19.maí 2013 - 12:45
Dzokhar Tsarnaev sem framdi hryllileg ódæðsverk ásamt Tamerlan eldri bróður sínum í Boston á hóp aðdáenda sem hafa stofnað síður honum til heiðurs á netinu. Á vef Huffington Post segir að aðdáendurnir séu flestir unglingsstúlkur sem telja óhugsandi að svona myndarlegur ungur maður hafi hugsanlega skipulagt hræðilegar árásir á saklausa borgara.
19.maí 2013 - 11:00
Björn Bragi Arnarsson er fæddur árið 1984. Hann er stúdent frá Verzlunarskóla Íslands og þá er hann með BSc-gráðu í viðskiptafræði frá Háskólanum í Reykjavík. Björn var fyrr í vetur kosinn sjónvarpsmaður ársins fyrir frammistöðu sína sem stjórnandi Týndu kynslóðarinnar og hlaut hann Edduna fyrir.
19.maí 2013 - 09:00
Öflugustu herskip sögunnar fyrr og síðar eru bandarísku flugvélamóðurskipin af Nimitz-gerð. Þau eru sjálf lítt vopnuð miðað við stærð og bera aðeins fáeina litla skotpalla með loftvarnaflaugum eða -byssum. En um borð eru líka um það bil níutíu þyrlur og flugvélar af flestum stærðum og gerðum, og það eru þessar vélar sem gera Nimitz-skipin að þeim ógnarlegu vopnum sem þau eru.
18.maí 2013 - 23:30
Í kvöld lék David Beckham sinn síðasta fótboltaleik á ferlinum þegar hann leiddi lið PSG til 3-1 sigurs gegn Brest í franska boltanum. Beckham, sem bar fyrirliðaband PSG í leiknum í kvöld, var tekinn útaf á 83. mínútu og táraðist þá öll stúkan, líkt og Englendingurinn sjálfur.
18.maí 2013 - 22:25
Eins og flestir Íslendingar vita fór Söngvakeppni Evrópskra Sjónvarpsstöðva fram í kvöld. Eyþór Ingi söng fyrir Íslands hönd og stóð sig frábærlega en það var hinsvegar Emelie de Forrest sem söng sig inn í hjörtu Evrópubúa með framlagi Danmerkur
Only Tearsdrop.
18.maí 2013 - 22:00
Samskiptasíðurnar Twitter og Facebook loguðu á meðan söngvarar stigu á svið í Eurovision-keppninni. Líflegar umræður fóru fram um lögin og á báðum samskiptasíðunum mátti finna skemmtilega gullmola um hina ýmsu listamenn í keppninni.
18.maí 2013 - 20:30
Kylfingar á Íslandsbankamótaröðinni þurftu að glíma við ansi erfiðar aðstæður á Þorlákshafnarvelli í dag þegar slegið var til leiks á fyrsta stigamóti sumarsins. Það er þó óhætt að segja að kylfingarnir ungu hafi komið vel undirbúnir til leiks því sjá mátti frábær tilþrif og mörg mjög góð skor.
18.maí 2013 - 20:00
Helstu verkefni nýrrar ríkisstjórnar eiga að felast í því að takmarka stærð fjármálastofnana, stytta vinnutíma, draga úr álagi á umhverfið og stórefla lýðræðið. Þetta segir Kristinn Már Ársælsson í lýðræðisfélaginu Öldu. Eyjan hefur beðið hann og fleiri álitsgjafa úr þjóðfélaginu að setja á blað hver þau telja vera brýnustu verkefni nýrrar ríkisstjórnar.
18.maí 2013 - 18:30
Eyþór Ingi sem í kvöld flytur lagið Ég á líf í Eurovision-keppninni spjallaði á léttu nótunum við Davíð Lúther Sigurðarson. Þá sýndi hann skartið sem hann ber og ræddi um fataval fyrir stóru stundina.
18.maí 2013 - 17:35
Anna Sigurlaug Pálsdóttir eiginkona Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar segir að hún hafi um tíma tekið afar nærri sér allt baktal og ljót ummæli um eiginmann hennar í kommentakerfum fjölmiðlanna. Hún laumaðist í tölvuna á kvöldin, sat fram eftir nóttu og las ummælin með tárin í augunum.
18.maí 2013 - 16:25
Þrír grímuklæddir ræningjar rændu gullsmíðaverslun á Storgatan í Ängelholm á Skáni í morgunn. Eftir að þeir höfðu rænt verslunina skutu þeir mörgum skotum á fólk sem var fyrir utan verslunina og særðust þrír vegfarendur.
