06. júl. 2010 - 15:24Arnar Ægisson

Donnington Valley haustið 2010

Mynd: GB ferðir

Donnington Valley Hotel & Spa, London (40 mín frá Heathrow) Eitthvað fyrir þá sem gera kröfur um fyrsta flokks aðbúnað.  Eitt besta golfhótelið sem við bjóðum uppá á Londonsvæðinu. Hótelið hefur nýverið gengist undir 1.8 milljarða endurbætur, þar af fóru 650 milljónir í glænýja heilsulind.

Dagsetningar:
20.-23.ágúst( 3 nætur)
27.-30.ágúst( 3 nætur)
03.-06.september( 3 nætur)
10.-13.september( 3 nætur)
17.-20.september( 3 nætur)
24.-27.september( 3 nætur)
01.-04.október( 3 nætur)
08.-11.október( 3 nætur)
15.-18.október( 3 nætur)
22.-25.október( 3 nætur)
29.október-01. nóv( 3 nætur)

Tilboðsverð frá kr. 99.000 kr. á mann í tvíbýli.  Innifalið: flug, flugvallarskattur,gisting í 3 nætur með morgunverði, 4x18 holur, aðgengi að heilsulind og líkamsræktarstöð hótelsins

Allar nánari upplýsingar og bókanir fara fram hjá GB Ferðum




30.ágú. 2010 - 17:30 Brynjar Eldon Geirsson

Bestu kylfingar Íslands frá upphafi

Ég ætla að taka fram 10 leikmenn sem fram að deginum í dag hafa staðið sig hvað allra best að mínu mati og ætla ekki að tala um þá sem eru að koma upp og munu ráða ferðinni næstu ár.
18.ágú. 2010 - 15:00 Brynjar Eldon Geirsson

Úttekt: Tíu bestu golfvellir á Íslandi

Ég ætla að setja hér fram topp 10 lista yfir þá golfvelli sem mér finnst skemmtilegast að leika á og ég tek það hér fram að þetta er bara mín skoðun á völlunum hér heima.
10.ágú. 2010 - 10:58 Gunnar Már Sigfússon

Golfkennsla: Bob Lowry fer yfir það hvernig þú getur hætt að toppa boltann: MYNDBAND

Bob Lowry golfkennari hjá Santa Ana fer yfir það á einfaldan hátt hvernig þú getur hætt að toppa boltann í höggunum

10.ágú. 2010 - 10:40 Gunnar Már Sigfússon

10 fyndnustu golfauglýsingarnar 2010: MYNDBAND

10 fyndnustu golfauglýsingarnar 2010
05.ágú. 2010 - 18:14 Brynjar Eldon Geirsson

Vertu undirbúinn fyrir mót

Einkennandi fyrir alla góða leikmenn er hvað þeir haga undirbúningi sýnum fyrir leikna hringi skipulega og undirbúa sig markvisst í öllum þáttum fyrir mót. Hinn almenni kylfingur er frekar svona í því að mæta 10 mín fyrir teigtímann sinn og skilur síðan ekkert í því afhverju svona illa gekk. Undirbúningur fyrr mót verður að byrja miklu fyrr og verður að vera markviss.

03.ágú. 2010 - 19:00 Úlfar Jónsson

Viltu verða betri golfari?

Búðu þér til staðfast vanaferli (rútínu) fyrir hvert högg sem þú slærð. Vanaferli hjálpar okkur að ná stöðugleika í leik okkar, það eykur sjálfstraustið, eykur hugarró og einbeitingu og hæfileikann að sjá höggin heppnast eins og við viljum.
28.júl. 2010 - 12:03 Brynjar Eldon Geirsson

Komdu til baka

Hver þekkir það ekki að leika eina holu illa á golfvellinum og láta það fara svo í taugarnar á sér að næstu holur verða einnig slæmar? Það á að vera gaman í golfi hvort sem um er að ræða hring með kunningjum eða hring í móti, það er því mjög mikilvækt að leikmenn náii að halda haus þó að stundum blási á móti og illa gangi á einhverri holu sem leikin hefur verið.
23.júl. 2010 - 17:31 Arnar Ægisson

Hanbury Manor í haust - svíkur engan

Kylfingur á 17. flöt Helgarferð á Marriott Hanbury Manor svíkur engan enda um að ræða eitt besta golfhótel Englands. Þetta margverðlaunaða 5-stjörnu hótel sameinar glæsigistingu við einstaka upplifun í þjónustu og mat.
23.júl. 2010 - 13:02 Úlfar Jónsson

Markmið fyrir golfhring - rétt kylfuval í innáhöggi

Ef þú lítur til baka og ferð yfir seinustu hringi sem þú spilaðir, skoðaðu þá hversu oft innáhöggið var of stutt, of langt, eða rétt lengd (miðað við holuna). Líkurnar eru býsna miklar að þú sért mun oftar of stutt(ur) í innáhöggi heldur en hitt.
08.júl. 2010 - 09:18 Brynjar Eldon Geirsson

Hvað slærð þú langt?

Ef þú veist ekki hvað þú slærð langt með kylfunum þínum þá ertu í vandræðum og ef að þú lagar það ekki í hið fyrsta þá mun ekki ganga mikið á vellinum í framtíðinni. Forsenda þess að geta leikið gott golf er að leikmaðurinn þekki hvað boltinn flýgur langt með hverri kylfu fyrir sig. Milli kylfa ættu að vera að minnsta kosti 10-15 metra munur í flugi.

30.8.2010

Bestu kylfingar Íslands frá upphafi

Ég ætla að taka fram 10 leikmenn sem fram að deginum í dag hafa staðið sig hvað allra best að mínu mati og...


Skipta um leturstærð

Breyta um tungumál



Leit



Progolf