28. júl. 2010 - 12:03Brynjar Eldon Geirsson

Komdu til baka

Hver þekkir það ekki að leika eina holu illa á golfvellinum og láta það fara svo í taugarnar á sér að næstu holur verða einnig slæmar?

Það á að vera gaman í golfi hvort sem um er að ræða hring með kunningjum eða hring í móti, það er því mjög mikilvækt að leikmenn náii að halda haus þó að stundum blási á móti og illa gangi á einhverri holu sem leikin hefur verið. Það er ekkert leiðinlegra en að leika í ráshóp með einstaklingi sem er tuðandi og hendandi kylfum í tíma og ótíma og slíkur leikmaður missir einbeitinguna sjálfur truflar meðspilarana og golfið versnar til muna þegar leikmaðurinn hagar sér á þennan hátt.

Það sem liðið er er búð og gert og það breytir engu þó að leikmaðurinn kasti kylfum í allar áttir eða sparki í pokann sinn það mun ekki hjálpa til við að bæta skorið.

Ég vil hér nefna nokkur atriði sem allir ættu að hafa til hliðsjónar þegar leikið er golf og illa gengur.

1. Gleymdu því sem liðið er, þá sérstaklega lélegu höggunum sem koma reglulega hjá öllum sama hversu góður leikmaðurinn er og einbeittu þér sem best að næsta höggi.

2. Ef slegið er lélegt högg er mikilvægt að gera það upp afhverju þetta gerðist, setja svo kylfuna í pokann , brosa og halda svo áfram í næsta högg með jákvætt hugarfar.

3. Hrósa meðspilurum fyrir góð högg þó að illa gangi hjá manni sjálfum

4. Ef þú færð „sprengju“ á eina brautina settu þér þá markmið á næsta teig td. Nú fæ ég tvö pör í röð og kem mér í gang. Og alls ekki fara að hugsa um „sprengjuna „ og tala neikvætt við sjálfan þig. Við breytum engu í fortíðinni.

5. Ef þú slærð lélegt högg td. í glompu og nærð ekki boltanum upp, ekki rjúka í að slá næsta högg í einhverri fýlu heldur taktu þér tíma í næsta högg og er jafnvel ágætt að ganga aðeins út úr glompunni á milli högga.

6. Vertu með „pokerface“ á golfvellinum og haltu jafnaðargeði í gegnum hringinn hvort sem að vel eða illa gangi. Ekki haga þér eins og hjartalínurit.

7. Einbeittu þér þegar að þú slærð og síðasta hugsun fyrir höggið á að vera jákvæð td. „ Þetta verður svo gott högg“ með því komast á meðan ekki neikvæðar hugsanir að.

8. Það er ekki hægt að leika golf án þess að slá einhver léleg golfhögg á hringnum og það er eitthvað sem við verðum að sætta okkur við.“Golf is not a game of perfect“

9. Einbeittu þér að einu höggi í einu, ekki hugsa um næstu brautir eða næstu högg bara að því verkefni sem snýr að þér hverju sinni.

10. Hafðu gaman að þessu , þetta er bara leikur.

Með bestu kveðjum
Brynjar Eldon Geirsson
PGA golfkennari hjá golfskóla ProGolf




06.sep. 2010 - 09:00 Gunnar Már Sigfússon

Flott púttæfing fyrir lengri púttin: MYNDBAND

Don Trahan ásamt syni sínum DJ Trahan sem er atvinnumaður á PGA mótaröðinni sýna hér æfingu sem hentar vel fyrir lengri púttin.
06.sep. 2010 - 08:48 Gunnar Már Sigfússon

Rétt grip er algert lykilatriði í golfi. Hérna er farið yfir rétt grip: MYNDBAND

Paul McLoughlin, PGA kennari og einn fremsti golfkennari Írlands sýnir í þessu myndbandi hvernig þú heldur rétt grip um kylfuna og hvaða áhrif það getur verið að hafa á leikinn þinn.
03.sep. 2010 - 09:27 Gunnar Már Sigfússon

Einfaldar upphitunaræfingar fyrir efri líkama kylfinga: MYNDBAND

Upphitun er mikilvæg fyrir allar íþróttir, ekki síst golf. Átakið sem fer í að flytja boltann af stað er oft gríðarlegt og því mikilvægt að vöðvar og liðir séu vel heit og tilbúin í átök. Myndbandið fer yfir afar einfaldar æfingar til þess að fá hita og liðleika í efri líkamann á aðeins nokkrum mínútum.

