27. jan. 2010 - 09:26
Hið smærra og stærra samhengi
Mjög er nú rætt um bága fjárhagsstöðu sveitarfélagsins Álftaness og greiðsluþrot þess sem mun óumflýjanlegt, verði ekki gripið til bráðaaðgerða á ótal sviðum.
Staðan er einhvern veginn svona: Sveitarfélagið hefur staðið í gríðarlegum fjárfestingum á undanförnum árum; augljóslega offjárfest gífurlega miðað við sjálfbært tekjustreymi og sýpur nú seyðið af því, auk þess sem erlend lán hafa rokið upp úr öllu valdi.
Gjaldþrot blasir því við að óbreyttu; engir peningar eru til í kassanum til að borga laun eða lán og málið komið inn á borð ríkisstjórnarinnar. Sameining við stærra nágrannasveitarfélag blasir við; eftirlitsnefnd sveitarfélaga og samgönguráðuneytið krefjast hærri skattprósentu, aukinna tekna með hærri gjöldum og niðurskurðar upp á 300 milljónir króna næstu árin. Stjórnmálamenn í sveitarfélaginu segja það óframkvæmanlegt, velferðarkerfið rústist við það og fólk muni flytja brott í stórum stíl.
Tökum þetta saman í eina stutta setningu:
Sveitarfélag hefur offjárfest stórkostlega. Peningar eru búnir, gjaldþrot blasir við. Eftirlitsnefnd hefur málið til meðferðar og krefst niðurskurðar á öllum sviðum og aukinna tekna. Nágrannasveitarfélög hafa verið beðin um aðstoð. Biðlað er til ríkisstjórnarinnar um að koma til bjargar.
Förum svo í léttan samkvæmisleik: Tökum sveitarfélag út og setjum Ísland í staðinn. Eftirlitsnefnd fellur jafnframt brott og inn kemur Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn. Nágrannasveitarfélög út, inn með nágrannalöndin. Og út með ríkisstjórnina og inn með Evrópusambandið.
Hvernig hljómar setningin þá?
Ísland hefur offjárfest stórkostlega. Peningar eru búnir, gjaldþrot blasir við. Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn hefur málið til meðferðar og krefst niðurskurðar á öllum sviðum og aukinna tekna. Nágrannalöndin hafa verið beðin um aðstoð. Biðlað er til Evrópusambandsins um að koma til bjargar.
Hljómar kunnuglega, ekki satt?
Ertu með athyglisverða ábendingu sem gæti átt heima á Kaffistofu Pressunnar?
Sendu okkur póst á
kaffistofan@pressan.is - fyllsta trúnaðar gætt.
12.mar. 2010 - 14:45
Kaffistofan
Margir eru um hituna í kapphlaupinu um starf dagskrárstjóra Ríkisútvarpsins, eins og sést á listanum yfir umsækjendurna 37 sem Pressan birti í dag.
11.mar. 2010 - 16:28
Kaffistofan
Enn heyrist ekkert frá Gunnari I. Birgissyni, fyrrverandi bæjarstjóra í Kópavogi, um hvort hann ætli að una niðurstöðu prófkjörs sjálfstæðismanna.
10.mar. 2010 - 14:29
Kaffistofan
Unnið er að því finna mögulega forsetakandídata fari svo að Ólafur Ragnar Grímsson gefi ekki áfram kost á sér í kosningunum eftir tvö ár. Á kaffistofunni heyrist eitt nafn nefnt oftar en önnur...
09.mar. 2010 - 22:26
Kaffistofan
Á kaffistofuna berast nú þau stórtíðindi að besti skopmyndateiknari landsins, Halldór Baldursson, hafi nú sagt upp störfum á Morgunblaðinu og ráðið sig á aðalkeppinautinn, Fréttablaðið.
09.mar. 2010 - 13:02
Kaffistofan
Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, má eiga það að hann bindur bagga sína ekki sömu hnútum og samferðarmennirnir.
08.mar. 2010 - 15:06
Kaffistofan
Honum var hampað, svo var hann skammaður og nú er honum hampað aftur, bóndanum á Bessastöðum.
08.mar. 2010 - 11:07
Kaffistofan
Það er óhætt að segja að tíðindin úr fjölmiðlaheiminum hafi komið á óvart - Ellý Ármanns er hætt á Vísi.
08.mar. 2010 - 09:14
Kaffistofan
Það er óhætt að segja að skilaboð íslensku þjóðarinnar hafi verið skýr í þjóðaratkvæðagreiðslunni um helgina. Dúndrandi nei, sagði stærsta blað Noregs til að mynda.
07.mar. 2010 - 16:19
Kaffistofan
Enginn vafi er á því að maður helgarinnar er forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, sem synjaði Icesave-lögunum staðfestingar, og hefur síðan baðað sig í sviðsljósi heimspressunnar og talaði máli þjóðarinnar hvar og hvenær sem er.
06.mar. 2010 - 23:00
Kaffistofan
Á kaffistofunni telja menn að engum geti hafi dulist hversu mjög Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra og Steingrími J. Sigfússyni fjármálaráðherra var þrátt fyrir allt brugðið í beinni sjónvarpsútsendingu úr Ráðhúsinu í kvöld þegar fyrstu tölur úr þjóðaratkvæðagreiðslunni um Icesave lágu fyrir.
06.mar. 2010 - 17:48
Kaffistofan
05.mar. 2010 - 16:05
Kaffistofan
Éttu úldinn hund, kona, söng Sniglabandið um árið en á kaffistofunni voru menn að horfa til allt öðruvísi matargerðar.
05.mar. 2010 - 09:37
Kaffistofan
Magnað viðtal Inga Vilhjálmssonar blaðamanns við athafnamanninn Pálma Haraldsson í helgarblaði DV kom til umræðu á kaffistofunni í morgun. Telja menn að viðtalið sé ákveðinn sigur fyrir Pálma og blaðið sjálft.
04.mar. 2010 - 11:55
Kaffistofan
Það er stundum hægt að ímynda sér hvað geti gerst ef allt fari úrskeiðis. En svo gerist það...
03.mar. 2010 - 22:14
Kaffistofan
Herþoturnar fjórar frá danska flughernum sem komnar eru til landsins til þess að sinna loftrýmisgæslu í tengslum við samkomulag Íslands og NATO um loftvarnir landsins, sýna vel að í raun hefur ekkert breyst í utanríkisstefnu þjóðarinnar enda þótt Vinstri grænir, með fjölmarga herstöðvarrandstæðinga og friðarsinna innanborðs, séu nú ráðandi um stjórn landsins.