Beint í leiðarkerfi vefsins.
Getty Images
Ef þú veist ekki hvað þú slærð langt með kylfunum þínum þá ertu í vandræðum og ef að þú lagar það ekki í hið fyrsta þá mun ekki ganga mikið á vellinum í framtíðinni. Forsenda þess að geta leikið gott golf er að leikmaðurinn þekki hvað boltinn flýgur langt með hverri kylfu fyrir sig. Milli kylfa ættu að vera að minnsta kosti 10-15 metra munur í flugi.
En hvernig getum við komist að því hvað við sláum langt?
Hér er dæmi um leikmann sem veit hvað hann slær langt og hefur skrifað það hjá sér. (ath þetta eru yards)
Við verðum að ganga út frá leikmanni sem hefur nú þegar komið stöðuleika í sveifluna hjá sér , vegna þess að þeir sem eru alveg að byrja í golfi eiga erfiðara með að framkvæma stöðuga sveiflu og því erfiðara fyrir byrjanda að fá stöðugar lengdir.
Spurningar sem vakna á vellinum eru td. hvað er langt í hættur af teig, hvað er langt í holuna, hvað þarf ég langt högg yfir vatnið svo eitthvað sé nefnt.
Hér er besta aðferðin fyrir áhugamenn til þess að komast að eigin högglengd með öllum kylfum í pokanum. (tekur 2 klst)
1. Notaðu bolta sem þú leikur með við mælingar á högglengd
2. Finndu þér slétt grassvæði og logn við mælingar
3. Fáðu einhvern með þér í mælingarnar, því best er að vera tveir/tvær saman
4. Einn slær annar fylgist með lendingu boltans og fer á þann stað og skýtur til baka á leikmanninnsem sló með lazer – mælir
5. Leikmaðurinn slær 10 bolta með hverri kylfu og síðan er tekinn sá styðsti og sá lengsti teknir frá og meðaltalið reiknað af hinum 8 og þá fæst einhver meðaltalslengd á hverja kylfu.
6. Leikmaður sem slær verður að passa upp á að halda alltaf sama tempo í sveiflunni með öllum kylfum. Allir afreksmenn í golfi vita að án þess að vera 100 % með lengdir á hreinu mun lítið ganga og má jafnvel segja að ef maður veit ekki sýnar lengdir er ekki hægt að skipuleggja sig almennilega fyrir leikinn hring og það að auki veit maður aldrei hvaða kylfu maður á að velja á vellinum.
Atvinnumenn nota „launchmonitor“ við æfingar og fá þannig út hárnákvæmar lengdir fram dag eftir dag á öllum kylfum í pokanum og geta því nýtt sér það vel á vellinum. Þessi tæki eru dýr en það marg borgar sig fyrir þá sem ætla sér í hæðstu hæðir að komast í slíkan búnað.
Margir gleyma sér einnig í einhverjum rembingi og eru í keppni við meðspilarann og taka alltaf sömu kylfu og hann og hvorugur vill taka lægra númer á kylfu og vera minni maður. En þetta snýst ekki um þessa hluti eða að reyna að slá sem lengst heldur einungis að vita hvað maður sjálfur slær langt með sýnum eigin kylfum. Kylfingar geta verið mishögglangir með sömu kylfu en það er ekki þar með sagt að sá sem slær lengra sé betri í golfi.
En fyrir þá sem nenna ekki að standa í mælingum er samt gagn af því að kaupa sér „lazer mæli“ og nota á vellinum við leik,þannig batnar lengdarstjórnunin mjög mikið þó að þessar aðferðir sem ég nefni hér að ofan séu betri.
Komdu þessu á hreint sem allra fyrst
Með kveðjuBrynjar Eldon Geirsson PGA golfkennari hjá golfskóla Progolf
Upphitun er mikilvæg fyrir allar íþróttir, ekki síst golf. Átakið sem fer í að flytja boltann af stað er oft gríðarlegt og því mikilvægt að vöðvar og liðir séu vel heit og tilbúin í átök. Myndbandið fer yfir afar einfaldar æfingar til þess að fá hita og liðleika í efri líkamann á aðeins nokkrum mínútum.
Remax heimsmeistaramótið í lengsta teighögginu hefur verið haldið árlega síðan 1995. Þetta er stórviðburður og hefur íþróttastöðin ESPN gert þætti í nokkrum hlutum um viðburðinn og ætlum við að birta þá hérna á Golfpressunni. Myndatakan er ótrúleg og þetta eru einstaklega skemmtilegir og fræðandi þættir þar sem sérfræðingarnir eru að gera góð ráð um það hvernig auka má högglenngdina í teighöggunum.