29. jan. 2010 - 07:30
Tvö hundruð íbúðir í uppboðsferli á sama svæðinu: Byggðu hraðar en þeir seldu

Húsin við Kaupvang 41, 43 og 45. Stefán Bogi Sveinsson
Tæplega tvö hundruð íbúðir standa auðar á Reyðarfirði og Egilsstöðum. Á borðum sýslumanna eystra liggja beiðnir um nauðungasölur á um tvö hundruð íbúðum á svæðinu og stórir byggingaverktakar hafa orðið gjaldþrota. Áætlanir um fólksfjölgun hafa ekki enn gengið eftir.
Íbúðalánasjóður leysir á næstunni til sín fjölbýlishús sem Fasteignafélag Austurlands reisti um miðjan áratuginn á Egilsstöðum og Reyðarfirði. Um er að ræða fjórar blokkir við Melgerði á Reyðarfirði og þrjár við Kaupvang á Egilsstöðum. Félagið er gjaldþrota. Sömu sögu er að segja af tveimur rótgrónum byggingaverktökum á Fljótsdalshéraði: Trésmiðju Fljótsdalshéraðs og Malarvinnslunni.
Samkvæmt skýrslu, sem unnin var fyrir Íbúðalánasjóð og sveitarfélögin Fljótsdalshérað og Fjarðabyggð í lok seinasta árs, eru um 170 lausar íbúðir á Reyðarfirði og Egilsstöðum. Nær allar íbúðirnar eru byggðar eftir árið 2003, þegar ákveðið var að byggja álver í Reyðarfirði. Langflestar eru í fjölbýli og tveir þriðju þeirra eru tilbúnar til innflutnings.
Hilmar Gunnlaugsson, fasteignasali á Egilsstöðum, segir erfitt að líta öðruvísi á en að menn hafi byggt og mikið miðað við þörfina í dag. Hann segir talsvert hafa verið um að leigjendur hafi fært sig úr dýrari íbúðir í ódýrari.
„Í flestum tilvikum er skýringin á því af hverju akkúrat þær íbúðir sem í dag standa auðar sú, að leigugjald þeirra er hærra en býðst annars staðar.
Það er óhjákvæmilegt annað en að taka áhættu þegar byggðar eru fasteignir til sölu á almennum markaði út á væntingar. Nokkur verktakafyrirtæki á svæðinu hafa á síðustu árum orðið gjaldþrota sökum þess að þau byggðu hraðar en þau seldu og réðu ekki við birgðasöfnun og fjármagnskostnað. Eitthvað af þeim eignum standa nú auðar.“
Uppbyggingin eystra er, að mati Hilmars, enn ein birtingarmynd þenslu seinustu ára.
„Flestar eignirnar sem standa auðar eru hins vegar eignir sem leigufélög, er nutu aðgangs að ódýru og í ákveðnu tilliti áhættulausu ríkistryggðu fjármagni í leiguíbúðalánakerfi Íbúðalánasjóðs, byggðu. Við þá stórfelldu uppbyggingu þurftu þeir sem báru mesta ábyrgð, ekki að taka neina aðra áhættu en þá að útvega tímabundið aðgengi að lánsfé á meðan á byggingu stóð, næðu menn að klára eignirnar og fá leigulánin afgreidd frá Íbúðalánasjóði.
Þegar menn hafa aðgang að endalausu lánsfé þar sem lítil eða engin persónuleg ábyrgð hvílir á bak við, þá er hagnaðurinn einkavæddur en tapið ríkisvætt. Hagnaðarvon er vissulega drifkraftur framfara á mörgum sviðum, en vonandi höfum við lært að slíkri von verður að fylgja ábyrgð.“
Í skýrslu, sem Byggðarannsóknastofnun Íslands vann árið 2005, er bent á að um 600 nýjar íbúðir, miðað við meðalstærð íbúða eystra árið 2002 sem var 126 fermetrar. Samkvæmt tölum frá Fasteignamati ríkisins fjölgaði íbúðum í Fjarðabyggð og á Fljótsdalshéraði um 716 frá árinu 2003-2008. Í skýrslu Byggðarannsóknarstofnunar var byggt á spám um að íbúar Austurlands yrðu 13.554 árið 2008. Í fyrra voru þeir 12.944, miðað við tölur Hagstofu Íslands.
Íbúðirnar hafa ekki alltaf verið auðar. Veturinn 2007-8 var nær allt mögulegt húsnæði á mið-Austurlandi nýtt undir starfsmenn sem unnu í kapp við tímann að gera álverið í Reyðarfirði og Kárahnjúkavirkjun klár.
