14. júl. 2010 - 08:30Snæfríður Ingadóttir

Siggi Hlö er mikill stuðpinni sem elskar golf og 80´ lög. Síðastliðin 8 ár hefur hann farið til Flórída með hressum golfurum og er þessi mynd tekin í síðustu golfferð. Eins og sést er mikið stuð í þessum golfferðum Sigga.
Útvarpsmaðurinn Siggi Hlö heldur uppi stuðinu í ansi mörgum tjöldum og sumarbústaðum í sumar. Útvarpsþáttur hans „Veistu hver ég var?“ gefur rétta tóninn fyrir grillpartíið og samnefndir geisladiskar eru líka kjörnir í bílinn. Sjálfur er Siggi ekki mikið fyrir útilegur og vill helst spila golf í útlöndum þegar hann fer í frí.
Golfkylfan er það fyrsta sem ég pakka enda er ég forfallinn golfari. Ég er „sökker“ fyrir útlöndum og ekki er verra ef það er golfvöllur nálægt.
Siggi segist fara árlega til Flórída með hóp af hressum golfurum. Í ár voru 32 golfarar í hópnum en hróður þessara ferða hefur borist víða og fólk af götunni jafnvel hringt í Sigga og beðið um að fá að koma með enda stemmningin í þessum ferðum gríðarlega góð.
Í sumar hyggst Siggi fara í sólarlandaferð með fjölskyldunni en innanlandsferðalögin vill hann eiga inni þar til hann er gamall. Ef að líkum lætur laumar hann golfkylfunni með í töskuna en hann hefur í 21 ár reynt að fá konuna með í golfið - og hefur enn ekki gefist upp.
Útvarpsþáttur Sigga „Veistu hver ég var?“ er einn sá vinsælasti á landinu, en hann er í loftinu alla laugardaga á Bylgjunni milli kl. 16-og 18.30. Eins hafa verið gefnir út tveir geisladiskapakkar með 120 af vinsælustu 80’ lögunum úr þáttunum. Lög Sigga koma fólki svo sannarlega í gott skap og því fékk Ferðapressan Sigga til þess að mæla með nokkrum af sínum uppáhaldslögum, lögum sem henta vel í græjurnar fyrir fólk í sumarfríi. Hér er hans topp 10 listi:
TOPP 10 FERÐALÖG SIGGA HLÖ
1. Delilah - Tom Jones„Tommarinn er spaði númer 1. Lítur ennþá út eins og 13 ára.Þetta er eitt hans allra besta.“
2. Sökudólgur óskast - Nýdönsk og Sinfó„Besta lag sem Björn Jörundur vinur minn hefur samið. Fer þarna á kostum með Sinfóníuhljómsveit Íslands.“
3. I don´t wanna miss a thing - Aerosmith„Eftir að ég hitti Steven Tyler hef ég alltaf haldið mikið upp á þá.Þetta er kraftmikið lag sem hljómar best í botni.“
4. If I can dream - Elvis Presley„Falin perla með Presley. Eitt af hans allra bestu en kannski minnst spiluðu.“
5. One - U2„Ein af uppáhaldshljómsveitum mínum. Hef séð þá tvisvar live og hreinlega elska þetta band. Þessu geta allir sungið me.“
6. Angel - Robbie Williams„Þetta er svo flott lag. Fær mig alltaf til að hugsa til þess hvað ég elska konuna mína mikið.Veit ekki hvort textinn sé endilega ástartexti, ég er skelfilegur í lagatextum.“
7. Grey day - Madness„Ein af mínum uppáhaldshljómsveitum þegar ég var unglingur. Felldi tár þegar ég sá goðin mín í Laugardalshöll 1986. Það var skelfilegt að grenja þarna á gólfinu í Höllinni 18 ára gamall.“
8. Hallelujah - Espen Lind og félagar„Þetta Cohen lag er geggjað með þessu 4 poppstjörnum Norðmanna.Espen Lind er stærsta nafnið þarna en þegar Kurt Nilsen tekur Bono innkomuna þá fær maður gæsahúð. Með þeim eru einnig Alejandro Fuentes og Askil Holm.“
9. Something - Bítlarnir„Besta lag Bítlanna. Klassík. Stórkostlegt.“
10. The way life´s meant to be - ELO„Besta lag í heimi með uppáhaldshljómsveitinni minni. Eignaðist vínylplötuna 1982 og spilaði hana í spað á Pioneer fermingarsamstæðuna mína í unglingaherberginu í Flúðaseli.“