08. júl. 2010 - 09:18Brynjar Eldon Geirsson

Hvað slærð þú langt?

Getty Images

Ef þú veist ekki hvað þú slærð langt með kylfunum þínum þá ertu í vandræðum og ef að þú lagar það ekki í hið fyrsta þá mun ekki ganga mikið á vellinum í framtíðinni. Forsenda þess að geta leikið gott golf er að leikmaðurinn þekki hvað boltinn flýgur langt með hverri kylfu fyrir sig. Milli kylfa ættu að vera að minnsta kosti 10-15 metra munur í flugi.

En hvernig getum við komist að því hvað við sláum langt?

Hér er dæmi um leikmann sem veit hvað hann slær langt og hefur skrifað það hjá sér. (ath þetta eru yards)

 

Við verðum að ganga út frá leikmanni sem hefur nú þegar komið stöðuleika í sveifluna hjá sér , vegna þess að þeir sem eru alveg að byrja í golfi eiga erfiðara með að framkvæma stöðuga sveiflu og því erfiðara fyrir byrjanda að fá stöðugar lengdir.

Spurningar sem vakna á vellinum eru td. hvað er langt í hættur af teig, hvað er langt í holuna, hvað þarf ég langt högg yfir vatnið svo eitthvað sé nefnt.

Hér er besta aðferðin fyrir áhugamenn til þess að komast að eigin högglengd með öllum kylfum í pokanum. (tekur 2 klst)

1. Notaðu bolta sem þú leikur með við mælingar á högglengd

2. Finndu þér slétt grassvæði og logn við mælingar

3. Fáðu einhvern með þér í mælingarnar, því best er að vera tveir/tvær saman

4. Einn slær annar fylgist með lendingu boltans og fer á þann stað og skýtur til baka á leikmanninnsem sló með lazer – mælir

 

5. Leikmaðurinn slær 10 bolta með hverri kylfu og síðan er tekinn sá styðsti og sá lengsti teknir frá og meðaltalið reiknað af hinum 8 og þá fæst einhver meðaltalslengd á hverja kylfu.

6. Leikmaður sem slær verður að passa upp á að halda alltaf sama tempo í sveiflunni með öllum kylfum.
Allir afreksmenn í golfi vita að án þess að vera 100 % með lengdir á hreinu mun lítið ganga og má jafnvel segja að ef maður veit ekki sýnar lengdir er ekki hægt að skipuleggja sig almennilega fyrir leikinn hring og það að auki veit maður aldrei hvaða kylfu maður á að velja á vellinum.

Atvinnumenn nota „launchmonitor“ við æfingar og fá þannig út hárnákvæmar lengdir fram dag eftir dag á öllum kylfum í pokanum og geta því nýtt sér það vel á vellinum. Þessi tæki eru dýr en það marg borgar sig fyrir þá sem ætla sér í hæðstu hæðir að komast í slíkan búnað.

 

Margir gleyma sér einnig í einhverjum rembingi og eru í keppni við meðspilarann og taka alltaf sömu kylfu og hann og hvorugur vill taka lægra númer á kylfu og vera minni maður. En þetta snýst ekki um þessa hluti eða að reyna að slá sem lengst heldur einungis að vita hvað maður sjálfur slær langt með sýnum eigin kylfum. Kylfingar geta verið mishögglangir með sömu kylfu en það er ekki þar með sagt að sá sem slær lengra sé betri í golfi.

En fyrir þá sem nenna ekki að standa í mælingum er samt gagn af því að kaupa sér „lazer mæli“ og nota á vellinum við leik,þannig batnar lengdarstjórnunin mjög mikið þó að þessar aðferðir sem ég nefni hér að ofan séu betri.

Komdu þessu á hreint sem allra fyrst

Með kveðju
Brynjar Eldon Geirsson
PGA golfkennari hjá golfskóla Progolf




30.ágú. 2010 - 17:30 Brynjar Eldon Geirsson

Bestu kylfingar Íslands frá upphafi

Ég ætla að taka fram 10 leikmenn sem fram að deginum í dag hafa staðið sig hvað allra best að mínu mati og ætla ekki að tala um þá sem eru að koma upp og munu ráða ferðinni næstu ár.
18.ágú. 2010 - 15:00 Brynjar Eldon Geirsson

Úttekt: Tíu bestu golfvellir á Íslandi

Ég ætla að setja hér fram topp 10 lista yfir þá golfvelli sem mér finnst skemmtilegast að leika á og ég tek það hér fram að þetta er bara mín skoðun á völlunum hér heima.
10.ágú. 2010 - 10:58 Gunnar Már Sigfússon

Golfkennsla: Bob Lowry fer yfir það hvernig þú getur hætt að toppa boltann: MYNDBAND

Bob Lowry golfkennari hjá Santa Ana fer yfir það á einfaldan hátt hvernig þú getur hætt að toppa boltann í höggunum

10.ágú. 2010 - 10:40 Gunnar Már Sigfússon

10 fyndnustu golfauglýsingarnar 2010: MYNDBAND

10 fyndnustu golfauglýsingarnar 2010
05.ágú. 2010 - 18:14 Brynjar Eldon Geirsson

Vertu undirbúinn fyrir mót

Einkennandi fyrir alla góða leikmenn er hvað þeir haga undirbúningi sýnum fyrir leikna hringi skipulega og undirbúa sig markvisst í öllum þáttum fyrir mót. Hinn almenni kylfingur er frekar svona í því að mæta 10 mín fyrir teigtímann sinn og skilur síðan ekkert í því afhverju svona illa gekk. Undirbúningur fyrr mót verður að byrja miklu fyrr og verður að vera markviss.

03.ágú. 2010 - 19:00 Úlfar Jónsson

Viltu verða betri golfari?

Búðu þér til staðfast vanaferli (rútínu) fyrir hvert högg sem þú slærð. Vanaferli hjálpar okkur að ná stöðugleika í leik okkar, það eykur sjálfstraustið, eykur hugarró og einbeitingu og hæfileikann að sjá höggin heppnast eins og við viljum.
28.júl. 2010 - 12:03 Brynjar Eldon Geirsson

Komdu til baka

Hver þekkir það ekki að leika eina holu illa á golfvellinum og láta það fara svo í taugarnar á sér að næstu holur verða einnig slæmar? Það á að vera gaman í golfi hvort sem um er að ræða hring með kunningjum eða hring í móti, það er því mjög mikilvækt að leikmenn náii að halda haus þó að stundum blási á móti og illa gangi á einhverri holu sem leikin hefur verið.
23.júl. 2010 - 17:31 Arnar Ægisson

Hanbury Manor í haust - svíkur engan

Kylfingur á 17. flöt Helgarferð á Marriott Hanbury Manor svíkur engan enda um að ræða eitt besta golfhótel Englands. Þetta margverðlaunaða 5-stjörnu hótel sameinar glæsigistingu við einstaka upplifun í þjónustu og mat.
23.júl. 2010 - 13:02 Úlfar Jónsson

Markmið fyrir golfhring - rétt kylfuval í innáhöggi

Ef þú lítur til baka og ferð yfir seinustu hringi sem þú spilaðir, skoðaðu þá hversu oft innáhöggið var of stutt, of langt, eða rétt lengd (miðað við holuna). Líkurnar eru býsna miklar að þú sért mun oftar of stutt(ur) í innáhöggi heldur en hitt.

30.8.2010

Bestu kylfingar Íslands frá upphafi

Ég ætla að taka fram 10 leikmenn sem fram að deginum í dag hafa staðið sig hvað allra best að mínu mati og...


Skipta um leturstærð

Breyta um tungumál



Leit



Progolf