22. jún. 2012 - 23:33

Gylfi að skrifa undir hjá Liverpool í næstu viku? Laugardags slúðrið


Gylfi Sigurðsson mun skrifa undir hjá Liverpool í næstu viku ef hann stenst lækniskoðun.

Emily Heskey gæti verið á leiðinni til Leeds.

Michael Owen skrifar undir eins árs samning við Stoke City á næstu vikum.

Terry Venables er að setja saman sannkallað stjörnulið sem mun keppa í FA bikarnum á næsta tímabili. Leikmenn eins og Greame Le Saux, Martin Keown, Claudio Caniggia og fleiri eru nefndir til sögunnar.

Real Madrid gerir 30 milljóna punda boð á næstunni í Luka Modric leikmann Tottenham.

Joey Barton verður leystur undan samning við QPR á næstu dögum.

Lucio er að fara frá Inter til Fenerbache.

Aston Villa vill sóknarmanninn Balde frá Osasuna.

Hulk vill fara til Chelsea en Porto er á allt öðru máli.

Denilson er mættur aftur til Arsenal eftir að hafa verið á láni frá Sao Paulo en það gæti verið stutt stopp þar sem Leverkusen er sagt hafa mikinn áhuga á leikmanninum.

Arsenal er aftur sterklega orðað við Kalou hjá Chelsea.


Graeme Le Saux er snyrtilegur og vel greiddur en getur hann eitthvað í fótbolta ennþá?



19.jún. 2013 - 12:45

Zoran rekinn frá Keflavík - Kristján Guðmundsson tekinn við

Zoran Ljubicic og Kristján Guðm. Það er mikið um að vera í þjálfaramálum í Pepsideild karla um þessar mundir. Knattspyrnudeild Keflavíkur og Zoran Daníel Ljubicic hafa nú komist að samkomulagi um að Zoran láti af störfum sem þjálfari liðsins. Eftirmaður hans er Kristján Guðmundsson, fyrrverandi þjálfari liðsins.
19.jún. 2013 - 10:50

Pepsileikurinn: 23 tipparar með alla leiki rétta í sjöundu umferð

Hvað varst þú með marga rétta? Hvorki fleiri né færri en 23 tipparar höfðu alla leikina rétta í sjöundu umferð í Pepsileiknum okkar góða. Það þýðir bara eitt, fimm heppnir og sannspáir tipparar fá að gjöf kassa af Pepsi og tvo miða á leik í deildinni.
19.jún. 2013 - 09:20

Krefjandi byrjun United á næsta tímabili - Mourinho byrjar heima gegn Hull

Englandsmeistarabikarinn eftirsótti Í morgun birti enska knattspyrnusambandið leikjaplanið fyrir næsta tímabil í ensku úrvalsdeildinni. Flautað verður til leiks þann 17. ágúst en óhætt er að segja að Englandsmeistarar United fái krefjandi byrjun í enska boltanum á komandi leiktíð.
18.jún. 2013 - 22:00 Brynjar Eldon Geirsson

Haraldur Franklín í baráttunni á Opna breska

Haraldur Franklín Magnús Haraldur Franklín Magnús úr GR er kominn áfram á Opna breska áhugamannamótinu sem fram fer í Kent á Englandi. Haraldur Franklín lék seinni hringinn í höggleiknum á 71 höggi eða einu höggi undir pari og lék því samtals á parinu.
18.jún. 2013 - 15:00

Þórður Þórðarson hættir sem þjálfari ÍA

Þórður Þórðarson er hættur. Þórður Þórðarson er hættur sem þjálfari ÍA í Pepsideild karla. Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem félagið sendi frá sér og birti á heimasíðu félagsins nú rétt í þessu, en hana má í heild sinni lesa hér.
18.jún. 2013 - 14:00

Rautt spjald fyrir að skalla samherja

Volodymyr Lysenko og Mirko Raicevic í ruglinu í leiknum. Xavi og Iniesta ná ansi vel saman inná vellinum, það gerðu Cole og Yorke á sínum tíma líka og ekki var samvinna þeirra Eiðs Smára og Jimmy Floyd Hasselbaink slæm heldur. Volodymyr Lysenko og Mirko Raicevic ná hins vegar engan veginn saman.
18.jún. 2013 - 22:09 Brynjar Eldon Geirsson

