27. maí 2010 - 14:20Gunnar Már Sigfússon

Frábær teygju og upphitunaræfing fyrir rassvöðva og aftanverð læri

Ef þú vilt auka teygjanleika og hreyfanleika í fótum og mjöðmum er þetta æfingin fyrir þig

Ef þú vilt auka teygjanleika og hreyfanleika í fótum og mjöðmum er þetta æfingin fyrir þig Getty Images

Þessi upphitunar og teygjuæfing er ein af mínum uppáhalds æfingum þar sem hún virkar svakalega vel til þess að liðka á næstum öllum helstu vöðvahópum í aftanverður neðri líkama þ.e. kálfar, aftanverð læri og rassvöðvar.

Þetta er dýnamísk teygja sem þýðir að þú hreyfir þig í teygjunni og togar eins langt og fóturinn kemst aftur án þess að finna fyrir sársauka. Þú beygir hnéð að brjósti, grípur um aftanvert lærið og réttir síðan úr fætinum þar til þú finnur mjög góða teygju. Slakar rólaga tilbaka sömu leið og endurtekur á gagnstæðum fæti. Gott er að gera 10 endurtekningar á hvorn fót 3 sinnum



08.sep. 2010 - 09:29 Gunnar Már Sigfússon

Golffitness - Mjaðmalyftur á bolta. Góð æfing fyrir styrk og liðleika

Mjaðmalyftur á bolta eru styrkjandi fyrir aftanverð lærin og rassvöðvana og hafa liðkandi áhrif á mjaðmirnar. Rannsóknir sýna að yfir 70% allra karlkylfinga eru stífir í mjöðmum og það getur haft áhrif á t.d. mjóbak og farð að valda verkjum ef ekki eru gerðar liðkandi æfingar fyrir mjaðmirnar. Það sem flestir klikka á er að þeir fara að vinna í mjóbakinu þegar vandamálið er ekki þar heldur í mjöðmunum og því mikilvægt að liðka þær með æfingum.
03.sep. 2010 - 09:27 Gunnar Már Sigfússon

Einfaldar upphitunaræfingar fyrir efri líkama kylfinga: MYNDBAND

Upphitun er mikilvæg fyrir allar íþróttir, ekki síst golf. Átakið sem fer í að flytja boltann af stað er oft gríðarlegt og því mikilvægt að vöðvar og liðir séu vel heit og tilbúin í átök. Myndbandið fer yfir afar einfaldar æfingar til þess að fá hita og liðleika í efri líkamann á aðeins nokkrum mínútum.

19.ágú. 2010 - 09:00 Gunnar Már Sigfússon

Ertu með verki í mjöðmum eða stífleika sem hefur áhrif á sveifluna? Hérna er lausnin

Lance og Greg Rose frá Tpi sýna hérna hvernig hægt er að losa um stífleika í mjöðmum og auka liðleikann með einföldum æfingum. Rannsóknir hafa sýnt að yfir 70% allra karlkylfinga glíma við verki eða stífleika  einhvern tíma á golf ferlinum sem hefur bein áhrif á spilamennskuna.
18.ágú. 2010 - 09:00 Gunnar Már Sigfússon

Golfkennsla. Nokkur frábær ráð frá snillingunum í Swing man golf: MYNDBAND

Nokkur góð ráð frá golfkennurum Swing man golf.

17.ágú. 2010 - 14:17 Gunnar Már Sigfússon

Ertu slæmur í liðunum eftir sumarspilið? Hérna eru nokkrar góðar hugmyndir fyrir þig

Bakvandamál eru algeng í golfi og er talið að 80% allra kylfinga þurfi að kljást við vandamál tengd bakinu einhvern tíma á ferlinum Nú er tímabilið langt komið og líkaminn jafnvel farinn að láta segja til sín eftir spilamennslu sumarsins. Það eru heilmargt sem þú getur gert til þess að halda líkamanum góðum og það eru nokkur fæðubótarefni sem geta gert kraftaverk fyrir liðina. Mig langar að mæla með nokkrum þeirra sem eru hvað mest rannsökuð og hafa fengið góða umfjöllun.  fyrir ykkur sem eru tæp í hnjám, baki eða öxlum eða finnið fyrir í liðunum þegar þið farið að spila er samt ómetanlegt að fá góða upphitun því oft er vandamálið tengt því að liðiurinn og vöðvarnir eru óundirbúin fyrir átökin. 
11.ágú. 2010 - 09:15 Gunnar Már Sigfússon

Frábær æfing til þess að styrkja mjóhrygg og auka liðleika efri líkama

Krossleggðu hendur yfir brjóstkassa og komdu þér vel fyrir á boltanum þannig að hann þrýsti ekki um of á magann

Mjóbaksfettur á bolta með snúningi: Hefðbundin æfing sem er sérsniðin að kylfingum með því að snúa upp á líkamann í hvert skipti sem þú fettir líkamann upp. Það eru nokkur atriði sem ber að hafa í huga.

04.ágú. 2010 - 07:23 Gunnar Már Sigfússon

Golffitness. Joey D fer mjög ítarlega í nokkrar einfaldar æfingar: MYNDBAND

Joey D er einn reyndasti Golffitness þjálfari heims. Hann er að vinna á PGA túrnum og fer hérna yfir nokkrar grunnæfingar og útskýringar á þeim hvernig þær geta nýst ykkur kylfingum sem best.

22.júl. 2010 - 13:06 Gunnar Már Sigfússon

Golf Fitness Academy - Liðleiki axlanna: MYNDBAND

Greg Rose og Dave Phillips stofnendur TPI fara hérna yfir einfalt test sem sýnir liðleika axlanna. Axlirnar eru mikilvægar og alls kyns vandamál sem þú munt upplifa á vellinum ef þær eru ekki í lagi. Næst verður farið yfir æfingar sem eru liðkandi fyrir axlir og efra bak.

12.júl. 2010 - 10:31 Gunnar Már Sigfússon

Tvær góðar styrktaræfingar fyrir kylfinga. Hátt erfiðleikastig

Sett boltann undir kálfana, réttu úr mjöðmunum og dragðu síðan fæturna undir þig svo iljarnar snerti boltann. Sömu leið tilbaka rólega

Kviðsvæðið og aftanverð lærin eru mikilvægir vöðvahópar fyrir kylfinga og eins og þið hafið séð á æfingunum sem hafa verið að birtast hérna hjá okkur er ég líka mjög hrifinn af styrktaræfingum sem framkvæmdar eru á bolta. Ástæðan fyrir því er sú að boltinn setur inn í jöfnuna allt annað álag á líkamann og innvinklar oft meira en helmingi fleiri vöðvahópa en sambærileg æfing sem er framkvæmd í tæki.

05.júl. 2010 - 09:00 Gunnar Már Sigfússon

2 frábærar upphitunaræfingar fyrir efri líkama: MYNDBAND

Það er mikilvægt að koma sér upp uphitunarrútínu fyrir spilið

Upphitun er mikilvæg fyrir alla kylfinga. Hérna eru sýndar tvær einfaldar upphitunaræfingar fyrir efra bak og axlir sem ég hvet ykkur til að prófa næst þegar þið farið á völlinn.


30.8.2010

Bestu kylfingar Íslands frá upphafi

Ég ætla að taka fram 10 leikmenn sem fram að deginum í dag hafa staðið sig hvað allra best að mínu mati og...


Skipta um leturstærð

Breyta um tungumál



Leit



Progolf