26.maí 2013 - 09:00
Skólalið Cincinnati Bearcats í bandaríska hafnarboltanum er hlaðið húmoristum. Nýjasta æðið innan herbúða liðsins er að stela sviðsljósinu af þeim leikmönnum sem fara í viðtöl við sjónvarpsstöð liðsins. Óviðjafnanlegir leikrænir tilburðir og magnað hugmyndaflug spilar hér stórt hlutverk.
25.maí 2013 - 20:00
Getnaðarvarnir hafa marga kosti, en einnig galla. Einn þessara galla virðist hafa farið framhjá vísindamönnum þar til nýlega.
25.maí 2013 - 19:41
Guðjón Ólafsson
Bayern Munchen tryggði sér í kvöld sigurinn í Meistaradeild Evrópu þegar liðið hafði betur gegn Dotmund í úrslitaleikanum á Wembley Arena í Lundúnum. Leikið var til þrautar en svo fór að leikurinn endaði með 2-1 sigri Bayern Munchen þar sem Arjen Robben skoraði sigurmarkið á 89. mínútu.
25.maí 2013 - 19:15
Axel Bóasson og Guðrún Brá Björgvinsdóttir leiða á Egils Gull mótinu í golfi sem fram fer þessa helgina á Garðavelli á Akranesi. Lokadagurinn verður leikinn á morgun en mikil spenna er bæði í karla- og kvennaflokki. Mótið er hluti af Eimskipsmótaröðinni.
25.maí 2013 - 18:00
Bílabúð Benna slær upp bílasýningu á Olís planinu í Stykkishólmi nk. sunnudag. Til sýnis verða nýjustu gæðagripirnir frá Chevrolet sem notið hafa mikilla vinsælda hjá landsmönnum vegna glæsilegrar hönnunar, sparneytni og hagstæðs verðs.
25.maí 2013 - 17:00
Mynd dagsins tók Páll Ketilsson hjá Víkurfréttum. Valahnjúkur er vinsæll áfangastaður ferðamanna og margir leggja leið sína þangað til að njóta útsýnis út á hafið. Aðstæður eru þó varasamar og vantar allar merkingar.
25.maí 2013 - 16:00
Liðsmenn Skákfélagins Hróksins hafa undanfarna daga verið í Nuuk, höfuðborg Grænlands, til að undirbúa minningarskákmót um Jonathan Motzfeldt, fyrsta forsætisráðherra Grænlands. Jonathan Motzfeldt var sannkallaður landsfaðir á Grænlandi, mikill Íslandsvinur og ástríðufullur skákáhugamaður.
25.maí 2013 - 13:30
Guðjón Ólafsson
Svakalegur leikur á dagskrá í kvöld þegar þýsku risarnir í Bayern Munchen og Dortmund mætast í úrslitum Meistaradeildar Evrópu. Við leituðum til sérfræðinga en fengum engin svör. Það var því um fátt annað að velja en að heyra í fagmönnunum á bakvið útvarpsþáttinn FM95BLÖ.
25.maí 2013 - 11:00
Árið 1842 gekk ástfangið par í bænum Roermond í Hollandi í það heilaga. Brúðurin var skráð undir nafninu JCPH van Aefferden og var af svokölluðu heldra fólki. Og hún var kaþólsk eins og meirihluti íbúanna í Roermond sem er sunnarlega í landinu.
25.maí 2013 - 09:00
Þá er komið að því sem allir hafa beðið eftir. Úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu er í kvöld. Stærsti fótboltaleikur ársins, svo einfalt er það. Tvö þýsk lið etja þar kappi um eftirsóttasta bikar knattspyrnunnar, Bayern Munchen og Dortmund, en liðin hafa lengi vel eldað grátt silfur í þýska boltanum. Sérstaklega síðustu tvo áratugina.
24.maí 2013 - 21:00
Jóhannes Haukur Jóhannesson er fæddur árið 1980. Hann útskrifaðist með BFA gráðu í leiklist vorið 2005 og hefur síðan þá leikið fjölda hlutverka í leikritum og kvikmyndum.
24.maí 2013 - 20:00
Þeir eru enn til í veröldinni sem líta á daginn 23. maí sem þrunginn sérstakri merkingu. Þennan dag árið 1498 voru teknir af lífi í Flórens þrír munkar með því móti að þeir voru hengdir upp á hver sína járnstöngina og bál tendrað undir svo þeir brunnu á hægum eldi og kvöldust lengi.
