10.mar. 2010 - 14:29
Kaffistofan
Unnið er að því finna mögulega forsetakandídata fari svo að Ólafur Ragnar Grímsson gefi ekki áfram kost á sér í kosningunum eftir tvö ár. Á kaffistofunni heyrist eitt nafn nefnt oftar en önnur...
09.mar. 2010 - 22:26
Kaffistofan
Á kaffistofuna berast nú þau stórtíðindi að besti skopmyndateiknari landsins, Halldór Baldursson, hafi nú sagt upp störfum á Morgunblaðinu og ráðið sig á aðalkeppinautinn, Fréttablaðið.
09.mar. 2010 - 13:02
Kaffistofan
Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, má eiga það að hann bindur bagga sína ekki sömu hnútum og samferðarmennirnir.
08.mar. 2010 - 15:06
Kaffistofan
Honum var hampað, svo var hann skammaður og nú er honum hampað aftur, bóndanum á Bessastöðum.
08.mar. 2010 - 11:07
Kaffistofan
Það er óhætt að segja að tíðindin úr fjölmiðlaheiminum hafi komið á óvart - Ellý Ármanns er hætt á Vísi.
08.mar. 2010 - 09:14
Kaffistofan
Það er óhætt að segja að skilaboð íslensku þjóðarinnar hafi verið skýr í þjóðaratkvæðagreiðslunni um helgina. Dúndrandi nei, sagði stærsta blað Noregs til að mynda.
07.mar. 2010 - 16:19
Kaffistofan
Enginn vafi er á því að maður helgarinnar er forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, sem synjaði Icesave-lögunum staðfestingar, og hefur síðan baðað sig í sviðsljósi heimspressunnar og talaði máli þjóðarinnar hvar og hvenær sem er.
06.mar. 2010 - 23:00
Kaffistofan
Á kaffistofunni telja menn að engum geti hafi dulist hversu mjög Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra og Steingrími J. Sigfússyni fjármálaráðherra var þrátt fyrir allt brugðið í beinni sjónvarpsútsendingu úr Ráðhúsinu í kvöld þegar fyrstu tölur úr þjóðaratkvæðagreiðslunni um Icesave lágu fyrir.
06.mar. 2010 - 17:48
Kaffistofan
05.mar. 2010 - 16:05
Kaffistofan
Éttu úldinn hund, kona, söng Sniglabandið um árið en á kaffistofunni voru menn að horfa til allt öðruvísi matargerðar.
05.mar. 2010 - 09:37
Kaffistofan
Magnað viðtal Inga Vilhjálmssonar blaðamanns við athafnamanninn Pálma Haraldsson í helgarblaði DV kom til umræðu á kaffistofunni í morgun. Telja menn að viðtalið sé ákveðinn sigur fyrir Pálma og blaðið sjálft.
04.mar. 2010 - 11:55
Kaffistofan
Það er stundum hægt að ímynda sér hvað geti gerst ef allt fari úrskeiðis. En svo gerist það...
03.mar. 2010 - 22:14
Kaffistofan
Herþoturnar fjórar frá danska flughernum sem komnar eru til landsins til þess að sinna loftrýmisgæslu í tengslum við samkomulag Íslands og NATO um loftvarnir landsins, sýna vel að í raun hefur ekkert breyst í utanríkisstefnu þjóðarinnar enda þótt Vinstri grænir, með fjölmarga herstöðvarrandstæðinga og friðarsinna innanborðs, séu nú ráðandi um stjórn landsins.
03.mar. 2010 - 18:22
Kaffistofan
Þau tíðindi, sem urðu í dag, að Fjármálaeftirlitið hafi tekið yfir stjórn VBS Fjárfestingabanka, er mikið pólitískt áfall fyrir Steingrím J. Sigfússon fjármálaráðherra.
03.mar. 2010 - 08:04
Kaffistofan
Nokkur umræða hefur skapast um meintan leka á trúnaðarupplýsingum sem tengjast bankahruninu til fjölmiðla. Meðal annars hefur verið vitnað orðrétt til skýrslutöku embættis sérstaks saksóknara af vitnum og sakborningum í fjölmiðlum.
02.mar. 2010 - 15:09
Kaffistofan
Á kaffistofunni trúa menn ekki á tilviljanir.
02.mar. 2010 - 09:37
Kaffistofan
Ólafur Þ. Stephensen, nýr ritstjóri Fréttablaðsins, hefur ákveðið að gera breytingar á leiðarasíðu blaðsins. Fallið hefur verið frá tilraun með að fá utanaðkomandi fólk til að skrifa forystugreinar blaðsins og mun ritstjórn þess framvegis skrifa leiðarana sjálf.
