14. júl. 2010 - 22:38Björn Ingi
Golfarar aldrei fleiri á Íslandi: Tvöföldun á tíu árum

stebbi.smugmug.com
Hver hefði trúað því árið 2000 að á næstu tíu árum ætti fjöldi kylfinga í golfklúbbum á Íslandi eftir að tvöfaldast? Golfíþróttin er í mikilli sókn og hefur fjöldi kylfinga aldrei verið meiri en nú og eru 16.240 kylfingar skráðir í 65 golfklúbba víðsvegar um landið. Fjölgun milli ára er rúmlega 700 kylfingar eða um 5% aukning. Íþróttin er í tísku og var hún mikið til umræðu í fjölmiðlum á vormánuðum sem virðist ekki hafa skemmt fyrir. Fjöldi fyrirtækja vilja tengja sig við þennan hóp og lífstíl sem sést best á hvernig fyrirtæki hafa auglýst í fjölmiðlum undanfarið og notað þar táknmyndir golfsins.
Fjölmennasti klúbbur landsins er Golfklúbbur Reykjavíkur með tæplega 2.900 félaga og hægt er að segja að nær fimmti hver kylfingur sé GR-ingur. Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar hefur skráð tæplega 300 nýliða í klúbbinn sem af er árinu og er annar stærsti klúbburinn. Flestir klúbbar hafa markaðssett sig vel og náð til nýrra hópa með tilboðum, niðurfellingu á inntökugjaldi og fjölbreyttri kennslu svo eitthvað sé nefnt.
Reglulega hefur komið upp sú spurning hvað séu margir sem hafa áhuga á íþróttinni en eru ekki skráðir félagar í klúbbum. Golfsambandið hefur stuðst við tölur úr neyslu- og lífstílskönnun Capacent en þar er áætlað að um 40.000 einstaklingar séu utan við klúbbana. Ástæðurnar eru margar fyrir því að golfíþróttin hefur náð svona vinsældum og að alltaf fleiri einstaklingar vilji læra leikinn – en ein ástæðan er að hún er fjölskylduvæn og allir geta fundið eitthvað við sitt hæfi.
Nýlega fór Golfsambandið af stað með kynningar átak til að fjölga enn frekar, yfirskriftir átaksins „vertu með“. Átakinu er ætlað að kynna golf almennt með það að markmiði að fjölga kylfingum meðal barna og ungmenna. Í dag eru 18% kylfinga 21 árs eða yngri, 44% eru á aldrinum 22-49 ára og 38% eru 50 ára eða eldri. Kynjaskiptingin er þannig að konur eru 25% og karlar eru 75%.
06.sep. 2010 - 09:00
Gunnar Már Sigfússon
Don Trahan ásamt syni sínum DJ Trahan sem er atvinnumaður á PGA mótaröðinni sýna hér æfingu sem hentar vel fyrir lengri púttin.
06.sep. 2010 - 08:48
Gunnar Már Sigfússon
Paul McLoughlin, PGA kennari og einn fremsti golfkennari Írlands sýnir í þessu myndbandi hvernig þú heldur rétt grip um kylfuna og hvaða áhrif það getur verið að hafa á leikinn þinn.
03.sep. 2010 - 09:27
Gunnar Már Sigfússon
Upphitun er mikilvæg fyrir allar íþróttir, ekki síst golf. Átakið sem fer í að flytja boltann af stað er oft gríðarlegt og því mikilvægt að vöðvar og liðir séu vel heit og tilbúin í átök. Myndbandið fer yfir afar einfaldar æfingar til þess að fá hita og liðleika í efri líkamann á aðeins nokkrum mínútum.
03.sep. 2010 - 09:05
Gunnar Már Sigfússon
Remax hefur haldið heimsmeistaramótið í lengsta teighögginu í 15 ár. Þegar keppnin var að byrja voru algengar högglengdir um 290 metrar en í dag eru kylfingarnir að slá um og yfir 330 metra. Á hverju ári reyna um 10.000 kylfingar að komast í úrslitin á yfir 300 stöðum alls staðar í heiminum.
01.sep. 2010 - 09:00
Gunnar Már Sigfússon
Hérna erum við komin í 3 hluta og hann fjallar um Super Senior Division eða öldungaflokkinn eins og það heitir á okkar máli. Það er hann Bobby Wilson sem er komin í frægðarhöllina fyrir teighöggin sín og fáránlega flottar buxur sem þessi hluti fjallar aðallega um.
01.sep. 2010 - 09:00
Gunnar Már Sigfússon
Legends Golf & Safari í Suður Afríku er algjörlega einstakur 18 holu völlur sem er hannaður af 18 mismunandi kylfingum og golfhönnuðum. Meðal þeirra sem hafa hannað völlin eru Padraig Harrington, Colin Montgomerie, K.J. Choi, Retief Goosen, Justin Rose, Trevor Immelman og Vijay Singh. 19 holan er samt sú hola sem hefur vakið hvað mesta athyglu en þú þarft þyrluflug til að komast að teignum sem er í 830 metra hæð yfir flötinni að þessari heimsins erfiðustu par 3 holu.
31.ágú. 2010 - 09:00
Gunnar Már Sigfússon
2 hluti Remax heimsmeistaramótsins í lengsta teighögginu 2009. Það var Jamie Sadlowski sem tók mótið 2008 með ótrúlegu höggi sem sveif yfir 420 yarda eða um 350 metra.
30.ágú. 2010 - 18:05
Bestu kylfingar landsins eru þau Birgir Leifur Hafþórsson og Ólöf María Jónsdóttir, að mati Brynjars Eldon Geirssonar, golfkennara hjá ProGolf. Hann hefur tekið saman topp 10 lista yfir bæði karlkyns og kvenkyns golfsnillinga landsins.
30.ágú. 2010 - 17:30
Brynjar Eldon Geirsson
Ég ætla að taka fram 10 leikmenn sem fram að deginum í dag hafa staðið sig hvað allra best að mínu mati og ætla ekki að tala um þá sem eru að koma upp og munu ráða ferðinni næstu ár.
30.ágú. 2010 - 09:18
Gunnar Már Sigfússon
Remax heimsmeistaramótið í lengsta teighögginu hefur verið haldið árlega síðan 1995. Þetta er stórviðburður og hefur íþróttastöðin ESPN gert þætti í nokkrum hlutum um viðburðinn og ætlum við að birta þá hérna á Golfpressunni. Myndatakan er ótrúleg og þetta eru einstaklega skemmtilegir og fræðandi þættir þar sem sérfræðingarnir eru að gera góð ráð um það hvernig auka má högglenngdina í teighöggunum.