Margir telja að fólksfjölgunin hafi ekki orðið því menn hafi vanmetið hversu margir heimamenn biðu eftir að geta skipt um vinnu. Þar hafa menn einnig þurft að fækka störfum í sjávarútvegi vegna kvótasamdráttar auk þess sem kreppan hefur bitið ýmsar starfsgreinar.
„Svokölluð ruðningsáhrif álversins voru miklu meiri en reiknað var með. Það var mikið af austfirskum fyrirtækjum, litlum sem stórum, við það að fara á hausinn og á lífi af einskærum vana. Heimafólk hefur farið að vinna í álverinu í miklu meira mæli en áætlað var,“ segir Ævar Dungal, sem einnig starfar sem fasteignasali á Egilsstöðum.
Hann segir of langan tíma hafi tekið að áætla þörfina fyrir nýtt íbúðahúsnæði.
„Þegar farið var af stað var talin þörf á þessu húsnæði og jafnvel væri þörf á að byggja enn meira. Verktakar í byggingargeiranum voru mikið að velta fyrir sér hvaða stærðir og gerðir markaðurinn var að leita eftir. Bæjarfélögin og Háskólinn á Akureyri voru alltaf að vinna í að koma með áætlun sem kom aldrei. Þannig að það var byggt eftir því hvað byggingaraðilar fengu úthlutað og færri fengu en þeir sem vildu.“
Menn vona samt enn að fólkinu fjölgi. Í skýrslu Íbúðalánasjóðs kemur fram að fyrirtæki í Fjarðabyggð ráðgeri að bæta við sig allt að 150 nýjum starfsmönnum árin 2011 og 2012. Á svæðinu eru enn starfsmenn í tímabundinni vinnu sem leigja lítið húsnæði. Því er spáð að þeir hverfi á braut en framtíðarstarfsmenn komi í þeirra stað.
Á næstunni ætla menn eystra og frá Íbúðalánasjóði að ráða ráðum sínum um framtíð íbúðanna. Hilmar telur að verði að nýta íbúðirnar.
„Aðalatriðið er að koma þessum íbúðum í vinnu, það er. selja þær, leigja með hefðbundnum hætti eða í tengslum við ferða- og afþreyingarþjónustu. Tilvist þessara íbúða getur leitt til góðs fyrir okkur Austfirðinga, ef okkur ber gæfa til að spila rétt úr stöðunni.“
Hann segir tjón Íbúðalánasjóðs þegar orðið að veruleika og þar verði fljótt að taka erfiða ákvörðun um óumflýjanlegar afskriftir. Bæði Ævar og Hilmar segja að fara verði farlega til að skaða ekki fasteignamarkaðinn eystra. „Söluferli er vandmeðfarið. Það er stórhættulegt að koma með allar þessar íbúðir inn á markað á undirverði, eða selja bara til að selja og fá bara eitthvað verð,“ segir Ævar.
Hilmar segist hafa ákveðnar skoðanir um hvernig bregðast eigi við. Virkja eigi „hagnaðarvon og drifkraft einkaframtaksins en tryggja að enginn auka björgunarhringur fylgi á kostnað skattgreiðenda. Að þeir sem eru tilbúnir til og hafa getu til að taka áhættu eigi að kaupa eignirnar án þess að áhætta Íbúðalánasjóðs aukist eða fasteignamarkaðurinn lamist. Í þessum efnum er auðveldara um að tala en í að komast, enda ljóst að greiða þarf hundruð milljóna með þessum eignum næstu árin á meðan nýting þeirra batnar.“
Ertu með athyglisverða ábendingu eða frétt sem á heima á Pressunni?
Sendu okkur póst á
pressan@pressan.is - Fyllsta trúnaðar gætt, sé hans krafist.
23.maí 2012 - 10:50
Englendingurinn Gary Martin frá Middlesbrough, sem hefur farið á kostum með liði Skagamanna í úrvalsdeildinni í upphafi keppnistímabilsins, er að drepast úr leiðindum á Akranesi, þar sem honum finnst ekkert hægt að gera. Hann segist þurfa að búa í Reykjavík.
23.maí 2012 - 10:10
Arion banki hagnaðist um 4,5 milljarða króna fyrstu þrjá mánuði ársins eftir skatta samanborið við þriggja milljarða kr. hagnað á sama tímabili í fyrra. Hagnaður bankans er því 1,5 milljarður kr. á mánuði það sem af er ári.
