20. mar. 2010 - 09:25Gunnar Már Sigfússon

Jafnvægisæfingar fyrir kylfinga

Að rísa upp úr stöðunni gæti þýtt að þú eigir við jafnvægisvandamál að stríða.

Að rísa upp úr stöðunni gæti þýtt að þú eigir við jafnvægisvandamál að stríða.

Kylfingar sem rísa upp úr stöðinni eða koma ofarlega inn á boltann gætu átt við jafnvægisvandamál að stríða. Það er auðvelt að finna út hvort það sé málið og ef svo er þá eigum við svarið við því.

Það er augljóslega mikilvægt fyrir kylfinga að hafa gott jafnvægi eða kannski er réttara að tala um jafnvægisskyn. Jafnvægi er einn af þessum eðlisþáttum og fjallar um skynjunina og hversu eðlisleg hún er okkur. Slæmu fréttirnar eru að jafnvægisskynið er eitt af því fyrst sem verður verra með aldrinum svo að ef þú ert kylfingur yfir fimmtugt áttu sennilega við einhvers konar jafnvægisvandamál að stríða. Góðu fréttirnar eru að ef þig vantar upp á þar hvort sem það er bara þannig frá náttúrunnar hendi eða að eitthvað hefur komið fyrir svo þessi skynjun er ekki jafn góð og hún var t.d. eftir uppskurð eða slys þá er að finna æfingar inn á þessari síðu sem hafa með jafnvægi kylfinga að gera og eru frábærar til þess að auka jafnvægis-skynjunina og þar með öryggið í sveiflunni þinni.

Byrjum á að sjá hvort þig skorti jafnvægi

Farðu úr skónum og stattu á gólfinu á hægri fæti og síðan lyftirðu vinstri upp í 90°. Þú þarft að halda í 20 sekúndur án þess að detta og síðan endurtaka með því að standa í vinstri fót. Ef þetta er í lagi þá er komið að erfiðara prófi sem reynir verulega á jafnvægisskynið. Endurtaktu fyrra prófið nema núna lyftirðu vinstri fætinum upp í 90° finnur jafnvægið og lokar síðan augunum í 20 sekúndur. Þetta er mun erfiðara próf en gefur góða hugmynd um það hvort þú þurfir að bæta inn jafnvægisæfingum á prógrammið þitt. 




24.mar. 2010 - 09:59 Brynjar Eldon Geirsson

Lærðu að vippa inn á flöt

Brynjar Eldon Geirsson og Ólafur Már Sigurðsson, PRO GOLF kennarar sýna kylfingum hvernig á að bera sig að þegar vippað er inn á flöt.
14.mar. 2010 - 09:00 Gunnar Már Sigfússon

Líkamsrækt kylfinga: 5 Bestu æfingarráðin fyrir 2010

Það eru nú bara þannig að sum ráð eru betri en önnur. Eftirfarandi listi er yfir þau ráð sem tengjast líkamsrækt kylfinga og okkur finnst standa upp úr og eru frá virtustu þjálfurum kylfinga um allan heim. Þetta eru allt frábærarar  ráðleggingar sem við höfum tekið saman og mælum með að fylgið og uppskerið ykkar besta sumar til þessa. Nú er allt útlit fyrir að tímabilið í ár verði snemma á ferðinni og því ekki seinna vænna að fara að setja alvöru bakvið loforðin sem þið gáfuð eftir síðasta tímabil og fara að setja í æfingargírinn.

07.mar. 2010 - 10:00 Gunnar Már Sigfússon

Framstig með snúningi á efri líkama: Styrkur/jafnvægi - aukinn hreyfanleiki efri/neðri

Framstig er tæknilega erfið æfing og er ekki fyrir byrjendur né þá sem eru slæmir í hnjám. Hún er engu að síður framúrskarandi æfing fyrir rassvöðvastyrk og ef hún er sett saman með snúningi eins og þessi útgáfa er hún mjög góð liðleikaæfing fyrir efri líkama. Hún er eiginlega holdgervingur þess sem golfsveiflan gengur út á.
07.mar. 2010 - 10:00 Gunnar Már Sigfússon

Brú með fótalyftum: Styrkur - Jafnvægi neðri líkama

Vissir þú að rassvöðvarnir eru annað að tveimur vöðvasvæðum sem eru mikilvægust fyrir kylfinga. Takmarkaður kraftur eða stífleiki er ávísum á vandræði í sveiflunni.

05.mar. 2010 - 07:00 Gunnar Már Sigfússon

Trevor Immelman: Golffitness rútínan hans / Partur 2 af 2

Plankinn með áherslu á jafnvægi.

Mikilvægt er að hafa grunn í líkamsrækt áður en hafist er handa við þessa áætlun en hún er bæði krefjandi og krefst góðs líkamlegs grunns. Ef þú ert kylfingur í góðu formi og ert ekki með meiðsli er þetta frábær viðbót við æfingarkerfið þitt.

03.mar. 2010 - 12:03 Gunnar Már Sigfússon

Trevor Immelman: Golffitness rútínan hans / Partur 1 af 2

Trevor Immelman Trevor Immelman er einstaklega íþróttasinnaður kylfingur. Hann leggur mikla áherslu á að halda líkamanum í frábæru formi og segir sjálfur að líkamsrækt sé algert lykilatriði til þess að ná árangri og til þess að halda atvinnumanna ferlinum sem lengstum og án meiðsla.
28.feb. 2010 - 15:33 Gunnar Már Sigfússon

Kviður á bolta með snúningi: Styrkur/jafnvægi fyrir core - búksvæðið og neðri líkama

Æfingarbolti er eitt besta æfingartæki sem kylfingar geta komist í. Málið með boltana er að allar þær æfingar sem þú gerir á þeim hvort sem það er liðleiki eða styrkur þá koma þeir alltaf með þetta litla „auka” sem er jafnvægi og er auðvitað mjög mikilvægt í golfinu.

23.feb. 2010 - 10:13 Gunnar Már Sigfússon

Flexibility – Mobility teygjan: Fljótlegasta leiðin til þess að auka hreyfigetuna

Það segir sig algerlega sjálft að allir kylfingar ættu að hafa teygjur sem hluta að sinni upphitun fyrir hringinn eða æfingarsvæðið. Teygjur eins og við þekkjum þær eru til í nokkrum útgáfum og ætla ég hérna að fara yfir tækni sem heitir dýnamískar teygjur og eru þannig í eðli sínu að þær gerast í gegnum hreyfingu í stað þess að koma sér í stöðu og halda henni.

30.8.2010

Bestu kylfingar Íslands frá upphafi

Ég ætla að taka fram 10 leikmenn sem fram að deginum í dag hafa staðið sig hvað allra best að mínu mati og...


Skipta um leturstærð

Breyta um tungumál



Leit



Progolf