14. júl. 2010 - 10:06Brynjar Eldon Geirsson

Miðaðu betur: MYNDBAND

Þeim sem dettur í hug að það sé hægt að leika gott golf án þess að miða þeir eru á villigötum

Þeim sem dettur í hug að það sé hægt að leika gott golf án þess að miða þeir eru á villigötum Getty Images

Þegar skotið er úr byssu á ákveðið skotmark er betra að miða einnig þegar við köstum pílu á spjald er betra að miða og þetta á  líka við um í golfi. Þeim sem dettur í hug að það sé hægt að leika gott golf án þess að miða þeir eru á villigötum. Mið er eitt  mikilvægasta grunnatriðið í golfi og hefur að sjálfsögðu með það að gera hvert boltinn flýgur eða rúllar og einnig má segja að það sé mjög erfitt að halda góðri sveiflutækni ef að miðið er ekki í lagi og fara leikmen fljótlega að búa til slæmar aukahreyfingar til þess að stýra boltanum í rétta átt ef miðið er slakt. Undirmeðvitundin er nefnilega það sterk að hún veit alltaf hvar fáninn er.

Ef þú vilt virkilega bæta höggin þín þá verður grunnatriði eins og mið að vera í lagi, oft verður maður vitni af annars ágætum höggum sem verða léleg bara af því að leikmaðurinn miðaði rangt.
En hvernig er best að miða?Hér fylgir myndband með fyrirtaks útskýringu á því hvernig á að miða vel

Taktu þetta alvarlega og æfðu fyrst á æfingasvæðinu og síðan á velinum og þú munt sjá framför á höggunum þínum og skori.
gangi ykkur vel
Brynjar Eldon Geirsson
PGA golfkennari hjá ProGolf




06.sep. 2010 - 09:00 Gunnar Már Sigfússon

Flott púttæfing fyrir lengri púttin: MYNDBAND

Don Trahan ásamt syni sínum DJ Trahan sem er atvinnumaður á PGA mótaröðinni sýna hér æfingu sem hentar vel fyrir lengri púttin.
06.sep. 2010 - 08:48 Gunnar Már Sigfússon

Rétt grip er algert lykilatriði í golfi. Hérna er farið yfir rétt grip: MYNDBAND

Paul McLoughlin, PGA kennari og einn fremsti golfkennari Írlands sýnir í þessu myndbandi hvernig þú heldur rétt grip um kylfuna og hvaða áhrif það getur verið að hafa á leikinn þinn.
03.sep. 2010 - 09:27 Gunnar Már Sigfússon

Einfaldar upphitunaræfingar fyrir efri líkama kylfinga: MYNDBAND

Upphitun er mikilvæg fyrir allar íþróttir, ekki síst golf. Átakið sem fer í að flytja boltann af stað er oft gríðarlegt og því mikilvægt að vöðvar og liðir séu vel heit og tilbúin í átök. Myndbandið fer yfir afar einfaldar æfingar til þess að fá hita og liðleika í efri líkamann á aðeins nokkrum mínútum.

03.sep. 2010 - 09:05 Gunnar Már Sigfússon

Remax heimsmeistaramótið í lengsta teighögginu ESPN 4 hluti: MYNDBAND

Remax hefur haldið heimsmeistaramótið í lengsta teighögginu í 15 ár. Þegar keppnin var að byrja voru algengar högglengdir um 290 metrar en í dag eru kylfingarnir að slá um og yfir 330 metra. Á hverju ári reyna um 10.000 kylfingar að komast í úrslitin á yfir 300 stöðum alls staðar í heiminum.


01.sep. 2010 - 09:00 Gunnar Már Sigfússon

Remax heimsmeistaramótið í lengsta teighögginu ESPN 3 hluti: MYNDBAND

Hérna erum við komin í 3 hluta og hann fjallar um Super Senior Division eða öldungaflokkinn eins og það heitir á okkar máli. Það er hann Bobby Wilson sem er komin í frægðarhöllina fyrir teighöggin sín og fáránlega flottar buxur sem þessi hluti fjallar aðallega um.
01.sep. 2010 - 09:00 Gunnar Már Sigfússon

Erfiðasta par 3 hola í heiminum er í 830 metra hæð og þú þarft þyrlu: MYNDBAND

Legends Golf & Safari í Suður Afríku er algjörlega einstakur 18 holu völlur sem er hannaður af 18 mismunandi kylfingum og golfhönnuðum. Meðal þeirra sem hafa hannað völlin eru Padraig Harrington, Colin Montgomerie, K.J. Choi, Retief Goosen, Justin Rose, Trevor Immelman og Vijay Singh. 19 holan er samt sú hola sem hefur vakið hvað mesta athyglu en þú þarft þyrluflug til að komast að teignum sem er í 830 metra hæð yfir flötinni að þessari heimsins erfiðustu par 3 holu.
31.ágú. 2010 - 09:00 Gunnar Már Sigfússon

Remax heimsmeistaramótið í lengsta teighögginu 2009. 2 hluti ESPN: MYNDBAND

2 hluti Remax heimsmeistaramótsins í lengsta teighögginu 2009. Það var Jamie Sadlowski sem tók mótið 2008 með ótrúlegu höggi sem sveif yfir 420 yarda eða um 350 metra.
30.ágú. 2010 - 18:05

Hver eru best? Topp tíu golfsnillingar landsins í karla- og kvennaflokki listuð upp

Bestu kylfingar landsins eru þau Birgir Leifur Hafþórsson og Ólöf María Jónsdóttir, að mati Brynjars Eldon Geirssonar, golfkennara hjá ProGolf. Hann hefur tekið saman topp 10 lista yfir bæði karlkyns og kvenkyns golfsnillinga landsins.
30.ágú. 2010 - 17:30 Brynjar Eldon Geirsson

Bestu kylfingar Íslands frá upphafi

Ég ætla að taka fram 10 leikmenn sem fram að deginum í dag hafa staðið sig hvað allra best að mínu mati og ætla ekki að tala um þá sem eru að koma upp og munu ráða ferðinni næstu ár.
30.ágú. 2010 - 09:18 Gunnar Már Sigfússon

Remax heimsmeistaramótið í lengsta teighögginu ESPN hluti 1: MYNDBAND

Jamie Sadlowski tók mótið 2008 og er með hreint ótrúlega sveiflu

Remax heimsmeistaramótið í lengsta teighögginu hefur verið haldið árlega síðan 1995. Þetta er stórviðburður og hefur íþróttastöðin ESPN gert þætti í nokkrum hlutum um viðburðinn og ætlum við að birta þá hérna á Golfpressunni. Myndatakan er ótrúleg og þetta eru einstaklega skemmtilegir og fræðandi þættir þar sem sérfræðingarnir eru að gera góð ráð um það hvernig auka má högglenngdina í teighöggunum.


VeðriðKlukkan 12:00
Skýjað
A6
15,0°C
Alskýjað
A3
14,5°C
Skýjað
VSV2
16,7°C
Skýjað
SA3
14,8°C
Skýjað
S5
13,5°C
Alskýjað
ANA7
12,0°C
Lítils háttar rigning
A9
11,8°C
Alskýjað
A23
11,6°C
Lítils háttar rigning
ASA3
13,9°C
Spáin


Skipta um leturstærð

Breyta um tungumál



Leit



Progolf