22.maí 2012 - 20:00

Miðstýrður áætlunarbúskapur: Frjálsum markaði er hafnað og marxískri miðstýringu hampað

Ólafur Arnarson hagfræðingur gerir gys að þeim málflutningi útgerðarinnar að það hámarki afrakstur þjóðarinnar af sjávarútvegi að virðiskeðjan í greininni sé óslitin og öll á einni hendi. Í nýjum Pressupistli líkir hann óslitinni virðiskeðju í sjávarútvegi við miðstýrðan áætlunarbúskap í Sovétríkjunum sálugu.
22.maí 2012 - 15:51

Taldi 12 ár í forsetastól eðlileg: Enginn gott af því að ímynda sér að hann sé ómissandi

Dr. Kristján Eldjárn var forseti Íslands 1968-1980. Sjálfur tel ég að tólf ár séu eðlilegur og jafnvel æskilegur tími í þessu embætti og er það drjúgur spölur í starfsævi manns, sagði dr. Kristján Eldjárn í nýársávarpi sínu 1. janúar 1980, er hann tilkynnti þjóðinni að hann hygðist hverfa úr embætti eftir tólf ár á forsetastóli.
22.maí 2012 - 12:11

Árni Páll: Getum gert Vigdísi Hauks að forsætisráðherra og hvar er pláss fyrir Hall Hallsson?

„Ef hótun af þessum toga á að vera trúverðug þarf samfélagið að vera tilbúið að hóta höftum til áratuga. Hver er tilbúinn til þess?“ spyr Árni Páll Árnason, þingmaður og fyrrum efnahags- og viðskiptaráðherra sem telur svokallaða „íslensku leið“ Róberts Wessman óraunhæfa.
21.maí 2012 - 18:43

Ólafur og Lilja fjalla um íslensku leiðina: Erlend krónueign veldur stöðugum þrýstingi á gengið

Hagfræðingarnir Ólafur Ísleifsson og Lilja Mósesdóttir, sem einnig er alþingismaður, fagna hugmyndum Róberts Wessman um svokallaða íslenska leið í gjaldeyrismálum þjóðarinnar. Lilja segir erlendra krónueign valda stöðugum þrýstingi til lækkunar á gengi krónunnar og það þýði rýrnun lífskjara og hærri verðbólgu.
21.maí 2012 - 08:22

Félagið Íslensk ættleiðing gengur á varasjóð félagsins: Ekki forsendur til að ljúka málum

Stjórn Íslenskrar ættleiðingar hefur sent Innanríkisráðuneytinu tilkynningu um að ganga þurfi á varasjóð félagsins. Þær ráðstafanir kunna að hafa í för með sér að þegar félagið verður lagt niður verða ekki öruggar rekstrarforsendur til að ljúka málum  er kunna að vera til meðferðar á vegum félagsins á þeim tíma.
20.maí 2012 - 20:55

Íslendingar fengið 11 milljörðum meira úr sjóðum ESB en þeir hafa lagt til þeirra

Íslendingar hafa fengið um 11 milljörðum króna meira úr styrkjasjóðum eða áætlunum Evrópusambandsins en þeir hafa greitt til þessara sömu sjóða.


20.maí 2012 - 16:00

Sjávarútvegurinn rekinn með gríðarlegum hagnaði: Getur vel lagt af mörkum til þjóðarinnar

Steingrímur J. Sigfússon, efnahags- og viðskiptaráðherra, segir gríðarlega tekjumyndun hafa verið síðastliðin fjögur ár í sjávarútvegi og greinin standi vel undir því að leggja meira af mörkum til eigenda auðlindarinnar.


19.maí 2012 - 22:39

Þóra segist klökk yfir fallegum og góðum kveðjum: Hér ríkir hamingjan ein

Þóra Arnórsdóttir fjölmiðlakona og forsetaframbjóðandi kveðst hálfklökk yfir öllum þeim fallegu og góðu kveðjum sem henni og Svavari Halldórssyni sambýlismanni hennar hafa borist í tilefni af fæðingu lítillar dóttur í gær.
19.maí 2012 - 12:45

Tveir mikilvægir leiðtogafundir haldnir í Bandaríkjunum um helgina: Jóhanna og Össur til Chicago

Tveir mikilvægir leiðtogafundir eru haldnir í Bandaríkjunum um helgina. Fyrri fundurinn er leiðtogafundur átta helstu iðnríkja heims (G8) og að honum loknum tekur við leiðtogafundur Atlantshafsbandalagsins (NATO) í Chicago.
19.maí 2012 - 10:44

