19. júl. 2010 - 13:00Ingrid Kuhlman

Að þróa með sér jákvætt viðhorf

Margir eru þeirrar skoðunar að viðhorf þeirra sé afleiðing ytri aðstæðna. Þeir gleyma því að viðhorf okkar er afleiðing þess hvernig við ákveðum að túlka það sem gerist í kringum okkur.

Tökum sem dæmi veðrið. Margir hér á Íslandi láta t.d. haglél eða snjókomu hafa neikvæð áhrif á skapið. Og skipta aftur um skap þegar sólin tekur að skína. Tökum síðan fólk sem býr í Kaliforníu þar sem eru 360 sólskinsdagar á ári. Einn góðan dag í nóvember dró skyndilega fyrir sólu. Það varð dimmt og síðan kom haglél. Börnin þeyttust út og fögnuðu á meðan haglið féll til jarðar. Sami atburðurinn, mismunandi túlkun.

Viðhorf okkar er sía sem ræður því hvernig við lítum á heiminn. Þegar maður velur að finnast rigning leiðinleg upplifir maður slæman dag þegar það rignir. Sumir sjá alltaf sólina í gegnum skýin á meðan aðrir sjá dökku hliðarnar á þessu eina skýi á himninum. Flestir eru kannski einhvers staðar mitt á milli. Hér að neðan eru tíu leiðir sem geta gagnast við að þróa með sér jákvæðara viðhorf:

Leið 1: Endurskilgreindu merkingu ytri aðstæðna
Margir láta ytri aðstæður hafa neikvæð áhrif á skap sitt. Listin er að breyta þessum atburðum í eitthvað jákvætt. Þegar maður lendir t.d. í umferðarteppu gæti verið gott að hugsa hversu skynsamlegt það hafi verið að leggja svona tímanlega af stað. Einnig er hægt að líta á mótlæti sem tækifæri til að læra. Henry Ford sagði einu sinni: “Mótlæti er tækifæri til að byrja upp á nýtt, en með aðeins meira vit í farteskinu.”

Leið 2: Byrjaðu daginn á einhverju jákvæðu
Byrjaðu daginn á einhverju jákvæðu, t.d. kafla í uppbyggilegri bók eða skemmtilegu myndbandi. Hressandi tónlist virkar einnig vel þar sem hún kemur manni ósjálfrátt í gott skap.

Leið 3: Forðastu neikvæð skilaboð
Maður þarf ekki meira en bara að skoða blöðin til að fá stóran skammt af upplýsingum sem láta manni líða illa. Mun minna er af uppbyggilegum og jákvæðum fréttum. Blaðamaður spurði Sam Walton, stofnanda Wal Mart, einu sinni út í kreppuna. Hann svaraði: “Kreppa, ég tek ekki þátt í henni.” Gott er að forðast neikvæð skilaboð og fóðra sig á jákvæðu efni. 

Leið 4: Forðastu neikvætt fólk
Rannsóknir hafa sýnt að foreldrar hafa frekar lítil áhrif á hegðun barna sinna. Í gegnum genin erfa þau í kringum 50% af persónuleikanum. Restin ræðst af ytra umhverfinu – skólanum og vinum. Þannig virkar það einnig hjá fullorðnu fólki.  Við látum smitast af neikvæðu viðhorfi annarra án þess að átta okkur á því. Fýlupúkar eru orkusugur sem hafa þann eiginleika að draga aðra niður með sér. Forðastu fólk sem á það til að nöldra, kvarta og klaga og taktu ekki þátt í nöldrinu.

Leið 5: Talaðu af öryggi
Bjartsýnt fólk talar af öryggi. Það segir t.d. ekki: “Ég gæti kannski reynt að sjá hvort þetta virki hugsanlega.” Orðaval okkar getur haft áhrif á skapið og orkustigið. Segðu ekki: “Þetta er erfitt, ég veit ekki hvort ég geti það.” Segðu frekar: “Þetta verður örugglega ekki einfalt. Ég ætla að gera það sem í mínu valdi stendur til að láta það takast.” Forðastu orð eins og “en” og “reyna”, sem gefa til kynna að þú hafir ekki stjórn á aðstæðunum.