Justin Rose í viðtali eftir sigur á US Open 2013

Hér má sjá viðtal við Justin Rose sigurvegara US Open 2013. Hann ræðir meðal annars hvernig það hafi verið að landa sínum fyrsta risatitli á ferlinum.
18.jún. 2013 - 11:20

Gunnar Heiðar skoraði eitt og lagði upp annað

Gunnar Heiðar hefur nú skorað sjö mörk. Gunnar Heiðar Þorvaldsson, leikmaður Norrköping, hefur verið sjóðandi heitur í sænska boltanum á þessu tímabili. Í gær hélt hann uppá þjóðhátíðardag okkar Íslendinga með því að skora eitt og leggja upp annað. Sjáðu taktana hér!
18.jún. 2013 - 09:30

Fjölskyldufaðir og sex unglingar dæmdir fyrir morð á línuverði

Richard Niewenhuizen minnst í leik PSG og Twente í hollenska boltanum. Í gær féll dómur yfir átta aðilum vegna morðs á línuverði á knattspyrnuleik 15 og 16 ára leikmanna í Hollandi í desember síðastliðnum.
17.jún. 2013 - 18:00

Stórbrotið tennisskot - Eitthvað alveg nýtt!

Gael Monfils í leiknum Franski tenniskappinn Gael Monfils stal senunni á Gerry Weber Open nú um helgina þegar hann gerði eitthvað sem mjög fáir hafa gert á tennisvellinum, í það minnsta í móti!
17.jún. 2013 - 15:50

Ólafur Stefánsson kvaddi í táskóm

Hver annar en Óli Stef? Skóbúnaður Ólafs Stefánssonar í kveðjuleik hans gegn Rúmeníu í gær hefur vakið athygli. Í stað þess að klæðast þessum hefðbundnu handboltaskóm skartaði Ólafur svokölluðum táskóm. Slíkir skór hafa meðal annars verið að ryðja sér til rúms í lyftingaríþróttum og eiga þeir að auka tilfinningu til muna.
17.jún. 2013 - 12:15

Justin Rose sigraði US Open: Hans fyrsti sigur á stórmóti

Justin Rose með bikarinn Englendingurinn Justin Rose sigraði í gærkvöldi Opna bandaríska meistaramótið í golfi. Þetta er í fyrsta sinn sem Rose sigrar eitt af stóru mótunum fjórum. Rose endaði mótið á einu höggi yfir pari, tveimur höggum færri en þeir Phil Mickelson og Jason Day, sem deildu öðru og þriðja sætinu.
16.jún. 2013 - 21:23 Guðjón Ólafsson

Umfjöllun: Óli Stef kvaddi með stæl

Óli Stef hefur leikið sinn síðasta leik á ferlinum en hann skoraði 8 mörk í leiknum kvöld. Það var stór stund í Laugardalshöllinni í kvöld þegar Ólafur Stefánsson kvaddi íslensku þjóðina sem leikmaður í sínum síðasta landsleik á ferlinum. Ísland mætti þá Rúmeníu í lokaleik liðsins í undankeppni EM og endaði leikurinn með öruggum 37-27 sigri íslenska liðsins.
16.jún. 2013 - 19:30

Yaya Toure er greinilega spyrnumaður góður

Yaya Toure skoraði tvö í dag Yaya Toure, leikmaður Manchester City í enska boltanum og einn launahæsti leikmaður deildarinnar, sannaði það með landsliði sínu í dag að hann er einnig stórgóður spyrnumaður. Ásamt því að skora mark úr vítaspyrnu skoraði hann einnig mark beint úr aukaspyrnu.
16.jún. 2013 - 12:05

Er þetta næsti fótboltasérfræðingur landsins?

Ungur og efnilegur sérfræðingur! Þrátt fyrir ungan aldur er óhætt að kalla hinn 4 ára gamla Hannes svokallaðan fótboltasérfræðing. Eins og sjá má í myndböndunum hér að neðan veit Hannes eitt og annað um enska boltann þar sem hann þylur upp hvert nafnið á fætur öðru.
16.jún. 2013 - 11:20

Fimm leikir í Pepsideildinni í dag - Er seðillinn klár?

