23. okt. 2009 - 16:20

Fjölmargir Íslendingar vilja ókeypis vikuferð til Kanaríeyja: Frekar mikil áskorun

Þessir Íslendingar gætu verið á leið til Kanaríeyja. F.v. Gulli Bergmann, Apríl Harpa, Elín og Aníta.

Þessir Íslendingar gætu verið á leið til Kanaríeyja. F.v. Gulli Bergmann, Apríl Harpa, Elín og Aníta. Pressan

Það hefur líklega ekki farið framhjá neinum að hér er staddur hress hópur ungra Spánverja að kynna Kanaríeyjar fyrir þjóðinni. Um hundrað Íslendingar fá ókeypis draumaviku á eyjunum og hafa nokkrir nú þegar farið í gegnum prufur.

Ætlunin er að ferðalangarnir eigi ógleymanlegt frí þar sem boðið er upp á vatnsíþróttir, eldfjallaskoðun, fjölskylduferðir og heilsudekur.

En hvaða Íslendingar komast með?  

Guðlaugur Bergmann tók þátt í prufunum:

„Þetta var frekar mikil áskorun. Það fóru 20 Íslendingar inn í sal í einu og settust á móti jafnmörgum spænskum dómurum. Viðtölin stóðu í eina mínútu svo skiptum við um sæti - svona eins og á hraðstefnumóti. Spurningarnar snerust mest um Kanaríeyjar, áhugamálin manns og hvers vegna maður vildi komast með í ferðina.

Þetta var mjög skemmtilegt en ekki laust við að maður væri farinn að svitna aðeins undir lokin, held samt að ég komist með“, segir Gulli og brosir.

Þeir sem ekki verða meðal þeirra hundrað heppnu sem hljóta ferðina ókeypis geta nýtt sér tilboð sem kynnt verður á næstunni.

Í tilkynningu Ferðamálaráðs Kanaríeyja segir:

„Við munum gera öllum Íslendingum tilboð sem þið getið ekki hafnað“.




12.mar. 2010 - 18:45

Formaður VG svarar litlu um uppstokkun: Könnumst ekki við umræðuna í fjölmiðlum

„Við lesum bara blöðin eins og aðrir og fáum ýmsar fréttir þaðan, en könnumst nú ekki mikið við þær,“ segir Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri grænna, um fyrirhugaða uppstokkun í ráðherraliðinu. Hann gefur lítið uppi um breytingar á ráðherraliðinu.
12.mar. 2010 - 17:50

Knattspyrnuþjálfari hneykslar: Samkynhneigðir eiga alls ekki heima á fótboltavellinum

Knattspyrnumönnum þykir ekkert sjálfsagðra en að faðma hvorn annan innan vallar, en utan vallar er það algjört tabú. Þýski þjálfarinn Rudi Assauer hefur varpað sprengju inn í knattspyrnuheiminn með stóryrtum fullyrðingum sínum um að samkynhneigðir ættu ekkert erindi í íþróttina. Sjálfur myndi hann sparka leikmanni sínum ef hann kæmi út úr skápnum.
12.mar. 2010 - 16:35

Gylfi: Eignarhaldsfélög í rústum koma í veg fyrir frekari afskriftir til heimila og fyrirtækja

Gylfi Magnússon, efnahags- og viðskiptaráðherra. Gjaldþrota eignarhaldsfélög éta upp mest af þeim afskriftum sem fóru milli gömlu og nýju bankanna, segir efnahags- og viðskiptaráðherra. Bankarnir þurfa að afskrifa stórar fjárhæðir hjá þessum félögum og því skapast ekki svigrúm til afskrifta annars staðar.
12.mar. 2010 - 15:58

Egill Helgason lagði inn umsókn í von og óvon: Auðvelt að verða óvinsæll í svona starfi

Egill er einn 37 umsækjenda um stöðu dagskrárstjóra RÚV. „Ég setti inn umsókn upp á von og óvon,“ segir sjónvarpsmaðurinn Egill Helgason, sem er einn þeirra sem sótti um stöðu dagskrárstjóra RÚV. Hann spyr sig þó þeirrar spurningar hvort hann verði betur settur þar en í þeirri stöðu sem hann er nú, enda auðvelt að verða óvinsæll í stöðu dagskrárstjóra.
12.mar. 2010 - 15:30

Tískurisi gerir strangar kröfur: Enga „gamla, feita, ljóta eða ógeðslega“ starfsmenn

Prada er eitt virtasta, og dýrasta, vörumerkið í tískuheiminum. Sölustjóri tískurisans Prada í Japan hefur farið í mál við fyrirtækið eftir að yfirmaður hennar fyrirskipaði henni að gera átak í starfsmannamálum. Átakið fólst í því að losa sig við „gamla, feita, ljóta eða ógeðslega“ starfsmenn sem ekki hentuðu ímynd fyrirtækisins.
12.mar. 2010 - 15:04