Leið 6: Breyttu hugsunum þínum
Sumir hafa tilhneigingu til að hafa áhyggjur og dvelja við neikvæðar hugsanir. Þessi straumur neikvæðra hugsana getur orðið að vítahring sem erfitt er að brjóta. Bjartsýnt fólk hefur annað viðhorf: það réttir úr sér, gengur hraðar og með meiri orku. Temdu þér bjartsýni jafnvel þó að þér líði ekki þannig. Það er líka alltaf hægt að finna eitthvað jákvætt í erfiðleikum eða neikvæðri reynslu.

Leið 7: Einblíndu á það sem þig langar að gera
og ekki á það sem þig langar ekki að gera. Þegar tekist er á við vandamál er hægt að hugsa um hversu slæmt ástandið er og hversu mikið það getur versnað, en það gerir ekki gagn og kostar þar að auki mikla orku. Einblíndu frekar á það hvernig þú getir breytt aðstæðum þínum. Gerðu einnig hluti sem þú hefur ánægju af því oft eru það hlutir sem þú gerir vel og gefa lífinu tilgang.

Leið 8: Einblíndu á framtíðina
Sumir geta ekki slitið sig frá fortíðinni. Þeir leita að sökudólgum og aðstæður þeirra eru alltaf einhverjum öðrum um að kenna. Mikilvægt er að átta sig á því hvar maður er í dag og hvert mann langar. Síðan að búa til skýra mynd í huganum og láta svo verkin tala.

Leið 9: Einblíndu á lausnir
Þegar maður stendur andspænis áskorun er miklu skynsamara að einblína á lausnina en vandamálið. Vandamál eru óþægilegar hindranir sem geta komið í veg fyrir að maður sjái takmarkið. Um leið og maður einblínir á lausn er maður farinn að vinna á jákvæðan og uppbyggilegan hátt.

Leið 10: Dragðu lærdóm af neikvæðri reynslu
Neikvæð reynsla felur oft í sér mikilvægan lærdóm. Þeir sem dvelja við fortíðina festast í sama farinu, fá sömu neikvæðu útkomuna og halda áfram að kvarta. Albert Einstein sagði einu sinni: “Það er ekkert skýrara merki um geðveiki en að gera sömu hlutina aftur og aftur og vænta þess að útkoman verði öðruvísi.” Dragðu lærdóm af neikvæðri reynslu með því að gera lista yfir nýja innsýn sem þessi reynsla gefur þér.

 




30.ágú. 2010 - 17:30 Brynjar Eldon Geirsson

Bestu kylfingar Íslands frá upphafi

Ég ætla að taka fram 10 leikmenn sem fram að deginum í dag hafa staðið sig hvað allra best að mínu mati og ætla ekki að tala um þá sem eru að koma upp og munu ráða ferðinni næstu ár.
18.ágú. 2010 - 15:00 Brynjar Eldon Geirsson

Úttekt: Tíu bestu golfvellir á Íslandi

Ég ætla að setja hér fram topp 10 lista yfir þá golfvelli sem mér finnst skemmtilegast að leika á og ég tek það hér fram að þetta er bara mín skoðun á völlunum hér heima.
17.ágú. 2010 - 14:17 Gunnar Már Sigfússon

Ertu slæmur í liðunum eftir sumarspilið? Hérna eru nokkrar góðar hugmyndir fyrir þig