24.maí 2013 - 18:00
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir fyrrverandi menntamálaráðherra og þingkona Sjálfstæðisflokksins, hefur verið ráðin forstöðumaður nýs mennta- og nýsköpunarsviðs Samtaka atvinnulífsins. Stofnun menntasviðs er liður í aukinni áherslu Samtaka atvinnulífsins á menntamál og nýsköpun.
24.maí 2013 - 16:35
Bráðabirgðaniðurstöður vegna andláts roskinna hjóna í hjólhýsi þeirra í Þjórsárdal þann 19. maí sl. benda til þau hafi látist vegna súrefnisskorts. Rannsókn hefur leitt í ljós að samsetning á reykröri við gasofn í innréttingu hússins var í sundur uppundir lofti þess, á bak við innréttingu.
24.maí 2013 - 16:05
Rafael Benitez, sem nýverið stýrði Chelsea til sigurs í Evrópudeildinni, mun stýra ítalska liðinu Napoli á næsta tímabili. Aurelio De Laurentiis, forseti Napoli, staðfesti þetta í fjölmiðlum í dag en Spánverjinn mun skrifa undir tveggja ára samning við félagið.
24.maí 2013 - 16:00
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar eftir upplýsingum í tengslum við innbrot og skemmdarverk sem voru framin aðfararnótt 23.maí.sl. Unnin voru eignaspjöll á útivistarsvæði við Hvaleyrarvatn. Skemmdir voru unnar á borðum, bekkjum, skiltum og fleiru. Einnig var brotist inn í skátaskála við Hvaleyrarvatn, fjölmargar rúður brotnar og miklar skemmdir unnar þar.
24.maí 2013 - 15:05
Rétt um hálf eitt í dag voru björgunarsveitir í Skagafirði kallaðar út þar sem tilkynning barst um að bíll hefði lent út í Norðurá, vestan Öxnadalsheiðar. Um var að ræða Útkall rauður sem er hæsta viðbragð og krefst tafarlausra viðbragða.
24.maí 2013 - 14:00
Á áttundu öld eftir Krist kom mongólskur þjóðflokkur norðan úr Tíbet og settist að í Búrma eða Míanmar, sem nú heitir svo. Líklega kom þjóðflokkurinn upprunalega alla leið norðan úr Mongólíu.
24.maí 2013 - 13:00
Karlmaður á fertugsaldri sem þann 15. maí sl. var úrskurðaður í gæsluvarðhald, grunaður um að hafa brotið á 10 ára stúlku var yfirheyrður í gær. Maðurinn er sakaður um að hafa tekið stúlkuna með valdi og sett hana í aftursæti bifreiðar sem hann var á.
24.maí 2013 - 12:30
Mario Djurovski átti ekki til orð þegar dómari leiks Muang Thong United og TOT í tælenska boltanum ákvað að reka hann útaf fyrir að fagna marki sínu. Mario hafði þá klætt sig úr stuttbuxunum, komið þeim fyrir á hausnum á sér og þóst skjóta áhorfendur með byssu.
24.maí 2013 - 12:00
Sérstakur saksóknari hefur ákært héraðsdómslögmanninn Pétur Þór Sigurðsson fyrir meiriháttar brot á skatta- og bókhaldslögum og undanskot á skatti, trassaskap við skil á virðisaukaskattskýrslum og fyrir að hafa látið undir höfuð leggjast að færa lögboðið bókhald einkahlutafélagsins Lögfræðistofunnar rekstrarárin 2009 og 2010.
24.maí 2013 - 11:00
Gríðarlegt tjón hefur orðið víða í Noregi vegna mikilla rigninga undanfarna daga. Hundruðir manna hafa þurft að yfirgefa heimili sín vegna flóða- og skriðuhættu. Vatn hefur flætt inn í hundruðir húsa og dæmi eru um að hús hafi losnað af grunninum vegna mikils vatnsmagns.
24.maí 2013 - 10:34
Dagana 14. til 17. maí kannaði MMR almennan stuðning Íslendinga við knattspyrnulið í efstu deild á Íslandi, bæði í karla- og kvennaflokki. Í ljós kom að flestir, eða 19% þátttakenda, sögðust halda með Þór/KA.
24.maí 2013 - 10:12
Þýskur fótbolti er heldur betur að slá í gegn þetta tímabilið. Ekki nóg með að tvö þýsk lið mætist í úrslitum Meistaradeildar Evrópu á Wembley á morgun heldur tryggði þýska liðið Wolfsburg sér sigurinn í Meistaradeild kvenna í gærkvöldi.
24.maí 2013 - 10:00
Hannes Hólmsteinn Gissurarson, prófessor í stjórnmálafræði, skrifar grein í Wall Street Journal í dag, föstudaginn 24. maí, þar sem hann skýrir úrslit kosninganna á Íslandi og greinir stefnu nýju stjórnarinnar.