Sjöunda umferðin hefst í dag. Tippaðu hér! Fimm leikir eru á dagskrá í Pepsideild karla í dag þegar flautað verður til leiks í sjöundu umferð. Íslandsmeistarar FH fara vestur á land á meðan topplið KR fær Skagamenn í heimsókn í Vesturbænum.
15.jún. 2013 - 18:30

Íslendingar kveðja Óla Stef frammi fyrir fullri höll!

Allt orðið fullt, að sjálfsögðu! Nú þegar er orðið uppselt á kveðjuleik Ólafs Stefánssonar sem fram fer í Laugardalshöllinni á sunnudag. Ísland mætir þá Rúmeníu í lokaleik liðsins í undankeppni EM, þar sem liðið er fyrir löngu búið að tryggja sér ferseðilinn til Danmerkur.
15.jún. 2013 - 14:00

Sænskur boxari í öndunarvél eftir bardaga í gærkvöldi

Prazak vissi ekki hvort hún átti að fagna eða örvænta en reyndi að aðstoða við umönnun Wallberg ásamt þjálfara sínum. Í gærkvöldi keppti fremsti kvenboxari Svíþjóðar, Frida Wallberg, um tvo heimsmeistaratitla í boxi. Mótherjinn var Diana Prazak frá Ástralíu og fór bardaginn fram í Stokkhólmi.
15.jún. 2013 - 08:09 Ólafur Már Sigurðsson

Mickelson og Horschel með forystu eftir tvo daga

Phil Mickelson og Billy Horschel eru með forystu eftir tvo daga á Opna bandaríska meistaramótinu í golfi sem nú fer fram á Merion vellinum í Ardmore, Pensilvaníu.
14.jún. 2013 - 11:45 Guðjón Ólafsson

Framkvæmdastjóri KSÍ: „Við vitum af þessu máli“

Þórir Hákonarson, framkvæmdastjóri KSÍ.

Þórir Hákonarson, framkvæmdastjóri KSÍ, segir í samtali við Íþróttapressuna í morgun að engar ráðstafanir hafi ennþá verið gerðar í framhaldinu af ummælum sem formaður meistararáðs Víkings R. lét falla í hita leiksins í gær.

14.jún. 2013 - 10:20

Kallaði dómarann sorp: „KSÍ til skammar ár eftir ár“

Stór orð hér á ferðinni. Varaformaður knattspyrnudeildar Víkings, Heimir Gunnlaugsson, fór hamförum á samskiptasíðunni Twitter í gær eftir leik liðsins gegn Leikni í fyrstu deildinni. Hamfarirnar bitnuðu alfarið á dómaranum Leikni Ágústssyni en Heimi fannst halla verulega á sitt lið í leiknum í gær.
14.jún. 2013 - 09:50

David James með markvörslu á heimsmælikvarða

Stórkostleg varsla! ÍBV komst í gær í átta liða úrslit Borgunarbikarsins þegar liðið sigraði BÍ/Bolungarvík fyrir vestan. Leikurinn endaði með 0-1 sigri gestanna þar sem Aron Spear skoraði eina mark leiksins. Eyjamenn geta þakkað enska markverðinum David James fyrir það að mark þeirra hélst hreint í gær.
13.jún. 2013 - 17:00

Hinum hefðbundnu flöggum skipt út á US Open - Hvað er þetta?

„Ég myndi ekki segja að þetta geri okkur eitthvað erfiðara fyrir“ Opna bandaríska meistaramótið (e. US Open) er nú farið af stað þar sem allir fremstu golfarar heims eru mættir til leiks. Mikið skítaveður er á svæðinu en eitt atriði hefur vekið sérstaka athygli og það eru nýju holumerkingarnar.
13.jún. 2013 - 14:15

Ert þú búin(n) að senda Ólafi Stefánssyni kveðju?