Bakvandamál eru algeng í golfi og er talið að 80% allra kylfinga þurfi að kljást við vandamál tengd bakinu einhvern tíma á ferlinum Nú er tímabilið langt komið og líkaminn jafnvel farinn að láta segja til sín eftir spilamennslu sumarsins. Það eru heilmargt sem þú getur gert til þess að halda líkamanum góðum og það eru nokkur fæðubótarefni sem geta gert kraftaverk fyrir liðina. Mig langar að mæla með nokkrum þeirra sem eru hvað mest rannsökuð og hafa fengið góða umfjöllun.  fyrir ykkur sem eru tæp í hnjám, baki eða öxlum eða finnið fyrir í liðunum þegar þið farið að spila er samt ómetanlegt að fá góða upphitun því oft er vandamálið tengt því að liðiurinn og vöðvarnir eru óundirbúin fyrir átökin. 
16.ágú. 2010 - 13:50 Gunnar Már Sigfússon

Golfkennsla - Pútthraðinn, hvernig á að pútta rétt: MYNDBAND

Golfkennarinn Jaakob Bowden fer yfir hraðann í púttunum og hvernig þú getur komist hjá því að gera algengustu mistökin í púttunum.

13.ágú. 2010 - 09:00 Gunnar Már Sigfússon

ESPN 10 mikilvægustu högg sögunar - 3 hluti: MYNDBAND

Þriðji og síðasti hluti þessarar upptalningar frá ESPN um 10 mikilvægustu högg golfsögunar...hingað til!

12.ágú. 2010 - 09:00 Gunnar Már Sigfússon

ESPN 10 mikilvægustu högg allra tíma - 2 hluti: MYNDBAND

ESPN íþróttastöðin hefur tekið saman 10 mikilvægustu högg golfsögunar og hérna er kafli 2 kominn. Meðal annars er fjallað um ótrúlega frammistöðu Ben Hogan á US Open 1950 þar sem hann haltraði um völlinn eftir að hafa komist lifandi frá hræðilegu bílslysi nokkrum mánuðum áður og hvernig hann vann eftir frábæra frammistöðu.
11.ágú. 2010 - 09:15 Gunnar Már Sigfússon

Frábær æfing til þess að styrkja mjóhrygg og auka liðleika efri líkama

Krossleggðu hendur yfir brjóstkassa og komdu þér vel fyrir á boltanum þannig að hann þrýsti ekki um of á magann

Mjóbaksfettur á bolta með snúningi: Hefðbundin æfing sem er sérsniðin að kylfingum með því að snúa upp á líkamann í hvert skipti sem þú fettir líkamann upp. Það eru nokkur atriði sem ber að hafa í huga.

11.ágú. 2010 - 09:00 Gunnar Már Sigfússon

ESPN 10 mikilvægustu högg allra tíma - 1 hluti: MYNDBAND

Minnstu munaði að John Daly tækist ekki að taka British Open 95 eftir snilldarhögg Constantino Rocca

Íþróttastöðin ESPN hefur sett saman frábæra þætti um það sem þeir telja vera 10 áhrifamestu eða mikilvægustu högg allra tíma. Frábærir þættir sem fjalla um ástæðu þess að golf er svona mögnuð íþrótt 

07.ágú. 2010 - 15:00 Ingrid Kuhlman

Fylgdu viðhorfskúr - Svartsýni vinnur engar orrustur II

Hér fyrir neðan er að finna fjögurra daga viðhorfskúr sem gott er að endurtaka þangað til búið er að setja inn jákvætt viðhorf:
05.ágú. 2010 - 18:14 Brynjar Eldon Geirsson

Vertu undirbúinn fyrir mót

Einkennandi fyrir alla góða leikmenn er hvað þeir haga undirbúningi sýnum fyrir leikna hringi skipulega og undirbúa sig markvisst í öllum þáttum fyrir mót. Hinn almenni kylfingur er frekar svona í því að mæta 10 mín fyrir teigtímann sinn og skilur síðan ekkert í því afhverju svona illa gekk. Undirbúningur fyrr mót verður að byrja miklu fyrr og verður að vera markviss.


30.8.2010

Bestu kylfingar Íslands frá upphafi

Ég ætla að taka fram 10 leikmenn sem fram að deginum í dag hafa staðið sig hvað allra best að mínu mati og...


Skipta um leturstærð

Breyta um tungumál



Leit



Progolf