29. apr. 2009 - 08:33Kaffistofan
Ármann: The Accidental Billionaire
Á kaffistofuna hefur nú borist vinnuheitið á bókinni sem Ármann
Þorvaldsson, fyrrverandi forstjóri Kaupþings Singer & Friedlander í
London, situr nú sveittur við að skrifa.
Ármann, eða Manni eins og hann er gjarnan kallaður, hefur gert samning um útgáfu bókarinnar í Bretlandi, en þar var bankinn undir hans stjórn afar umsvifamikill á seinustu árum og ekki síst frægur fyrir að sinna þörfum ríka og fína fólksins, eins og það er kallað. Líklegt má telja að í þann heim sæki bókarhöfundur titil hinnar nýju bókar, en hann er The Accidental Billionaire.
Ekki er þó ljóst hvort um endanlegt heiti bókarinnar er að ræða, en þetta er að minnsta kosti vinnuheiti hennar.
Verður án efa fróðlegt að lesa um uppbyggingu bankans og störf Ármanns fyrir Kaupþing í bókinni, en ekki síður skemmtisögur sem munu vera margar af samskiptum hans við marga af frægustu milljarðamæringum veraldar.
Gert er ráð fyrir að bók Ármanns komi út síðsumars eða í haust...
Ertu með athyglisverða ábendingu sem gæti átt heima á Kaffistofu Pressunnar?
Sendu okkur póst á
kaffistofan@pressan.is - fyllsta trúnaðar gætt.
02.sep. 2010 - 18:31
Kaffistofan
Á kaffistofunni fyrr í dag var bent á að Íslandi sé í dag stjórnað af stjórnmálaafli sem margir héldu í raun að væri komið til feðra sinna, nefnilega Alþýðubandalaginu.
02.sep. 2010 - 11:40
Kaffistofan
Alþýðubandalagið er dautt. Lengi lifi Alþýðubandalagið!
02.sep. 2010 - 10:15
Kaffistofan
Gestur með fálka í barmi leit við í morgunte. Hann grúfði sig yfir nýprentað Viðskiptablaðið, sagði svo upp úr eins manns hljóði:
01.sep. 2010 - 21:26
Kaffistofan
Hún leyfir Kristjáni Möller að sprikla í snörunni. Nú segir fréttastofa RÚV blákalt að gríðarleg óánægja sé á landsbyggðinni með að Kristján eigi að axla sín skinn! Einmitt það?
01.sep. 2010 - 09:32
Kaffistofan
Hver er þessi Oddný Harðardóttir sem allt í einu er orðin ráðherrakandídat? spurði ungur og fávís gestur á kaffistofunni. Annar eldri og ívið gleggri gestur okkar gat svarað því:
31.ágú. 2010 - 19:45
Kaffistofan
Sjáandinn var kampakátur á kaffistofunni, enda hefur hann reynst sannspár með afbrigðum síðustu daga.
31.ágú. 2010 - 15:53
Kaffistofan
Það er kunnara en frá þurfi að segja að æðstu yfirmenn Ríkisútvarpsins hafi einfaldan smekk þegar kemur að framkomu og klæðaburði og velji aðeins það besta.
31.ágú. 2010 - 11:20
Kaffistofan
Spaugstofumenn hafa óvænt boðað til blaðamannafundar í sjálfu Þjóðmenningarhúsinu kl. 14 í dag.
31.ágú. 2010 - 08:33
Kaffistofan
Menn velta sér nú mikið upp úr þeirri stöðu sem komin er upp í Högum.
30.ágú. 2010 - 12:59
Kaffistofan
Þeir sem sækja messur þekkja vel þegar tónað er: Dýrð sé Guði í upphæðum. Færri tengja þetta hins vegar við fjármagn.
29.ágú. 2010 - 16:09
Kaffistofan
Sjáandinn leit við á kaffistofunni, strauk regndropa af kristalskúlunni, og sagði:
28.ágú. 2010 - 08:17
Kaffistofan
Eins og fram hefur komið á Pressunni síðustu daga, er nokkur titringur meðal starfsmanna Landsbanka Íslands með það óvænta útspil Steinþórs Pálssonar bankastjóra að gjörbreyta skipuriti bankans, segja upp öllum framkvæmdastjórnum og auglýsa stöður þeirra að nýju lausar til umsóknar.
27.ágú. 2010 - 13:31
Kaffistofan
Lífið er skrýtið. Maðurinn sem vildi ekki verða biskup vill ekki hætta að vera biskup.
25.ágú. 2010 - 17:11
Kaffistofan
Gamalreyndur pólitíkus leit við á kaffistofunni, fékk sér molakaffi, og sagði heitustu fréttirnar úr stjórnarráðinu. Þær snerust ekki um hvaða ráðherrar verða reknir um næstu helgi, og ekki heldur um þukl og þreifingar bak við tjöldin, heldur...
25.ágú. 2010 - 10:13
Kaffistofan
Þeir geta verið afar skemmtilegir frasarnir og hvernig þeim er pakkað inn til að þeir verði ekki umdeildir. Stjórnmálamenn eru sérfræðingar í einmitt þessu.