Takk Óli! Handknattleikssnillingurinn og stórskyttan Ólafur Stefánsson leikur sinn síðasta leik fyrir Íslands hönd á sunnudaginn kemur. Inná vefsíðunni www.takkoli.is getur þú þakkað Óla Stef fyrir allar gleðistundirnar en nú þegar hafa tæplega 19 þúsund manns hent í kveðju.
13.jún. 2013 - 12:00

Skrautlegt mark Stál-Úlfs frá miðju: Hræðileg markmannsmistök

Sigþór Marvin Þórarinsson skoraði frá miðju. Mörkin gerast ekki mikið slysalegri í fótboltanum. Markvörður KB í íslensku fjórðu deildinni, Markús Vilhjálmsson, vill eflaust gleyma leik gærdagsins gegn Stál-Úlfi sem allra fyrst.
13.jún. 2013 - 10:20

Mýrarboltafélag Íslands skorar á þjálfara ÍBV: „Engar líkur á að Hermann skorist undan þessari áskorun“

Verður Hemmi í drullunni í ágúst?!

Einn leikur er á dagskrá í bikarkeppni karla í knattspyrnu í dag þegar Eyjamenn fara vestur og heimsækja BÍ/Bolungarvík. Af því tilefni ætla heimamenn í Mýrarboltafélagi Íslands að nýta sér komu þjálfara ÍBV, Hermanns Hreiðarssonar, til Ísafjarðar og hafa nú skorað á kappann.

12.jún. 2013 - 19:40 Ólafur Már Sigurðsson

Upphitun fyrir Opna bandaríska - Myndband

Opna bandaríska meistaramótið í golfi hefst á morgun á Marion golfvellinum í Ardmore. Hér sjáum við upphitun með John Swantek og Amanda Balionis.
12.jún. 2013 - 16:26

Ljótt tap gegn Hvít-Rússum: Afleitur fyrri hálfleikur

Þetta var nú ekki alveg nægilega gott!

Íslenska karlalandsliðið í handbolta mætti Hvít-Rússum ytra í dag. Leikurinn endaði með öruggum 29-24 sigri heimamanna þar sem íslensku strákarnir voru langt frá því að sýna sitt rétta andlit.

12.jún. 2013 - 15:00

Lionel Messi grunaður um umfangsmikil skattsvik

Eru feðgarnir á leið í steininn? Lionel Messi, leikmaður Barcelona og argentínska landsliðsins, og faðir hans sæta nú rannsókn spænskra yfirvalda vegna gruns um að þeir hafi skotið 4 milljónum evra undan skatti.
12.jún. 2013 - 14:00

Pepsileikurinn: Tveir tipparar með alla leikina rétta í sjöttu umferð

Kassi af Pepsi og tveir miðar á leik í Pepsideildinni bíða sigurvegurum í höfuðstöðvum Vefpressunnar! Tveir tipparar voru með alla leikina rétta í sjöttu umferð Pepsideildar karla, þar sem tippað var á alla leiki nema einn. Vinningshafarnir eru Pepsikassanum ríkari auk þess að fá miða fyrir tvo á leik í deildinni. Vertu með!
12.jún. 2013 - 11:00

Fjölmiðlar fara hamförum eftir niðurlægingu Armena á Dönum: Allir útileikmenn fengu -3 í einkunn

Uppnám innan herbúða danska landsliðsins! Armenar gerðu sér lítið fyrir í gærkvöldi og burstuðu Dani 4-0 í knattspyrnu á Parken í Kaupmannahöfn. Fjölmargir fjölmiðlar segja úrslitin smánarblett á danskri knattspyrnusögu. Margir ganga svo langt að krefjast afsagnar Morten Olsen, landsliðsþjálfara, í kjölfar tapsins.
12.jún. 2013 - 10:00

Kolbeinn Sigþórsson orðaður við Tottenham

Kolbeinn í leik með Ajax Kolbeinn Sigþórsson er nú orðaður við Tottenham á Englandi. Þessi 23 ára gamli framherji hefur leikið vel með Ajax undanfarin tvö tímabil, þrátt fyrir að hafa gengið í gegnum erfið meiðsli. Tottenham eru ólmir í að styrkja framherjastöðu liðsins fyrir komandi átök.
12.jún. 2013 - 05:50 Brynjar Eldon Geirsson

18 bestu golfholur landsins: 16.sæti

Bergvíkin sem er þriðja holan á Hólmsvelli Leiru á Reykjanesi varð næst fyrir valinu inn í 18 holu draumahring okkar sem innheldur að lokum 18 bestu golfholur landsins.
11.jún. 2013 - 19:00

