19. maí 2010 - 09:00Gunnar Már Sigfússon

7 algengustu "andlegu" mistökin sem allir kylfingar gera - 3 hluti

Æfingin skapar meistarann og ef þú ert meistarinn í huganum er þetta bara tímaspursmál um hvenær það gerist á vellinum.

Æfingin skapar meistarann og ef þú ert meistarinn í huganum er þetta bara tímaspursmál um hvenær það gerist á vellinum. Getty Images

#5 Þessar flatir eru alltof hægar.... þessar flatir eru of hraðar... þessar flatir bla bla bla

Hvaða hugsanir ert þú að hugsa þegar þú ert að pútta sem valda því að þú ert ekki að setja niður boltana í einu höggi. Hverju getur þú breytt í sambandi við flatirnar hvort sem þær eru hraðar eða hægar eða bara alveg gjörsamlega ómögulegar. Engu! Það eina sem breytir er að þú verður tuðari og það er leiðinlegt að spila með þér. Flatirnar breytast ekki, þú verður að breytast og fara að hugsa... Ég elska þessa flöt, þetta er sennilega besta flöt í heimi...Prófaðu og sjáðu til.

#6 Ég næ ekki að sjá höggið fyrir mér eða boltann fara í holuna.

Flestir betri kylfingar geta oft séð höggið fyrir sér eða púttið og það sem þeir sjá gerist. Við getum þetta öll en munurinn er hvort við raunverulega náum þessari jákvæðu hugsanatengingu sem atvinnukylfingarnir ná. Hafðu engar áhyggjur þó því þetta er hægt að þjálfa upp og ég get lofað þér því að þú getur orðið snillingur í hugargolfi og rúllað yfir vini þína og spilafélaga Tiger, Mickelson og Stricker (mundu að þetta er hugargolf, allt má) Gerðu þessa æfingu í kvöld fyrir svefninn. Leiktu níu holur á vellinum þínum og gefðu þér tíma í að fylgjast með fluginu og hvernig boltinnn skoppar inn á flötina og hvernig hann fellur ofan í holuna á einu undir! Æfingin skapar meistarann og ef þú ert meistarinn í huganum er þetta bara tímaspursmál um hvenær það gerist á vellinum.

#7 Ég þoli ekki að spila með þessum gaur...

Ef eitthvað utanaðkomandi er að trufla þig skaltu fara í leik sem heldur huganum uppteknum og neikvæðum tilfinningum í garð meðspilara þinna í skefjum. Skráðu allt hjá þér sem er í gangi í leiknum. Haltu tölfræði yfir hversu mörg högg þú ert að slá á brautinni, hversu mörg pútt þú ert að slá, hvaða kylfa er að færa þér bestu höggin o.s.frv Með öðrum orðum haltu sjálfum þér uppteknum og trúðu mér að allt í einu ertu á kafi í skemmtileg heitum og ert búinn að gleyma "hvað hann nú heitir"

Þetta eru síðustu þrjú atriðið í hugaræfingum sem þú getur gert til þess að bæta leikinn þinn.
Gangi þér vel - Kveðja Gunni




03.sep. 2010 - 09:27 Gunnar Már Sigfússon

Einfaldar upphitunaræfingar fyrir efri líkama kylfinga: MYNDBAND

Upphitun er mikilvæg fyrir allar íþróttir, ekki síst golf. Átakið sem fer í að flytja boltann af stað er oft gríðarlegt og því mikilvægt að vöðvar og liðir séu vel heit og tilbúin í átök. Myndbandið fer yfir afar einfaldar æfingar til þess að fá hita og liðleika í efri líkamann á aðeins nokkrum mínútum.

19.ágú. 2010 - 09:00 Gunnar Már Sigfússon

Ertu með verki í mjöðmum eða stífleika sem hefur áhrif á sveifluna? Hérna er lausnin

Lance og Greg Rose frá Tpi sýna hérna hvernig hægt er að losa um stífleika í mjöðmum og auka liðleikann með einföldum æfingum. Rannsóknir hafa sýnt að yfir 70% allra karlkylfinga glíma við verki eða stífleika  einhvern tíma á golf ferlinum sem hefur bein áhrif á spilamennskuna.
18.ágú. 2010 - 09:00 Gunnar Már Sigfússon

Golfkennsla. Nokkur frábær ráð frá snillingunum í Swing man golf: MYNDBAND

Nokkur góð ráð frá golfkennurum Swing man golf.

