23.maí 2012 - 10:50

Besta leikmanni Skagamanna hundleiðist á Akranesi: Ekkert að gera hér, þarf að búa í Reykjavík

Gary Martin er góður í fótbolta, en honum hundleiðist. Englendingurinn Gary Martin frá Middlesbrough, sem hefur farið á kostum með liði Skagamanna í úrvalsdeildinni í upphafi keppnistímabilsins, er að drepast úr leiðindum á Akranesi, þar sem honum finnst ekkert hægt að gera. Hann segist þurfa að búa í Reykjavík.
22.maí 2012 - 09:42 Brynjar Eldon Geirsson

Þeir bestu hefja leik í Leirunni

Um helgina fer fram fyrsta stigamót GSÍ í Leirunni Keflavík og eru flestir af okkar bestu leikmönnum skráðir til leiks. Leiknar verða 54 holur á þremur dögum og mun mótið hefjast á föstudag.
22.maí 2012 - 00:13 Brynjar Eldon Geirsson

Golf í Vestmannaeyjum

Það er fátt skemmtilegra en að fara til Vestmannaeyja og leika þar einn glæsilegasta golfvöll landsins. Golfvöllurinn í Eyjum er ávallt í góðu ásigkomulagi og vel hirtur og það er tilvalið að taka sig saman með félögunum og skjótast í dagsferð og njóta þess að leika golf í frábæru umhverfi á góðum golfvelli.
21.maí 2012 - 18:00

Vindgustur slökkti Ólympíueldinn í Englandi: Sérhannaðir kyndlar sem eiga að standast öll veður

Sá óvenjulegi atburður varð í dag að það slokknaði á Ólympíukyndlinu aðeins þremur dögum eftir að hann kom til Englands. Kyndillinn var við hlið hjólastóls David Folletts, sem er meistari í badminton fatlaðra.

21.maí 2012 - 06:00 Ólafur Már Sigurðsson

Golf fyrir alla 2 (Grafarholtsvöllur) 6.hola - Myndband

Næstu mánudaga munu Brynjar Geirsson og Ólafur Már Sigurðsson spila fyrir okkur Grafarholtsvöll sem af mörgum er talinn vera einn sá skemmtilegasti á landinu. Á hverjum mánudegi munu þeir félagar spila eina holu og fara yfir leikskipulag á hverri holu fyrir sig. Hér sjáum við hvernig þeir spiluðu 6. holuna.
20.maí 2012 - 23:00

Arion banka mótaraðir: Metfjöldi þátttakenda - úrslit helgarinnar

Um helgina hófust mótaraðir unglinga og var leikið á Arion banka mótaröð unglinga á Garðavelli Akranesi en Golfklúbbur Reykjavíkur sá um framkvæmd mótsins. Það var svo Nesklúbburinn sem hélst stærsta Áskorendamót frá upphafi þar sem 108 keppendur mættu til leiks á Nesvelli.
19.maí 2012 - 21:52

Drogba hetja Chelsea: Þetta var skrifað í skýin fyrir löngu síðan. Guð er góður

Drogba fagnaði gríðarlega eftir að hafa tryggt Chelsea sigur í Meistaradeildinni í kvöld. Það var sem skrifað í skýin að Chelsea myndi vinna sinn fyrsta sigur í Meistaradeildinni eftir ævintýralega og dramatíska sigurgöngu í vetur og í úrslitaleiknum gegn Bayern Munchen í kvöld voru lukkudísirnar enn og aftur á bandi þeirra bláklæddu og Chelsea sigraði Bayern í vítaspyrnukeppni eftir framlengdan leik.
19.maí 2012 - 13:16 Brynjar Eldon Geirsson

Athyglisverðar golfsveiflur

Það þarf ekki alltaf að gera hlutina eftir bókinni til þess að ná árangri á vellinum eins og við getum séð á meðfylgjandi myndbandi sem er af mörgum góðum leikmönnum sem hafa sinn stíl.
18.maí 2012 - 22:19 Brynjar Eldon Geirsson

Að slá fade eða draw

Gott getur verið að geta slegið mismunandi boltaflug og gefur sá hæfileiki leikmönnum á fjölbreyttara leikskipulagi. Hér sýnir Justin Rose okkur hvaða aðferð hann notar til þess að slá mismunandi boltaflug.
16.maí 2012 - 16:59

Bandarískir eigendur Liverpool misstu þolinmæðina: King Kenny látinn fara

Fenway Sports Group og Liverpool FC hafa tilkynnt að Kenny Dalglish hafi látið af stjórn félagsins í dag. Leitin að nýjum stjóra mun hefjast tafarlaust.