18.maí 2013 - 14:30
Sjórekið lík fannst í fjöru í Kaldbaksvík á Ströndum í morgun. Ekki er vitað hvenær viðkomandi lést.
18.maí 2013 - 14:15
Stjórnarmyndunarviðræður Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks eru á lokastigi en þeim mun þó ekki ljúka fyrr en eftir hvítasunnuhelgina. Í dag og á morgun er talið að rætt verði við einstaka þingmenn. Stofnanir flokkana verða líklega kallaðar til fundar á þriðjudag.
18.maí 2013 - 13:05
Leikmenn Barcelona fögnuðu sigri sínum í
La Liga nú á dögunum með því að keyra í gegnum Katalóníu á opnum bíl. Þar heilsuðu þeir stuðningsmönnum með tilheyrandi gleði og fagnaðarlátum. Eitthvað virðist þó hafa farið úrskeiðis um borð í bílnum.
18.maí 2013 - 12:00
Flest gerum við okkur grein fyrir því að skyndibitamaturinn sem við kaupum lítur alltaf betur út í auglýsingunni en í raunveruleikanum. Ljósmyndarinn Dario D var hins vegar búinn að fá nóg af því að fá aldrei það sem auglýsingin lofaði honum.
18.maí 2013 - 11:10
Everest-farinn Ingólfur Geir Gissurarson kom í gær í aðrar búðir á leið sinni á toppinn. Í dag er hvíldardagur en snemma á morgun mun Ingólfur halda áfram upp í þriðju búðir. Ef allt gengur að óskum þá er stefnt að því að vera á toppnum að morgni 21. maí.
18.maí 2013 - 10:00
Karlmaður sem slasaðist alvarlega þegar hópur manna réðst á hann í Breiðholti síðdegis í gær dvelur enn á sjúkrahúsi. Tveir menn hafa verið handteknir vegna árásarinnar en þeir hafa báðir hlotið dóm fyrir ofbeldisverk.
18.maí 2013 - 08:30
IDAHO-dagurinn, alþjóðlegur baráttudagur gegn hómó-, bi- og transfóbíu var í gær. Dagurinn hefur verið haldinn 17. maí ár hvert síðan árið 2005, en þann dag árið 1990 var samkynhneigð tekin út af sjúkdómalista Alþjóða heilbrigðisstofnunarinnar.
17.maí 2013 - 21:25
Ef kristinn kafari færi að synda í flóanum San Fruttuoso á Rívíeruströnd Ítalíu, þá er hætt við að hann færi fljótlega á fund skapara síns.
17.maí 2013 - 19:30
Karlmaður er mikið slasaður eftir að minnst þrír menn réðust á hann í Breiðholti síðdegis í dag. Íbúar við Ystasel telja að um handrukkun hafi verið að ræða en árásarmennirnir notuðu m.a. hafnarboltakylfu þegar þeir gengu í skrokk á manninum fyrir allra augum.
17.maí 2013 - 18:30
Það er ekki óalgengt að verðmætustu vörumerkjum heims sé stolið og þau seld undir breyttum nöfnum. Hér eru nokkur áhugaverð dæmi:
17.maí 2013 - 17:00
Þrír einstaklingar hafa kært framkvæmd nýafstaðinna Alþingiskosninga. Þeir vilja meina að undirbúningur þeirra og framkvæmd hafi ekki verið í samræmi við lög. Fleiri íhuga að leggja inn kæru.
17.maí 2013 - 16:10
Þeir sem mættu á lokahóf körfuboltans í Keflavík nú á dögunum hafa eflaust skellt upp úr í þó nokkur skipti. Í myndbandinu taka leikmenn Keflavíkur krefjandi og skemmtilegar áskoranir. Þar sjáum við meðal annars Auðunn Blöndal og Gillz taka tvo leikmenn liðsins í kennslustund í bekkpressu. Logi Geirsson lætur finna fyrir sér í handboltanum og Almar Guðbrandsson, leikmaður Keflavíkinga, reynir fyrir sér í fimleikum, með vægast sagt skrautlegum árangri.
17.maí 2013 - 15:30
Eyþór Ingi sem í gær söng sig inn í hug og hjörtu margra Evrópubúa þakkaði Íslendingum og þá sérstaklega fólkinu í heimabæ sínum á Dalvík fyrir stuðninginn í gærkvöldi. Þá sagðist hann hafa orðið meyr í miðju lagi þegar honum varð hugsað til dætra sinna og eiginkonu.