Kynjabókhald forstöðumanna ríkisins 2010: Konur með þriðjung af æðstu stöðum

Tveir karlar veita stofnunum ríkisins forstöðu á móti hverri einni konu. Konur hafa auk þess minni mannaforráð en karlar. Hlutfallið er konum mest í hag í forsætisráðuneytinu en síst í umhverfisráðuneytinu.
12.mar. 2010 - 14:28

37 vilja taka við af Þórhalli: Pressan birtir umsækjendur um stöðu dagskrárstjóra RÚV

37 sóttu um stöðu dagskrárstjóra RÚV. Alls sóttu 37 manns um stöðu dagskrárstjóra RÚV sem auglýst var eftir að Þórhallur Gunnarsson lét af störfum. Meðal umsækjanda eru þekkt nöfn á borð við Felix Bergsson, Sigurjón Kjartansson, Þorfinn Ómarsson, Davíð Þór Jónsson og Ágúst Héðinsson.
12.mar. 2010 - 13:40

Steingrímur útilokar ekki lagasetningu á verkfall í næstu viku - Finnst kröfurnar háar

Flugumferðarstjórar hafa boðað verkfall á miðvikudaginn kemur. Ekki er útilokað að það verði stöðvað með lagasetningu. Fjármálaráðherra útilokar ekki að Alþingi setji lög á verkfall flugumferðarstjóra í næstu viku, eins og til stóð að gera í gær. Hann vonast þó að til þess þurfi ekki að koma. Hann segir kröfur flugumferðarstjóra háar og ekki í takti við efnahagslegan veruleika.
12.mar. 2010 - 12:40

Hér dreg ég mörkin: Hollenskir hjúkrunarfræðingar neita að veita sjúklingum kynlífsþjónustu

Stéttarfélag hollenskra hjúkrunarfræðinga hleypti í dag af stokkunum átaki gegn kröfum sjúklinga um að kynferðisleg þjónusta verði eitt af reglubundnum verkefnum þeirra. Samtökin NU'91 nefna átakið „Hér dreg ég mörkin“.
12.mar. 2010 - 11:57

Engar Icesave-viðræður í gangi: Vonast til að draga Hollendinga að borðinu í næstu viku

Steingrímur vonast eftir Icesave-viðræðum í næstu vikum. Samningaviðræður um Icesave hafa enn ekki hafist og vonast ríkisstjórnin til að af því verði í næstu viku. Engar tímasetningar hafa verið ákveðnar. Fjármálaráðherra segir óraunhæft að hafa ætlað að hefja viðræður í þessari viku eins og vonir stóðu til.
12.mar. 2010 - 11:22

Sýningin Netið 2010 hefst í Smáralind í dag og stendur um helgina: Spennandi nýjungar

Stórsýningin Netið 2010 verður haldin í Vetrargarðinum Smáralind dagana 12-14. mars, en sýningunni er ætlað að fræða almenning um þær nýjungar og möguleika sem netið býður upp á.
12.mar. 2010 - 11:16

Lilja svarar Jóhannesi í Bónus fullum hálsi: Gagnrýnin beindist að grunuðum mönnum

Lilja Mósesdóttir, formaður viðskiptanefndar, hefur svarað bréfi Jóhannesar í Bónus til þingmanna og segist ekki skilja að hann upplifi sig fórnarlamb „pólitískra ofsókna“ nema því aðeins að hann hafi stöðu grunaðs manns. Og grunaðir menn eigi ekki að eignast fyrirtæki að aflokinni fjárhagslegri endurskipulagningu.
12.mar. 2010 - 10:18

Kanadískir þingmenn halda selaveislu: Stuðningurinn við selveiði hefst á matardisknum

Þingmenn í Kanada gæddu sér á selskjöti í vikunni til að mótmæla dýraverndarsinnum og Evrópusambandinu sem hefur bannað innflutning á selafurðum.
12.mar. 2010 - 09:32

Eyjafjallajökull tútnar út og skelfur: Stöðug kvikuinnskot en ekki komið að gosi

Jarðskjálftakort Veðurstofu Íslands frá í morgun Stöðug kvikuinnskot eru undir Eyjafjallajökli og eldfjallið tútnar út. Skjálftar um 3 stig mældust síðdegis í gær og í síðustu viku, en að öðru leyti er smáskjálftavirkni viðvarandi, aðallega á 7-11 km dýpi. Á meðan er ekki búist við að fari að gjósa.
12.mar. 2010 - 08:46

Icesave lykillinn að frekari stuðningi: Fleygur í samstöðu norrænu frændþjóðanna

Þrátt fyrir að Norðmenn hafi létt á þrýstingnum á Íslendinga að ganga frá Icesave-deilunni áður en frekari lánafyrirgreiðsla fæst sitja hinar norrænu þjóðirnar enn við sinn keip. Á fundi utanríkisráðherra Norðurlanda í gær kom fram að frágangur Icesave-málsins er forsenda fyrir meiri stuðningi.
12.mar. 2010 - 07:41