24.maí 2013 - 09:00
Samkvæmt skandinavíska tryggingafélaginu If hefur fjöldi bíla, sem eyðilögðust í fellibylnum Sandy í Bandaríkjunum sl. haust, og átti að vinna í brotajárn, verið seldir til Evrópu. Þar hafa óprúttnir aðilar gert við bílana til málamynda og selt þá áfram til þriðja aðila.
24.maí 2013 - 08:10
Eins og Pressan hefur skýrt frá í vikunni hafa töluverðar óeirðir verið í Stokkhólmi undanfarnar nætur þar sem komið hefur til átaka á milli óeirðaseggja og lögreglunnar. Mikið eignatjón hefur orðið en kveikt hefur verið í bílum, verslunarhúsnæði og lögreglustöðvum og rúður hafa verið brotnar víða.
23.maí 2013 - 21:30
Jes Baker hefur heldur betur slegið í gegn með því að deila á Abercrombie & Fitch með sjóðheitri myndaseríu á The Militant Baker. Jes kom fram í The Today Show til að ræða uppnámið sem Mike Jeffries frá A&F olli með ummælum sínum um hverjir ættu helst að ganga í fötunum frá þeim, semsagt „minna svölu krakkarnir“ sem væru þá meðal annars feitu krakkarnir.
23.maí 2013 - 20:40
Hinn kunni fréttamaður Wolf Blitzer sem starfar fyrir CNN var heldur vandræðalegur þegar hann tók viðtal við Rebeccu Vitsmun sem slapp með naumindum þegar skýstrókur lagði Moore, úthverfi Oklahomaborgar í rúst.
23.maí 2013 - 20:10
Jóhanna Sigurðardóttir, fráfarandi forsætisráðherra, þakkar fyrir sig í sérstöku árshátíðarmyndbandi forsætisráðuneytisins. Þar tekur hún meðal annars létt dansspor sem minna á atriði úr kvikmynd eftir Quentin Tarantino.
23.maí 2013 - 19:20
Orðalag um skuldalækkanir í stjórnarsáttmála nýrrar ríkisstjórnar felur í sér óvissu varðandi útfærslu sem eftir á að skýra. Þannig þarf að meta hvað telst fyrirséð eða ófyrirséð hækkun á höfuðstóli húsnæðislána.
23.maí 2013 - 18:15
Ekki virðist vera að draga úr óeirðunum í Stokkhólmi sem hafa geysað allar nætur í vikunni. Í nótt var kveikt í að minnsta kosti 15 bílum og einni lögreglustöð. Lögreglan var með mikinn viðbúnað í mörgum hverfum Stokkhólms en þrátt fyrir það fóru óeirðaseggir af stað seint í gærkvöldi og voru á götum úti fram á morgun.
23.maí 2013 - 16:58
Ráðherrar úr ríkisstjórn Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks komu saman til ríkisráðsfundar á Bessastöðum í dag og lauk fundinum á fimmta tímanum. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson er þar með orðinn forsætisráðherra eftir að forseti Íslands veitti fráfarandi ríkisstjórn lausn frá störfum í morgun.
23.maí 2013 - 15:55
Guðjón Ólafsson - Spjallið
Torsten Jansen, leikmaður Hamburg í þýska boltanum, var í dag dæmdur í tíu leikja bann fyrir að skalla mótherja sinn í leik á þriðjudag. Jansen þarf jafnframt að greiða háa sekt en reglur í þýska boltanum gera það að verkum að bannið er í raun ekki nema tveir leikir.
23.maí 2013 - 15:00
Dýrleif Skjóldal, sem starfar sem leikskólakennari á Akureyri telur að breytingar sem gerðar hafa verið á andarpolli en þar var reist girðing til að vernda andarunga frá mávinum, ali á fordómum. Börnunum er með þessu kennt að sumir fuglar séu betri en aðrir.
23.maí 2013 - 14:40
Að morgni 21. maí náði Ingólfur Geir Gissurarson þeim magnaða árangri að komast upp á topp Mount Everest. Ingólfur er nú kominn niður í grunnbúðir Everest. Hér má sjá mynd af því þegar hann flaggaði íslenska fánanum á þessum hæsta punkti jarðar.
23.maí 2013 - 13:35
Ráðherrar í ríkisstjórn Samfylkingar og Vinstri grænna mættu á sinn síðasta ríkisráðsfund á Bessastöðum klukkan 11 í morgun. Þeir eru mishrifnir af stjórnarsáttmála nýrrar ríkistjórnar.
