23.feb. 2013 - 17:56
Ólafur Már Sigurðsson
Margir kylfingar eyða miklum tíma í útlitið enda golfið mikil tískuíþrótt. Hér sjáum við samantekt frá Golfing World yfir best klæddu kylfnga allra tíma.
15.feb. 2013 - 21:06
Ólafur Már Sigurðsson
Örninn golfverslun mun kynna allt það nýjasta frá Taylor Made og Cleveland í Básum laugardaginn 16. febrúar. Starfsmenn verslunarinnar verða á staðnum frá kl. 11:00-16:00.
14.feb. 2013 - 23:01
Ólafur Már Sigurðsson
Nýir æfingaboltar verða teknir í notkun í Básum laugardaginn 16. febrúar og því tilvalið fyrir kylfinga að æfa sveifluna fyrir komandi átök á vellinum í sumar.
10.feb. 2013 - 17:24
Ólafur Már Sigurðsson
Margir velta fyrir sér hversu hátt þeir eiga að tía upp boltann þegar slegið er með járnkylfum af teig. Hér sýnir Maria Palozola okkur hvernig hún fer að því.
03.feb. 2013 - 23:22
Ólafur Már Sigurðsson
Hver hefur ekki lent í því að þurfa að slá grafinn bolta upp úr sandglompu. Hér sýnir Maria Palozola okkur góða aðferð til að framkvæma þessi erfiðu golfhögg.
03.feb. 2013 - 22:53
Ólafur Már Sigurðsson
Phil Mickelson sigraði örugglega á Phoenix Open mótinu á PGA-mótaröðinni sem fram fór á TPC Scottsdale vellinum um helgina. Mickelson lék hringina fjóra á 28 höggum undir pari og sigraði með fjögurra högga mun
02.feb. 2013 - 13:39
Ólafur Már Sigurðsson
Phil Mickelson er efstur eftir 36 holur á Phoenix Open mótinu sem nú fer fram á TPC Scottsdale vellinum. Mickelson er samtals á 17 höggum undir pari en hann lék fyrsta hringinn á 60 höggum og annan hringinn á 65 höggum.
28.jan. 2013 - 23:01
Ólafur Már Sigurðsson
Tiger Woods sigraði með yfirburðum á Farmers Insurance mótinu á PGA-mótaröðinni sem fram fór á Torrey Pines vellinum í Kaliforníu.
28.jan. 2013 - 22:26
Ólafur Már Sigurðsson
Tiger Woods leikur með sömu kylfum og hann lék með í fyrra. Hann leikur með
Nike VR Pro Blade járnum.
23.jan. 2013 - 21:38
Ólafur Már Sigurðsson
Paul Loegering og Sean O'Hair lýsa hér búnaðinum sem Sean notar á PGA-mótaröðinni.
21.jan. 2013 - 16:17
Ólafur Már Sigurðsson
Rory McIlroy skrifaði nýlega undir 10 ára samning við Nike sem tryggir honum 100 milljónir bandaríkjadala fyrir að leika með kylfum, boltum og í fatnaði frá íþróttaframleiðandanum. Árangurinn í fyrsta mótinu var ekki glæsilegur hjá honum en hann náði ekki niðurskurðinum á Abu Dhabi mótinu.
16.jan. 2013 - 13:18
Brynjar Eldon Geirsson
Paul McGinley frá Írlandi hefur verið útnefndur fyrirliði Evrópuliðsins fyrir Ryderbikarinn í golfi sem fram fer á Gleneagles í Skotlandi árið 2014. McGinley hefur undanfarnar vikur verið talinn líklegastur til að hreppa hnossið og hann tekur við af Jose Maria Olazabal sem stjórnaði liðinu á síðasta ári.
16.jan. 2013 - 09:40
Brynjar Eldon Geirsson
Alexander Noren, Svíinn knái sem unnið hefur þrjú mót á Evrópumótaröðinni, sýnir hér ótrúlegar kúnstir með fleygjárni á æfingasvæðinu. Það er greinilegt að æfingin skapar meistarann eins og sjá má á myndbandinu hér.
14.jan. 2013 - 20:47
Ólafur Már Sigurðsson
Rory McIlroy skrifaði nýlega undir 10 ára samning við Nike og mun hann nota kylfur, bolta og fatnað frá íþróttarisanum. Þar með eru tveir bestu kylfingar heims á mála hjá Nike en eins og flestir vita er Tiger Woods einnig á mála hjá Nike.
