23. júl. 2010 - 13:02Úlfar Jónsson

Markmið fyrir golfhring - rétt kylfuval í innáhöggi

Getty Images

Ég mun ávallt nota nægilega langt járn í innáhöggum til að ná auðveldlega að flagginu.

Ef þú lítur til baka og ferð yfir seinustu hringi sem þú spilaðir, skoðaðu þá hversu oft innáhöggið var of stutt, of langt, eða rétt lengd (miðað við holuna). Líkurnar eru býsna miklar að þú sért mun oftar of stutt(ur) í innáhöggi heldur en hitt. Ef þú ert eins og flestir kylfingar þá slærðu í 70-90% tilvika of stutt í innáhöggi (miðað við holustaðsetninguna). Vissulega eru tilvik þar sem skynsamlegra er að vera fyrir framan pinnann í innáhöggi, sérstaklega ef flötin hallar mikið eða miklar hættur eru fyrir aftan flötina. Það er eðlilegt að u.þ.b. 30% innáhögga séu of stutt miðað við flaggið, ekki 80%.

Góð regla, sem lækkar án efa skorið, er að taka járn sem er númeri lægra, en það sem fyrst kom upp í hugann. Okkur hættir nefnilega til að ofmeta högglengdina og/eða vanmeta fjarlægðina.

Ástæður of stuttra innáhögga eru nokkrar: s.s. gæði höggana (við hittum boltann ekki alltaf fullkomnlega); rangt mat á fjarlægð („Þarna er 100 metra hællinn, ég er þá  ca. 105 metra frá, best að taka fleygjárnið“, en e.t.v. var höggið í raun 130 metrar, þ.e. 115 metrar að flöt og svo gleymdist að bæta við vegalengdinni að flagginu, sem var 15 metra inná, þannig að 8-járn eða 7-járn hefði líklega hentað betur. Enn önnur ástæða, sem er sálræn meira en allt annað, er sú að okkur hættir til að horfa á skotmarkið sem endapunkt, og því reynist oft erfiðara að ná alla leið að því en ella. Þetta kannast margir einnig við í löngum púttum, sem gjarnan enda of stutt. Reyndu að sjá fyrir þér holuna lengra frá en hún er, sérstaklega í löngum púttum og lengri innáhöggum.

Einnig skiptir miklu máli að þekkja högglengdina með sem flestum kylfum. Það eru nokkrar leiðir til að mæla högglengdina. T.d. að er hægt, á lygnum degi, að fara á opið grassvæði, slá 10 bolta með annari hverri kylfu í pokanum (eða öllum) og mæla högglengdina á þeim höggum sem heppnast þolanlega. Þetta er ekki ákjósanlegasta leiðin því margir vankantar eru á henni, s.s. fáir lygnir dagar, fá opin grassvæði í boði, nauðsynlegt að hafa aðstoðarmann sem sér hvar boltarnir lenda, auk þess að þetta er tímafrekt.

Önnur leið, sem er betri, er að nota lengdarmælingar á vellinum, þ.e. 100 og 150 m hælana, sem sýna lengdir að flöt, og áætla síðan lengdina að holu. Þegar högg heppnast vel og lendir inn á flöt á að vera einfalt að mæla hversu langt höggið var með því að bæta við lengd frá fremri brún flatar, að holufari boltans. Síðan eru gott að skrá þær upplýsingar á sérstakt blað eða í bók, þ.e. högglengd þar sem boltinn lenti, hvaða kylfa var notuð, hvernig aðstæður voru, t.a.m. vindátt og hitastig, en boltinn flýgur styttra þegar kalt er í veðri.

Auðveldasta og nákvæmasta leiðin til að mæla fjarlægð er að nota fjarlægðakíkja, sem njóta sívaxandi vinsælda, og eru löglegir í  flestum mótum. Þannig er hægt, á fljótlegan hátt, að fá nákvæmar upplýsingar um vegalengd að flaggi, eða öðrum skotmörkum. Fluglengd höggsins er síðan mæld nákvæmlega út frá boltafarinu, og þannig bætt við metrum eða dregið frá vegalengdinni í flaggið. Helsti galli við þessa aðferð er sá að fjarlægðakíkjar eru býsna dýrir, en ef pyngjan leyfir, þá er vel þess virði að fjárfesta í einum slíkum. Mikilvægt er að kylfingar sem fá sér fjarlægðakíkir, æfi sig að nota hann á æfingasvæðinu og miða á flögg, áður en farið er út á völl. Mín reynsla er sú að fjarlægðarkíkirinn flýtir fyrir leik, því hann styttir tímann í ákvörðunartöku um kylfuval, og óþarfi verður að giska hversu langt er í skotmarkið. Þó hef ég heyrt sögur af kylfingum sem eyða allt of miklum tíma í að ná upplýsingum úr kíkinum, þeir ættu því að æfa sig betur að nota hann milli golfhringja. Einungis á að taka nokkrar sekúndur að fá upplýsingar um rétta fjarlægð.

Gefðu þér tíma á næstu golfhringjum til að afla þér upplýsinga um högglengdina, en fylgdu samt sem áður þeirri reglu, að ef fyrsta hugboð þitt er að taka 7-járn í innáhöggið, taktu þá 6-járn og sveiflaðu kylfunni í góðu jafnvægi, án átaka. Eflaust hittir þú boltann betur og nærð fleiri höggum inná flöt í fuglafæri.