01.mar. 2010 - 21:15
Kaffistofan
Almannatengillinn og Samfylkingarmaðurinn Andrés Jónsson veltir í kvöld upp þeirri spurningu hvort endurkoma Þorsteins Pálssonar sé hugsanleg í stjórnmálin, þar sem málflutningur hans hafi mælst svo vel fyrir á meðal sjálfstæðismanna á nýliðnu Viðskiptaþingi meðan lítið hafi farið fyrir Bjarna Benediktssyni, formanni Sjálfstæðisflokksins.
01.mar. 2010 - 14:02
Kaffistofan
Landnámi er langt í frá lokið ef eitthvað er að marka nýja vefsíðu en þar kemur fram að þar sem Ísland skuldar Hollendingum svo mikið fé og geti ekki borgað, þá eigi Hollendingar nú Ísland.
01.mar. 2010 - 09:06
Kaffistofan
Sífellt fleiri virðast komnir á þá skoðun að Ísland sé í raun stjórnlaust; ríkisstjórnin hafi ekki lengur umboð sinna flokka til að stjórna landinu og liðist hægt og bítandi í sundur. Á sama tíma sækir stjórnarandstaðan í sig veðrið og Sjálfstæðisflokkurinn er í stórsókn, skv. skoðanakönnun sem birt var um helgina.
28.feb. 2010 - 10:01
Kaffistofan
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, fyrrverandi utanríkisráðherra og formaður Samfylkingarinnar, gerir upp efnahagshrunið í ritgerð í nýútkomnu Tímariti Máls og Menningar.
27.feb. 2010 - 09:35
Kaffistofan
Á kaffistofunni stöldruðu menn við uppgjör Agnesar Bragadóttur, blaðamanns, í Morgunblaðinu í dag þar sem hún rifjar upp samskipti sín við Þór Sigfússon, þáverandi forstjóra Sjóvár, formann Samtaka atvinnulífsins og hvorki meira né minna en formann útgáfufélags Morgunblaðsins, fáeinum misserum.
26.feb. 2010 - 14:45
Kaffistofan
Gestur Kaffistofunnar hafði þær fréttir að færa að DV fái drjúgan liðsauka á mánudag þegar Jóhannes Kr. Kristjánsson, fyrrverandi ritstjóri Kompáss á Stöð 2, hefur störf á blaðinu.
25.feb. 2010 - 21:03
Kaffistofan
Á kaffistofunni þótti mönnum tíðindum sæta er sýnt var frá svokölluðu yfirheyrsluherbergi skilanefndar og slitastjórnar Glitnis í fréttatímum sjónvarpsstöðvanna í kvöld. Þar munu starfsmenn gamla bankans yfirheyrðir og spurðir frammi fyrir upptökuvél um ýmsa gjörninga sem áttu sér stað fyrir hrun og taldir eru orka tvímælis.
25.feb. 2010 - 08:43
Kaffistofan
Ákaflega lítil gleði mun vera í herbúðum Árvakurs hf., útgáfufélags Morgunblaðsins, með ráðningu nýs ritstjóra Fréttablaðsins, Ólafs Þ. Stephensen, hins brottræka ritstjóra Morgunblaðsins.
24.feb. 2010 - 11:26
Kaffistofan
Hin óvænta uppsögn Jóns Kaldal sem ritstjóra Fréttablaðsins og ráðning Ólafs Stephensen í hans stað, kann að setja af stað flókna hringekju í heimi íslenskrar fjölmiðlunar.
23.feb. 2010 - 18:10
Kaffistofan
Ótrúleg viðskipti Milestone, Sjóvár og fleiri fyrirtækja Wernersbræðra og fleiri aðila hafa verið mikið til umræðu að undanförnu og skal engan undra. Meðferð stærstu eigenda Sjóvár á bótasjóði félagsins sætir rannsókn sérstaks saksóknara og fjölmiðlar, einkum DV, hafa flutt ítarlegar fréttir af flóknum fjármálagjörningum Milestone og óteljandi dótturfélaga þess.
23.feb. 2010 - 11:52
Kaffistofan
Hún er þung undiraldan og þegar stórskotaliðið lætur skotin dynja hlýtur að vera erfitt að sitja undir þeim.
