27.des. 2011 - 16:07
Ólafur Már Sigurðsson
Golfingworld heimsækir hér PGA Tour stjörnuna Ben Crane og skoðar heimilið hans í Portland, Oregon.
05.mar. 2011 - 15:43
Gunnar Már Sigfússon
Hnébeygja er ein besta æfing sem hægt er að gera fyrir neðri líkama hvort sem þú ert að æfa fyrir kraftlyftingar, golf eða bridds. Þessi útfærsla er aftur á móti sérsniðin fyrir kylfinga og keyrir kraft í vöðvana og eykur liðleikann samtímis.
01.mar. 2011 - 14:20
Gunnar Már Sigfússon
Þeir eru framtíð líkamsþjálfunar og eru að verða heitasta æfingatækið í mörgum líkamsræktarstöðvum. Málið með boltana er að þeir hafa alltaf verið notaðir en alltaf sem aukatól eða sem tilbreyting frá hefðbundnum tækjum. Golffitness byggir stóran hluta af sínu prógrammi upp á einföldum æfingatækjum eins og dýnum, teygjum og síðan æfingaboltum. Ef golfprógrammið þitt er með mikið af æfingum í tækjum er það ekki golfprógramm!
23.feb. 2011 - 11:12
Gunnar Már Sigfússon
Nú fer tímabilið að hefjast og keppnisskapið farið að gera vart við sig. Kapp er best með forsjá og ef þú þjáist að of háum blóðþrýstingi eru hér 5 einföld ráð sem geta haft jákvæð áhrif á hann og lækkað hann.
13.feb. 2011 - 10:00
Gunnar Már Sigfússon
Framstig er tæknilega erfið æfing og er ekki fyrir byrjendur né þá sem eru slæmir í hnjám. Hún er engu að síður framúrskarandi æfing fyrir rassvöðvastyrk og ef hún er sett saman með snúningi eins og þessi útgáfa er hún mjög góð liðleikaæfing fyrir efri líkama. Hún er eiginlega holdgervingur þess sem golfsveiflan gengur út á.
28.jan. 2011 - 07:11
Gunnar Már Sigfússon
Það var ekki fyrr en um árið 1990 sem kylfingar sáu ástæðu til þess að fara að huga að líkamlegu ástandi sínu að einhverju leiti. Fram að þeim tíma var golf álitin vera tæknileg íþrótt og jafnan yfirvigtarkylfingar sem voru efstir á mótaröðunum. Með komu Tiger breyttist þetta þó snögglega. Hann er talinn holdgervingur hins nýja kylfings sem tekur líkamlegt form yfir á næsta stig og stundar bæði lyftingar og þolæfingar sérsniðnar að golfinu. Í dag stunda allir afrekskylfingar líkamsrækt og hún er að verða stærri hluti af prógrammi kylfinga en nokkru sinni fyrr. Hér eru nokkur ráð sem gætu bætt leikinn þinn.
27.jan. 2011 - 09:00
Gunnar Már Sigfússon
Rassvöðvarnir spila stórt hlutverk í golfsveiflunni. Það eru tvö powersvæði sem þurfa að hafa nægilegan styrk og það er kviðsvæðið eða core vöðvarnir og síðan eru það rassvöðvarnir. Hægri rassvöðvinn heldur jafnvægi í aftursveiflunni og veitir þér styrk í framsveiflunni. Vinstri rassvöðvinn nýtist í jafnvægi í gegnum höggið. Ef rassvöðvarnir hafa ekki nægan styrk er verkefni þeirra yfirtekið af öðrum vöðvahópum eins og neðri bakvöðvum og aftari lærisvöðvum en það er ávísun á alls kyns vandamál með sveifluna. Rassvöðvarnir eru þrír og þurfa allir að hafa góðann styrk. Hérna eru nokkrar góðar æfingar til þess að styrkja þá svo þeir geti nýst þér í sveiflunni. Ef þú ætlar að bæta þessum æfingum inn í prógrammið þitt skaltu stunda þær tvisvar í viku og gera 3 sett með 10-15 endurtekningum.
25.jan. 2011 - 09:00
Gunnar Már Sigfússon
Nokkur góð ráð frá golfkennurum Swing man golf. Ekki er verra að vera að æfa sig núna þegar það er hiti úti og engin afsökun til að mæta ekki í Bása.
17.jan. 2011 - 09:00
Gunnar Már Sigfússon
Það eru nú bara þannig að sum ráð eru betri en önnur. Eftirfarandi listi er yfir þau ráð sem tengjast líkamsrækt kylfinga og okkur finnst standa upp úr og eru frá virtustu þjálfurum kylfinga um allan heim. Þetta eru allt frábærarar ráðleggingar sem við höfum tekið saman og mælum með að fylgið og uppskerið ykkar besta sumar til þessa.