Fabregas segist aðeins yfirgefa Barcelona vilji liðið losna við hann

Francesc Fabregas Fabregas gekk til liðs við Barcelona frá Arsenal sumarið 2011 en nú virðist sem honum sé ofaukið hjá spænsku meisturunum og fjölmiðlar hafa verið duglegir að velta upp hugsanlegum kaupum annarra liða á honum.
11.jún. 2013 - 16:10

EA Sports gefur út UFC bardagaleik

EA Sports UFC kemur út á næsta ári. Þeir sem hafa áhuga á bæði blönduðum bardagalistum og því að eyða frítíma sínum í að spila tölvuleiki ættu nú aldeilis að geta tekið gleði sína. Vorið 2014 mun tölvuleikjarisinn EA Sports gefa út leikinn EA Sports UFC.
11.jún. 2013 - 12:50

Íþróttamynd dagsins: Stuðningsmenn FH vönduðu leikmönnum KR ekki kveðjurnar

Leikmenn KR fengu eitthvað allt annað en blíðar móttökur frá stuðningsmönnum FH í Hafnarfirðinum í gærkvöldi, þegar Íslandsmeistarar FH fengu KR-inga í heimsókn í Pepsideild karla. Það var greinilega mikill hiti í stúkunni í Kaplakrikanum!
11.jún. 2013 - 11:30

Laun leikmanna í Evrópuboltanum fara hækkandi

Þessi ágæti hópur fær eitthvað af aurum fyrir að spila fótbolta Laun leikmanna í stóru evrópsku deildunum fimm jukust um 8% eða 430 milljónir evra knattspyrnutímabilið 2012 til 2013. Launin voru nákvæmlega 6,1 milljarðar evra. Launin í ensku úrvalsdeildinni halda áfram að vera umtalsvert hærri.
11.jún. 2013 - 11:00

„Ég hélt samt að Bretar væru það glerharðir að standa í lappirnar“

Magnús Þór Matthíasson Magnús Þórir Matthíasson, leikmaður Keflavíkur, hefur beðið stuðningsmenn félagsins afsökunar eftir að hann lét reka sig útaf gegn Fram í Pepsideildinni á mánudagskvöld. Umrætt atvik átti sér stað rétt fyrir hálfleiksflautið en þá lét Magnús skapið hlaupa með sig í gönur.
10.jún. 2013 - 22:00

Pepsideildin: KR-ingar á toppinn eftir flottan sigur á FH í Krikanum

Sjöttu umferð lauk í kvöld með þremur leikjum. KR komst í kvöld á topp Pepsideildarinnar eftir glæsilegan 2-4 sigur á FH í Kaplakrikanum. Leikurinn var vægast sagt fjörugur þar sem FH-ingar urðu manni færri snemma leiks. Fyrr í kvöld unnu Breiðablik og Fram sína leiki.
10.jún. 2013 - 16:00

Þú treður ekkert yfir LeBron James

Um stundarsakir hélt Tiago Splitter að hann gæti troðið yfir körfuboltasnillinginn LeBron James í leik Miami Heat og San Antonio Spurs í nótt. Það er ekki hægt.
10.jún. 2013 - 19:30

„Ekki endilega sport fyrir allar stelpur“

Sóley Sara er 14 ára motocrosssnillingur en hún byrjaði að hjóla „almennilega“ eins og hún kallar það í vetur og var að keppa í Íslandsmótinu nú um helgina á Selfossi. Sóley var að ljúka 9. bekk í Hraunvallaskóla í Hafnarfirði.
10.jún. 2013 - 13:30

Starfsmaður lét lífið í Formúlu 1: Varð undir kranabíl

Starfsmenn á vettvangi spila stórt hlutverk í Formúlu 1. Myndin tengist fréttinni ekki beint. Skelfilegt slys átti sér stað í Formúlu 1 keppninni í Kanada á sunnudag. Starfsmaður slasaðist þá mjög alvarlega eftir að hafa orðið undir kranabíl þegar unnið var að því að fjarlægja bíl Esteban Gutierrez af brautinni. Starfsmaðurinn lést af sárum sínum í gærkvöldi.
10.jún. 2013 - 12:30