23.maí 2013 - 12:40
Hræðilegt atvik átti sér stað í þýska handboltanum á þriðjudag þegar Torsten Jansen, leikmaður Hamburg, skallaði Ivan Nincevic, leikmann Füchse Berlin með hræðilegum afleiðingum. Myndband af atvikinu má sjá hér.
23.maí 2013 - 12:20
Myndir dagsins tók starfsmaður Norðuráls af hrafnapari sem hefur gert sér laup á uppgöngupalli utan á kerskála Norðuráls á Grundartanga.
23.maí 2013 - 11:55
Í morgun komst talningavél Íþróttapressunnar að því að einungis einn tippari náði að hitta rétt á alla leiki fjórðu umferðar Pepsi-deildar karla. Eins og vanalega verðlaunum við hið hina sannspáu tippara með Pepsi og boðsmiðum.
23.maí 2013 - 11:15
Jóhannes Þór Skúlason, aðstoðarmaður Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, var kampakátur þegar þeir Sigmundur Davíð og Bjarni Benediktsson skrifuðu undir stjórnarsáttmála nýrrar ríkisstjórnar á Laugarvatni.
23.maí 2013 - 10:10
Grínistinn Sólmundur Hólm, í samstarfi við Billy Joel og Pálma Gunnarsson, hefur sett saman stórskemmtilegt lag til heiðurs helsta stuðningsmanni Þróttar í íslenska boltanum, sjálfum Konna. Konna þekkja margir íslenskir knattspyrnuáhugamenn en harðari stuðningsmann er vart að finna.
23.maí 2013 - 10:00
Gríðarlegar rigningar hafa verið í Noregi og er vatnselgurinn víða gríðarlegur og meiri en elstu menn muna. Vegir hafa farið í sundur og lestarsamgöngur hafa farið úr skorðum. Rýma hefur þurft tugi húsa vegna flóða og í Holt í Eidsvold hefur þurft að flytja fólk á brott vegna hættu á að stífla á svæðinu bresti. Ef það gerist mun vatnselgurinn hrífa allt með sér sem fyrir verður.
23.maí 2013 - 08:45
„Hugmyndir frjálshyggjumanna og vúdú-hagfræðinga um dólgslegar skattalækkanir sjást varla í stjórnarsáttmálanum,“ segir Stefán Ólafsson, prófessor í félagsfræði um stjórnarsáttmála nýrrar ríkisstjórnar. Hann segir anda Framsóknar svífa yfir vötnum í stjórnarsamstarfinu.
23.maí 2013 - 08:00
Íbúð sem er 67 fermetrar að stærð þykir bara alveg dágóð. Í gamla daga hefði hún rúmað heila stóra fjölskyldu og jafnvel tvær en nú á dögum mundi hún þykja heppileg fyrir einstakling sem vill hafa rúmt um sig, eða fyrir par – jafnvel með eitt barn af smærra taginu.
22.maí 2013 - 22:00
Þriðju nóttina í röð voru óeirðir í Husby í Stokkhólmi en nú virðist sem óeirðirnar séu farnar að breiðast enn frekar út en auk bíla sem eldur var borinn að í Husby loguðu eldar í Rinkeby, Skarpnäck, Norsborg, Kista og Tensta. Í Fittja, sem er suðvestan við Stokkhólm, var kveikt í bílum og gámi og voru það grímuklæddir menn sem voru þar að verki.
22.maí 2013 - 20:55
Þingflokkur framsóknarmanna samþykkti nú fyrir skömmu tillögu Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar um hverjir verða ráðherrar flokksins í ríkisstjórn Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks.
22.maí 2013 - 20:40
Bjarni Benediktsson, Hanna Birna Kristjánsdóttir, Illugi Gunnarsson, Ragnheiður Elín Árnadóttir og Kristján Þór Júlíusson skipa ráðherralið Sjálfstæðisflokksins.
22.maí 2013 - 20:00
Það verður sannkallaður risaslagur á Wembley í Lundúnum þegar þýsku risarnir frá Munchen og Dortmund mætast í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu á laugardag. Bayern Munchen og Dortmund hafa bæði leikið óaðfinnanlega knattspyrnu á þessu tímabili og því við hæfi að þessi tvö lið berjist um bikarinn eftirsótta.
22.maí 2013 - 19:30
Lögreglan í Lundúnum skaut tvo menn á götu úti í Woolwich hverfinu seinnipartinn í dag. Mennirnir höfðu áður ráðist á þann þriðja með sveðju og beinlínis höggvið hann í spað. Lögreglan telur að um hryðjuverk sé að ræða.