21.maí 2013 - 15:27
Kaffistofan
Á kaffistofunni barst talið í morgun að umtöluðum pistli Láru Hönnu Einarsdóttur þýðanda sem birtist á Eyjunni um helgina og sneri að starfslokum hennar hjá fjölmiðlafyrirtækinu 365.
15.maí 2013 - 13:05
Kaffistofan
Peningamagn í umferð kom til tals á kaffistofunni í morgun og sú staðreynd að annars vegar er fullyrt þessa dagana að gríðarlegt fjármagn sé í umferð innan gjaldeyrishafta hér á landi og þurfi hlutverk, eigi það ekki að þróast yfir í bólu og hins vegar er kvartað yfir því að lánsfé sé ekki í boði fyrir einstaklinga og fyrirtæki og innspýtingu fjármagns þurfi til að setja af stað hin margfrægu hjól atvinnulífsisns.
13.maí 2013 - 22:02
Kaffistofan
Óhætt er að segja að blaðakonan skemmtilega, Kolbrún Bergþórsdóttir, hafi kramið mörg hjörtu knattspyrnuunnenda í dag með pistli sínum um viðbrögð karlmanna við tíðindunum af brotthvarfi Sir Alex Ferguson.
07.maí 2013 - 09:03
Kaffistofan
Gestir á kaffistofunni hafa ákveðnar skoðanir á umræðunni um skuldamál heimilanna, eins og gildir víst um flesta landsmenn.
04.maí 2013 - 09:39
Kaffistofan
Á kaffistofunni hafa margir undrast hina fjölmörgu biðleiki Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar og er mikið bollalagt um hvað þeir eigi að þýða.
01.maí 2013 - 18:01
Kaffistofan
Á kaffistofuna komu kátir sjálfstæðismenn úr Hafnarfirði, brakandi ferskir úr kosningabaráttu í Suðvesturkjördæmi og telja sig komna með kandídat í bæjarstjórastólinn í Hafnarfirði.
28.apr. 2013 - 20:50
Kaffistofan
Innan Samfylkingarinnar logar nú allt stafna á milli eftir ótrúlega vond kosningaúrslit gærdagsins sem urðu að lokum sannkallaðar hamfarir og fara í sögubækurnar sem mesta fylgishrun stjórnarflokks í Íslandssögunni.
26.apr. 2013 - 14:34
Kaffistofan
Mjög er nú tekist á um atkvæðin á lokaspretti kosningabaráttunnar, eins og nærri má geta. Vinstri megin við miðju er slagurinn óvenju illskeyttur, því framboðin eru mörg og flokkar bæði að berjast við að komast yfir 5% múrinn og einstakir þingmenn að berjast fyrir starfi sínu á næsta kjörtímabili.
24.apr. 2013 - 21:19
Kaffistofan
Sú var tíðin að Sjálfstæðisflokkurinn hélt meirihluta í borgarstjórn hvert kjörtímabilið á fætur öðru og ekki var óalgengt að fylgi flokksins væri á bilinu 50 til 60 prósent.
23.apr. 2013 - 08:08
Kaffistofan
16.apr. 2013 - 10:26
Kaffistofan
Áhugaverða auglýsingu var að finna í einkamáladálki Fréttablaðsins í dag.
13.apr. 2013 - 14:12
Kaffistofan
Hrafn Jökulsson blaðamaður og skákfrömuður er mikill húmoristi, einsog alþjóð veit. Á fésbókarsíðu sinni veltir hann fyrir sér hvað í ósköpunum Bjarni hafi átt við með þessum ummælum sínum og deilir með okkur niðurstöðum sínum, sem hann fékk með aðstoð Google Translate.
10.apr. 2013 - 15:21
Kaffistofan
Á kaffistofuna hafa borist þær fregnir að ný bók eftir Jón Steinar Gunnlaugsson fyrrverandi hæstaréttardómara sé væntanleg fyrir helgi.