13.jan. 2013 - 15:48
Ólafur Már Sigurðsson
Högg dagsins á þriðja hring á Sony Open mótinu á Hawaii. Chris Kirk fær hér örn á 18. holu sem er par 5.
10.jan. 2013 - 19:41
Ólafur Már Sigurðsson
Leikmenn PGA-mótaraðarinnar voru fæddir til að spila golf. Hér sjáum við hvernig nokkrir af þeim allra bestu byrjuðu.
09.jan. 2013 - 11:53
Ólafur Már Sigurðsson
Taylor Made var að setja á markað nýjan driver sem fengið hefur mjög góða dóma. Hægt er að breyta lofti kylfunnar frá 8°til 12°.
03.jan. 2013 - 20:50
Ólafur Már Sigurðsson
Hér sjáum við topp 10 lista yfir einstakar golfsveiflur. Sumir eru með óhefðbundnar venjur í sveiflunni hjá sér en ná samt sem áður ótrúlegum árangri. Þetta myndband sannar að allar sveiflur geta skilað árangri.
03.jan. 2013 - 19:51
Ólafur Már Sigurðsson
Rory McIlroy hefur sterklega verið orðaður við kylfu- og fataframleiðandann Nike undanfarið en Rory hefur síðustu ár leikið með kylfum frá Titleist. Líklegt þykir að Nike muni tilkynna skiptin eftir tvær vikur á Abu Dhabi.
01.jan. 2013 - 13:39
Ólafur Már Sigurðsson
Rory McIlroy fagnaði jólunum með unnustu sinni, Caroline Wozniacki, en eins og sjá má á myndunum klæddu þau sig í skemmtilega boli í tilefni dagsins.
14.des. 2012 - 08:28
Brynjar Eldon Geirsson
Ólafur Björn Loftsson, kylfingur úr NK og fyrrverandi íslandsmeistari í höggleik, hafnaði í 21. sæti á atvinnumannamótinu Disney-Lake Buena Vista sem lauk á Flórída í fyrrakvöld, eftir að hafa átt mjög góðan lokahring.
13.des. 2012 - 15:06
Brynjar Eldon Geirsson
Alexis Thompson er að verða ein skærasta stjarna kvennagolfsins, einungis 17 ára gömul. Hér fer þjálfarinn Jim Mclean yfir sveiflu hennar og ræðir kosti og galla. Frábær kylfingur hér á ferð og á hún svo sannarlega bjarta framtíð fyrir sér á stóra sviðinu.
13.des. 2012 - 09:15
Brynjar Eldon Geirsson
Á Evrópumótaröðinni leika flestir bestu leikmenn heims mjög reglulega. Ef litið er yfir almenna tölfræði í hinum ýmsu þáttum geta kylfingar borið sinn eigin leik saman við það sem best gerist. Þar með geta leikmenn sett sér háleit markmið og geta reynt að færa sinn leik að tölum þeirra allra bestu.
13.okt. 2012 - 08:22
Ólafur Már Sigurðsson
Margir eiga í erfiðleikum með að vippa úr háu grasi nálægt flötinni. Hér sýnir Rick Sessinghaus hvernig best er að framkvæma þetta erfiða golfhögg.
25.sep. 2012 - 20:53
Ólafur Már Sigurðsson
Hér sjáum við 10 bestu höggin á FedEx Cup Playoffs árið 2012.
21.sep. 2012 - 11:41
Ólafur Már Sigurðsson
Stafán Már Stefánsson GR er 3 undir pari eftir 16 holur á fjórða hring á fyrsta stigi úrtökumótins fyrir Evrópumótaröðina en leikið er á Fleesensee vellinum í Þýskalandi. Stefán Már er því samtals á einum yfir pari og ólíklegt að hann komist áfram á annað stigið.
20.sep. 2012 - 21:57
Brynjar Eldon Geirsson
Nú hefur sérstök nefnd skilað af sér skýrslu um það hvernig hún vill sjá breytingar gerðar á Grafarholtsvelli. Grafarholtsvöllur er án efa einn fallegasti og eftirsóttasti golfvöllur landsins og telja menn þessar breytingar nauðsynlegar svo að völlurinn standist álag og sómi sérvel í framtíðinni.
