn tími til að setja á sig sparkskóna með stáltánni?
Fleiri pressupennar


Skipta um leturstærð

Breyta um tungumál



Leit