03. sep. 2009 - 20:40Gunnar Gunnarsson

Íslenska landsliðið á leið í EM í áströlskum fótbolta: Markmiðið að tapa ekki öllu

Mynd: Getty

Íslenska landsliðið í áströlskum fótbolta er eitt þeirra fimmtán sem staðfest hafa komi sína á Evrópumótið í Króatíu í haust. Landsliðseinvaldurinn segir að ekki hafi verið erfitt að velja í liðið. Hann segir bjartsýni ríkja í hópnum.

„Við byrjuðum bara í vor þannig að það var auðvelt að velja í liðið. Allir sem vilja geta komið með, svo lengi sem þeir hafi efni á flugfarinu til Króatíu,“ er haft eftir Friðgeiri Ásgeirssyni á vefnum worldfootynews.com, sem sérhæfir sig í umfjöllun íþróttina. „Við höfum gert hvað sem við getum til að fá styrktaraðila en það á enginn pening (eða það segja þeir) eftir efnahagshrunið.“

Íslendingarnir fara út með átján manna hóp. Flestir þeirra eru Íslendingar en tveir hafa tvöfalt ríkisfang. Fram kemur að í viðtalinu við Friðgeir að besti maður íslenska liðsins sé Páll Finnson, fyrirliði Frakklandsmeistara Paris Cockorels. Hann hefur einnig orðið danskur meistari auk þess að vera í forsvari fyrir dönsku deildina og í danska landsliðinu.

Friðgeir segir að leikmennirnir verði sáttir svo framarlega sem þeir tapi ekki hverjum einasta leik. „Við höfum fulla trú á að við höfum gott lið. En við verðum líka að vera raunsæir og þar sem við höfum ekki getað spilað neina æfingaleiki verðum við mjög ánægðir með tvö eða þrjá sigra.“

Greininni lýkur á þeim orðum að auglýsingaplássið framan á íslensku treyjunum sé enn laust fyrir áhugasaman styrktaraðila.

Evrópukeppnin fer fram í Samobor í Króatíu fyrstu helgina í október. Meðal þeirra þjóða sem hafa boðað komu sína á mótið í ár eru smáþjóðir eins og Katalónar og Andorrabúar en einnig hefðbundnari stórþjóðir eins og Frakkland, England, Þýskaland, Spánn og Tékkland.

Samkvæmt alfræðiritinu Wikipediu fer leikurinn fram á sporöskjulaga velli, oft gömlum krikketvöllum og markmiðið er að skora í mörk á sitthvorum enda vallarins. Mörkin eru tvö og hvort fyrir sig er markað af fjórum stöngum, tveimur eiginlegum markstöngum, og tveimur svokölluðum „fyrir aftan“ stöngum. Boltanum má leika bæði með höndum og fótum. Átján leikmenn eru í hvoru liði og er boltinn sem spilað er með svipaður rúgbý-bolta nema aðeins minni og rúnnaðri.




23.maí 2012 - 10:50

Besta leikmanni Skagamanna hundleiðist á Akranesi: Ekkert að gera hér, þarf að búa í Reykjavík

Gary Martin er góður í fótbolta, en honum hundleiðist. Englendingurinn Gary Martin frá Middlesbrough, sem hefur farið á kostum með liði Skagamanna í úrvalsdeildinni í upphafi keppnistímabilsins, er að drepast úr leiðindum á Akranesi, þar sem honum finnst ekkert hægt að gera. Hann segist þurfa að búa í Reykjavík.
22.maí 2012 - 09:42 Brynjar Eldon Geirsson

Þeir bestu hefja leik í Leirunni

Um helgina fer fram fyrsta stigamót GSÍ í Leirunni Keflavík og eru flestir af okkar bestu leikmönnum skráðir til leiks. Leiknar verða 54 holur á þremur dögum og mun mótið hefjast á föstudag.
22.maí 2012 - 00:13 Brynjar Eldon Geirsson

Golf í Vestmannaeyjum

Það er fátt skemmtilegra en að fara til Vestmannaeyja og leika þar einn glæsilegasta golfvöll landsins. Golfvöllurinn í Eyjum er ávallt í góðu ásigkomulagi og vel hirtur og það er tilvalið að taka sig saman með félögunum og skjótast í dagsferð og njóta þess að leika golf í frábæru umhverfi á góðum golfvelli.
21.maí 2012 - 18:00

Vindgustur slökkti Ólympíueldinn í Englandi: Sérhannaðir kyndlar sem eiga að standast öll veður

Sá óvenjulegi atburður varð í dag að það slokknaði á Ólympíukyndlinu aðeins þremur dögum eftir að hann kom til Englands. Kyndillinn var við hlið hjólastóls David Folletts, sem er meistari í badminton fatlaðra.

21.maí 2012 - 06:00 Ólafur Már Sigurðsson

Golf fyrir alla 2 (Grafarholtsvöllur) 6.hola - Myndband

Næstu mánudaga munu Brynjar Geirsson og Ólafur Már Sigurðsson spila fyrir okkur Grafarholtsvöll sem af mörgum er talinn vera einn sá skemmtilegasti á landinu. Á hverjum mánudegi munu þeir félagar spila eina holu og fara yfir leikskipulag á hverri holu fyrir sig. Hér sjáum við hvernig þeir spiluðu 6. holuna.
20.maí 2012 - 23:00

Arion banka mótaraðir: Metfjöldi þátttakenda - úrslit helgarinnar

Um helgina hófust mótaraðir unglinga og var leikið á Arion banka mótaröð unglinga á Garðavelli Akranesi en Golfklúbbur Reykjavíkur sá um framkvæmd mótsins. Það var svo Nesklúbburinn sem hélst stærsta Áskorendamót frá upphafi þar sem 108 keppendur mættu til leiks á Nesvelli.
19.maí 2012 - 21:52

Drogba hetja Chelsea: Þetta var skrifað í skýin fyrir löngu síðan. Guð er góður

Drogba fagnaði gríðarlega eftir að hafa tryggt Chelsea sigur í Meistaradeildinni í kvöld. Það var sem skrifað í skýin að Chelsea myndi vinna sinn fyrsta sigur í Meistaradeildinni eftir ævintýralega og dramatíska sigurgöngu í vetur og í úrslitaleiknum gegn Bayern Munchen í kvöld voru lukkudísirnar enn og aftur á bandi þeirra bláklæddu og Chelsea sigraði Bayern í vítaspyrnukeppni eftir framlengdan leik.
19.maí 2012 - 13:16 Brynjar Eldon Geirsson

Athyglisverðar golfsveiflur

Það þarf ekki alltaf að gera hlutina eftir bókinni til þess að ná árangri á vellinum eins og við getum séð á meðfylgjandi myndbandi sem er af mörgum góðum leikmönnum sem hafa sinn stíl.
18.maí 2012 - 22:19 Brynjar Eldon Geirsson

Að slá fade eða draw

Gott getur verið að geta slegið mismunandi boltaflug og gefur sá hæfileiki leikmönnum á fjölbreyttara leikskipulagi. Hér sýnir Justin Rose okkur hvaða aðferð hann notar til þess að slá mismunandi boltaflug.
16.maí 2012 - 16:59

Bandarískir eigendur Liverpool misstu þolinmæðina: King Kenny látinn fara

Fenway Sports Group og Liverpool FC hafa tilkynnt að Kenny Dalglish hafi látið af stjórn félagsins í dag. Leitin að nýjum stjóra mun hefjast tafarlaust.