23.maí 2012 - 09:26
Pistill eftir Ölmu Rut Lindudóttir sem birtist á Bleikt hér á Pressunni í vikunni hefur vakið gríðarlega athygli og viðbrögð. Fjölmargir hafa gengið til liðs við hóp sem Alma Rut hefur sett á laggirnar sem hefur það að markmiði að sett verði upp útiskýli fyrir útigangsfólk í borginni.
22.maí 2012 - 22:44
Íslendingar eru í skýjunum með frammistöðu íslensku keppendanna Grétu og Jónsa í forkeppni Eurovision í Bakú í kvöld, en íslenska lagið komst áfram í lokakeppnina sem haldin verður á laugardagskvöld.
22.maí 2012 - 21:05
Ísland komst áfram í lokakeppni söngvakeppni Evrópu eftir mikla spennu í kvöld. Flutningur Grétu Salóme og Jónsa á laginu Never Forget þótti takast einstaklega vel. Íslendingar verða því meðal þjóða í úrslitakeppninni næstkomandi laugardagskvöld.
22.maí 2012 - 20:00
Ólafur Arnarson hagfræðingur gerir gys að þeim málflutningi útgerðarinnar að það hámarki afrakstur þjóðarinnar af sjávarútvegi að virðiskeðjan í greininni sé óslitin og öll á einni hendi. Í nýjum Pressupistli líkir hann óslitinni virðiskeðju í sjávarútvegi við miðstýrðan áætlunarbúskap í Sovétríkjunum sálugu.
22.maí 2012 - 17:23
Tveir fangar á Litla Hrauni hafa verið færðir í einangrunarvist á Litla Hrauni, grunaðir um að hafa veitt fanga alvarlega áverka með þeim afleiðingum að hann lést í fyrri viku.
22.maí 2012 - 17:00
Gunnar Birgisson, fyrrum stjórnarformaður Lífeyrissjóðs Kópavogs, og Sigrún Ágústa Bragadóttir framkvæmdastjóri sjóðsins, voru í dæmd til greiðslu 150.000 kr. sektar hvor fyrir ranga upplýsingagjöf til Fjármálaeftirlitsins. Málskostnaðurinn nam yfir átta milljónum kr. og var hann að mestu greiddur úr ríkissjóð. Gunnar segir að dómurinn hafi komið sér á óvart.
22.maí 2012 - 15:51
Sjálfur tel ég að tólf ár séu eðlilegur og jafnvel æskilegur tími í þessu embætti og er það drjúgur spölur í starfsævi manns, sagði dr. Kristján Eldjárn í nýársávarpi sínu 1. janúar 1980, er hann tilkynnti þjóðinni að hann hygðist hverfa úr embætti eftir tólf ár á forsetastóli.
22.maí 2012 - 15:00
Nýlega var ákveðið að loka 16 kirkjum í Kaupmannahöfn og margar kirkjur hafa einnig verið lokaðar á Jótlandi. Ástæðan er sú að prestar messa í síauknum mæli fyrir tómum bekkjum. Í Árrósum hefur fasteignasali nú þegar selt þrjár kirkjur sem tilheyra fríkirkjusöfnuðinum þar í landi og segir hann mikinn áhuga á kaupum á hefðbundnum þjóðkirkjum einnig.
22.maí 2012 - 14:10
Uppboðshaldari hjá Bruun Rasmussen í Danmörku segir í viðtali við Jyllandsposten að hann efist um að nokkur Dani hafi bolmagn til að eignast taflborð, taflmenn, skákklukku og borð sem Bobby Fischer og Boris Spassky tefldu við í einvígi aldarinnar í Reykjavík 1972. Munirnir verða boðnir upp hjá Bruun Rasmussen 14. júní næstkomandi.
22.maí 2012 - 12:11
„Ef hótun af þessum toga á að vera trúverðug þarf samfélagið að vera tilbúið að hóta höftum til áratuga. Hver er tilbúinn til þess?“ spyr Árni Páll Árnason, þingmaður og fyrrum efnahags- og viðskiptaráðherra sem telur svokallaða „íslensku leið“ Róberts Wessman óraunhæfa.
22.maí 2012 - 11:29
Kaupmáttur launa hefur aukist um 5,1% á síðastliðnum tólf mánuðum. Í mars hafði hann ekki verið jafnmikill síðan á hinu mikla neysluári 2007. Íslandsbanki telur hins vegar blikur á lofti og telur að verðlag hækki mun hraðar en laun þegar líður fram á haustið.