Dorrit segir að ofvirkni og athyglisbrestur hái sér: Ég hef reynt rítalín, ég hef reynt allt

„Hringt var í föður minn úr skólanum þegar ég var sex ára. Kennarinn sagði pabba að hann ætti mjög heimska dóttur sem truflaði kennsluna. Vinsamlegast ekki senda hana aftur í skólann. Pabbi sagði, ók. Ég var sátt, því ég vildi ekkert endilega fara aftur í skólann og var svo lánsöm að hann kenndi mér sjálfur og svo fékk ég einkakennslu heima. Við vorum svo lánsöm að hafa efni á því.“
18.maí 2012 - 09:33

Framboð Þóru sagt reka á reiðanum: Þið þarna rífið ykkur upp af rassinum!

Framboð Þóru Arnórsdóttur til forseta hefur rekið á reiðanum í tvær vikur. Enginn virðist passa sjoppuna meðan hún er í fæðingarfríi, segir fyrrverandi ritstjóri sem fullyrðir að forsetaefni getur aldrei verið i fríi af neinu tagi.
17.maí 2012 - 19:46

Evrópa er á barmi efnahagshruns: Varað við evrugeddon og afleiðingum um allan heim

Evrópa er á barmi efnahagshruns sem kann að hafa víðtækar afleiðingar um allan heim, svo sannarlega líka hér á landi. Forsætisráðherra segir dómsdag nálgast; Grikkland er stjórnlaust og þar líkt og á Spáni óttast menn víðtæk áhlaup á banka næstu daga þar sem landsmenn vilja fremur geyma reiðufé undir koddanum en á ótraustum bankabókum fjármálastofnana sem óvíst er hvort lifa næstu daga af.
17.maí 2012 - 12:00

Annar stjórnarflokkurinn vill ganga úr NATO: Vinna ötullega þar til markmiðinu er náð

Stjórn Vinstri grænna í Reykjavík vill að þingmenn flokksins vinni ötullega að því að Ísland gangi úr Atlantshafsbandalaginu (NATO) þar til markmiðinu er náð. Ekkert bendir til þess að flokkurinn hafi unnið samkvæmt þessari stefnu í stjórnarsamstarfinu við Samfylkinguna.
16.maí 2012 - 16:00

Kostnaður við hvern hælisleitanda á mánuði 215.000 kr. - öryrkjar fá 173.000 kr.

Jón Magnússon, lögmaður og fyrrum alþingismaður, segir menn veigra sér við að taka þátt í umræðu um ólöglega innflytendur af ótta við að vera stimplaðir kynþáttahatarar. Staðreyndin sé hins vegar sú að ólöglegum innflytjendum fjölgi nú sem aldrei fyrr enda hafi spurst út að hér sé tekið á málum af linkind. Kostnaður við hvern hælisleitanda er að meðaltali 215.000 kr.  á mánuði en öryrkjar fá 173.000 kr. og ellilífeyrisþegar 166.000 kr.


16.maí 2012 - 10:23

13 milljarðar til 30 aðila: 2,7 milljarðar til 90.000 húseigenda - útgerðarmönnum færðar stórar gjafir

Á þessu ári fá 30 aðilar 13 milljarða króna í gjöf frá ríkisstjórninni sem er sú upphæð sem útgerðarmönnum er gefin ef innheimt væri það veiðigjald sem stjórnarflokkarnir hafa lagt til. Á sama tíma fá ríflega 90 þúsund húseigendur samtals 2,7 milljarða króna. Þetta er mikið til fárra og lítið til margra, segir Kristinn H. Gunnarsson, fyrrum alþingismaður.



Pressupennarnýjast
Aðsend grein
Aðsend grein - 23.5.2012
Maltölsprósentuvirðing
Ólafur Arnarson
Ólafur Arnarson - 22.5.2012
Marx og Lenín í útgerð á Íslandi?
Fannar Karvel
Fannar Karvel - 22.5.2012
Basic hnébeygja eða hvað...
Ragga Nagli
Ragga Nagli - 22.5.2012
Rútínurask
Brynjar Eldon Geirsson
Brynjar Eldon Geirsson - 22.5.2012
Golf í Vestmannaeyjum
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Hannes Hólmsteinn Gissurarson - 21.5.2012
Davíð Oddsson og Evrópusambandið
Ólafur Már Sigurðsson
Ólafur Már Sigurðsson - 21.5.2012
Golf fyrir alla 2 (Grafarholtsvöllur) 6.hola - Myndband
Vilhjálmur Steinarsson
Vilhjálmur Steinarsson - 19.5.2012
6 verstu mistökin
Fleiri pressupennar