14. júl. 2010 - 11:53Gunnar Már Sigfússon
Einstök Upplifun. Bowood, Hotel Spa & Golf Resort (90 mín. frá Heathrow)

bowood
Hótelið opnaði á vormánuðum 2009. Þar er aðbúnaðurinn eins og hann verður bestur. Mikið verið lagt í hvert einasta smáatriði og þjónustan er óaðfnnanleg. Þetta er einfaldlega besta golfhótelið sem við bjóðum uppá á Lundúnarsvæðinu í dag. Topp golfvöllur hannaður af Dave Thomas. Völlurinn er sérstaklega fallegur enda ávallt vel við haldinn. Lokaniðurstaða: „Frábær þjónusta, stórglæsileg landareign og fyrsta flokks matur & golf eins og það gerist best!“
"The region’s top championship golf course was designed by Dave Thomas. Measuring 7,317 yards from thechampionship tees, and always superbly presented, the golf course provides a great day out for both scratchand occasional golfers. The former estate farmhouse, dating from the 18th century, has been lovingly converted into a superb clubhouse with exceptional facilities and an informal, relaxed atmosphere.”
- Today's Golfer.
Dagsetningar:
24. - 27. september (3 nætur)
01. - 04. október (3 nætur)
08. - 11. október (3 nætur)
22. - 25. október (3 nætur)
29. október - 01. nóv. (3 nætur)
Verð: kr. 135.000- pr. mann í tvíbýli*
*Innifalið: flug, flugvallarskattur,gisting í 3 nætur
með morgunverði, 4x18 holur, aðgengi að
heilsulind og líkamsræktarstöð hótelsins.
Bókaðu golfferðina þína á www.gbferdir.is eða í síma 534 5000
06.sep. 2010 - 09:00
Gunnar Már Sigfússon
Don Trahan ásamt syni sínum DJ Trahan sem er atvinnumaður á PGA mótaröðinni sýna hér æfingu sem hentar vel fyrir lengri púttin.
06.sep. 2010 - 08:48
Gunnar Már Sigfússon
Paul McLoughlin, PGA kennari og einn fremsti golfkennari Írlands sýnir í þessu myndbandi hvernig þú heldur rétt grip um kylfuna og hvaða áhrif það getur verið að hafa á leikinn þinn.
03.sep. 2010 - 09:27
Gunnar Már Sigfússon
Upphitun er mikilvæg fyrir allar íþróttir, ekki síst golf. Átakið sem fer í að flytja boltann af stað er oft gríðarlegt og því mikilvægt að vöðvar og liðir séu vel heit og tilbúin í átök. Myndbandið fer yfir afar einfaldar æfingar til þess að fá hita og liðleika í efri líkamann á aðeins nokkrum mínútum.
03.sep. 2010 - 09:05
Gunnar Már Sigfússon
Remax hefur haldið heimsmeistaramótið í lengsta teighögginu í 15 ár. Þegar keppnin var að byrja voru algengar högglengdir um 290 metrar en í dag eru kylfingarnir að slá um og yfir 330 metra. Á hverju ári reyna um 10.000 kylfingar að komast í úrslitin á yfir 300 stöðum alls staðar í heiminum.
01.sep. 2010 - 09:00
Gunnar Már Sigfússon
Hérna erum við komin í 3 hluta og hann fjallar um Super Senior Division eða öldungaflokkinn eins og það heitir á okkar máli. Það er hann Bobby Wilson sem er komin í frægðarhöllina fyrir teighöggin sín og fáránlega flottar buxur sem þessi hluti fjallar aðallega um.
01.sep. 2010 - 09:00
Gunnar Már Sigfússon
Legends Golf & Safari í Suður Afríku er algjörlega einstakur 18 holu völlur sem er hannaður af 18 mismunandi kylfingum og golfhönnuðum. Meðal þeirra sem hafa hannað völlin eru Padraig Harrington, Colin Montgomerie, K.J. Choi, Retief Goosen, Justin Rose, Trevor Immelman og Vijay Singh. 19 holan er samt sú hola sem hefur vakið hvað mesta athyglu en þú þarft þyrluflug til að komast að teignum sem er í 830 metra hæð yfir flötinni að þessari heimsins erfiðustu par 3 holu.
31.ágú. 2010 - 09:00
Gunnar Már Sigfússon
2 hluti Remax heimsmeistaramótsins í lengsta teighögginu 2009. Það var Jamie Sadlowski sem tók mótið 2008 með ótrúlegu höggi sem sveif yfir 420 yarda eða um 350 metra.
30.ágú. 2010 - 18:05
Bestu kylfingar landsins eru þau Birgir Leifur Hafþórsson og Ólöf María Jónsdóttir, að mati Brynjars Eldon Geirssonar, golfkennara hjá ProGolf. Hann hefur tekið saman topp 10 lista yfir bæði karlkyns og kvenkyns golfsnillinga landsins.
30.ágú. 2010 - 17:30
Brynjar Eldon Geirsson
Ég ætla að taka fram 10 leikmenn sem fram að deginum í dag hafa staðið sig hvað allra best að mínu mati og ætla ekki að tala um þá sem eru að koma upp og munu ráða ferðinni næstu ár.
30.ágú. 2010 - 09:18
Gunnar Már Sigfússon
Remax heimsmeistaramótið í lengsta teighögginu hefur verið haldið árlega síðan 1995. Þetta er stórviðburður og hefur íþróttastöðin ESPN gert þætti í nokkrum hlutum um viðburðinn og ætlum við að birta þá hérna á Golfpressunni. Myndatakan er ótrúleg og þetta eru einstaklega skemmtilegir og fræðandi þættir þar sem sérfræðingarnir eru að gera góð ráð um það hvernig auka má högglenngdina í teighöggunum.