05.apr. 2013 - 09:50
Kaffistofan
Það er hægt að segja svo ótalmargt um þau tíðindi sem birtast landsmönnum í hverri skoðanakönnuninni á fætur annarri þessa dagana, en á kaffistofunni bentu menn í morgun á að Bjarni Benediktsson og Sjálfstæðisflokkurinn væru sannarlega ekki í einokunaraðstöðu þessa dagana þegar kemur að krísum og vandræðum.
02.apr. 2013 - 22:54
Kaffistofan
Fylgi Sjálfstæðisflokksins í skoðanakönnunum undanfarna daga hefur valdið mörgum dyggum sjálfstæðismanninum sálarangist og innantökum.
01.apr. 2013 - 19:52
Kaffistofan
Íbúar borgarinnar Árósa á Jótlandi eru ríflega þrjú hundruð þúsund, ef taldir eru með þeir sem búa í nágrenni borgarinnar. Það er svipaður fjöldi og býr á Íslandi.
31.mar. 2013 - 17:27
Kaffistofan
Maður nokkur leit við á kaffistofunni, prúðbúinn á helgum degi og sagðist vera búinn að ákveða hvað hann ætli að kjósa í kosningunum undir lok mánaðarins.
27.mar. 2013 - 19:19
Kaffistofan
Fréttir undanfarinna daga þess efnis að óformlegar viðræður séu hafnar millum stjórnvalda, lífeyrissjóðanna og vogunarsjóða um sölu á bönkunum og uppgjör jöklabréfa hafa vakið mikla athygli.
26.mar. 2013 - 22:46
Kaffistofan
Reyndur maður úr íslensku fjármálalífi leit við á kaffistofunni í dag og hafði sögu að segja.
24.mar. 2013 - 19:22
Kaffistofan
Vestmannaeyingar sem komnir eru til vits og ára kannast vel við Villa banka, Vilhjálm Bjarnason sem lengi var bankastjóri Útvegsbankans í Vestmannaeyjum. Í seinni tíð hefur Vilhjálmur orðið þekktur sem aðjúnkt og síðar lektor við Háskólann, auk þess sem hann hefur lengi verið í forystu fyrir Samtök fjárfesta.
21.mar. 2013 - 07:59
Kaffistofan
Afstaðan til aðildar Íslands að Evrópusambandinu klýfur ekki aðeins flokka, heldur eru einnig (að sjálfsögðu) um hana skiptar skoðanir innan margra fjölskyldna.
18.mar. 2013 - 11:16
Kaffistofan
Í aðdraganda kosninga gera fjölmiðlar ýmislegt til að sýna frambjóðendur í nýju ljósi. Dæmi um þetta er umfjöllun DV í dag, þar sem álitsgjafar tilnefna best klæddu stjórnmálamennina.
15.mar. 2013 - 20:39
Kaffistofan
Dagurinn var býsna fjörlegur hjá framsóknarmönnum og hófst með athyglisverðri snerru í þinghúsinu sem setti flokkinn tímabundið í bullandi vörn. Meðan undið var ofan af því og viðbrögð skipulögð bárust fregnir af tveimur ótrúlega hagfelldum skoðanakönnunum sem gerðu það að verkum að þessi fylgismenn þessa aldna stjórnmálaflokks fara syngjandi kátir inn í helgina.
12.mar. 2013 - 17:25
Kaffistofan
Það er kunnara en frá þurfi að segja, að vinstri menn á Íslandi eru óskaplega viðkvæmir fyrir flestu því sem kemur frá Davíð Oddssyni ritstjóra Morgunblaðsins og fyrrverandi forsætisráðherra.
08.mar. 2013 - 15:33
Kaffistofan
Aðalfundur Stoða (áður FL Group) var haldinn í vikunni.
05.mar. 2013 - 20:14
Kaffistofan
Ljósmynd Einars Þorsteinssonar fréttamanns á Ríkisútvarpinu barst á kaffistofuna nú síðdegis, en hún er tekin á fundi forystumanna stjórnmálaflokkanna í alþingishúsinu þar sem leitast var við að finna lausn á deilum um stjórnarskrármálið og afgreiðslu annarra þingmála.
