02. jún. 2010 - 09:00Gunnar Már Sigfússon

Kviður og mjaðmir á bolta: Hafðu gott bil á milli handanna og dragðu síðan fæturna að þér og spenntu kviðinn og dragðu mjaðmirnar undir þig Getty Images
Þetta þarf ekki að vera flókið. Ég tók saman þrjár kvið og core æfingar sem ég get 100% lofað þér að ef þú stundar þær reglulega og leggur þig fram þá muntu lengja teighöggin þín. Þú þarft ekkert kort í ræktina og engin tæki til að stunda þær, bara smá tíma og metnað.
Golfsveiflan byrjar alltaf á jafnvægi í core svæðinu, síðan er það styrkur, liðleiki, jafnvægi og samhæfing. Að vera með vel þjálfað core svæði er grunnurinn þar sem það tengir saman efri líkama og neðri og þarf að vera hreyfanlegt en einnig með mikinn stöðugleika og styrk.
Jafnvægis punktur líkamanns er í core svæðinu og það svæði leiðir allar hreyfingar til efri og neðri líkama og síðan út í útlimina en alltaf er það core svæðið sem er mikilvægast.
Kviður á æfingarbolta:
Þú liggur á bakinu á boltanum með hendur við eyrun og reisir þig síðan upp þar til þú finnur góða spennu í kviðnum. Þá slakarðu rólega tilbaka og ekki gleyma að vöðvarnir eru að vinna jafnmikið á leiðinni niður og upp.
Kviður með snúningi:
Liggur á gólfinu með hnén bogin og iljar í gólf. Hendur fyrir aftan höfuð og síðan reisir þú þig upp þar til kviðurinn spennist, þá snýrðu efri líkamanum til hægri og síðan vinstri og slakar síðan rólega tilbaka.
Plankinn:
Liggðu á maganum. Settu olnbogana undir þig og tærnar í gólf og reistu þig síðan upp svo aðeins olnbogar og tær snerti gólfið. Haltu rassinum aðeins upp svo spenna myndist í kviðinn.
Gunnar Már Tpi golffitness þjálfari er með líkamsgreiningar þar sem veikir hlekkir líkamanns koma í ljós sem geta verið að valda þér vanda í sveiflunni. Þú færð sérsniðna æfingaráætlun sem er með það að markmiði að laga líkamann svo styrkur og liðleiki sé til staðar og þú getir fengið sem mest út úr líkamanum. Greiningin tekur aðeins 30 mínútur og kostar 12,900.- með ráðleggingum og 8 vikna prógrammi. Sendu póst á golf@pressan.is til að panta tíma