08. feb. 2010 - 07:40

Upp með rakvélina strákar: Ný rannsókn leiðir í ljós að konur vilja menn án bringuhára

Bringuhár Tom Jones höfða til eldri kvenna en hárlítil bringa Daniels Craig til þeirra yngri samkvæmt nýrri rannsókn

Bringuhár Tom Jones höfða til eldri kvenna en hárlítil bringa Daniels Craig til þeirra yngri samkvæmt nýrri rannsókn

Ný finnsk rannsókn leiðir í ljós að konur vilja ekki lengur sjá karlmenn með bringuhár. Undantekning á því eru konur sem komnar eru úr barneign.

Það hefur löngum þótt einkenni karlmennskunar að hafa skyrtuna fráhneppta og flagga þannig bringuhárunum en nú er það liðin tíð.  Ný rannsókn leiðir í ljós að konum þykir berar bringur mun kynþokkafyllri.

Sérstaklega á þetta við um konur sem hafa nýlega haft egglos.  Rannsakendur við Turku háskólann í Finnlandi notuðu myndir af 20 karlmönnum með bringuhár og sömu menn eftir að þeir höfðu rakað þau af sér.  550 konur milli 15 og 69 ára skoðuðu svo myndirnar og gáfum þeim einkunn um kynþokka og aðdráttarafl.

Það er skemmst frá því að segja að eldri konurnar sem komnar voru úr barneign kusu menn með bringuhárin en yngri konurnar vildu ekki sjá hárin.  60% kvenna í eldri flokknum sagði menn með bringuhár kynþokkafyllri en undir 30% yngri kvenna.

Aldur skipti hins vegar litlu máli þegar konurnar voru spurðar hvaða týpur væru öruggar og heimilislegar. Þá sigruðu bringuhársmennirnir með yfirburðum.


13.mar. 2010 - 21:00

Það má finna allt á netinu: 10 skrýtnustu munirnir sem boðnir hafa verið upp á eBay

Efnahyggjumenn segja jafnan að allt sé til sölu, aðeins ef nógu hátt verð er sett á borðið. Miðað við það sem gengið hefur kaupum og sölum á uppboðssíðunni eBay er heilmikið til í því. Pressan hefur tekið saman 10 skrýtnustu hlutina sem seldir hafa verið á þessari vinsælustu uppboðssíðu heims.
13.mar. 2010 - 19:45

Snjöll auglýsingaherferð: Farsími með innbyggðri rakvél og hellir upp á kaffi (MYNDBAND)

Farsíminn hellir upp á kaffi á 30 sekúndum. Þetta kann að hljóma of ótrúlega til að vera satt...og það er það. Yfirvöld í Nova Scotia stóðu fyrir umfangsmikilli auglýsingaherferð þar sem nýr og byltingakenndur farsími var kynntur til sögunnar. Átti síminn að geta allt, meira að segja lagað kaffi.
13.mar. 2010 - 18:48

Fjármögnunarfyrirtæki segja afskriftir vanhugsaðar: Hugsanleg málsókn frá Deutsche Bank

Deutsche Bank er sagður ætla að höfða mál gegn íslenska ríkinu fari Lýsing á hausinn vegna afskrifta. Svo gæti farið að Deutsche Bank höfði mál gegn íslenska ríkinu láti ríkisstjórnin verða að afskriftartillögum félagsmálaráðherra um bílalán. Fjármögnunarfyrirtæki segja tillögurnar vanhugsaðar og gætu orðið til þess að þau fari í þrot.
13.mar. 2010 - 17:25

Jókerinn stendur undir nafni: Knattspyrnumaðurinn Jimmy Bullard í kostulegri auglýsingu

Jimmy Bullard skartar meðal annars þessari glæsilegu 80´s hárkollu í auglýsingunni. Knattspyrnumaðurinn Jimmy Bullard sem leikur með Hull City í ensku úrvalsdeildinni gengur iðulega undir nafninu Jókerinn. Hann stendur svo sannarlega undir því nafni, enda meinfyndinn drengurinn. Hann hefur nú slegið í gegn í kostulegri sjampóauglýsingu.
13.mar. 2010 - 16:22

Guðjón Arnar hættir sem formaður Frjálslynda flokksins eftir sjö ár í brúnni

Guðjón Arnar stígur til hliðar eftir sjö ára formennsku. Guðjón Arnar Kristjánsson hefur ákveðið að gefa ekki kost á sér sem formaður Frjálslynda flokksins. Nýr formaður verður kjörinn á landsþingi flokksins um næstu helgi. Guðjón Arnar hefur verið formaður flokksins síðan 2003.
13.mar. 2010 - 15:30

Gæti þetta verið lausnin á fangelsisvanda Íslendinga? Fangarnir sendir í klaustur

