08. feb. 2010 - 08:00
Tryggvi Þór: Fékk fé og hlunnindi frá Askar meðan hann var efnahagsráðgjafi stjórnvalda

Tryggvi Þór þáði fé og hlunnindi frá Askar Capital meðan hann gegndi stöðu efnahagsráðgjafa ríkisstjórnarinnar
Tryggvi Þór Herbertsson, þingmaður Sjálfstæðisflokks, fékk ríflega 16 milljónir króna frá Askar Capital meðan hann gegndi störfum sem efnahagsráðgjafi ríkisstjórnar Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar. Að auki var hann á bíl frá Askar og þáði fleiri hlunnindi.
Þetta hefur Pressan eftir öruggum heimildum. Tryggvi var bankastjóri Askar Capital frá stofnun árið 2007 en sumarið 2008 tilkynnti hann að hann færi í hálfs árs leyfi frá bankanum eftir að Geir H. Haarde, þáverandi forsætisráðherra, óskaði eftir því að hann kæmi til starfa í forsætisráðuneytinu sem efnahagsráðgjafi. Í samtali við fjölmiðla sagði Tryggvi Þór þá að hann yrði ekki á launum hjá Askar Capital meðan hann sinnti starfi sínu og því yrðu engir hagsmunaárekstrar.
Starfi sínu í forsætisráðuneytinu lýsti Tryggvi Þór svona í samtali við Viðskiptablaðið:
„Ég mun aðstoða forsætisráðherra og móta tillögur í efnahagsmálum..Það mun ég gera með því að hitta aðila úr m.a. fjármálakerfinu og frá vinnumarkaði. Ég mun sía út hugmyndir og móta tillögur og síðan væntanlega gerir hann [forsætisráðherra] þær að sínum tillögum og setur þær í framkvæmd.“
Öruggar heimildir Pressunnar herma hins vegar að hann hafi fengið áfram mánaðarlegar greiðslur frá Askar Capital eftir að hann fór í leyfi og meðan hann gegndi stöðu efnahagsráðgjafa ríkisstjórnarinnar. Greiðslurnar voru skilgreindar sem bónus fyrir fyrri helming ársins 2008. Rekstur Askar Capital var hins vegar mjög erfiður á árinu 2008 og nam tap af starfseminni samkvæmt tilkynningu til Kauphallar 12,4 milljörðum eftir skatta.
Tryggvi var auk þess á bifreið sem Askar Capital greiddi fyrir og jafnframt þáði hann ýmis önnur hlunnindi frá bankanum.
Tryggvi þáði laun frá forsætisráðuneytinu sem voru ígildi launa aðstoðarmanna en þau voru á þeim tíma milli 7 og 800.000 krónur. Hann lét svo af störfum sem efnahagsráðgjafi í október 2008.
16.mar. 2010 - 21:50
Karlar og konur hafa deilt í tugi ára um hvort kynið sé betra að keyra. Sumir segja karlar, aðrir segja konur og enn aðrir hallast að því að enginn munur sé þar á. Myndbandið sem fylgir hér á eftir sýnir dæmi nokkurra kvenmanna við stýrið.
16.mar. 2010 - 21:21
Mikið álag á vefsíðunni karlarogkrabbamein.is varð til þess að vefsíðan lá tímabundið niðri um síðustu helgi. Mottukeppnin hefur slegið rækilega í gegn en milljónum króna hefur nú þegar verið heitið á þúsundir keppenda. Í liðakeppninni standa Logos menn efstir en Rúnar Sigurðsson hefur fengið hæst áheit einstaklinga.
16.mar. 2010 - 20:13
Öll umræða um kaupaukakerfi í Landsbankanum er algerlega ótímabær þar sem engu slíku kerfi hefur verið komið upp og engin útfærsla samþykkt. Töluverð umræða upphófst á Alþingi í dag þegar stjórnarliðar gagnrýndu hugmyndir um bónusgreiðslur til bankastarfsmanna. Guðlaugur Þór gagnrýndi Landsbankann sérstaklega og sagði hann hafa komið umræðunni af stað.
16.mar. 2010 - 20:05
Sænskir dómstólar hafa komist að þeirri niðurstöðu að stjórnarskrá landsins heimili ekki að samtökum á borð við Hells Angels og Bandidos verði bannað að klæðast merktum flíkum á vínveitingahúsum. Telur dómstóllinn að með því séu sjálfsögð mannréttindi meðlima samtakanna brotin.
16.mar. 2010 - 19:15
Kylfingurinn Tiger Woods tilkynnti í dag að hann sé tilbúinn til þess að snúa aftur í golfheiminn. Kylfingurinn hefur átt erfiða daga síðan hann keyrði á brunahana fyrir utan heimili sitt í nóvember síðastliðnum. Nú virðist sem lífið sé að færast í eðlilegt horf hjá snillingnum og margir sem bíða spenntir.
16.mar. 2010 - 18:25
Lögreglan í Macomb sýslu í Michigan-fylki í Bandaríkjunum vissi ekki sitt rjúkandi ráð þegar hún fékk í vörslu sína þriggja ára dreng sem skilinn hafði verið eftir í afmælisveislu á veitingastað. Drengurinn gat ekki gert grein fyrir sér og enginn vitjaði hans fyrr en tveimur dögum síðar.
