20.jún. 2009 - 08:00 Helena háttvísa

Að mæta ókurteisi annarra

Hversu kurteis og tillitsamur maður sjálfur kann að vera, kemst maður ekki hjá því að mæta ókurteisi annarra endrum og sinnum.
14.jún. 2009 - 14:20 Helena háttvísa

Borðsiðir

Sumir telja að góðir borðsiðir snúist um það að vita hvaða gaffal maður á að nota. Slíkir telja jafnvel að setjist þeir við borð þar sem gestgjafi hefur lagt viðeigandi borðbúnað (hnífapör fyrir hvern rétt) sé um að ræða óþarfa snobb og jafnvel sé verið að reyna að klekkja á þeim
27.maí 2009 - 22:34 Helena háttvísa

Farsímar á almannafæri

Farsímar eru mörgum þarfaþing og orðin nauðsyn í daglegum samksiptum nútímafólks. Mörgum er þó afskaplega illa við þessi tól og finna þeim flest til foráttu, sérstaklega ef notkun annarra er yfirþyrmandi. Sumir eru m.a.s. þeirrar skoðunar að það hafi ekki verið tilvíljun að símar voru með snúrum hér áður – maður átti ekki að komast neitt með þá, heldur sinna símtalinu beinlínis á staðnum. En nú er það þannig að við erum komin vel inn á 21. öldina og best að sætta sig við framþróunina, bíla, ísskápa, þvottavélar og farsímana líka.
15.maí 2009 - 10:40 Helena háttvísa

Klæðnaður við betri tækifæri

Langflestir hafa gaman af því að klæða sig uppá fyrir ýmis sparileg tækifæri og tilefni, þó sumir telji slíkt óþarfa pjatt og tilætlunarsemi. Það gildir þó um þetta eins og aðra mannasiði, þetta snýst um tillitsemi og virðingu. Ef maður vill sýna samborgurum sínum hana fer maður eftir hinum óskráðu klæðaburðarreglum en ef ekki þrjóskast maður við í sinnni eigingirni til að sýna fram á eitthvað (óskilgreint) með óviðeigandi klæðnaði.
03.maí 2009 - 14:56 Helena háttvísa

Að segja nei

Það er ekki ókurteisi að segja nei. Sumir virðast halda það, en það er misskilningur. Jafnvel þó kurteisi og háttvísi séu systurhugtök tillitseminnar þýðir það ekki að sá sem vill vera þokkalega kurteis sé að eilífu ofurseldur þjónustu við dynti samferðamanna sinna. Sennilega er þó þessi misskilningur af þeim rótum runnin að kurteisi snúist um að gera öðrum til hæfis. Svo er ekki.
27.apr. 2009 - 15:55 Helena háttvísa

Að þakka fyrir

Að þakka fyrir sig er góður siður, hvort sem þakkað er fyrir stórt eða smátt. Takk er aukinheldur örstutt orð, sem stuttan tíma tekur að koma frá sér og ætti því ekki að vera mikið vandamál. Það er margt sem manni ber að þakka fyrir, til dæmis gjafir, boð, hlý orð, vingjarnlegheit, tillitsemi og svo framvegis.
15.apr. 2009 - 13:03 Helena háttvísa

Að heilsast

Á Íslandi þykir almenn kurteisi að heilsast með handabandi þegar maður hittir einhvern, hvort heldur er í fyrsta sinn eða við síðari tækifæri. Heilsast er með hægri hendi, enda flestir rétthentir og með þeirri hendi báru menn vopn og þurftu því að leggja það frá sér til að heilsast.

Háttprýði, kurteisi, siðvenjur, umgengnisvenjur og mannasiðir eru nokkur þeirra orða sem nota má um umfjöllunarefni þessa nýja efnisþáttar Pressunar.

Sjálf kýs ég að tala um háttvísi enda tel ég það vera einskonar samnefnari allra þessara orða og lýsa viðfangsefninu best. Hér ætla ég að fjalla um þær skrifuðu en þó mestmegnis óskrifuðu hefir og lögmál sem gilda í samskiptum manna í millum.

Háttvísi er ekki yfirborðsmennska eða snobb, heldur samskiptamáti sem byggir á nokkrum grundvallarreglum; tillitsemi, virðingu og heiðarleika. Allt eru þetta reglur sem langflest okkar læra í bernsku og það sem meira er, þær eiga við í samskiptum um allan heim. Háttvísi mun dýpri en yfirborðsmennska, því hún byggir á þessum mikilvægu gildum, auk þess að vísa til siðgæðis og almennra mannasiða . Háttvísi skyldi maður nota alltaf, bæði hversdags og spari, enda sýnir hún hver maður er í raun, ekki hvað maður þykist vera.

Það á í raun ekki að vefjast fyrir fólki að sýna háttvísi. Hins vegar gera ýmsar ólíkar umgengnisreglur eða siðvenjur fólki oft svolítið erfitt fyrir. Hvaða fatnaður er við hæfi við ólík tækifæri, hvernig skal heilsast og kveðjast, bjóða til veislu, þakka fyrir sig, hvernig skal haga sér við brúðkaup, opinber ræðuhöld, skálaræður, hvernig gjafir eru viðeigandi við ólík tækifæri? Allt er þetta þó bara samansafn af allskyns siðvenjum sem mótast hafa í gegnum tíðina og  eru auðlærðir þeim sem ekki kunna. Það er vel þess virði að leggja á sig að þekkja siðvenjur þess samfélags sem maður lifir og starfar í, enda er hegðan ágætur mælivkarði á innri mann og viðhorf til lífsins.

Á þessari síðu fjalla ég  almennt um háttvísi en þó einkum siðvenjur og almenna mannasiði. Lesendum er velkomið að senda inn fyrirspurnir um efnið og jafnvel álitamál. Ég mun með ánægju leitast við að svara öllum við fyrsta tækifæri.

Með vinsemd og virðingu,
Helena

Þið getið sent mér tölvupóst á hattvisi@pressan.is