Klaustur í Georgíu munu hýsa fanga innan skamms. Yfirvöld í Georgíu eru í vandræðum þar sem fangelsi landsins eru að yfirfyllast. Til að ráða bót á vandamálinu hafa þau ákveðið að fara heldur óvenjulega leið, það er að senda smáglæpamenn í klaustur til að ljúka afplánuninni.
13.mar. 2010 - 14:30

Oddviti Framsóknar: Reykjavík skoði sameiningu við Álftanes, Mosfellsbæ og Seltjarnarnes

Einar Skúlason, hægra megin, ásamt Óskari Bergssyni borgarfulltrúa Framsóknarflokksins. Einar Skúlason, sem leiðir lista Framsóknarflokksins í borgarstjórnarkosningunum í vor, segir að Reykjavík beri skylda til þess að skoða kosti og galla sameiningar við Álftanes. Jafnvel gæti verið hagkvæmt fyrir Reykjavík að sameinast Seltjarnarnesi og Mosfellsbæ.
13.mar. 2010 - 12:30

Bubbi vandar Davíð Oddssyni ekki kveðjurnar: Skoðanakúgun voru og eru hans ær og kýr

Bubbi Morthens segir Davíð Oddsson snjallan textahöfund og frambærilegan rithöfund. „Davíð Oddsson hefur skaðað Ísland meira en nokkur annar Íslendingur í íslenskri pólitík frá stríðslokum,“ segir Bubbi Morthens sem lætur Davíð fá það óþvegið í nýjasta Pressupistli sínum. Hann segir Morgunblaðið áróðurstæki sem Davíð notar til að endurskrifa söguna.
13.mar. 2010 - 11:30

2 ára sjónhverfingamaður: Tókst á ótrúlegan hátt að festa sjálfan sig í leiktæki

Sá litli hafði það gott á meðan allir aðrir fyrir utan leiktækið vissu ekki sitt rjúkandi ráð. Fótur og fit varð uppi á ítölskum veitingastað þegar tveggja ára dreng hafði tekist að skríða upp í sælgætisleiktæki og sat þar í mestu makindum innan um gnægð sælgætis. Enginn hafði hins vegar hugmynd hvernig hægt var að ná honum út.
13.mar. 2010 - 10:40

Segja fallin eignarhaldsfélög ekkert hafa með afskriftir til heimila og fyrirtækja að gera

Bankarnir eru undir miklum þrýstingi um að afskrifa lán sín til viðskiptavina enn frekar. Kjartan Broddi Bragaon, hagfræðingur, segir afskriftir á skuldum eignarhaldsfélaga engin áhrif hafa á svigrúm bankanna til að afskrifa skuldir heimila og fyrirtækja. Þingmaður segir gæði lánasafnanna bankanna batna með auknum afskriftum.
13.mar. 2010 - 09:50

Lykla- og kröfufrumvörp Lilju verða fléttuð saman við skuldaaðgerðir ríkisstjórnarinnar

Lilja hefur barist fyrir bættri stöðu skuldara gagnvart lánveitendum. Ólíklegt er að lykla- og kröfufrumvörp Lilju Mósesdóttur verði að lögum, segja ráðherrar. Hins vegar verða þessi frumvörp, að einhverju leyti, fléttuð inn í aðgerðir ríkisstjórnarinnar fyrir skuldsett heimili og einstaklinga sem kynntar verða fljótlega.
13.mar. 2010 - 09:02

Segir vonlaust að ná sömu lífskjörum og á Norðurlöndum með fátæktarstefnu VG

Þorsteinn Pálsson. „Vonlaust er hins vegar að við náum sambærilegum lífskjörum á við hin velferðarhagkerfi Norðurlandanna ef þessari fátæktarstefnu VG í peningamálum verður ekki hrundið,“ segir Þorsteinn Pálsson, fyrrum forsætisráðherra.
12.mar. 2010 - 21:00

Slæmur dagur í vinnunni: 10 myndbönd þar sem starfsmenn fara algjörlega yfir um

Það kannast allir við að eiga slæman dag í vinnunni. Sumir dagar eru verri en aðrir og þá getur verið freistandi að losa um hömlurnar og láta það bitna á því sem hendi er næst, svo sem vinnufélaganum eða borðtölvunni.
12.mar. 2010 - 20:00

Karlmenn taka fullan þátt í heimilisstörfum, konurnar taka bara ekki eftir því

Karlmenn telja sig duglega við að sinna heimilisstörfunum. Ný rannsókn leiðir í ljós að karlmenn telja sig taka fullan þátt í heimilisstörfunum, en konurnar taki bara ekki eftir því. Þeir vilja hins vegar ekki fara hátt með það að ótta við að konan fari að kvarta. Karlmenn segjast eyða að meðaltali 13 klukkustundum á viku í heimilisstörf.
12.mar. 2010 - 18:45