16.mar. 2010 - 17:45
Kristján L. Möller, samgönguráðherra, er ekki á því að beita sértækum aðgerðum til að lækka bensínverð í landinu, þrátt fyrir að hafa kallað eftir slíkum aðgerðum þegar hann var í stjórnarandstöðu. Hann vonast til að bensínverð lækki eftir að samið verður um Icesave.
16.mar. 2010 - 17:40
Höldur-Bílaleiga Akureyrar og Suzuki bílaumboðið á Íslandi hafa skrifað undir kaup bílaleigunnar á að minnsta kosti 175 nýjum bílum af tegundunum Suzuki Swift og Suzuki Grand Vitara og hugsanlega verður bílunum fjölgað eitthvað þegar nær dregur sumri.
16.mar. 2010 - 17:05
„Það er þannig að hæstvirtur fjármálaráðherra samdi sérstaklega um það að það yrði árangurstengt launakerfi í ríkisbankanum,“ segir Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Hann telur réttast að Alþingi fjalli fyrst um bónusa Landsbankans áður en hjólað verður í aðra banka.
16.mar. 2010 - 16:04
Skorað hefur verið á forseta Íslands að taka þátt í átakinu karlar og krabbamein og láta sér vaxa yfirvaraskegg. En hvernig myndi forsetinn líta út með mottu?
16.mar. 2010 - 15:00
Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, segir að hefðbundnar vinaþjóðir hafi snúið baki við Íslendingum, sem treysti nú á Þjóðverja að aðstoða landið í þeim vandræðum sem nú steðja að landi og þjóð.
16.mar. 2010 - 14:13
Bónusgreiðslur til starfsmanna bankanna voru fordæmdar á Alþingi í dag. Lagt var til að þær yrðu annað hvort skattlagðar upp í rjáfur eða sett verði lög til að banna þær. Formaður viðskiptanefndar vill að Alþingi hóti að setja lög um afskriftir til skulda heimilanna til að fá uppgefið hvert svigrúmið er.
16.mar. 2010 - 12:58
Ríkisstjórnin og stjórnarandstaðan funda í dag með Lee Buchheit sem fer fyrir íslensku samninganefndinni í Icesave-málinu. Enginn formlegur fundur hefur verið boðaður með Hollendingum og Bretum. Ríkisstjórnin kannast ekki við að boltinn sé hjá Íslendingum í deilunni.
16.mar. 2010 - 12:32
Skattayfirvöld höfðu tvívegis gert tillögur um viðamiklar umbætur til að koma í veg fyrir skattaundanskot í bankakerfinu. Forsætisráðherra segir ljóst að enginn áhugi hafi verið hjá Sjálfstæðisflokknum að ráðast í slíkar umbætur þegar hann stjórnaði fjármálaráðuneytinu.
16.mar. 2010 - 11:59
Rökstuddur grunur leikur á að gömlu bankarnir hafi komið milljörðum króna undan skatti áður en þeir féllu. Ríkisstjórnin ætlar að koma á fót sérstakri sveit á vegum skattrannsóknarstjóra til að rannsaka umfangið.
16.mar. 2010 - 11:48
Fólksfækkun varð á landinu á árinu 2009 í fyrsta sinn frá árinu 1889. Brottfluttir útlendingar valda miklu um þessa fækkun. Íslendingum heldur áfram að fjölga.
16.mar. 2010 - 11:15
William Fall, fyrrverandi forstjóri Straums fjárfestingabanka, sem í gær var ráðinn í lykilstöðu hjá alþjóðasviði eins stærsta banka í heimi, Royal Bank of Scotland, gerði tillögu til Seðlabankans og Fjármálaeftirlitsins í október 2008 um að fella íslenska banka undir Straum í því skyni að komast að samkomulagi við erlenda kröfuhafa og tryggja eðlilegt greiðsluflæði frá Íslandi til útlanda.
16.mar. 2010 - 10:47
HönnunarMars, íslensk hönnunarhátíð fer fram í annað skipti á Íslandi, frá næsta fimmtudegi til sunnudags. Markmið hátíðarinnar er að kynna fyrir gestum nýjustu strauma og stefnur í íslenskri hönnun. Grasrót íslenska hönnunarsamfélagsins, yfir 500 einstaklingar, tekur þátt á hátíðinni og við skipulagningu ríflega 100 viðburða hennar.
16.mar. 2010 - 10:29
Bílaleiga Akureyrar-Höldur ehf. hefur samið við HEKLU um kaup á 200 nýjum Volkswagen og Skoda bifreiðum sem afhentar verða á vormánuðum.
16.mar. 2010 - 10:23
Fjölskyldufaðirinn og stjórnarformaðurinn Kristján Gíslason, segir í opnu bréfi til forsætisráðherra Danmerkur í danska fjármálablaðinu Börsen í dag, að Íslendingar skilji ekki af hverju Danir lyfta ekki litla fingri til hjálpar frændþjóð sinni. Íslendingar hafi heldur ekki skilið hvernig Íslendingar eignuðust þjóðargersemar í Danmörku.