17.maí 2013 - 14:00
Nýr Mercedes-Benz S-lína er og hefur ávallt verið flaggskipið í lúxusbílum af stærstu gerð. Ný kynslóð var afhjúpuð í Þýskalandi í fyrradag. Bíllinn er svo stútfullur af nýrri tækni að menn segja að nær sjálfvirkni í akstri hafi bílaframleiðendur ekki komist.
17.maí 2013 - 13:00
Talningadeild Íþróttapressunnar var lengi að í nótt. Rétt fyrir sólarupprás lágu þó úrslit fyrir og í ljós kom að fleiri en fimm tipparar voru með alla sex leiki þriðju umferðar rétta. Það var því lítið annað í stöðunni en að draga úr hópi þeirra sannspáu. Það var sölustjóri Vefpressunnar, Guðjón Kristinsson, sem var yfirmaður dráttarins þessa vikuna. Kærur berist því til hans.
17.maí 2013 - 12:30
Tugir gesta sækja einkasamkvæmi sem Björgólfur Thor Björgólfsson heldur á Fríkirkjuvegi 11 í dag. Á meðal gesta er efnahagsráðgjafi Baracks Obama, Bandaríkjaforseta.
17.maí 2013 - 11:30
Hljómsveitin Sigur Rós bregður fyrir í Simpsons þættinum The Saga of Carl Carlsson sem sýndur verður í Bandaríkjunum á sunnudaginn. Nú hefur fyrsta myndskeiðið verið sett á netið og það má sjá hér fyrir neðan.
17.maí 2013 - 11:00
Guðmundur Þórarinsson, leikmaður Sarpsborg 08, skoraði stórglæsilegt mark gegn Rosenborg í norska boltanum í gær. Markið kom beint úr aukaspyrnu en Gummi Tóta hefur heldur betur verið að finna sig í liði Sarpsborg á þessu tímabili.
17.maí 2013 - 10:15
„Þetta var fólk frá barnabarninu mínu. Það ruddist hér inn hópur fólks í þeim tilgangi að ráðast á mig persónulega. Það var mjög ósmekklegt að ráðast á þjónustumiðstöðina með þessum hætti en ég bað þau um fara út.“
17.maí 2013 - 09:00
Laugardaginn 18. maí fer sendinefnd frá Íslandi til Kulusuk, á vegum Kalak, vinafélags Íslands og Grænlands, Skákfélagsins Hróksins, Flugfélags Íslands og fleiri velunnara Grænlendinga. Við þetta tækifæri verða afhent hljóðfæri, tæknibúnaður og fleiri gjafir, en tónlistarhúsið í Kulusuk brann til grunna í fárviðri í byrjun mars.
17.maí 2013 - 08:30
Banaslys varð á Akranesi í gær þegar ökumaður bifhjóls missti stjórn á hjóli sínu er hann ók austur Faxabraut á Akranesi. Hafnaði hjólið á grjótgarði með þeim afleiðingum að maðurinn kastaðist yfir grjótgarðinn og niður í fjöru á Langasandi.
17.maí 2013 - 08:00
Tæknin mun bjarga þeim sem ekki komast í miðbæinn í dag til að sjá einstakt átta mínútna skipaflautuverk Lilju Birgisdóttur. Lilja lofar tilkomumikilli sjón þegar hún stýrir verki sínu, Vessel Orchestra, í höfninni á Listahátíð í Reykjavík, en það er opnunarverk hátíðarinnar.
16.maí 2013 - 23:00
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, hvetur fjármálaráðuneytið til að birta fyrirliggjandi upplýsingar um stöðu ríkisfjármála. Hann segir ráðherra fráfarandi ríkisstjórnar segja allt annað í dag en þeir gerðu fyrir kosningar.
16.maí 2013 - 22:17
Enginn á að þurfa að missa af Eurovision - hvorki leikarar né leikhúsgestir. Englar alheimsins gerðu stutt hlé á sýningu kvöldsins og sungu ,,Ég á líf" með Eyþóri og áhorfendum í beinni útsendingu á stóra sviðinu
16.maí 2013 - 21:45
Á samskiptasíðunum Twitter og Facebook fóru fram líflegar umræður um Eurovisionkeppnina, þó Twitter hafi verið ótvíræður sigurvegari þegar kom að skemmtanagildi. Á Twitter má finna fjöldann allan af gullmolum frá íslenskum notendum sem réðu sér ekki fyrir kæti þegar framlag Íslands komst áfram í lokakeppnina sem fram fer í Malmö á laugardag.
16.maí 2013 - 21:00
Framlag Íslands í Eurovisionkeppninni var valið eitt af tíu efstu lögunum í kvöld. Það er því ljóst að Ísland muni keppa til úrslita í aðalkeppninni á laugardaginn 18. maí. Eyþór Ingi og föruneytið stóð sig með eindæmum vel og fékk mjög góð viðbrögð hjá áhorfendum.