22.feb. 2010 - 21:47
Kaffistofan
Nokkrir lesendur hafa haft samband við Pressuna í dag út af innheimtuhótunum sem þeim bárust í pósti frá innheimtu fyrirtækinu Netskil, sem er innheimtufyrirtæki Eddu útgáfu. Það er vissulega er ekki gaman að láta hóta sér, en allt á sér skýringar.
22.feb. 2010 - 10:26
Kaffistofan
„Jörðin okkar er eins og lítil rós“, sagði Stefán Eiríksson, núverandi lögreglustjóri, árið 1989 þegar hann var kosinn ræðumaður kvöldsins í Morfís.
21.feb. 2010 - 13:16
Kaffistofan
Hvað átti sendiherrann við með því þegar hann kallaði forseta Íslands ólíkindatól? Kannski hefur Þórarinn Eldjárn svarið...
20.feb. 2010 - 11:25
Kaffistofan
Hreinn Loftsson, hæstaréttarlögmaður og útgefandi DV, var eitt sinn einn nánasti samstarfsmaður Davíðs Oddssonar, bæði sem aðstoðarmaður forsætisráðherra og formaður Einkavæðingarnefndar.
19.feb. 2010 - 16:00
Kaffistofan
Það glöddust margir í Efstaleiti nýverið þegar í ljós kom að útvarpshlustun hafði stóraukist á Rás 2 á kostnað Bylgjunnar.
19.feb. 2010 - 11:46
Kaffistofan
Kaffistofugestir fórnuðu höndum og báðu alla heilaga um að hjálpa sér, þegar í ljós kom að brugghúsið Ölvisholt hafði brotið í „bága við almennt velsæmi, m.a. með skírskotun til ofbeldis, trúarbragða, kláms, ólöglegra fíkniefna, stjórnmálaskoðana, mismununar, refsiverðrar háttsemi o.s.frv.“
18.feb. 2010 - 12:55
Kaffistofan
Svo virðist sem þráðurinn í landsmönnum sé að styttast mjög, því nú berast af því fregnir að óþekktur maður hafi veist að ritstjóra DV á bensínstöð á höfuðborgarsvæðinu í morgunsárið og haft uppi hin verstu orð um blaðið og ritstjórann.
17.feb. 2010 - 12:44
Kaffistofan
Það vantar ekki börnin á ferli í borg og bæ í dag, í hinum ýmsu búningum að syngja og tralla í von um góðgæti. En ekki taka allir jafn vel á móti þeim.
16.feb. 2010 - 15:26
Kaffistofan
Það er líklega óhætt að fullyrða að Ísland hafi eignast nýjan stjörnulögmann, lögmann sem þúsundir landsmanna binda miklar vonir við á þessum síðustu og verstu...
16.feb. 2010 - 13:11
Kaffistofan
Hún hefur vakið mikla athygli herferð kvikmyndagerðarfólks gegn niðurskurði hins opinbera í geiranum. Og það er öllu tjaldað til.
15.feb. 2010 - 21:00
Kaffistofan
Kvikmyndagerðarmenn reyna nú að snúa vörn í sókn hvað varðar niðurskurð á fjárframlögum ríkisins til þeirra.
15.feb. 2010 - 14:24
Kaffistofan
Á kaffistofunni telja menn óþarft með öllu að hafa einhvern formála að þessari stöðuuppfærslu sem birtist á Fésbókinni í dag.
15.feb. 2010 - 11:55
Kaffistofan
Jón Sigurðsson, fyrrverandi ráðherra, seðlabankastjóri og formaður Framsóknarflokksins, hefur snúið aftur í verslunina og tekið við stjórnarformennsku í einu stærsta verslunarfyrirtæki landsins.
15.feb. 2010 - 08:26
Kaffistofan
Útvarpskonan og stjórnmálafræðingurinn Kolbrún Björnsdóttir dvaldi ekki lengi á kvennadeild Landspítalans um helgina, því hún fæddi fallegt stúlkubarn þar á laugardagskvöldið, aðeins tíu mínútum eftir að hún mætti á staðinn.
13.feb. 2010 - 17:43
Kaffistofan
Á kaffistofuna berast margar skemmtilegar kveðjur ellegar fróðleg bréf, sem vert er að gefa gaum að. Stundum fylgja með þessum bréfum viðhengi, svo sem greinargerðir, samningar, tilkynningar eða myndir og er oft hnýsilegt að skoða það efni nánar.
13.feb. 2010 - 10:24
Kaffistofan
Það kannast flestir við þá tilfinninga að líta um öxl og velta því fyrir sér hvað maður hafi eiginlega verið að hugsa.