08. feb. 2010 - 08:26Kaffistofan

Afmælisveisla ársins

Stórmeistarinn Margeir Pétursson er að verða fimmtugur.

Stórmeistarinn Margeir Pétursson er að verða fimmtugur.

Sannarlega hefur ekki farið jafn mikið fyrir góðum partýum upp á síðkastið eins og tíðkaðist á Íslandi á því herrans ári 2007 og í aðdraganda þess, en á mánudaginn eftir viku verður þó efnt til veislu hjá afmælisbarni sem notið hefur mikillar velgengni.

Þá verður Margeir Pétursson, stórmeistari í skák og stjórnarformaður MP Banka, nefnilega fimmtugur og hefur af því tilefni verið boðið til mikillar afmælisveislu í Sunnusal Hótel Sögu.

Mikið hefur gengið á hjá Margeiri upp á síðkastið; banki hans sinnir nú einstaklingsþjónustu í bankaviðskiptum og lifði af fjármálahrun flestra annarra bankastofnana hér á landi og er nú í sóknarhug. Í dag flytur MP Banki einmitt höfuðstöðvar sínar úr Skipholtinu og í Ármúlann, þar sem SPRON var áður til húsa.

Margeir er varkár maður og skynsamur og hefur það áreiðanlega fleytt honum langt. Hann er heldur ekki þekktur fyrir að berast mikið á. Fræg er sagan af því þegar MP opnaði aðalskrifstofur sínar í Skipholtinu og bauð til samsætis þar af því tilefni.

Fjölmennt var í veislunni og áberandi fólk úr viðskiptalífinu og stjórnmálum meðal gesta. Þar kemur að gestir fara að dásama húsbúnað og innréttingar, sem augljóslega hafa kostað skildinginn; eru úr massívum viði af bestu tegund og allt hið vandaðasta.

Loks hefur einn gesturinn sig í það að spyrja Margeir, hvort hér sé ekki hátt spenntur boginn hjá litlu fjármálafyrirtæki að innrétta skrifstofuhúsnæðið svo glæsilega, augljóslega fyrir tugi milljóna króna?

Margeir hugsar sig um og svarar svo glottandi:

Ja, það er nú svo merkilegt að við höfum engu breytt hér eftir við að tókum við húsnæðinu. Innréttingarnar og húsbúnaður er allur frá fyrri eiganda sem var Verkalýðsfélagið Dagsbrún (sem síðar varð Efling).

Var ekki frekar rætt um bruðl í rekstri fjármálafyrirtækja við þetta tilefni...

Ertu með athyglisverða ábendingu sem gæti átt heima á Kaffistofu Pressunnar?
Sendu okkur póst á kaffistofan@pressan.is - fyllsta trúnaðar gætt.



02.sep. 2010 - 18:31 Kaffistofan

Gera kratarnir uppreisn?

Á kaffistofunni fyrr í dag var bent á að Íslandi sé í dag stjórnað af stjórnmálaafli sem margir héldu í raun að væri komið til feðra sinna, nefnilega Alþýðubandalaginu.
02.sep. 2010 - 11:40 Kaffistofan

Alþýðubandalagið lifi!

Alþýðubandalagið er dautt. Lengi lifi Alþýðubandalagið!
02.sep. 2010 - 10:15 Kaffistofan

Dýrar spurningar?

Gestur með fálka í barmi leit við í morgunte. Hann grúfði sig yfir nýprentað Viðskiptablaðið, sagði svo upp úr eins manns hljóði:
01.sep. 2010 - 21:26 Kaffistofan

Hún Jóhanna átti að bregða hnífnum

Hún leyfir Kristjáni Möller að sprikla í snörunni. Nú segir fréttastofa RÚV blákalt að gríðarleg óánægja sé á landsbyggðinni með að Kristján eigi að axla sín skinn! Einmitt það?
01.sep. 2010 - 09:32 Kaffistofan

Hver er þessi Oddný?

Hver er þessi Oddný Harðardóttir sem allt í einu er orðin ráðherrakandídat? spurði ungur og fávís gestur á kaffistofunni. Annar eldri og ívið gleggri gestur okkar gat svarað því:
31.ágú. 2010 - 19:45 Kaffistofan

Nú er stand á Goddastöðum

Sjáandinn var kampakátur á kaffistofunni, enda hefur hann reynst sannspár með afbrigðum síðustu daga.
31.ágú. 2010 - 15:53 Kaffistofan

Karlinn er helvíti reffilegur

Það er kunnara en frá þurfi að segja að æðstu yfirmenn Ríkisútvarpsins hafi einfaldan smekk þegar kemur að framkomu og klæðaburði og velji aðeins það besta.
31.ágú. 2010 - 11:20 Kaffistofan

Spaugstofan á Stöð 2?

Spaugstofumenn hafa óvænt boðað til blaðamannafundar í sjálfu Þjóðmenningarhúsinu kl. 14 í dag.
31.ágú. 2010 - 08:33 Kaffistofan

Jóhannes... í Bónus... í Færeyjum?

Menn velta sér nú mikið upp úr þeirri stöðu sem komin er upp í Högum. 
30.ágú. 2010 - 12:59 Kaffistofan

Dýrð sé Guði í háum upphæðum

Þeir sem sækja messur þekkja vel þegar tónað er: Dýrð sé Guði í upphæðum.  Færri tengja þetta hins vegar við fjármagn.
29.ágú. 2010 - 16:09 Kaffistofan

Úr kristalskúlu sjáandans

Sjáandinn leit við á kaffistofunni, strauk regndropa af kristalskúlunni, og sagði:
28.ágú. 2010 - 08:17 Kaffistofan

Guðfinna í Landsbankann?

Eins og fram hefur komið á Pressunni síðustu daga, er nokkur titringur meðal starfsmanna Landsbanka Íslands með það óvænta útspil Steinþórs Pálssonar bankastjóra að gjörbreyta skipuriti bankans, segja upp öllum framkvæmdastjórnum og auglýsa stöður þeirra að nýju lausar til umsóknar.
27.ágú. 2010 - 13:31 Kaffistofan

Vildi ekki verða, vill ekki hætta...

Lífið er skrýtið. Maðurinn sem vildi ekki verða biskup vill ekki hætta að vera biskup.
25.ágú. 2010 - 17:11 Kaffistofan

Skjaldborgin um stjórnarráðið...

Gamalreyndur pólitíkus leit við á kaffistofunni, fékk sér molakaffi, og sagði heitustu fréttirnar úr stjórnarráðinu. Þær snerust ekki um hvaða ráðherrar verða reknir um næstu helgi, og ekki heldur um þukl og þreifingar bak við tjöldin, heldur...
25.ágú. 2010 - 10:13 Kaffistofan

Að kalla það réttu nafni

Þeir geta verið afar skemmtilegir frasarnir og hvernig þeim er pakkað inn til að þeir verði ekki umdeildir. Stjórnmálamenn eru sérfræðingar í einmitt þessu.

Pressupennarnýjast
Björg Magnúsdóttir
Björg Magnúsdóttir - 02.9.2010
DV, þú stöðvar mig ekki!
Margrét Ó. Morgan
Margrét Ó. Morgan - 02.9.2010
Njóta þess að vera saman
Eiríkur Bergmann
Eiríkur Bergmann - 02.9.2010
Trúverðugleikinn fer líka
Kolbrún Baldursdóttir
Kolbrún Baldursdóttir - 02.9.2010
Hvatning til skóla: Einelti líðst ekki!
Fleiri pressupennar


Skipta um leturstærð

Breyta um tungumál



Leit