17.ágú. 2010 - 14:17 Gunnar Már Sigfússon

Ertu slæmur í liðunum eftir sumarspilið? Hérna eru nokkrar góðar hugmyndir fyrir þig

Bakvandamál eru algeng í golfi og er talið að 80% allra kylfinga þurfi að kljást við vandamál tengd bakinu einhvern tíma á ferlinum Nú er tímabilið langt komið og líkaminn jafnvel farinn að láta segja til sín eftir spilamennslu sumarsins. Það eru heilmargt sem þú getur gert til þess að halda líkamanum góðum og það eru nokkur fæðubótarefni sem geta gert kraftaverk fyrir liðina. Mig langar að mæla með nokkrum þeirra sem eru hvað mest rannsökuð og hafa fengið góða umfjöllun.  fyrir ykkur sem eru tæp í hnjám, baki eða öxlum eða finnið fyrir í liðunum þegar þið farið að spila er samt ómetanlegt að fá góða upphitun því oft er vandamálið tengt því að liðiurinn og vöðvarnir eru óundirbúin fyrir átökin. 
11.ágú. 2010 - 09:15 Gunnar Már Sigfússon

Frábær æfing til þess að styrkja mjóhrygg og auka liðleika efri líkama

Krossleggðu hendur yfir brjóstkassa og komdu þér vel fyrir á boltanum þannig að hann þrýsti ekki um of á magann

Mjóbaksfettur á bolta með snúningi: Hefðbundin æfing sem er sérsniðin að kylfingum með því að snúa upp á líkamann í hvert skipti sem þú fettir líkamann upp. Það eru nokkur atriði sem ber að hafa í huga.

04.ágú. 2010 - 07:23 Gunnar Már Sigfússon

Golffitness. Joey D fer mjög ítarlega í nokkrar einfaldar æfingar: MYNDBAND

Joey D er einn reyndasti Golffitness þjálfari heims. Hann er að vinna á PGA túrnum og fer hérna yfir nokkrar grunnæfingar og útskýringar á þeim hvernig þær geta nýst ykkur kylfingum sem best.

22.júl. 2010 - 13:06 Gunnar Már Sigfússon

Golf Fitness Academy - Liðleiki axlanna: MYNDBAND

Greg Rose og Dave Phillips stofnendur TPI fara hérna yfir einfalt test sem sýnir liðleika axlanna. Axlirnar eru mikilvægar og alls kyns vandamál sem þú munt upplifa á vellinum ef þær eru ekki í lagi. Næst verður farið yfir æfingar sem eru liðkandi fyrir axlir og efra bak.

12.júl. 2010 - 10:31 Gunnar Már Sigfússon

Tvær góðar styrktaræfingar fyrir kylfinga. Hátt erfiðleikastig

Sett boltann undir kálfana, réttu úr mjöðmunum og dragðu síðan fæturna undir þig svo iljarnar snerti boltann. Sömu leið tilbaka rólega

Kviðsvæðið og aftanverð lærin eru mikilvægir vöðvahópar fyrir kylfinga og eins og þið hafið séð á æfingunum sem hafa verið að birtast hérna hjá okkur er ég líka mjög hrifinn af styrktaræfingum sem framkvæmdar eru á bolta. Ástæðan fyrir því er sú að boltinn setur inn í jöfnuna allt annað álag á líkamann og innvinklar oft meira en helmingi fleiri vöðvahópa en sambærileg æfing sem er framkvæmd í tæki.

05.júl. 2010 - 09:00 Gunnar Már Sigfússon

2 frábærar upphitunaræfingar fyrir efri líkama: MYNDBAND

Það er mikilvægt að koma sér upp uphitunarrútínu fyrir spilið

Upphitun er mikilvæg fyrir alla kylfinga. Hérna eru sýndar tvær einfaldar upphitunaræfingar fyrir efra bak og axlir sem ég hvet ykkur til að prófa næst þegar þið farið á völlinn.

28.jún. 2010 - 08:45 Gunnar Már Sigfússon

Jafnvægi fyrir kylfinga: Dave Phillips annar af stofnendum Mytpi gefur góð ráð: MYNDBAND

Dave Phillips er annar stofnenda Tpi og er topp 100 golfkennari í Bandaríkjunum. Hann er að kynna hérna hjálpartæki fyrir kylfinga til þess að öðlast meira jafnvægi í sveiflunni og þessi græja er hönnum í samstarfi við Padraig Harrington.


30.8.2010

Bestu kylfingar Íslands frá upphafi

Ég ætla að taka fram 10 leikmenn sem fram að deginum í dag hafa staðið sig hvað allra best að mínu mati og...


Skipta um leturstærð

Breyta um tungumál



Leit



Progolf