20.sep. 2012 - 11:26
Ólafur Már Sigurðsson
Stafán Már Stefánsson GR lék þriðja hringinn á fyrsta stigi úrtökumótsins fyrir Evrópumótaröðina á 70 höggum eða tveimur undir pari vallar. Hann er því samtals á 4 höggum yfir pari eftir að hafa leikið fyrstu tvo hringina á 75 höggum.
20.sep. 2012 - 09:07
Ólafur Már Sigurðsson
Stefán Már Stefánsson lék fyrri níu holurnar á pari á þriðja degi úrtökumótsins fyrir Evrópumótaröðina sem nú fer fram á Fleesensee vellinum í Þýskalandi. Stefán Már er þá samtals á 6 höggum yfir pari vallarins eftir 45 holur. Þórður er 10 yfir pari eftir 45 holur.
19.sep. 2012 - 13:10
Ólafur Már Sigurðsson
Þórður Rafn Gissurarson GR lék annan hringinn á 82 höggum á fyrsta stigi úrtökumótsins sem leikinn er á Fleesensee í Þýskalandi. Stefán Már Stefánsson lék hringinn í dag á 75 höggum.
19.sep. 2012 - 10:04
Ólafur Már Sigurðsson
Þórður Rafn Gissurarson er á 4 höggum yfir pari og Stefán Már Stefánsson er á 5 höggum yfir pari eftir 27 holur á fyrsta stigi úrtökumótsins fyrir Evrópumótaröðina en leikið er á Fleesensee vellinum í Þýskalandi.
18.sep. 2012 - 18:09
Ólafur Már Sigurðsson
Þórður Rafn Gissurarson lék Fleesensee völlinn á 71 höggi og Stefán Már Stefánsson á 75 höggum á fyrsta degi úrtökumótsins fyrir Evrópumótaröðina sem nú fer fram í Þýskalandi.
18.sep. 2012 - 12:27
Ólafur Már Sigurðsson
Stafán Már Stefánsson GR er á einu yfir pari eftir fyrri 9 holurnar á fyrsta stigi úrtökumótsins fyrir Evrópumótaröðina en leikið er á Fleesensee vellinum í Þýskalandi. Þórður Rafn Gissurarson er einnig meðal keppanda en hann byrjaði fyrstu holuna á pari.
17.sep. 2012 - 18:43
Ólafur Már Sigurðsson
Stefán Már Stefánsson og Þórður Rafn Gissurarson úr GR hefja leik á morgun á fyrsta stigi úrtökumótsins fyrir Evrópumótaröðina. Þeir félagar leika á Fleesensee vellinum í Þýskalandi sem er nálægt Berlín. Mótið er 72 holur og skorið niður eftir 3 daga.
17.sep. 2012 - 18:15
Ólafur Már Sigurðsson
Hér sjáum við lista yfir 5 bestu högg vikunnar á Champions Tour, Web.com Tour og PGA Tour latinoamerica.
11.sep. 2012 - 19:08
Ólafur Már Sigurðsson
Hér sjáum við 10 bestu högg allra tíma á Champions Tour mótaröðinni. Lee Trevino, Jack Nicklaus, Hale Irvin og Fuzzy Zoeller koma allir við sögu með ótrúlegum höggum.
10.sep. 2012 - 02:14
Brynjar Eldon Geirsson
Það er fátt sem stöðvar Rory McIlroy þessa dagana en þessi ungi Norður-Íri sigraði á BMW meistaramótinu nú í kvöld. McIlroy spilaði lokahringinn á Crooked Stick vellinum í Indiana á 67 höggum eða fimm höggum undir pari og sigraði með tveimur höggum en Phil Mickelson og Lee Westwood deildu öðru sætinu á 18 höggum undir. Tiger Woods endaði svo í þriðja sæti á 17 höggum undir pari eftir lokahring upp á 68 högg eða fjóra undir pari.
09.sep. 2012 - 12:07
Ólafur Már Sigurðsson
Birgir Leifur Hafþórsson úr GKG lék síðasta hringinn á Russian Challange Cup mótinu á 73 höggum og endaði í 52. sæti á mótinu sem er hluti af Áskorendamótaröðinni. Birgir Leifur endaði mótið á samtals 9 höggum yfir pari eftir að hafa leikið síðasta hringinn á einum yfir pari.
08.sep. 2012 - 13:08
Ólafur Már Sigurðsson
Atvinnukylfingurinn Birgir Leifur Hafþórsson lék þriðja hringinn á Russian Challange Cup mótinu á 76 höggum og er sem stendur í 62. sæti. Mótið fer fram í Moskvu en það er hluti af Áskorendamótaröðinni.
