07. feb. 2010 - 12:49
Þessi hefur flogið um netheima: Tveggja ára Kínverji hlekkjaður við staur daglangt

Myndin af drengnum hefur flogið um netheima. Daily Mail
Meðfylgjandi mynd hefur farið eins og eldur í sinu um netheima, en hún sýnir tveggja ára kínverskan snáða hlekkjaðan við staur í höfuðborginni Peking. Faðir hans vinnur, leyfislaus, við að keyra um götur borgarinnar í hjólavagni, eða „rickshaw“. Móðir hans er óhæf til vinnu og safnar því rusli sem hún telur verðmætt á götum sömu borgar. Þau þurfa því að hlekkja son sinn daglangt við staur, en þau segja það einu leiðina til þess að sporna við því að honum verði rænt.
Foreldrar stráksins, Lao Lu, segja við miðilinn Daily Mail að fjögurra ára dóttur þeirra hafi verið rænt frá þeim í síðasta mánuði. Barnaþjófnaður er vandamál í Kína, þar sem í landinu eru í gildi lög þess efnis að fjölskyldur megi einungis eiga eitt barn.
Eftir að fjöldi vegfarenda tilkynntu um hlekkjaða drenginn úti á miðri götu var föður hans í kjölfarið bannað að geyma hann þannig í framtíðinni. Lu fær ekki pláss á leikskóla, því faðir hans er úr öðru héraði, þannig að ekki liggur ljóst fyrir hvar hann verður geymdur í framtíðinni þegar foreldrar hans eru vant við látnir.
15.mar. 2010 - 22:32
Með tilkomu internetsins rata fyrir sjónir almennings myndir sem ekki með nokkru móti er hægt að útskýra án þess að vita söguna á bak við þær. Spakmælið að myndir segja meira en þúsund orð fellur í þessum tilvikum um sjálft sig.
15.mar. 2010 - 21:58
Bandaríska ríkisstjórnin er æf yfir framgöngu Ísraela sem í síðustu viku kynntu áförm sín um stækkun ísrealskrar byggðar í Jerúsalem, á svæði sem Palestínumenn telja sig eiga rétt á. Ísraelar kynntu áform sín meðan á opinberri heimsókn varaforseta Bandaríkjanna og túlka menn það sem mikla móðgun við bandarísk stjórnvöld.
15.mar. 2010 - 20:45
Helsti draumur bandarískrar húsmóður er að verða þyngsta kona veraldar. Hún er nú þegar þyngsta kona veraldar sem fætt hefur barn. Í dag vegur hún 272 kíló en dreymir um að ná 450 kílóa markinu. Hún heldur úti vefsíðu þar sem fólk borgar sig inn til að horfa á hana borða.
15.mar. 2010 - 20:02
Árni Páll Árnason félagsmálaráðherra segir nauðsynlegt að gera fólki auðveldara að sleppa undan þeim skuldum sem það ræður ekki við að greiða. Hann segir fyrirtækin sem lánuðu almenningi fyrir bílakaupum hafa afgreitt lánaumsóknir á örfáum mínútum og aldrei tekið mið af greiðslugetu lánþegans, því eigi fyrirtækin að axla sína ábyrgð.
15.mar. 2010 - 19:12
Breska fjármálaeftirlitið hefur ákært hjón fyrir innherjasvik sem áttu sér stað á árunum 2000 - 2009. Eiginmaðurinn starfaði í breskum fjárfestingarbönkum á þessum árum og er grunaður um að hafa nýtt sér upplýsingar sem hann fékk vegna starfs síns til að hagnast á hlutabréfakaupum. Maðurinn vann í nokkur ár hjá Dresdner Capital en síðasta árið hjá fjárfestingarbankanum Shore Capital.
15.mar. 2010 - 18:18
Erlendir foreldrar lítils barns sem talið er að hafi skaðast af því að vera hrist harkalega, hafa verið úrskurðaðir í farbann. Fósturfaðir barnsins er eftirlýstur í Póllandi fyrir ofbeldisglæpi og og fjársvik.
15.mar. 2010 - 18:15
Tveir krabbameinslæknar hafa sagt upp störfum á Landspítala-háskólasjúkrahúsi og verða þeir báðir hættir störfum í september. Hafa þeir fengið vinnu í útlöndum. Formaður Læknafélags Íslands segir sérfræðilækna horfa í æ meiri mæli til útlanda og að víða stefni í óefni innan heilbrigðiskerfisins.
