02. feb. 2010 - 11:24Kaffistofan

Samdráttur í líkhúsi

Íslendingar eru frumleg þjóð og leiðist hreint ekki að fara ótroðnar slóðir í leit að nýjungum á fjölmörgum sviðum. 

Þannig gengur nú á kaffistofunni nýyrðalisti þar sem meðal annars má finna orðið líkhús yfir raðhús og samdráttur yfir að vera saman í fýlu.

Listinn góði lítur annars svona út:

Að þykkna upp          Verða ólétt
Að vera fokheldur     Heimskur
Afhenda                     Höggva af hönd
Almanak                   Nektarnýlenda
Búðingur                   Verslunarmaður
Dráttarkúla               Eista
Flygill                        Flugmaður
Ferðaskrifstofa         Skjalataska
Hleypa brúnum         Hafa hægðir
Iðrast                         Fá niðurgang
Kúlu-legur                 Feitur
Kviðlingur                 Fóstur
Lík-hús                     Raðhús
Lóðarí                       Lyftingar
Maki                        Sminkari
Margrét                   Sí-grenjandi
Meinloka                 Plástur
Pottormar                Spagettí
Sambúð                   Kaupfélag
Samdráttur              Saman í fýlu
Skautahlaupari        Fjöllyndur maður
Undaneldi                Brunarústir
Uppskafningur        Veghefilsstjóri
Upptökuheimili        Stúdíó
Upptakari                Upptökumaður í stúdíói
Úrhellir                    Kanna
Úrslit                       Bilun í úri
Veiðivatn                Rakspíri
Verkefni                 Höfuðverkjatafla
Viskustykki            Heili 
Ertu með athyglisverða ábendingu sem gæti átt heima á Kaffistofu Pressunnar?
Sendu okkur póst á kaffistofan@pressan.is - fyllsta trúnaðar gætt.


16.mar. 2010 - 10:46 Kaffistofan

(Ó)hróður Íslendinga berst víða...

Það er óhætt að segja að það hafi ekki glatt Íslendinginn í Amsterdam þegar allir - og bróðir hans - virtust þekkja Icesave-málið í þaula.
15.mar. 2010 - 15:37 Kaffistofan

Innanhúsnýting í Rétti

Það þarf oft ekki að leita langt yfir skammt og stundum er styttra í tengingarnar en menn halda.  Það kemur vel fram í sjónvarpsþættinum Rétti.
15.mar. 2010 - 09:58 Kaffistofan

Eva María vill bænaskjal gegn auglýsingum

Hátt hlutfall tekna Ríkisútvarpsins kemur af sölu og birtingu auglýsinga og er óhætt að segja að auglýsingarnar standi undir launakostnaði ófárra starfsmanna stofnunarinnar. Samt virðist talað gegn auglýsingum...
14.mar. 2010 - 11:40 Kaffistofan

Þrjár leiðir út úr vandanum

Finnbjörn Hermannson, formaður Samiðnar, hlýtur að eiga ummæli vikunnar.
13.mar. 2010 - 09:30 Kaffistofan

Skýrslan komin í prentun?

Á kaffistofunni er nú fullyrt að margboðuð skýrsla Rannsóknarnefndar Alþingis sé loksins að verða tilbúin og nú séu prentvélarnar byrjaðar að rúlla.
12.mar. 2010 - 14:45 Kaffistofan

Margir um hituna

Þórhallur Gunnarsson var tveggja manna maki. Margir eru um hituna í kapphlaupinu um starf dagskrárstjóra Ríkisútvarpsins, eins og sést á listanum yfir umsækjendurna 37 sem Pressan birti í dag.
11.mar. 2010 - 16:28 Kaffistofan

Gunnar þögull sem gröfin

Enn heyrist ekkert frá Gunnari I. Birgissyni, fyrrverandi bæjarstjóra í Kópavogi, um hvort hann ætli að una niðurstöðu prófkjörs sjálfstæðismanna.
10.mar. 2010 - 14:29 Kaffistofan

Nýtt forsetaframboð í bígerð?

Unnið er að því finna mögulega forsetakandídata fari svo að Ólafur Ragnar Grímsson gefi ekki áfram kost á sér í kosningunum eftir tvö ár. Á kaffistofunni heyrist eitt nafn nefnt oftar en önnur...
09.mar. 2010 - 22:26 Kaffistofan

Stjörnuteiknari yfirgefur Moggann fyrir Fréttablaðið

Halldór Baldursson flytur sig um set. Á kaffistofuna berast nú þau stórtíðindi að besti skopmyndateiknari landsins, Halldór Baldursson, hafi nú sagt upp störfum á Morgunblaðinu og ráðið sig á aðalkeppinautinn, Fréttablaðið.
09.mar. 2010 - 13:02 Kaffistofan

Ráðherra kyndir undir andstöðu

Jón Bjarnason er með og á móti sinni eigin ríkisstjórn. Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, má eiga það að hann bindur bagga sína ekki sömu hnútum og samferðarmennirnir.
08.mar. 2010 - 15:06 Kaffistofan

Forsetanum fyrirgefið

Honum var hampað, svo var hann skammaður og nú er honum hampað aftur, bóndanum á Bessastöðum.
08.mar. 2010 - 11:07 Kaffistofan

Ellý Ármanns hætt á Vísi

Það er óhætt að segja að tíðindin úr fjölmiðlaheiminum hafi komið á óvart - Ellý Ármanns er hætt á Vísi.
08.mar. 2010 - 09:14 Kaffistofan

Gáfu fingurinn!

Það er óhætt að segja að skilaboð íslensku þjóðarinnar hafi verið skýr í þjóðaratkvæðagreiðslunni um helgina. Dúndrandi nei, sagði stærsta blað Noregs til að mynda.
07.mar. 2010 - 16:19 Kaffistofan

Lýðskrumarinn á Bessastöðum

Róbert Trausti Árnason, fv forsetaritari segir forsetann lýðskrumara. Enginn vafi er á því að maður helgarinnar er forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, sem synjaði Icesave-lögunum staðfestingar, og hefur síðan baðað sig í sviðsljósi heimspressunnar og talaði máli þjóðarinnar hvar og hvenær sem er.
06.mar. 2010 - 23:00 Kaffistofan

Steingrími og Jóhönnu brugðið

Er Norræna velferðarstjórnin komin að fótum fram? Á kaffistofunni telja menn að engum geti hafi dulist hversu mjög Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra og Steingrími J. Sigfússyni fjármálaráðherra var þrátt fyrir allt brugðið í beinni sjónvarpsútsendingu úr Ráðhúsinu í kvöld þegar fyrstu tölur úr þjóðaratkvæðagreiðslunni um Icesave lágu fyrir.

Pressupennarnýjast
Sigrún Einars
Sigrún Einars - 16.3.2010
Skammastu þín Sigrún!
Jón Ríkharðsson
Jón Ríkharðsson - 16.3.2010
Duglítil og úrvinda ríkisstjórn
Sölvi Tryggvason
Sölvi Tryggvason - 16.3.2010
Meig utan í lögreglubíl í miðbænum
Ólafur Arnarson
Ólafur Arnarson - 15.3.2010
Hugleiðingar vegna orða Jurshevskis
Ásdís Rán Gunnarsdóttir
Ásdís Rán Gunnarsdóttir - 15.3.2010
Skvísuvaktin - Elín Kristjáns
Fleiri pressupennar


Skipta um leturstærð

Breyta um tungumál



Leit