16.maí 2013 - 20:30
Í síðustu viku lenti 37 ára gamall Norðmaður á Grænhöfðaeyjum, svolitlum eyjaklasa út af vesturströnd Afríku, sem hefur verið sjálfstætt ríki síðan 1975. Það var merkilegur áfangi því þar með taldist Norðmaðurinn, Gunnar Garfors að nafni, hafa komið til hvers einasta lands í heimi.
16.maí 2013 - 19:00
Íslenska ríkið var í dag sýknað af 53 milljarða króna skaðabótakröfu þýska bankans DekaBank. Niðurstaðan er að líkindum fordæmisgefandi.
16.maí 2013 - 18:00
Allar fréttastofur 365 Miðla verða settar undir einn hatt og hefur Mikael Torfason verið ráðinn yfirmaður nýrrar fréttastofu fyrirtækisins. Starfsmönnum 365 var tilkynnt þetta á starfsmannafundi í dag.
16.maí 2013 - 17:10
Hæstiréttur dæmdi í dag karlmann í átta ára fangelsi fyrir margítrekuð og svívirðileg kynferðisbrot gegn tveim börnum. Hæstiréttur taldi rétt að þyngja dóminn en maðurinn var dæmdur til sjö ára fangelsisvistar í Héraðsdómi Reykjavíkur í nóvember sl.
16.maí 2013 - 16:25
Knattspyrnumaðurinn David Beckham gaf það út í dag að hann væri búinn að leggja skóna á hilluna frægu. Beckham, sem varð 38 ára fyrr í þessum mánuði, varð franskur meistari með PSG nú á dögunum. Hann þakkar fjölskyldu sinni í bak og fyrir í yfirlýsingu sem kappinn sendi frá sér í dag.
16.maí 2013 - 15:25
Gísli Kristinsson (52 ára) er mjög hæfileikaríkur áhugaljósmyndari sem búsettur er á Ólafsfirði. Hann vinnur sem húsvörður og kerfisstjóri í Menntaskólanum á Tröllaskaga en þegar hann er ekki í skólanum er hann yfirleitt á fullu að taka myndir af öllu mögulegu.
16.maí 2013 - 13:55
David Beckham hefur gefið það út að hann sé hættur allri knattspyrnuiðkun. Sportsmail greindi fyrst frá þessu um klukkan tvö í dag en nú hefur Beckham sjálfur staðfest þessar sögusagnir. Þessi 38 ára gamli Englendingur hefur því spilað sinn síðasta fótboltaleik á ferlinum.
16.maí 2013 - 13:47
Karlmaður á fertugsaldri sem í gær var úrskurðaður í gæsluvarðhald til 29. maí, grunaður um að hafa brotið á 10 ára stúlku segist ekki muna eftir atburðum gærdagsins.
16.maí 2013 - 12:30
Útlit er fyrir gríðarlega uppbyggingu í Grænlandi á næstu árum og áratugum og svo gæti farið að landsframleiðsla þessa nágranna okkar í norðri verði orðin meiri en á Íslandi þegar fram líða stundir. Ísland gæti hagnast vel á þessum uppgangi.
16.maí 2013 - 12:20
LFL-deildin hefur verið gagnrýnd fyrir klæðaburð leikmanna. Búningarnir eru sagðir niðurlægja konur í íþróttum en leikmenn hafa þó tekið upp hanskann fyrir sínum málstað. LFL stóð upphaflega fyrir
Lingerie Football League, en
Lingerie er upp á íslenskuna
kvenundirföt. Það er því mikið gert úr útliti leikmanna í sportinu en deildin fékk þó nýtt nafn á þessu ári og heiti nú
Legends Football League.
16.maí 2013 - 12:00
Elsa Yeoman, forseti borgarstjórnar, afhenti í dag fulltrúa Samtaka um kvennaathvarf Mannréttindaverðlaun Reykjavíkurborgar. Afhendingin fór fram við hátíðlega athöfn í Höfða á mannréttindadegi Reykjavíkurborgar.
16.maí 2013 - 11:00
Mynd dagins birti Örlygur Smári á Facebook-síðu Nýherja en þar segir:
16.maí 2013 - 10:35
Frank Lampard, fyrirliði Chelsea þegar liðið tryggði sér sigurinn í úrslitaleik Evrópudeildarinnar í gær, veit ekki ennþá hvort hann verði í herbúðum Chelsea á næsta ári. Meiri líkur en minni eru þó á því að að Lampard fái nýjan samning hjá félaginu.