15.mar. 2010 - 17:33
Ekki stendur á Hollendingum og Bretum að hefja viðræður að nýju við Íslendinga um lausn á Icesave-málinu. Hins vegar sé enn beðið eftir tillögum frá Íslandi.
15.mar. 2010 - 16:44
William Fall, fyrrverandi forstjóri Straums fjárfestingabanka, hefur verið ráðinn í lykilstöðu hjá alþjóðasviði eins stærsta banka í heimi, Royal Bank of Scotland. Er Fall ætlað að æðsti yfirmaður alþjóðasviðs samsteypunnar (e. Global Head of Financial Institutions Group).
15.mar. 2010 - 16:21
Það hefur varla farið framhjá neinum manni að bensínlítrinn er í dag kominn yfir 200 krónur á flestum bensínstöðvum landsins. Öfugt við það sem gerðist árið 2000, þegar lítrinn fór fyrst yfir 100 krónur, hefur lítið örlað á kröfum um lækkaðar álögur. Meðal þeirra sem létu hæst heyra í sér á þeim tíma var núverandi forsætisráðherra.
15.mar. 2010 - 15:09
Upplýsingaveitan Wikileaks birtir í dag 512 blaðsíðna kröfuhafalista Kaupþings og boðar um leið að frekari birting trúnaðargagna sé væntanleg.
15.mar. 2010 - 14:15
Unnið er að því að innkalla tugþúsundir auglýsingabæklinga frá norska fyrirtækinu Princess eftir að það uppgötvaðist að í auglýsingu fyrir barnasængurföt að þar liggur bók um kynlífsleikföng.
15.mar. 2010 - 12:55
Skýrsla rannsóknarnefndar Alþingis um bankahrunið verður „stjórnsýsluúttekt samin af sérfræðingum í stjórnsýslu“, segir heimildarmaður Pressunnar. Í nefndina vanti fólk með bakgrunn úr viðskiptum. Skýrslan er að koma úr prentun og á meðan er rannsóknarnefndin þögul sem gröfin.
15.mar. 2010 - 11:47
Eiríkur Bergmann stjórmálafræðingur, segir að hann sjái ekki betur en að skuldir almennings hafi átt að lækka við niðurfærslu lána úr gömlu bönkunum yfir í þá nýju. Féð sé hins vegar notað til að fella niður skuldir óreiðumanna. Hann spyr hvort það heiti ekki eitthvað þegar fé er freklega hrifsa af fólki nánast í skjóli nætur.
15.mar. 2010 - 10:59
Hálfsextug nunna í Skotlandi fékk óvæntan arf nýverið; eitt stykki hóruhús í Austurríki. Kom í ljós að móðir nunnunnar hafði um árabil rekið það með góðum hagnaði.
15.mar. 2010 - 10:08
Árni Páll Árnason félagsmálaráðherra vísar á bug ásökunum Samtaka lánþega um að hann gangi erinda fjármögnunarfyrirtækja. Stjórnvöld láti hvorki lánþega njóta lakari kjara en þeir geti fengið með hjálp dómstóla né ívilni eignaleigum á nokkurn hátt.
15.mar. 2010 - 08:53
Stórsýningin Netið 2010 í Vetrargarðinum í Smáralind varð upptakturinn að árshátíð fyrirtækja á íslenskum netmarkaði sem haldin verður að ári liðnu. Þúsundir gesta lögðu leið sína á sýninguna um helgina.
15.mar. 2010 - 08:34
Lögreglan í Gautaborg handtók í nótt mann sem hafði hótað því að fremja fjöldamorð í Konunglega Tækniháskólanum í Stokkhólmi í dag. Lögreglan rakti slóð hans á netinu.
15.mar. 2010 - 07:50
Samtök lánþega segja að tillögur félagsmálaráðherra um lækkun bílalána í 110% af söluandvirði bifreiða gagnist fjármögnunarfyrirtækjunum sjálfum. Erfitt sé að átta sig á hverra hagsmuna ráðherrann sé að gæta.
15.mar. 2010 - 07:40
Verið er að leggja lokahönd á skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis en heimildir herma að hún verði ekki eins kolsvört og látið var að liggja. Sölvi Tryggvason segir í pistli á Pressunni að einn svonefndra hrunmanna spái því að lesendur sem þoli sig ekki verði svekktir.