22.maí 2012 - 10:45
Hraðakstursbrotum og fíkniefnabrotum hefur snarlega fjölgað fyrstu fjóra mánuði ársins miðað við sama tímabil í fyrra. Í fyrra voru skráð 494 fíkniefnabrot á landinu fyrstu fjóra mánuðina en 650 fyrstu fjóra mánuði þessa árs.
22.maí 2012 - 09:30
72,4% allra sem svöruðu spurningum í skoðanakönnun Félags íslenskra bifreiðaeigenda, FÍB, aka sjálfir til og frá vinnu.
22.maí 2012 - 07:45
Ríkisolíufélag Noregs, Statoil, leggur nú mesta áherslu á aukna nýtingu úr þeim olíusvæðum þar sem vinnsla fer fram. Frá árinu 2010 til 2011 jókst nýtingin úr 49% í 50%. Þetta virðist lítil aukning en hún skilaði samt gríðarlegum verðmætum í ríkiskassann norska.
21.maí 2012 - 21:00
Það er þekkt að allt að 6 metrar langir bandormar geta lifað góðu lífi í innyflum fólks en í ljós hefur komið að lirfur þeirra eru jafnvel enn skaðlegri. Þær komast í heila manna og geta þar nærst á heilavefjum án þess að hýsillinn verði þess var. Heilabandormar, sem einnig kallast innsíklar, herja gjarnan á miðtaugakerfið og eru til umfjöllunar í nýjasta hefti Discover Magazine.
21.maí 2012 - 18:43
Hagfræðingarnir Ólafur Ísleifsson og Lilja Mósesdóttir, sem einnig er alþingismaður, fagna hugmyndum Róberts Wessman um svokallaða íslenska leið í gjaldeyrismálum þjóðarinnar. Lilja segir erlendra krónueign valda stöðugum þrýstingi til lækkunar á gengi krónunnar og það þýði rýrnun lífskjara og hærri verðbólgu.
21.maí 2012 - 18:00
Sá óvenjulegi atburður varð í dag að það slokknaði á Ólympíukyndlinu aðeins þremur dögum eftir að hann kom til Englands. Kyndillinn var við hlið hjólastóls David Folletts, sem er meistari í badminton fatlaðra.
21.maí 2012 - 16:58
Bjölluónæði er hvimleitt og ekki síst ef það á sér stað að næturlagi. Lögreglan er stundum kölluð til í slíkum málum og svo var einmitt raunin þegar íbúum fjölbýlishúss í Kópavogi var nóg boðið.
21.maí 2012 - 15:00
Verð á hlutabréfum í Facebook féll um 12% frá upphaflegu sölugengi þegar Nasdaq markaðurinn opnaði í dag. Upphaflegt gengi var 38 dollarar á hlut en strax við upphaf viðskipta féll það niður í 33,28 dollara.
21.maí 2012 - 13:45
Mistur hefur legið yfir höfuðborgarsvæðinu í gær og dag, 20. og 21. maí. Um er að ræða svifryk sem berst frá öskufallssvæðinu fyrir austan fjall.
21.maí 2012 - 12:45
Nokkrir helstu leiðtogar heims hittust á leiðtogafundi G8-ríkjanna í Camp David um síðustu helgi. Þeir stóðust ekki mátið og horfðu á vítaspyrnukeppnina í úrslitaleik Evrópumótsins í fótbolta á milli Bayern Munchen og Chelsea sem fram fór í Þýskalandi sl. laugardag.
21.maí 2012 - 11:30
Veiking á gengi krónunnar heldur áfram að gera okkur Íslendingum lífið leitt og nú hafa Íslenskar getraunir hafa ákveðið að hækka röð hverrar raðar í getraunum um 1 krónu, úr 17 krónum í 18 krónur. Tekur hækkunin gildi í dag, mánudaginn 21. maí 2012.
21.maí 2012 - 10:33
Hægt er að kaupa flugfarmiða til London og tilbaka eftir fjórar vikur á 31.400 krónur með Iceland Express. Ef flugið hefði verið bókað 21. mars sl. þá hefði WOW air verið ódýrasti kosturinn og verðið 39.544 krónur. Það borgar sig því ekki alltaf að kaupa flugmiðann með löngum fyrirvara.
