25. feb. 2010 - 08:43Kaffistofan
Ákveðið á fundi í New York

Ólafur var á launum hjá Mogganum á þriðjudag en Fréttablaðinu í gær. Pressan
Ákaflega lítil gleði mun vera í herbúðum Árvakurs hf., útgáfufélags Morgunblaðsins, með ráðningu nýs ritstjóra Fréttablaðsins, Ólafs Þ. Stephensen, hins brottræka ritstjóra Morgunblaðsins.
Ráðningin mun hafa komið algjörlega flatt upp á forsvarsmenn Árvakurs, enda starfslokasamningur við Ólaf enn í fullu gildi og hann enn á fullum launum hjá félaginu og með tiltekin fríðindi, t.d. enn á bíl í eigu Morgunblaðsins er hann skrifaði undir ráðningarsamning við aðalkeppinautinn.
Telja eigendur Morgunblaðsins því um augljóst samningsbrot að ræða af hálfu nýs ritstjóra, enda þótt ólíklegt sé að þeir muni fara eitthvað lengra með það mál, enda myndi það vera túlkað sem veikleikamerki af þeirra hálfu í komandi samkeppni. Morgunblaðið taldi sig enda ekki geta notað starfskrafta Ólafs og hvers vegna ættu þá ekki aðrir að mega það?
Ólafur hefur sjálfur viðurkennt að starfslokasamningurinn hafi enn verið í fullu gildi er hann skrifaði undir samninginn við Ara Edwald, útgefanda Fréttablaðsins, en við það hafi hann fallið úr gildi. Hann líti svo á að þar með afsali hann sér frekari greiðslunum og hlunnindum sem hann hafi notið eftir uppsögn sína.
Ákveðið á fundi í New York
Á kaffistofunni er fullyrt að ráðning nýs ritstjóra Fréttablaðsins hafi átt sér nokkurn aðdraganda, enda þótt hún hafi endanlega verið ákveðin á fundi þeirra Ara Edwald, forstjóra 365 miðla, og hjónanna Ingibjargar Pálmadóttur (stjórnarformanns fyrirtækisins) og Jóns Ásgeirs Jóhannessonar í New York síðastliðinn föstudag.
Með Ara og Ólafi hafa löngum verið vinátta og kærleikar; Ari réð Ólaf á sínum tíma til Samtaka atvinnulífsins og saman unnu þeir í stjórn Heimdallar í formannstíð Ólafs í þeim samtökum. Þeir sem gerst þekkja til rekstrarmála á kaffistofunni segja að Ari hafi að undanförnu lyft grettistaki í hagræðingu og sparnaði innan vébanda 365 og náð fram umtalsverðum árangri. Hann hafi tekið við fyrirtækinu (eða fyrirrennurum þess) í afleitu ásigkomulagi eftir eyðslufyllerí og misheppnaðar fjárfestingar og tilraunir á borð við Sirkus, NFS og prentsmiðjurekstur í útlöndum, og markvisst unnið að því að sníða því stakk eftir vexti.
Helstu vandræði fyrirtækisins undanfarin ár hafa stafað af óbærilegri greiðslubyrði af erlendum lánum félagsins sem m.a. má rekja til Fjárfestingafélagsins Dagsbrúnar og kaupa á ýmsum fyrirtækjum, t.d. Kögun, Skífunni, Saga film og fleiri félögum.
Liður í þeirri viðleitni var uppskipting gamla 365 í fleiri fyrirtæki, t.d. Íslenska afþreyingu sem er komin í gjaldþrot og Rauðsól sem hefur nú fengið nafnið 365 miðlar. Margt af þeim gerningum var umdeilt og hefur skiptastjóri Íslenskrar afþreyingar áhuga á að fá einhverjum gerningum rift, ef þess reynist kostur. En Ari hefur ásamt Jóni Ásgeiri Jóhannessyni haft allar klær úti til að ná í nýtt hlutafé og svo virðist að það hafi tekist; í það minnsta var tilkynnt um að afborganir upp á ríflega milljarð króna á þessu ári væru nú tryggðar á nýlegum hluthafafundi í fyrirtækinu.
Hvar þeir félagar, Jón Ásgeir og Ari, hafa fengið það fjármagn, liggur ekki fyrir. Var það fengið að láni, eða eru nýir meðeigendur komnir að félaginu? Og ef svo er, þá hverjir?
Ertu með athyglisverða ábendingu sem gæti átt heima á Kaffistofu Pressunnar?
Sendu okkur póst á
kaffistofan@pressan.is - fyllsta trúnaðar gætt.
22.maí 2012 - 17:07
Kaffistofan
Á kaffistofunni rifjaðist upp sagan af fjallinu sem tók jóðsótt og fæddist lítil mús, þegar til umræðu kom dómur Héraðsdóms Reykjaness frá í dag þar sem Gunnar Birgisson fyrrverandi stjórnarformaður Lífeyrissjóðs starfsmanna Kópavogs og fyrrverandi framkvæmdastjóri sjóðsins voru sektuð um 150 þúsund krónur fyrir rangt tímamark í skýrslugjöf.