08.sep. 2012 - 10:00
Ólafur Már Sigurðsson
Nú er búið að opna nýjan og stórglæsilegan golfvöll í landi Brautarholts á Kjalarnesi. Útsýni, stórbrotin náttúra og fjölbreytt fuglalíf einkenna golfvöllinn. Við hönnun vallarins var haft að leiðarljósi að leggja hann í landið og hafa ósnert rými umhverfis brautir til að nýta eiginleika umhveris sem náttúrulegar hindranir.
05.sep. 2012 - 21:56
Ólafur Már Sigurðsson
Hér sýnir Rick Sessinghaus okkur hvernig við getum framkvæmt hátt glompuhögg sem stöðvast snögglega á flötinni eftir lendingu.
02.sep. 2012 - 12:39
Ólafur Már Sigurðsson
Rétt staða er mikilvæg til að framkvæma góð golfhögg. Hér gefur Jason Day nokkur góð ráð varðandi stöðuna.
31.ágú. 2012 - 09:07
Brynjar Eldon Geirsson
Hér má sjá Bubba watson og Ben Crane meðal þeirra sem koma fram í tónlistarmyndbandi sem nokkrir kylfingar tóku þátt í.
29.ágú. 2012 - 19:55
Ólafur Már Sigurðsson
Tiger Woods er án efa einn besti kylfingur allra tíma en hann hefur sjaldan náð að sýna sitt rétta andlit á Ryder Cup. Hér sjáum við svipmyndir frá Ryder Cup ferli kappans.
27.ágú. 2012 - 16:37
Ólafur Már Sigurðsson
Til að ná fram stöðugleika á golfvellinum er mikilvægt að vera með gott vanaferli. Hér eru nokkur atriði sem vert er að hafa í huga varðandi vanaferli
25.ágú. 2012 - 02:06
Brynjar Eldon Geirsson
Nú höfum við íslendingar aldrei átt fleiri golfara í Háskólaliðum í USA. Þessi þróun hlýtur að teljast vera jákvæð og merki þess að við séum að eignast fleiri góða unga kylfinga. Þeir leikmenn sem leika erlendis í vetur með sínu námi eru orðnir fjöldamargir og helst ber að nefna Harald Franklín Magnús, Andrí Þór Björnsson, Pétur Freyr Pétursson, Ólafíu Þórunn Kristinsdóttir,Berglind Björnsdóttir, Sunna Víðisdóttir,Ragna Björk , Ingunn Gunnarsdóttir,Eygló Myrra Óskarsdóttir, Ólafur Björn Loftsson, Arnór Ingi Finnbjörnsson, Valdís Þóra svo einhverjir séu nefndir, Frábær þróun fyrir íslenskt golf og það eitt að okkar kylfingar fái að æfa við bestu aðstæður allan ársins hring gerir okkar kylfinga sterkari en nokkru sinni fyrr.
24.ágú. 2012 - 21:11
Ólafur Már Sigurðsson
Framkvæmdir við endurgerð seinni níu holanna á Hvaleyrarvelli eru nú í fullum gangi. Fyrsta holan sem kláruð verður er 15. holan í nýju skipulagi, um 150 metra par 3 hola yfir víkina. Flötin er staðsett beint fyrir aftan núverandi karlateig á 15. holu.
22.ágú. 2012 - 21:40
Ólafur Már Sigurðsson
Lee Westwood mun leika á sínu áttunda Ryder Cup móti á Medinah vellinum í lok september. Westwood man vel eftir fyrsta Ryder Cup mótinu þegar hann lék við hlið Nick Faldo árið 1997.
19.ágú. 2012 - 23:09
Ólafur Már Sigurðsson
Högg dagsins á þriðja hring á Wyndham mótinu. Tim Clarke slær 144 metra högg nánast ofan í 11. holuna og fær auðveldan fugl.
14.ágú. 2012 - 14:47
Brynjar Eldon Geirsson
Ben Hogan var langt á undan sinni samtíð í öllu sem kom að golftækni, tæknin hans hefur orðið mörgum öðrum leikmönnum til eftirbreytni á seinni árum. Frábær kylfingur sem hefur hjálpað golftækninni á hærra plan með sinni ástríðu fyrir leiknum.