Með bestu kveðjum og von um gott gengi á golfvellinum.
Úlfar Jónsson
PGA golfkennari
ulfar@golfkennsla.is

 




10.sep. 2010 - 09:00 Gunnar Már Sigfússon

Hvernig áttu að velja réttu kylfurnar sem henta þér best: MYNDBAND

Það er mikið úrval á kylfumarkaðnum og árlega streyma inn nýjungar sem eru meira en lítið spennandi og líta vel út, en hvaða kylfur eru mikilvægastar og eftir hverju þarftu að leita þegar þú ert að koma þér upp góðu setti. Golfkennarinn Kevin Battersby fer yfir hvað ber að hafa í huga þegar velja skal réttu kylfuna, allt frá skaftinu til höfuðs kylfunar.

08.sep. 2010 - 09:29 Gunnar Már Sigfússon

Golffitness - Mjaðmalyftur á bolta. Góð æfing fyrir styrk og liðleika

Mjaðmalyftur á bolta eru styrkjandi fyrir aftanverð lærin og rassvöðvana og hafa liðkandi áhrif á mjaðmirnar. Rannsóknir sýna að yfir 70% allra karlkylfinga eru stífir í mjöðmum og það getur haft áhrif á t.d. mjóbak og farð að valda verkjum ef ekki eru gerðar liðkandi æfingar fyrir mjaðmirnar. Það sem flestir klikka á er að þeir fara að vinna í mjóbakinu þegar vandamálið er ekki þar heldur í mjöðmunum og því mikilvægt að liðka þær með æfingum.
08.sep. 2010 - 09:00 Gunnar Már Sigfússon

Golfeinvígi á milli Samuel L Jackson og Justin Timberlake: MYNDBAND

Frábært kynningarmyndband fyrir ESPY 2009 þar sem golfsnillingarnir Samuel Jackson og Justin Timberlake fara í golfeinvígi og við fáum að sjá frábæra takta hjá þeim báðum.
07.sep. 2010 - 09:14 Gunnar Már Sigfússon

Remax heimsmeistaramótið í lengsta teighögginu ESPN 6 hluti: MYNDBAND

Remax heimsmeistaramótið er að koma með nýjungar núna í ár og er að kynna marga nýja flokka til sögunar. Það geta allir tekið þátt í einhverri af yfir 300 forkeppnum sem fara fram um allan heim og í ár er keppt í eftirfarandi flokkum
06.sep. 2010 - 09:00 Gunnar Már Sigfússon

Flott púttæfing fyrir lengri púttin: MYNDBAND

Don Trahan ásamt syni sínum DJ Trahan sem er atvinnumaður á PGA mótaröðinni sýna hér æfingu sem hentar vel fyrir lengri púttin.
06.sep. 2010 - 08:48 Gunnar Már Sigfússon

Rétt grip er algert lykilatriði í golfi. Hérna er farið yfir rétt grip: MYNDBAND

Paul McLoughlin, PGA kennari og einn fremsti golfkennari Írlands sýnir í þessu myndbandi hvernig þú heldur rétt grip um kylfuna og hvaða áhrif það getur verið að hafa á leikinn þinn.
03.sep. 2010 - 09:27 Gunnar Már Sigfússon

Einfaldar upphitunaræfingar fyrir efri líkama kylfinga: MYNDBAND

Upphitun er mikilvæg fyrir allar íþróttir, ekki síst golf. Átakið sem fer í að flytja boltann af stað er oft gríðarlegt og því mikilvægt að vöðvar og liðir séu vel heit og tilbúin í átök. Myndbandið fer yfir afar einfaldar æfingar til þess að fá hita og liðleika í efri líkamann á aðeins nokkrum mínútum.

03.sep. 2010 - 09:05 Gunnar Már Sigfússon

Remax heimsmeistaramótið í lengsta teighögginu ESPN 4 hluti: MYNDBAND

Remax hefur haldið heimsmeistaramótið í lengsta teighögginu í 15 ár. Þegar keppnin var að byrja voru algengar högglengdir um 290 metrar en í dag eru kylfingarnir að slá um og yfir 330 metra. Á hverju ári reyna um 10.000 kylfingar að komast í úrslitin á yfir 300 stöðum alls staðar í heiminum.


01.sep. 2010 - 09:00 Gunnar Már Sigfússon

Remax heimsmeistaramótið í lengsta teighögginu ESPN 3 hluti: MYNDBAND

Hérna erum við komin í 3 hluta og hann fjallar um Super Senior Division eða öldungaflokkinn eins og það heitir á okkar máli. Það er hann Bobby Wilson sem er komin í frægðarhöllina fyrir teighöggin sín og fáránlega flottar buxur sem þessi hluti fjallar aðallega um.
01.sep. 2010 - 09:00 Gunnar Már Sigfússon

Erfiðasta par 3 hola í heiminum er í 830 metra hæð og þú þarft þyrlu: MYNDBAND

Legends Golf & Safari í Suður Afríku er algjörlega einstakur 18 holu völlur sem er hannaður af 18 mismunandi kylfingum og golfhönnuðum. Meðal þeirra sem hafa hannað völlin eru Padraig Harrington, Colin Montgomerie, K.J. Choi, Retief Goosen, Justin Rose, Trevor Immelman og Vijay Singh. 19 holan er samt sú hola sem hefur vakið hvað mesta athyglu en þú þarft þyrluflug til að komast að teignum sem er í 830 metra hæð yfir flötinni að þessari heimsins erfiðustu par 3 holu.

VeðriðKlukkan 12:00
Skýjað
A4
13,6°C
Skýjað
A5
14,0°C
Skýjað
NA2
13,2°C
Skýjað
Logn
13,2°C
Alskýjað
S5
14,4°C
Alskýjað
ASA3
12,8°C
Rigning
A1
12,4°C
Skýjað
ASA11
12,3°C
Skýjað
ASA9
13,4°C
Spáin


Skipta um leturstærð

Breyta um tungumál



Leit



Progolf