21.maí 2012 - 18:07
Kaffistofan
Nokkra athygli hefur vakið, að Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands, lýsti því yfir á Beinni línu á DV í dag, að ef gerð yrði kvikmynd um ævi hans í Hollywood, teldi hann að ástralski stórleikarinn Russel Crowe væri kjörinn til að leika sig.
17.maí 2012 - 10:54
Kaffistofan
Svona virkuðu íslensku hlutabréfaviðskiptin hér áður fyrir hrun.
15.maí 2012 - 11:12
Kaffistofan
Fregnir berast af vaxandi óánægju innan Samfylkingarinnar með stöðu flokksins og á dögunum gekk þungavigtarmaður úr flokknum.
08.maí 2012 - 15:12
Kaffistofan
Heimurinn er fullur af skrýtnum hlutum. Vegir Facebook er líka órannsakanlegir.
07.maí 2012 - 12:40
Kaffistofan
Það dreymir marga um atvinnumennsku en þetta er nokkuð óvenjulegt.
02.maí 2012 - 21:02
Kaffistofan
Reyndur bankamaður átti leið um kaffistofuna og furðaði sig á samstöðu þingmanna þegar kemur að bankaleynd um afskriftir.
28.apr. 2012 - 12:00
Kaffistofan
„Hún er einfaldlega óþolandi þessi þögn bankanna. Við verðum að gera eitthvað í þessu.“
27.apr. 2012 - 15:20
Kaffistofan
Það leysast ekki allar ráðgátur en þessi leysist.
26.apr. 2012 - 11:00
Kaffistofan
Það er óhætt að segja að ein mynd segi meir en þúsund orð.
25.apr. 2012 - 21:43
Kaffistofan
Það getur verið erfitt að vera frægur. Og líklega enn erfiðara þegar frægum er ruglað saman.
24.apr. 2012 - 10:27
Kaffistofan
Sumir kalla hann kverúlant, aðrir besserwisser en hitt má hann eiga; hann kann að láta í sér heyra varðandi málfar.
20.apr. 2012 - 15:15
Kaffistofan
Íslendingar hafa löngum verið sagðir hafa miklar áhyggjur af því hvað öðrum finnst um þá.
20.apr. 2012 - 11:29
Kaffistofan
Á kaffistofuna kom maður sem sagðist hafa það fyrir satt að Ronan Keating, aðalsöngvari Boyzone, kæmi fram á Þjóðhátíð í Eyjum.
17.apr. 2012 - 18:27
Hún er um margt merkileg ný könnun á lestri dagblaða á Íslandi. Tvennt ber þar hæst.
17.apr. 2012 - 10:12
Kaffistofan
Talsverðar vangaveltur hafa verið á netsíðum og á Facebook síðustu dagana vegna tölvupósts í tengslum við árásarmál Svavars Halldórssonar, fréttamanns.
16.apr. 2012 - 13:56
Kaffistofan
Vandamál karla eru oft ekki þau sömu og kvenna.
13.apr. 2012 - 14:50
Kaffistofan
Það eru margir nefndir fáir útvaldir. Gylfi Ægisson og Megas eru nú nefndur í sömu andrá og forsetaframboð.
11.apr. 2012 - 15:20
Kaffistofan
Slagurinn um Bessastaði verður forvitnilegri með hverjum deginum sem líður.
04.apr. 2012 - 18:37
Kaffistofan
Það er þetta með 18. febrúar, sagði gestur á kaffistofunni.
28.mar. 2012 - 15:40
Kaffistofan
Georg Bjarnfreðarson var með fimm háskólagráður. Fimm.
27.mar. 2012 - 14:08
Kaffistofan
Gamalreyndur maður leit við á kaffistofunni í morgun og gerði að umtalsefni viðtal í kvöldfréttum Sjónvarpsins í gær við Stefán Ólafsson, prófessor í félagsfræði þar sem umfjöllunarefnið var lífskjör Íslendinga.
22.mar. 2012 - 08:45
Kaffistofan
Það er kunnara en frá þurfi að segja að baráttan um bílastæðin getur á stundum orðið býsna hörð.
21.mar. 2012 - 11:53
Kaffistofan
Það er hægt að fara í detox en svo er það þessi tegund!
13.mar. 2012 - 13:47
Kaffistofan
Það eru ekki allar sendingar eins.
09.mar. 2012 - 17:49
Kaffistofan
Það er enginn lúmskari eða klókari en hann. Sjáðu bara þessar tvær!
08.mar. 2012 - 16:25
Kaffistofan
Hvað er líkt með Þjóðleikhúsinu og Þjóðmenningarhúsinu? Svo spyr Hallgrímur Helgason, rithöfundur.