Formaður VG svarar litlu um uppstokkun: Könnumst ekki við umræðuna í fjölmiðlum

„Við lesum bara blöðin eins og aðrir og fáum ýmsar fréttir þaðan, en könnumst nú ekki mikið við þær,“ segir Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri grænna, um fyrirhugaða uppstokkun í ráðherraliðinu. Hann gefur lítið uppi um breytingar á ráðherraliðinu.
12.mar. 2010 - 17:50

Knattspyrnuþjálfari hneykslar: Samkynhneigðir eiga alls ekki heima á fótboltavellinum

Knattspyrnumönnum þykir ekkert sjálfsagðra en að faðma hvorn annan innan vallar, en utan vallar er það algjört tabú. Þýski þjálfarinn Rudi Assauer hefur varpað sprengju inn í knattspyrnuheiminn með stóryrtum fullyrðingum sínum um að samkynhneigðir ættu ekkert erindi í íþróttina. Sjálfur myndi hann sparka leikmanni sínum ef hann kæmi út úr skápnum.
12.mar. 2010 - 16:35

Gylfi: Eignarhaldsfélög í rústum koma í veg fyrir frekari afskriftir til heimila og fyrirtækja

Gylfi Magnússon, efnahags- og viðskiptaráðherra. Gjaldþrota eignarhaldsfélög éta upp mest af þeim afskriftum sem fóru milli gömlu og nýju bankanna, segir efnahags- og viðskiptaráðherra. Bankarnir þurfa að afskrifa stórar fjárhæðir hjá þessum félögum og því skapast ekki svigrúm til afskrifta annars staðar.
12.mar. 2010 - 15:58

Egill Helgason lagði inn umsókn í von og óvon: Auðvelt að verða óvinsæll í svona starfi

Egill er einn 37 umsækjenda um stöðu dagskrárstjóra RÚV. „Ég setti inn umsókn upp á von og óvon,“ segir sjónvarpsmaðurinn Egill Helgason, sem er einn þeirra sem sótti um stöðu dagskrárstjóra RÚV. Hann spyr sig þó þeirrar spurningar hvort hann verði betur settur þar en í þeirri stöðu sem hann er nú, enda auðvelt að verða óvinsæll í stöðu dagskrárstjóra.
12.mar. 2010 - 15:30

Tískurisi gerir strangar kröfur: Enga „gamla, feita, ljóta eða ógeðslega“ starfsmenn

Prada er eitt virtasta, og dýrasta, vörumerkið í tískuheiminum. Sölustjóri tískurisans Prada í Japan hefur farið í mál við fyrirtækið eftir að yfirmaður hennar fyrirskipaði henni að gera átak í starfsmannamálum. Átakið fólst í því að losa sig við „gamla, feita, ljóta eða ógeðslega“ starfsmenn sem ekki hentuðu ímynd fyrirtækisins.
12.mar. 2010 - 15:04

Kynjabókhald forstöðumanna ríkisins 2010: Konur með þriðjung af æðstu stöðum

Tveir karlar veita stofnunum ríkisins forstöðu á móti hverri einni konu. Konur hafa auk þess minni mannaforráð en karlar. Hlutfallið er konum mest í hag í forsætisráðuneytinu en síst í umhverfisráðuneytinu.

Pressupennarvinsælast í vikunni
Ásdís Rán Gunnarsdóttir
Ásdís Rán Gunnarsdóttir - 09.3.2010
Skvísukosningin hafin fyrir Miss febrúar!
Marta María
Marta María - 10.3.2010
Finnst ykkur þetta í lagi?
Sölvi Tryggvason
Sölvi Tryggvason - 10.3.2010
,,Áttum bara helvítis helling af peningum"
Ólafur Arnarson
Ólafur Arnarson - 09.3.2010
Steingrímur afhjúpar bjánaskap
Ásdís Rán Gunnarsdóttir
Ásdís Rán Gunnarsdóttir - 12.3.2010
Heit á Hótel Borg - Mynd vikunnar!
Bubbi Morthens
Bubbi Morthens - 13.3.2010
Davíðssálmur númer 1
Ólafur Arnarson
Ólafur Arnarson - 13.3.2010
Enn og aftur bullar Gylfi
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir - 09.3.2010
Þegar á reynir er ástin ekki sönn
Bryndís Gyða Grímsdóttir
Bryndís Gyða Grímsdóttir - 10.3.2010
Smokey eyes: Þegar þú vilt vera extra mikil gyðja - MYNDBAND
Sölvi Tryggvason
Sölvi Tryggvason - 09.3.2010
,,Hot sex pills"
Sölvi Tryggvason
Sölvi Tryggvason - 09.3.2010
Böðlar kerfisins
Ágústa Johnson
Ágústa Johnson - 09.3.2010
Ert þú „Allt eða ekkert” týpan?
Fleiri pressupennar


Skipta um leturstærð

Breyta um tungumál



Leit