21.maí 2012 - 09:29
Stjórnvöld í Quebec-fylki samþykktu um helgina neyðarlög til að koma hömlum á stúdentaóeirðirnar sem hafa geisað síðan um miðjan febrúarmánuð. Lögin fela í sér lokun nokkurra háskóla og fjársektir sem nema allt að fjórum milljónum króna fyrir mótmæli.
21.maí 2012 - 08:22
Stjórn Íslenskrar ættleiðingar hefur sent Innanríkisráðuneytinu tilkynningu um að ganga þurfi á varasjóð félagsins. Þær ráðstafanir kunna að hafa í för með sér að þegar félagið verður lagt niður verða ekki öruggar rekstrarforsendur til að ljúka málum er kunna að vera til meðferðar á vegum félagsins á þeim tíma.
20.maí 2012 - 23:51
Robin Gibb, einn hinna þriggja heimsfrægu Gibb-bræðra í hljómsveitinni Bee Gees er látinn, 62 ára að aldri. Banamein hans var krabbamein.
20.maí 2012 - 20:55
Íslendingar hafa fengið um 11 milljörðum króna meira úr styrkjasjóðum eða áætlunum Evrópusambandsins en þeir hafa greitt til þessara sömu sjóða.
20.maí 2012 - 19:27
Aldrei í sögunni hafa útlán verið jafnmikil í Noregi og núna, í miðri efnahagskreppu allrar Evrópu. Norsk heimili hafa aldrei haft meiri á milli handanna en skuldirnar hafa aldrei verið hærri.
20.maí 2012 - 17:30
Desmond Hatchett, 33 ára gamall maður frá Knoxville, Tennesee, hefur farið þess á leit við stjórnvöld að þau hjálpi honum við framfærslu á 30 börnum sem hann á með 11 konum.
20.maí 2012 - 16:00
Steingrímur J. Sigfússon, efnahags- og viðskiptaráðherra, segir gríðarlega tekjumyndun hafa verið síðastliðin fjögur ár í sjávarútvegi og greinin standi vel undir því að leggja meira af mörkum til eigenda auðlindarinnar.
20.maí 2012 - 14:00
Ísraelar hafa þróað öfluga njósnavél í formi fiðrildis sem getur flogið á bakvið óvinalínur og sent mynd á rauntíma. Fiðrildið vegur einungis 20 grömm og getur sent myndir innan úr byggingum.
20.maí 2012 - 12:24
Birgitta Jónsdóttir, þingkona, hefur ásamt sex öðrum, unnið mál gegn bandarískum stjórnvöldum fyrir rétti í New York vegna nýrra laga þar í landi sem hópurinn segir að gefi Bandaríkjaher heimild til að handtaka almenna borgara hvar sem er í heiminum og hneppa þá í varðhald án dóms og laga.
20.maí 2012 - 11:39
Tölvufyrirtækið Google hefur tilkynnt um nýja breytingu á hinni geysivinsælu leitarvél sinni. Með aukinni gervigreind og nýjungum í forritun er hugmyndin að koma með leitarvél sem muni geta hugsað meira eins og manneskja.
20.maí 2012 - 10:36
Markmið fjárfestingaáætlunar fyrir Ísland (2013-2015) sem kynnt hefur verið er að styðja við hagvöxt og fjölbreytni í atvinnulífi. Forsvarsmenn ríkisstjórnarinnar segja áætlunina lið í nýrri sókn eftir efnahagshrunið og henni sé ætlað að styðja við efnahagsbata og hagvöxt.
20.maí 2012 - 09:18
Björgunarskip og bátur Slysavarnafélagsins Landsbjargar í Snæfellsbæ var kallað út um þrjúleytið í nótt vegna rækjuskips sem var orðið vélarvana um 5 sjómílur norðan við Rif. Leki hafði komið að skipinu og þegar björgunarsveitarmenn komu að skipinu var tæplega eins metra hár sjór í vélarrúmi.
19.maí 2012 - 22:39
Þóra Arnórsdóttir fjölmiðlakona og forsetaframbjóðandi kveðst hálfklökk yfir öllum þeim fallegu og góðu kveðjum sem henni og Svavari Halldórssyni sambýlismanni hennar hafa borist í tilefni af fæðingu lítillar dóttur í gær.
19.maí 2012 - 21:52
Það var sem skrifað í skýin að Chelsea myndi vinna sinn fyrsta sigur í Meistaradeildinni eftir ævintýralega og dramatíska sigurgöngu í vetur og í úrslitaleiknum gegn Bayern Munchen í kvöld voru lukkudísirnar enn og aftur á bandi þeirra bláklæddu og Chelsea sigraði Bayern í vítaspyrnukeppni eftir framlengdan leik.
