04. feb. 2010 - 13:02Kaffistofan
Átti Össur að éta bréfin?

Átti Össur að éta bréfin? spyr Andrés Magnússon. Mynd: Pressan/Gunnar
Nokkra athygli hefur vakið sú uppljóstrun Viðskiptablaðsins í dag, að Össur Skarphéðinsson þáverandi iðnaðarráðherra hafi selt stofnfjárhluti sína í SPRON í opnum glugga á gráa markaðnum síðsumars 2007 og grætt á því þrjátíu milljónir króna.
Það eru ekki ný tíðindi að Össur hafi átt stofnfé í SPRON, það hefur margoft komið fram og hann upplýsir sjálfur á Pressunni í dag að hann hafi eignast þau sem aðstoðarforstjóri Reykvískrar tryggingar seinni part níunda áratugar síðustu aldar og æ síðan tekið þátt í stofnfjáraukningu og litið á þetta sem lífeyrissjóð sinn og fjölskyldu sinnar.
Andrés Magnússon, blaðamaður á Viðskiptablaðinu, er einhver þekktasti hægri maður landsins og ekki beinlínis þekktur fyrir að vera einhver sérstakur stuðningsmaður ráðherra Samfylkingarinnar, nema síður væri. Andrés fjallar um þessi mál á Fésbókinni í dag og skrifar:
Er þetta kannski íslenska heilkennið? Að hneykslið sé að ráðherra skuli ekki hafa tapað? Áður hafði hann sætt gagnrýni fyrir að eiga hlutinn, svo Össur seldi áður en bréfin voru skráð á markað (en hann hafði tekið við ráðherradómi nokkrum vikum áður) og þá er það líka gagnrýnt. Hann var ekki innherji í neinum skilningi..., svo ekki er það málið. En hvað átti karlgreyið að gera, svo öllum líkaði? Éta bréfin?
Nokkrir vinir og félagar Andrésar fjalla í kjölfarið um málið og einn þeirra, Þórarinn Stefánsson netfrömuður með meiru, bætir við:
Davíð Scheving Thorsteinsson lýsti þessu svo vel; Ef þú tapar ertu aumingi, ef þú græðir ertu þjófur.
Ertu með athyglisverða ábendingu sem gæti átt heima á Kaffistofu Pressunnar?
Sendu okkur póst á
kaffistofan@pressan.is - fyllsta trúnaðar gætt.
02.sep. 2010 - 18:31
Kaffistofan
Á kaffistofunni fyrr í dag var bent á að Íslandi sé í dag stjórnað af stjórnmálaafli sem margir héldu í raun að væri komið til feðra sinna, nefnilega Alþýðubandalaginu.
02.sep. 2010 - 11:40
Kaffistofan
Alþýðubandalagið er dautt. Lengi lifi Alþýðubandalagið!
02.sep. 2010 - 10:15
Kaffistofan
Gestur með fálka í barmi leit við í morgunte. Hann grúfði sig yfir nýprentað Viðskiptablaðið, sagði svo upp úr eins manns hljóði:
01.sep. 2010 - 21:26
Kaffistofan
Hún leyfir Kristjáni Möller að sprikla í snörunni. Nú segir fréttastofa RÚV blákalt að gríðarleg óánægja sé á landsbyggðinni með að Kristján eigi að axla sín skinn! Einmitt það?
01.sep. 2010 - 09:32
Kaffistofan
Hver er þessi Oddný Harðardóttir sem allt í einu er orðin ráðherrakandídat? spurði ungur og fávís gestur á kaffistofunni. Annar eldri og ívið gleggri gestur okkar gat svarað því:
31.ágú. 2010 - 19:45
Kaffistofan
Sjáandinn var kampakátur á kaffistofunni, enda hefur hann reynst sannspár með afbrigðum síðustu daga.
31.ágú. 2010 - 15:53
Kaffistofan
Það er kunnara en frá þurfi að segja að æðstu yfirmenn Ríkisútvarpsins hafi einfaldan smekk þegar kemur að framkomu og klæðaburði og velji aðeins það besta.
31.ágú. 2010 - 11:20
Kaffistofan
Spaugstofumenn hafa óvænt boðað til blaðamannafundar í sjálfu Þjóðmenningarhúsinu kl. 14 í dag.
31.ágú. 2010 - 08:33
Kaffistofan
Menn velta sér nú mikið upp úr þeirri stöðu sem komin er upp í Högum.
30.ágú. 2010 - 12:59
Kaffistofan
Þeir sem sækja messur þekkja vel þegar tónað er: Dýrð sé Guði í upphæðum. Færri tengja þetta hins vegar við fjármagn.
29.ágú. 2010 - 16:09
Kaffistofan
Sjáandinn leit við á kaffistofunni, strauk regndropa af kristalskúlunni, og sagði:
28.ágú. 2010 - 08:17
Kaffistofan
Eins og fram hefur komið á Pressunni síðustu daga, er nokkur titringur meðal starfsmanna Landsbanka Íslands með það óvænta útspil Steinþórs Pálssonar bankastjóra að gjörbreyta skipuriti bankans, segja upp öllum framkvæmdastjórnum og auglýsa stöður þeirra að nýju lausar til umsóknar.
27.ágú. 2010 - 13:31
Kaffistofan
Lífið er skrýtið. Maðurinn sem vildi ekki verða biskup vill ekki hætta að vera biskup.
25.ágú. 2010 - 17:11
Kaffistofan
Gamalreyndur pólitíkus leit við á kaffistofunni, fékk sér molakaffi, og sagði heitustu fréttirnar úr stjórnarráðinu. Þær snerust ekki um hvaða ráðherrar verða reknir um næstu helgi, og ekki heldur um þukl og þreifingar bak við tjöldin, heldur...
25.ágú. 2010 - 10:13
Kaffistofan
Þeir geta verið afar skemmtilegir frasarnir og hvernig þeim er pakkað inn til að þeir verði ekki umdeildir. Stjórnmálamenn eru sérfræðingar í einmitt þessu.