05. feb. 2010 - 21:29Kaffistofan

Framsókn í stjórn?

Allt hefur leikið á reiðiskjálfi í pólitíkinni í dag, ekki síst seinni partinn, eftir að hávær orðrómur tók að berast um að Framsóknarflokkurinn væri á leið í ríkisstjórn og myndi taka þar sæti við hlið Samfylkingarinnar og Vinstri grænna.

Ekki síst hafa forkólfar Sjálfstæðisflokksins haft af þessu miklar áhyggjur, enda hefur góð samstaða myndast millum stjórnarandstöðuflokkanna í Icesave og fleiri málum og ljóst að mikið áfall væri fyrir flokkinn, ef hann einangraðist einn í stjórnarandstöðu.

Framsóknarmenn sem komu við á kaffistofunni segja hins vegar að ekkert sé hæft í þessum orðrómi; hann sé einungis til marks um bágt ástand á stjórnarheimilinu og rekja spunann til Samfylkingar sem vilji koma illu til leiðar innan stjórnarandstöðunnar og veikja höfuðandstæðinginn, Sjálfstæðisflokkinn.

Rifja þeir upp að um áramótin hafi gengið sú saga fjöllum hærra að Samfylkingin og Sjálfstæðisflokkurinn væru að hugsa um að endurnýja sín heit og mynda að nýju ríkisstjórn án þess að nokkur fótur hafi verið fyrir slíku, en það hafi verið lítt dulbúin hótun til Vinstri grænna um að halda sér á mottunni í stjórnarsamstarfinu.

Hvað á endanum verður, mun tíminn einn leiða í ljós, en þó er ljóst að vandlega verður fylgst með ferðum forkólfa stjórnarflokkanna á næstunni, enda gera menn ráð fyrir að dregið geti til tíðinda með skömmum fyrirvara og útiloka ekki neitt í því sambandi...

Ertu með athyglisverða ábendingu sem gæti átt heima á Kaffistofu Pressunnar?
Sendu okkur póst á kaffistofan@pressan.is - fyllsta trúnaðar gætt.



02.sep. 2010 - 18:31 Kaffistofan

Gera kratarnir uppreisn?

Á kaffistofunni fyrr í dag var bent á að Íslandi sé í dag stjórnað af stjórnmálaafli sem margir héldu í raun að væri komið til feðra sinna, nefnilega Alþýðubandalaginu.
02.sep. 2010 - 11:40 Kaffistofan

Alþýðubandalagið lifi!

Alþýðubandalagið er dautt. Lengi lifi Alþýðubandalagið!
02.sep. 2010 - 10:15 Kaffistofan

Dýrar spurningar?

Gestur með fálka í barmi leit við í morgunte. Hann grúfði sig yfir nýprentað Viðskiptablaðið, sagði svo upp úr eins manns hljóði:
01.sep. 2010 - 21:26 Kaffistofan

Hún Jóhanna átti að bregða hnífnum

Hún leyfir Kristjáni Möller að sprikla í snörunni. Nú segir fréttastofa RÚV blákalt að gríðarleg óánægja sé á landsbyggðinni með að Kristján eigi að axla sín skinn! Einmitt það?
01.sep. 2010 - 09:32 Kaffistofan

Hver er þessi Oddný?

Hver er þessi Oddný Harðardóttir sem allt í einu er orðin ráðherrakandídat? spurði ungur og fávís gestur á kaffistofunni. Annar eldri og ívið gleggri gestur okkar gat svarað því:
31.ágú. 2010 - 19:45 Kaffistofan

Nú er stand á Goddastöðum

Sjáandinn var kampakátur á kaffistofunni, enda hefur hann reynst sannspár með afbrigðum síðustu daga.
31.ágú. 2010 - 15:53 Kaffistofan

Karlinn er helvíti reffilegur

Það er kunnara en frá þurfi að segja að æðstu yfirmenn Ríkisútvarpsins hafi einfaldan smekk þegar kemur að framkomu og klæðaburði og velji aðeins það besta.
31.ágú. 2010 - 11:20 Kaffistofan

Spaugstofan á Stöð 2?

Spaugstofumenn hafa óvænt boðað til blaðamannafundar í sjálfu Þjóðmenningarhúsinu kl. 14 í dag.
31.ágú. 2010 - 08:33 Kaffistofan

Jóhannes... í Bónus... í Færeyjum?

Menn velta sér nú mikið upp úr þeirri stöðu sem komin er upp í Högum. 
30.ágú. 2010 - 12:59 Kaffistofan

Dýrð sé Guði í háum upphæðum

Þeir sem sækja messur þekkja vel þegar tónað er: Dýrð sé Guði í upphæðum.  Færri tengja þetta hins vegar við fjármagn.
29.ágú. 2010 - 16:09 Kaffistofan

Úr kristalskúlu sjáandans

Sjáandinn leit við á kaffistofunni, strauk regndropa af kristalskúlunni, og sagði:
28.ágú. 2010 - 08:17 Kaffistofan

Guðfinna í Landsbankann?

Eins og fram hefur komið á Pressunni síðustu daga, er nokkur titringur meðal starfsmanna Landsbanka Íslands með það óvænta útspil Steinþórs Pálssonar bankastjóra að gjörbreyta skipuriti bankans, segja upp öllum framkvæmdastjórnum og auglýsa stöður þeirra að nýju lausar til umsóknar.
27.ágú. 2010 - 13:31 Kaffistofan

Vildi ekki verða, vill ekki hætta...

Lífið er skrýtið. Maðurinn sem vildi ekki verða biskup vill ekki hætta að vera biskup.
25.ágú. 2010 - 17:11 Kaffistofan

Skjaldborgin um stjórnarráðið...

Gamalreyndur pólitíkus leit við á kaffistofunni, fékk sér molakaffi, og sagði heitustu fréttirnar úr stjórnarráðinu. Þær snerust ekki um hvaða ráðherrar verða reknir um næstu helgi, og ekki heldur um þukl og þreifingar bak við tjöldin, heldur...
25.ágú. 2010 - 10:13 Kaffistofan

Að kalla það réttu nafni

Þeir geta verið afar skemmtilegir frasarnir og hvernig þeim er pakkað inn til að þeir verði ekki umdeildir. Stjórnmálamenn eru sérfræðingar í einmitt þessu.

Pressupennarnýjast
Björg Magnúsdóttir
Björg Magnúsdóttir - 02.9.2010
DV, þú stöðvar mig ekki!
Margrét Ó. Morgan
Margrét Ó. Morgan - 02.9.2010
Njóta þess að vera saman
Eiríkur Bergmann
Eiríkur Bergmann - 02.9.2010
Trúverðugleikinn fer líka
Kolbrún Baldursdóttir
Kolbrún Baldursdóttir - 02.9.2010
Hvatning til skóla: Einelti líðst ekki!
Fleiri pressupennar


Skipta um leturstærð

Breyta um tungumál



Leit