04.mar. 2013 - 15:13
Kaffistofan
Á kaffistofuna hafa borist þær gleðifregnir, að æfingar séu hafnar á nýjum íslenskum einleik eftir Karl Ágúst, Sigga Sigurjóns og Ladda.
03.mar. 2013 - 15:09
Kaffistofan
Á kaffistofunni rákumst við nýskeð á skemmtilega úrklippu úr blaðinu Faxa frá árinu 1968.
01.mar. 2013 - 09:35
Kaffistofan
Við tökum Framsóknarflokkinn næst fyrir hér á kaffistofunni í almennum pælingum um stöðu flokkanna og framboða í aðdraganda kosninga.
26.feb. 2013 - 12:12
Kaffistofan
Nú þegar stjórnmálaflokkarnir hafa allir haldið landsfundi sína, forysta þeirra fengið nýtt eða endurnýjað umboð og framboðslistar allskonar flokka óðum að taka á sig mynd, er ekki úr vegi að staldra aðeins við og líta yfir sviðið.
24.feb. 2013 - 16:48
Kaffistofan
Sjálfstæðismenn fara býsna brattir heim af landsfundi sem í heildina þykir hafa tekist nokkuð vel. En hvað þýðir útkoman á landsfundinum fyrir hið pólitíska landslag?
22.feb. 2013 - 13:57
Kaffistofan
Bragi bóksali Kristjónsson er með skemmtilegri mönnum og fer oft á kostum á fésbókinni.
21.feb. 2013 - 10:25
Kaffistofan
Sá snjalli tónlistarmaður Reginald Kenneth Dwight, sem þekktari er undir listamannsnafninu Elton John, orti eitt sinn ljóð og lag undir yfirskriftinni: Sorry seems to be the hardest word.
20.feb. 2013 - 17:41
Kaffistofan
Gífurleg reiði mun vera meðal þingmanna Hreyfingarinnar nú þegar allt útlit er fyrir að stjórnarflokkarnir hafi játað sig sigraða í stjórnarskrármálinu.
19.feb. 2013 - 09:38
Kaffistofan
Á kaffistofunni hafa menn sjálfsagt líkt og víðar lengi bundið vonir við að meiri þroska og virðingar fari að gæta í pólitískri umræðu hér á landi.
18.feb. 2013 - 15:00
Kaffistofan
Kristinn H. Gunnarsson fyrrverandi alþingismaður hefur komið sterkur inn í umræður um verðtrygginguna að undanförnu og sakað þá sem vilja hana burt um lýðskrum og vinsældapólitík.
17.feb. 2013 - 16:06
Kaffistofan
Það er kunnara en frá þurfi að segja, að pólitískar skoðanir þurfi ekki að þvælast fyrir fólki í einkalífinu og sem betur fer. Mörg þekkt dæmi eru um pör og hjón sem eru á öndverðum pólitískum meiði, hafa jafnvel boðið sig fram fyrir sitthvorn flokkinn í kosningum.
15.feb. 2013 - 11:40
Kaffistofan
Frosti Sigurjónsson athafnamaður er kominn á fullt í pólitíkinni, enda oddviti Framsóknarflokksins í Reykjavík fyrir komandi alþingiskosningar.
14.feb. 2013 - 11:21
Kaffistofan
Umræðan um skuldavanda heimilanna er ekki ný af nálinni hér á landi, en óneitanlega hefur mörgum þótt heldur lítið hafa orðið úr fyrirheitum stjórnvalda um Skjaldborg fyrir heimilin.
11.feb. 2013 - 15:22
Kaffistofan
Framsóknarmenn eru kátir þessa dagana eftir velheppnað flokksþing og meðbyr í skoðanakönnunum sem sýna fylgi flokksins komið upp í tölur sem ekki hafa sést hjá flokknum um nokkurra ára skeið.