19.maí 2012 - 15:30
Netöryggi, netleynd, grænn rekstur tölvukerfa, stuðningur við rannsóknarstarfsemi og Netið sem frumkvöðlavettvangur eru meðal þess sem fjallað verður um á stórri ráðstefnu Samtaka rannsókna- og menntaneta í Evrópu (TERENA) sem fram fer í Háskólabíói í næstu viku.
19.maí 2012 - 12:45
Tveir mikilvægir leiðtogafundir eru haldnir í Bandaríkjunum um helgina. Fyrri fundurinn er leiðtogafundur átta helstu iðnríkja heims (G8) og að honum loknum tekur við leiðtogafundur Atlantshafsbandalagsins (NATO) í Chicago.
19.maí 2012 - 10:44
„Hringt var í föður minn úr skólanum þegar ég var sex ára. Kennarinn sagði pabba að hann ætti mjög heimska dóttur sem truflaði kennsluna. Vinsamlegast ekki senda hana aftur í skólann. Pabbi sagði, ók. Ég var sátt, því ég vildi ekkert endilega fara aftur í skólann og var svo lánsöm að hann kenndi mér sjálfur og svo fékk ég einkakennslu heima. Við vorum svo lánsöm að hafa efni á því.“
19.maí 2012 - 08:58
Búið er að tryggja áframhaldandi rekstur Vinjar, athvarfs fyrir geðsjúka, með samningi milli Rauða krossins, velferðarráðuneytisins, Velferðarsviðs Reykjavíkurborgar og Vinafélags velunnara Vinjar, sem undirritaður var í gær. Velferðarráðuneytið leggur samtals tæplega 21 milljón króna til rekstursins til ársloka 2014.
18.maí 2012 - 20:34
Flugvél Icelandair sem snúið var við skömmu eftir flugtak frá Keflavíkurflugvelli lenti heilu og höldnu klukkan 21:15. Vélinni var snúið við skömmu eftir flugtak eftir að í ljós kom að lendingarbúnaður vélarinnar hafði skemmst. Lendingin tókst með afbrigðum vel.
18.maí 2012 - 20:00
Kína er vinsælli meðal almennings en Bandaríkin, eftir því sem ný skoðanakönnun leiðir í ljós. 24.000 manns út um allan heim voru spurðir hvort þessi lönd og önnur hefðu áhrif til góðs eða ills í heiminum.
18.maí 2012 - 18:00
Hugmynd að viskíframleiðslu og byggingu verksmiðju til slíkrar framleiðslu á Austurlandi þótti besta viðskiptahugmyndin á Atvinnu- og nýsköpunarhelginni sem fram fór um síðustu helgi í Fjarðabyggð. Hugmyndin er hugarfóstur Gillian „Dillý“ Haworth.
18.maí 2012 - 16:00
Tvær tillögur um óháð mat á því hvort lög um verðbréfaviðskipti og innherjaupplýsingar hafi verið brotin voru felldar á ársfundi Lífeyrissjóðs Festu. Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness, segir að fulltrúar atvinnurekenda í sjóðnum hafi tífalt atkvæðavægi á móti fulltrúum sjóðsfélaga.
18.maí 2012 - 15:20
Margir þekkja þá óþægilegu tilfinningu að hafa læst sig úti. Öllu sjaldgæfara er að fólki sé óvart læst inni en kemur þó fyrir. Sú var einmitt raunin með ónefnda konu á höfuðborgarsvæðinu en konan býr í fjölbýlishúsi.
18.maí 2012 - 14:10
Þóra Arnórsdóttir fjölmiðlakona og frambjóðandi til forseta Íslands og Svavar Halldórsson sambýilismaður hennar eignuðust dóttur í morgun og heilsast móður og barni vel.
18.maí 2012 - 13:00
Danska ríkisstjórnin og verkalýðsfélög hafa komist að samkomulagi um að sleppa úr tveimur frídögum á hverju ári og skapa með því 20.000 ný störf. Með þessu móti á danski ríkissjóðurinn einnig að gildna um heila 80 milljarða króna á ári. Fækkun frídaga hefur aldrei komið til umræðu hér á landi en vilji er fyrir því innan Samtaka atvinnulífsins að færa til frídaga, einkum þá sem koma upp á fimmtudögum.