05.mar. 2012 - 12:16
Kaffistofan
Fólki kemur þetta ekkert við. Það eru skilaboð hins opinbera til fólksins vegna Landsdómsmálsins sem hvorki má sjónvarpa né útvarpa.
02.mar. 2012 - 15:38
Kaffistofan
Stundum segja myndir virkilega meira en þúsund orð.
02.mar. 2012 - 10:25
Kaffistofan
Það er ekki svo oft sem miðar á forsýningar ganga kaupum og sölum á svörtum markaði. Það gerðist hins vegar í vikunni.
01.mar. 2012 - 16:59
Kaffistofan
Á kaffistofunni hafa menn haft ánægju af því gegnum árin að lesa Vef-Þjóðviljann sem útgáfan Andríki heldur úti á vefnum og hefur gert lengi.
29.feb. 2012 - 19:50
Kaffistofan
Óhætt er að segja að framtak Hildar Lillendahl um að taka saman ummæli karla sem hún segir hata konur, hafi vakið mikla athygli og skiptar skoðanir.
28.feb. 2012 - 13:45
Kaffistofan
Glöggur dagblaðalesandi kíkti við á kaffistofunni og setti fram athyglisverða spurningu.
23.feb. 2012 - 07:00
Kaffistofan
Það er líklega óhætt að fullyrða að styrr standi um fyrirtækið Dróma. Ósáttir skuldarar koma þar helst við sögu en fæstir tengja Dróma hins vegar við geimverur.
22.feb. 2012 - 08:20
Kaffistofan
Góður nætursvefn bjargar miklu. Lítill svefn getur að sama skapi haft áhrif á skapið.
21.feb. 2012 - 09:49
Kaffistofan
Kaffistofugestur sem þekkir vel til í pólitíkinni segir mikinn titring innan Samfylkingarinnar í ljósi afar óhagstæðra skoðanakannana að undanförnu.
20.feb. 2012 - 14:25
Á kaffistofunni heyrðu menn að Steingrímur J. Sigfússon ráðherraótalmálaflokka hafnaði því alfarið í viðtali við fjölmiðla á föstudag að dómur Hæstaréttar sýndi að frumvarp ríkisstjórnarinnar um endurreikning vaxta af erlendum lánum hefði falið í sér brot á Stjórnarskránni.
19.feb. 2012 - 13:15
Kaffistofan
Ákvörðun stjórnar Fjármálaeftirlitsins að segja Gunnari Þ. Andersen forstjóra upp störfum vegna skuggalegrar fortíðar í Landsbankanum vakti upp grátkór mikinn sem hefur ekki síst ómað í gegnum fréttir Stöðvar 2.
16.feb. 2012 - 20:29
Kaffistofan
Það gera allir mistök. En það er ekki sama hvar þau eru gerð.
16.feb. 2012 - 14:00
Kaffistofan
Það má lengi leika sér með paródíur.
15.feb. 2012 - 22:21
Kaffistofan
Getur verið að séu tvö eintök af Sveini Andra Sveinssyni, lögmanni, í umferð?
15.feb. 2012 - 12:04
Kaffistofan
Annar helmingurinn er fjúkandi foxillur meðan hinn er fjúkandi foxillur, en bara út í hinn aðilann. Samt var þetta það sama.
12.feb. 2012 - 21:48
Er hægt að nota útfærslu af leynidómnefnd RÚV til annarra verka?
08.feb. 2012 - 11:00
Kaffistofan
Hversu óheppnir geta menn verið með merki stofnunarinnar?
06.feb. 2012 - 15:44
Kaffistofan
„Sá sem ekki finnur eitthvað bitastætt til að rífast um á Facebook, hann er einfaldlega með slökkt á tölvunni sinni.“
01.feb. 2012 - 17:01
Kaffistofan
Loft er nú lævi blandið á Alþingi einsog svo oft áður meðan þingnefnd veltir fyrir sér afgreiðslu þingsályktunartillögu Bjarna Benediktssonar formanns Sjálfstæðisflokksins á kærum gegn Geir H. Haarde fyrrverandi forsætisráðherra.
29.jan. 2012 - 14:25
Kaffistofan
Það hefur nú gerst sem margir höfðu spáð að myndi gerast.
28.jan. 2012 - 15:11
Kaffistofan
Hér er einn léttur sem barst inn á kaffistofuna að morgni laugardags.
27.jan. 2012 - 17:10
Kaffistofan
Nú þegar helgin gengur í gerð og ömurlegt veður ætlar landsmenn lifandi að drepa, er ekki úr vegi að slá ofurlítið á létta strengi.
26.jan. 2012 - 14:23
Kaffistofan
Í tilefni af ráðningu nýs upplýsingafulltrúa ríkisstjórnarinnar, verðlaunablaðamannsins Jóhanns Haukssonar, er rifjað upp þessi dásamlega sena af blaðamannafundi forsetans á Bessastöðum vegna Icesave-samningsins.