Lán færð yfir í ríkisbankana á hálfvirði: Ungur lyfjafræðingur vill hlut í því en fær ekki svar

Arionbanki naut mestra afskrifta þegar lán til viðskiptavina voru færð yfir í nýju bankana. Valdís Beck, liðlega þrítugur lyfjafræðingur og markaðsfulltrúi, sendi bankanum fyrirspurn fyrir mánuði og spurði hvort hún fengi ekki að njóta afslátta bankans í neinu. Ekkert svar hefur borist.
12.mar. 2010 - 07:00

Unglingahræður skerða mannréttindi ungmenna: Evrópuráðið vill þær burt

Unglingahræðan fælir burt ungt fólk undir tvítugu Óvelkomin ungmenni í verslanamiðstöðvum, meðal annars í Bretlandi, eru fæld burt með tæki, eins konar unglingahræðu, sem gefur frá sér óþægilegt hljóð. Evrópuríki eru nú hvött til að fjarlægja þessi tæki þar sem þau þykja skerða mannréttindi ungs fólks.
11.mar. 2010 - 22:17

Er eitthvað vandræðalegra en að vera handjárnuð í grímu-búningum? Hlægilegar MYNDIR

Trúðurinn tekinn úr umferð. Það er nógu slæmt fyrir einstaklinga að vera handjárnaðir af lögreglu eða öðrum yfirvöldum í eðlilegum klæðnaði. Hvað þá að vera handjárnaðir uppáklæddir sem Spiderman, lukkudýr einhvers íþróttaliðs eða bara í gervi Mjallhvítar, vinkonu dverganna sjö? Svo ekki sé talað um ef einstaklingur er í heilgalla sem trúður.
11.mar. 2010 - 21:06

Vill fá „neyðarhnapp“ á Facebook strax í notkun: Til varnar ung- mennum gegn barnaníðingum

Umræða um neyðarhnapp á samskiptavefnum Facebook hefur komið upp á Bretlandseyjum í kjölfar sífellt fleiri dæmi um barnaníðinga sem nýta sér samskiptamátann til þess að komast í tæri við ungmenni.
11.mar. 2010 - 20:41

Skaut harkalega á þingheim: Ættu að eyða minni tíma í karp í ræðustól og fjölmiðlum

Margrét Kristmannsdóttir. Margrét Kristmannsdóttir, formaður SVÞ skaut harkalega á þingheim á aðalfundi samtakanna í dag. Margrét sagði það einfeldni að halda að 63 þingmenn þjóðarinnar, með takmarkaða reynslu af atvinnulífinu, kæmi Íslendingum upp úr kreppunni. Þá sagði hún að Vinstri grænir þyrftu að ákveða hvorum megin við borðið þeir væru og að þingmenn ættu að eyða minni tíma í innihaldslaust karp og viðræður við fjölmiðla í tímabundnum vinsældarkosningum.

Pressupennarvinsælast í vikunni
Ásdís Rán Gunnarsdóttir
Ásdís Rán Gunnarsdóttir - 09.3.2010
Skvísukosningin hafin fyrir Miss febrúar!
Marta María
Marta María - 10.3.2010
Finnst ykkur þetta í lagi?
Sölvi Tryggvason
Sölvi Tryggvason - 10.3.2010
,,Áttum bara helvítis helling af peningum"
Ólafur Arnarson
Ólafur Arnarson - 09.3.2010
Steingrímur afhjúpar bjánaskap
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir - 09.3.2010
Þegar á reynir er ástin ekki sönn
Sölvi Tryggvason
Sölvi Tryggvason - 09.3.2010
,,Hot sex pills"
Teitur Guðmundsson
Teitur Guðmundsson - 08.3.2010
Eitruð leikföng!
Sölvi Tryggvason
Sölvi Tryggvason - 09.3.2010
Böðlar kerfisins
Ólafur Arnarson
Ólafur Arnarson - 10.3.2010
Hagsmunaárekstur eða vanhæfni?
Magnús Geir Eyjólfsson
Magnús Geir Eyjólfsson - 08.3.2010
Ginningarfífl flokkanna
Gylfi Arnbjörnsson
Gylfi Arnbjörnsson - 09.3.2010
Getum við treyst brennuvarginum fyrir kyndlinum?
Sölvi Tryggvason
Sölvi Tryggvason - 11.3.2010
Opin spurning til nýju bankanna
Bryndís Gyða Grímsdóttir
Bryndís Gyða Grímsdóttir - 10.3.2010
Smokey eyes: Þegar þú vilt vera extra mikil gyðja - MYNDBAND
Fleiri pressupennar


Skipta um leturstærð

Breyta um tungumál



Leit