Íslendingur varð vitni að fallhlífaslysi: Óhugnanlegt myndskeið

Fallhlífastökk er svokölluð jaðaríþrótt. „Hún kipptist að hótelinu og lenti utan í byggingunni,“ segir Sóldís Elfa Loftsdóttir sem varð vitni að því þegar fallhlífastökkvari var hætt kominn eftir að hafa stokkið fram af hóteli á Benidorm.
10.jún. 2013 - 11:35

Pepsideildin: Sjöttu umferðinni lýkur í kvöld - Toppsætið í húfi

Ríkharður Daðason stýrir Fram í sínum fyrsta leik í kvöld. Þrír flottir leikir eru á dagskrá í Pepsideild karla í kvöld. Í Krikanum verður barist um toppsætið þar sem FH fær KR í heimsókn. Á Kópavogsvelli mæta Blikar Ólsurum og í Keflavík fá heimamenn Fram í heimsókn.
10.jún. 2013 - 10:15

Luis Figo hefur engu gleymt

Luís Filipe Madeira Caeiro Figo. Um helgina mættustu Real Madrid og Juventus í góðgerðarleik þar sem goðsagnir úr sögum beggja félaga skipuðu liðin. Hinn fertugi Luis Figo virðist ennþá kunna að sparka í boltann en hann skoraði fyrsta mark Real Madrid í 2-1 sigri á Ítölunum.
10.jún. 2013 - 10:55

Arnór Þór Gunnarsson bestur

Arnór Þór Gunnarsson. Arnór Þór Gunnarsson var í gær valinn besti leikmaður þýska 2. deildarliðsins Bergischer í þýska handboltanum. Það voru stuðningsmenn liðsins sem sáu um valið en félagið endaði tímabilið á toppi deildarinnar og leikur því efstu deild í Þýskalandi á næsta tímabili.
10.jún. 2013 - 06:00 Ólafur Már Sigurðsson

Golf fyrir alla 3 (Brautarholtsvöllur) 9. hola - Myndband

Næstu mánudaga munu Brynjar Geirsson og Ólafur Már Sigurðsson spila fyrir okkur Brautarholtsvöll sem er nýr og glæsilegur golfvöllur sem opnaði síðsumars 2012 á Kjalarnesi. Útsýni, stórbrotin náttúra og fjölbreytt fuglalíf einkennir golfvöllinn.
09.jún. 2013 - 19:20

Ótrúlegt íþróttamyndband frá Keníu: Alvöru hástökk!

Vægast sagt ótrúleg stökk...

Myndbandið sem við sjáum hér hefur farið um netheima eins og eldur um sinu. Þar sjáum við tvo ansi öfluga íþróttamenn sýna magnaða takta í hástökki. Sjón er sögu ríkari!

09.jún. 2013 - 20:34

Haraldur Franklín kom sá og sigraði: Sá eini undir pari

Haraldur Franklín Magnús og Anna Sólveig Snorradóttir, sigurvegarar dagsins. Haraldur Franklín Magnús, Golfklúbbi Reykjavíkur, kom sá og sigraði á Securitasmótinu sem lauk í Vestmannaeyjum í dag. Haraldur Franklín lék á 72 höggum eða alls 209 höggum, einu undir pari.
09.jún. 2013 - 14:00

Anna Sólveig sigraði í Eyjum

Anna Sólveig Snorradóttir. Anna Sólveig Snorradóttir, Golfklúbbnum Keili, stóðst pressuna í dag og sigraði í kvennaflokki á Securitasmótinu sem fram fer í Vestmannaeyjum þessa helgina. Mótið er hluti af Eimskipsmótaröðinni.

Félag L Mun Stig
1 KR 7 +12 19
2 FH 7 +9 16
3 Stjarnan 7 +5 16
4 Valur 7 +9 15
5 Breiðablik 7 +5 13
6 ÍBV 7 +4 12
7 Fram 7 +2 11
8 Þór 7 -10 6
9 Keflavík 7 -7 4
10 ÍA 7 -10 3
11 Fylkir 7 -8 2
12 Víkingur Ó. 7 -11 1
Sena - ebækur - frítt