19. júl. 2010 - 17:21
Íslandsmótið í höggleik, sem hefur á undanförnum árum skapað sér sérstakan sess meðal kylfinga, fer fram í vikunni og taka flestir sterkustu kylfingar landsins þátt í mótinu.
Íslandsmótið í höggleik 2010 fer fram dagana 22.-25. júlí næstkomandi. Eins og áður er mótið hápunktur golfsumarsins og Eimskipsmótaraðarinnar, enda keppt um eftirsóttustu titla í íslensku golfi. Í ár fer Íslandsmótið fer fram á Kiðjabergsvelli og er þetta stærsta verkefni sem Golfklúbbur Kiðjabergs hefur tekið að sér fyrir Golfsambandið til þessa. Áður hafa þeir séð um Íslandsmótið í holukeppni og Íslandsmót 35 ára og eldri. Stjórn og félagsmenn Golfklúbbs Kiðjabergs hafa lagt mikla vinnu í að undirbúa mótið og hefur verið farið í ýmsar framkvæmdir á vellinum og við skálann til að allt verði til reiðu þegar mótið hefst.
Íslandsmótið í höggleik hefur á undanförnum árum skapað sér sérstakan sess meðal kylfinga þar sem lögð er áhersla á að búa til sem glæsilegasta umgjörð sem hefur hvatt kylfinga til þátttöku. Í ár taka flestir sterkustu kylfingar landsins þátt í mótinu og m.a. verður Birgir Leifur Hafþórsson GKG með, en hann hefur átt við meiðsli að stríða undanfarin misseri en er að komast á skrið, en hann hefur ekki verið með síðan í Vestmannaeyjum 2007. Ólafur Björn Loftsson NK núverandi Íslandsmeistari í karlaflokki og Valdís Þóra Jónsdóttir GL núverandi Íslandsmeistari í kvennaflokki eru að sjálfsögðu einnig skráð í mótið.
Keppnisréttur og leikfyrirkomulag.
Keppnisrétt á Íslandsmótinu í höggleik hafa í raun allir kylfingar á Íslandi, þó reyndin sé sú að einungis forgjafarlægstu kylfingar landsins taki þatt. Í ár hafa 127 karlar og 17 konur skráð sig til þátttöku í mótið.
Leiknar verða 72 holur á fjórum dögum en eftir 36 holu leik er leikmönnum fækkað í karlaflokki þannig að þeir sem hafa 72 lægstu skor halda áfram keppni. Ef keppendur eru jafnir í 72. sæti skulu þeir báðir/allir halda áfram. Þó skulu leikmenn ætíð fá að halda áfram keppni séu þeir 10 höggum eða minna á eftir þeim keppanda sem er í 1. sæti. Í kvennaflokki er fækkað með sama hætti í 18 eftir 36 holu leik.
Rástímar og ráshópar
Fimmtudaginn, 22. júlí 2010 1. hringur Rástímar: 07:30 – 16:00
Föstudaginn, 23. júlí 2010 2. hringur Rástímar: 07:30 – 16:00
Laugardaginn, 24. júlí 2010 3. hringur Rástímar: 07:30 – 14:00
Sunnudaginn, 25. júlí 2010 4. hringur Rástímar: 07:30 – 14:00
Rástímar verða birtir á golf.is á mánudeginum 19. júlí klukkan 16:00.
Ræst verður út af 1. teig með 10 mínútna millibili. Á fyrsta og öðrum keppnisdegi er keppendum raðað út á rástíma samkvæmt ákvörðun mótsstjórnar en á þriðja og fjórða keppnisdegi verður raðað út eftir skori.
Bein útsending
Beinar sjónvarpsútsendingar verða frá mótinu, laugardag og sunnudag í samstarfi við Ríkissjónvarpið og verður útsendingin mjög viðamikil að venju. Í fyrra fylgdust 29% landsmanna á aldrinum 16-80 ára með útsendingunni. Útsendingin er ein umfangsmesta útsending frá viðburði ár hvert en áætlað er að 40-60 manns komi að henni með einum eða öðrum hætti.
Skor á 3 holu fresti
Meðal nýjunga sem kynntar voru til leiks í á Eimskipsmótaröðinni í sumar er að hægt er að fylgjast með skori keppenda í farsíma jafnt sem í tölvu og verður skor upppfært á 3 holu fresti. Fimmtudag og föstudag verður skor tekið á 3 holu fresti en laugardag og sunnudag verður skor fært inn holu fyrir holu hjá lokaráshópunum í karla og kvennaflokkum.
Verðlaun og verðlaunaafhending
Verðlaun á Íslandsmótinu í höggleik eru þau sömu fyrir karla- og kvennaflokk þ.e. gjafabréf frá Arion banka, 75.000 kr. fyrir fyrsta sæti, 35.000 kr. fyrir annað sæti og 20.000 kr. fyrir þriðja sætið og 6000 fyrir sæti 4-10. Verðlaunaafhending fer fram á Golfskálanum í Kiðjabergi að loknu Íslandsmótinu.