03.sep. 2010 - 09:05 Gunnar Már Sigfússon

Remax heimsmeistaramótið í lengsta teighögginu ESPN 4 hluti: MYNDBAND

Remax hefur haldið heimsmeistaramótið í lengsta teighögginu í 15 ár. Þegar keppnin var að byrja voru algengar högglengdir um 290 metrar en í dag eru kylfingarnir að slá um og yfir 330 metra. Á hverju ári reyna um 10.000 kylfingar að komast í úrslitin á yfir 300 stöðum alls staðar í heiminum.


01.sep. 2010 - 09:00 Gunnar Már Sigfússon

Remax heimsmeistaramótið í lengsta teighögginu ESPN 3 hluti: MYNDBAND

Hérna erum við komin í 3 hluta og hann fjallar um Super Senior Division eða öldungaflokkinn eins og það heitir á okkar máli. Það er hann Bobby Wilson sem er komin í frægðarhöllina fyrir teighöggin sín og fáránlega flottar buxur sem þessi hluti fjallar aðallega um.
01.sep. 2010 - 09:00 Gunnar Már Sigfússon

Erfiðasta par 3 hola í heiminum er í 830 metra hæð og þú þarft þyrlu: MYNDBAND

Legends Golf & Safari í Suður Afríku er algjörlega einstakur 18 holu völlur sem er hannaður af 18 mismunandi kylfingum og golfhönnuðum. Meðal þeirra sem hafa hannað völlin eru Padraig Harrington, Colin Montgomerie, K.J. Choi, Retief Goosen, Justin Rose, Trevor Immelman og Vijay Singh. 19 holan er samt sú hola sem hefur vakið hvað mesta athyglu en þú þarft þyrluflug til að komast að teignum sem er í 830 metra hæð yfir flötinni að þessari heimsins erfiðustu par 3 holu.
31.ágú. 2010 - 09:00 Gunnar Már Sigfússon

Remax heimsmeistaramótið í lengsta teighögginu 2009. 2 hluti ESPN: MYNDBAND

2 hluti Remax heimsmeistaramótsins í lengsta teighögginu 2009. Það var Jamie Sadlowski sem tók mótið 2008 með ótrúlegu höggi sem sveif yfir 420 yarda eða um 350 metra.
30.ágú. 2010 - 18:05

Hver eru best? Topp tíu golfsnillingar landsins í karla- og kvennaflokki listuð upp

Bestu kylfingar landsins eru þau Birgir Leifur Hafþórsson og Ólöf María Jónsdóttir, að mati Brynjars Eldon Geirssonar, golfkennara hjá ProGolf. Hann hefur tekið saman topp 10 lista yfir bæði karlkyns og kvenkyns golfsnillinga landsins.
30.ágú. 2010 - 17:30 Brynjar Eldon Geirsson

Bestu kylfingar Íslands frá upphafi

Ég ætla að taka fram 10 leikmenn sem fram að deginum í dag hafa staðið sig hvað allra best að mínu mati og ætla ekki að tala um þá sem eru að koma upp og munu ráða ferðinni næstu ár.
30.ágú. 2010 - 09:18 Gunnar Már Sigfússon

Remax heimsmeistaramótið í lengsta teighögginu ESPN hluti 1: MYNDBAND

Jamie Sadlowski tók mótið 2008 og er með hreint ótrúlega sveiflu

Remax heimsmeistaramótið í lengsta teighögginu hefur verið haldið árlega síðan 1995. Þetta er stórviðburður og hefur íþróttastöðin ESPN gert þætti í nokkrum hlutum um viðburðinn og ætlum við að birta þá hérna á Golfpressunni. Myndatakan er ótrúleg og þetta eru einstaklega skemmtilegir og fræðandi þættir þar sem sérfræðingarnir eru að gera góð ráð um það hvernig auka má högglenngdina í teighöggunum.


VeðriðKlukkan 12:00
Skýjað
A6
15,0°C
Alskýjað
A3
14,5°C
Skýjað
VSV2
16,7°C
Skýjað
SA3
14,8°C
Skýjað
S5
13,5°C
Alskýjað
ANA7
12,0°C
Lítils háttar rigning
A9
11,8°C
Alskýjað
A23
11,6°C
Lítils háttar rigning
ASA3
13,9°C
Spáin


Skipta um leturstærð

Breyta um tungumál



Leit



Progolf