03. feb. 2010 - 12:05Kaffistofan
Hver rannsakar umboðsmann?

Tryggvi Gunnarsson umboðsmaður Alþingis. Mynd: Maggi
Merk grein sem birtist í Morgunblaðinu í fyrri viku eftir Bergþór Ólason, fjármálastjóra og fyrrverandi aðstoðarmann ráðherra, fékk minni athygli en efni stóðu til.
Í greininni vék Bergþór athygli manna að hinni umtöluðu Rannsóknarnefnd Alþingis sem á að fjalla um ástæður íslenska efnahagshrunsins, ekki síst þátt stjórnsýslunnar í henni. Og hann bendir á giska athyglisverðan punkt, sem ekki hefur komið mikið til umræðu fram að þessu:
En hætt er við að ein eftirlitsstofnun ríkisins, og sú sem einna mestar hefur heimildirnar, verði lítt skoðuð að sinni. Samkvæmt lögum nr. 85/1997 um umboðsmann alþingis skal umboðsmaður hafa eftirlit með allri stjórnsýslu ríkisins og gæta þess að hún fari fram í samræmi við lög og vandaða stjórnsýsluhætti. Umboðsmaður er ekki bundinn við kvartanir borgaranna heldur getur tekið mál upp að eigin frumkvæði, sjái hann ástæðu til þess. Umboðsmaður hefur afar víðtækar heimildir við eftirlitsstörf sín og getur samkvæmt lögunum „krafið stjórnvöld um þær upplýsingar og skriflegar skýringar sem hann þarfnast vegna starfs síns, þar á meðal getur hann krafist afhendingar á skýrslum, skjölum, bókunum og öllum öðrum gögnum sem mál snerta.“ Þá getur hann kallað starfsmenn stjórnsýslunnar á sinn fund og fengið frá þeim upplýsingar og skýringar sem varða einstök mál og á frjálsan aðgang að öllum starfsstöðvum stjórnvalda til athugana í þágu starfs síns.
Bergþór bendir á að umboðsmaður Alþingis hafi þannig mikil úrræði og geti gert Alþingi og stjórnvöldum viðvart verði hann þess áskynja að ekki sé farið að lögum og reglum í stjórnsýslunni.
En svo bætir hann við:
Ekki veit ég hvort embætti umboðsmanns alþingis svaf á verðinum í aðdraganda bankahrunsins. Ég veit ekki hvort ætlast hefði mátt til þess að umboðsmaður hefði beitt eftirlitsheimildum sínum varðandi þá aðila stjórnsýslunnar sem hafa áttu auga með fjármálafyrirtækjum. Vel mætti segja mér að ekkert sé við umboðsmann að sakast, þrátt fyrir eftirlitshlutverk og eftirlitsheimildir hans. En hitt er ljóst að væntanleg álitsgerð rannsóknarnefndar alþingis mun ekki taka af neinn vafa um það því að af snilligáfu sinni ákvað alþingi að setja umboðsmann alþingis einmitt í nefndina sem sett var til höfuðs stjórnsýslunni, og „eftirlitsstofnunum“ alveg sérstaklega. Það var óráð, með fullri virðingu fyrir núverandi umboðsmanni alþingis og annáluðum hæfileikum hans við að þefa uppi jafnvel smæstu aðfinnsluefni stjórnsýsluvaldshafa.
Í framhaldi af þessum orðum Bergþórs spyrja menn á kaffistofunni: Er líklegt að Rannsóknarnefnd Alþingis muni í skýrslu sinni finna að aðgæsluleysi Umboðsmanns Alþingis í aðdraganda bankahrunsins?
Ertu með athyglisverða ábendingu sem gæti átt heima á Kaffistofu Pressunnar?
Sendu okkur póst á
kaffistofan@pressan.is - fyllsta trúnaðar gætt.
02.sep. 2010 - 18:31
Kaffistofan
Á kaffistofunni fyrr í dag var bent á að Íslandi sé í dag stjórnað af stjórnmálaafli sem margir héldu í raun að væri komið til feðra sinna, nefnilega Alþýðubandalaginu.
02.sep. 2010 - 11:40
Kaffistofan
Alþýðubandalagið er dautt. Lengi lifi Alþýðubandalagið!
02.sep. 2010 - 10:15
Kaffistofan
Gestur með fálka í barmi leit við í morgunte. Hann grúfði sig yfir nýprentað Viðskiptablaðið, sagði svo upp úr eins manns hljóði:
01.sep. 2010 - 21:26
Kaffistofan
Hún leyfir Kristjáni Möller að sprikla í snörunni. Nú segir fréttastofa RÚV blákalt að gríðarleg óánægja sé á landsbyggðinni með að Kristján eigi að axla sín skinn! Einmitt það?
01.sep. 2010 - 09:32
Kaffistofan
Hver er þessi Oddný Harðardóttir sem allt í einu er orðin ráðherrakandídat? spurði ungur og fávís gestur á kaffistofunni. Annar eldri og ívið gleggri gestur okkar gat svarað því:
31.ágú. 2010 - 19:45
Kaffistofan
Sjáandinn var kampakátur á kaffistofunni, enda hefur hann reynst sannspár með afbrigðum síðustu daga.
31.ágú. 2010 - 15:53
Kaffistofan
Það er kunnara en frá þurfi að segja að æðstu yfirmenn Ríkisútvarpsins hafi einfaldan smekk þegar kemur að framkomu og klæðaburði og velji aðeins það besta.
31.ágú. 2010 - 11:20
Kaffistofan
Spaugstofumenn hafa óvænt boðað til blaðamannafundar í sjálfu Þjóðmenningarhúsinu kl. 14 í dag.
31.ágú. 2010 - 08:33
Kaffistofan
Menn velta sér nú mikið upp úr þeirri stöðu sem komin er upp í Högum.
30.ágú. 2010 - 12:59
Kaffistofan
Þeir sem sækja messur þekkja vel þegar tónað er: Dýrð sé Guði í upphæðum. Færri tengja þetta hins vegar við fjármagn.
29.ágú. 2010 - 16:09
Kaffistofan
Sjáandinn leit við á kaffistofunni, strauk regndropa af kristalskúlunni, og sagði:
28.ágú. 2010 - 08:17
Kaffistofan
Eins og fram hefur komið á Pressunni síðustu daga, er nokkur titringur meðal starfsmanna Landsbanka Íslands með það óvænta útspil Steinþórs Pálssonar bankastjóra að gjörbreyta skipuriti bankans, segja upp öllum framkvæmdastjórnum og auglýsa stöður þeirra að nýju lausar til umsóknar.
27.ágú. 2010 - 13:31
Kaffistofan
Lífið er skrýtið. Maðurinn sem vildi ekki verða biskup vill ekki hætta að vera biskup.
25.ágú. 2010 - 17:11
Kaffistofan
Gamalreyndur pólitíkus leit við á kaffistofunni, fékk sér molakaffi, og sagði heitustu fréttirnar úr stjórnarráðinu. Þær snerust ekki um hvaða ráðherrar verða reknir um næstu helgi, og ekki heldur um þukl og þreifingar bak við tjöldin, heldur...
25.ágú. 2010 - 10:13
Kaffistofan
Þeir geta verið afar skemmtilegir frasarnir og hvernig þeim er pakkað inn til að þeir verði ekki umdeildir. Stjórnmálamenn eru sérfræðingar í einmitt þessu.