10.feb. 2013 - 10:14
Kaffistofan
Creditinfo birti á dögunum árlegan lista sinn yfir framúrskarandi fyrirtæki. En það eru fyrirtæki sem uppfylla ýmis skilyrði um hagnað, gegnsæi og góðan rekstur.
08.feb. 2013 - 09:17
Kaffistofan
Eins og mál hafa nú þróast í íslenskum stjórnmálum, sýnist allt benda til þess að fyrsta vinstri stjórnin sem nær að sitja heilt kjörtímabil hafi aflað sér slíkra óvinsælda að í kjölfarið fylgi sannkölluð hægri bylgja í stjórnmálunum á vori komanda, eða hægra vor.
04.feb. 2013 - 14:13
Kaffistofan
Árni Páll Árnason nýkjörinn formaður Samfylkingarinnar nýtti fyrsta tækifærið sem hann fékk til að gera upp við stjórnunarstíl Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra, þegar hann sagði tíma óþarfa stríðsreksturs liðinn.
31.jan. 2013 - 09:51
Kaffistofan
Útlit er fyrir töluverða endurnýjun á annars heldur reynslulitlum þingheimi í komandi alþingiskosningum. Einn þeirra sem gæti komist á þing, eða orðið varaþingmaður, er fjölmiðlamaðurinn fyrrverandi, Karl Garðarsson, sem var lengi fréttastjóri á Stöð 2.
30.jan. 2013 - 08:29
Kaffistofan
Það er margt látið flakka í íslenskri umræðu, sem betur hefði verið látið ósagt.
29.jan. 2013 - 15:37
Kaffistofan
Úrskurður EFTA-dómstólsins frá í gær um Icesave og innistæðutryggingakerfið varð mörgum óvænt ánægja, enda voru ýmsir svartsýnir á svo jákvæða niðurstöðu. Aðrir voru þó bjartsýnni og hvöttu alla tíð til þess að dómstólaleiðin yrði farin með þeim rökum að niðurstaða dómstólsins gæti að öllum líkindum ekki orðið verri fyrir hagsmuni Íslands en óhagfelldir samningar við Breta og Hollendinga á háum vöxtum, gerðir undir mikilli pressu frá Alþjóða gjaldeyrissjóðnum.
28.jan. 2013 - 10:59
Kaffistofan
Maður dagsins er án nokkurs vafa Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands sem synjaði svonefndum Icesave-lögum staðfestingar og bar undir þjóðina sem hafnaði þeim með afgerandi hætti. Í kjölfarið var ákveðið að fara svonefnda dómstólaleið, sem lýkur nú með þeirri mögnuðu niðurstöðu að fallist er að öllu leyti á sjónarmið Íslendinga.
23.jan. 2013 - 16:07
Kaffistofan
Nokkra athygli hefur vakið sú líking Dags B. Eggertssonar, varaformanns Samfylkingarinnar, að formannskandídatarnir í Samfylkingunni, þeir Árni Páll Árnason og Guðbjartur Hannesson séu eins og sportbíll og Volvo. Vildi hann með samlíkingunni lýsa yfir stuðningi við Guðbjart sem væri öruggur og pottþéttur eins og sænski eðalvagninn, sem eitt sinn var markaðssettur hér á landi sem fasteign á hjólum.
22.jan. 2013 - 09:18
Kaffistofan
Nú þegar aðeins örfáar vikur eru til kosninga, er ekki úr vegi að rifja eitt og annað upp úr kosningabaráttunni sögulegu fyrir fjórum árum þegar bumbusláttur búsáhaldabyltingarinnar hljómaði enn hvellt í eyrum landsmanna.
19.jan. 2013 - 15:00
Kaffistofan
Gamalreyndur hægri maður, sem komið hefur við á kaffistofunni nánast hvern einasta dag frá opnun, sagði öðrum fastagestum í dag að taka bæri skoðanakönnunum með hæfilegum fyrirvara þessa dagana, enda enn langt til kosninga og margt eftir að gerast enn.