08. feb. 2010 - 18:47
Stjórnmálafræðingur spáir ríkisstjórnarslitum á næstu mánuðunum

Jóhanna Sigurðardóttir og Steingrímur J ræðast við. Getty Images
Stjórnmálafræðingurinn Stefanía Óskarsdóttir segir ríkisstjórnina sýna ýmis þreytumerki og að innan Samfylkingarinnar sé farið að bera meira á óánægjuröddum með samstarfið en áður hefur heyrst þaðan. Hún spáir því að gengið verði til kosninga innan nokkurra mánaða.
Þetta kom fram í máli Stefaníu í fréttaskýringaþættinum Speglinum á RÚV í kvöld. Stefanía segir það tvímælalaust veikja ríkisstjórnina að þurfa að gefa eftir í Icesave deilunni. Ef hægt er eftir allt saman að ná betri samningum en forsvarsmenn ríkisstjórnarflokkanna lögðu fram og sögðu að væri eina mögulega lausnin úr deilunni er ljóst að þeir hafi ekki haft rétt fyrir sér. Slíkt hlýtur því að veikja þá flokkana enda auðvelt að færa rök fyrir því að þeir hafi haft rangt fyrir sér.
Þegar forsetinn ákvað að senda Icesave frumvarpið til þjóðaratkvæðis var ljóst að annaðhvort stjórn eða stjórnarandstaða þyrfti að bakka. Stefanía segir ljóst að stjórnarandstaðan hafi ekki bakkað og að heldur hafi bæst í málflutning þeirra. Trúverðugleiki ríkisstjórnarinnar fer þverrandi á meðan kjósendur telji hægt að ná fram betri samningum en ríkisstjórnin samþykkti.
Stefanía segir ljóst að einhverjar breytingar eigi eftir að verða á ríkisstjórninni á næstu mánuðum en að ólíklegt megi telja að einhver stjórnarandstöðuflokkanna verði dreginn inn í nýtt samstarf. Flokkarnir þurfa að ganga til kosninga og endurnýja umboð sitt.
15.mar. 2010 - 19:12
Breska fjármálaeftirlitið hefur ákært hjón fyrir innherjasvik sem áttu sér stað á árunum 2000 - 2009. Eiginmaðurinn starfaði í breskum fjárfestingarbönkum á þessum árum og er grunaður um að hafa nýtt sér upplýsingar sem hann fékk vegna starfs síns til að hagnast á hlutabréfakaupum. Maðurinn vann í nokkur ár hjá Dresdner Capital en síðasta árið hjá fjárfestingarbankanum Shore Capital.
15.mar. 2010 - 18:18
Erlendir foreldrar lítils barns sem talið er að hafi skaðast af því að vera hrist harkalega, hafa verið úrskurðaðir í farbann. Fósturfaðir barnsins er eftirlýstur í Póllandi fyrir ofbeldisglæpi og og fjársvik.
15.mar. 2010 - 18:15
Tveir krabbameinslæknar hafa sagt upp störfum á Landspítala-háskólasjúkrahúsi og verða þeir báðir hættir störfum í september. Hafa þeir fengið vinnu í útlöndum. Formaður Læknafélags Íslands segir sérfræðilækna horfa í æ meiri mæli til útlanda og að víða stefni í óefni innan heilbrigðiskerfisins.
15.mar. 2010 - 17:33
Ekki stendur á Hollendingum og Bretum að hefja viðræður að nýju við Íslendinga um lausn á Icesave-málinu. Hins vegar sé enn beðið eftir tillögum frá Íslandi.
15.mar. 2010 - 16:44
William Fall, fyrrverandi forstjóri Straums fjárfestingabanka, hefur verið ráðinn í lykilstöðu hjá alþjóðasviði eins stærsta banka í heimi, Royal Bank of Scotland. Er Fall ætlað að æðsti yfirmaður alþjóðasviðs samsteypunnar (e. Global Head of Financial Institutions Group).
15.mar. 2010 - 16:21
Það hefur varla farið framhjá neinum manni að bensínlítrinn er í dag kominn yfir 200 krónur á flestum bensínstöðvum landsins. Öfugt við það sem gerðist árið 2000, þegar lítrinn fór fyrst yfir 100 krónur, hefur lítið örlað á kröfum um lækkaðar álögur. Meðal þeirra sem létu hæst heyra í sér á þeim tíma var núverandi forsætisráðherra.
15.mar. 2010 - 15:09
Upplýsingaveitan Wikileaks birtir í dag 512 blaðsíðna kröfuhafalista Kaupþings og boðar um leið að frekari birting trúnaðargagna sé væntanleg.
15.mar. 2010 - 14:15
Unnið er að því að innkalla tugþúsundir auglýsingabæklinga frá norska fyrirtækinu Princess eftir að það uppgötvaðist að í auglýsingu fyrir barnasængurföt að þar liggur bók um kynlífsleikföng.
15.mar. 2010 - 12:55
Skýrsla rannsóknarnefndar Alþingis um bankahrunið verður „stjórnsýsluúttekt samin af sérfræðingum í stjórnsýslu“, segir heimildarmaður Pressunnar. Í nefndina vanti fólk með bakgrunn úr viðskiptum. Skýrslan er að koma úr prentun og á meðan er rannsóknarnefndin þögul sem gröfin.
15.mar. 2010 - 11:47
Eiríkur Bergmann stjórmálafræðingur, segir að hann sjái ekki betur en að skuldir almennings hafi átt að lækka við niðurfærslu lána úr gömlu bönkunum yfir í þá nýju. Féð sé hins vegar notað til að fella niður skuldir óreiðumanna. Hann spyr hvort það heiti ekki eitthvað þegar fé er freklega hrifsa af fólki nánast í skjóli nætur.
15.mar. 2010 - 10:59
Hálfsextug nunna í Skotlandi fékk óvæntan arf nýverið; eitt stykki hóruhús í Austurríki. Kom í ljós að móðir nunnunnar hafði um árabil rekið það með góðum hagnaði.
15.mar. 2010 - 10:08
Árni Páll Árnason félagsmálaráðherra vísar á bug ásökunum Samtaka lánþega um að hann gangi erinda fjármögnunarfyrirtækja. Stjórnvöld láti hvorki lánþega njóta lakari kjara en þeir geti fengið með hjálp dómstóla né ívilni eignaleigum á nokkurn hátt.
15.mar. 2010 - 08:53
Stórsýningin Netið 2010 í Vetrargarðinum í Smáralind varð upptakturinn að árshátíð fyrirtækja á íslenskum netmarkaði sem haldin verður að ári liðnu. Þúsundir gesta lögðu leið sína á sýninguna um helgina.
15.mar. 2010 - 08:34
Lögreglan í Gautaborg handtók í nótt mann sem hafði hótað því að fremja fjöldamorð í Konunglega Tækniháskólanum í Stokkhólmi í dag. Lögreglan rakti slóð hans á netinu.
15.mar. 2010 - 07:50
Samtök lánþega segja að tillögur félagsmálaráðherra um lækkun bílalána í 110% af söluandvirði bifreiða gagnist fjármögnunarfyrirtækjunum sjálfum. Erfitt sé að átta sig á hverra hagsmuna ráðherrann sé að gæta.
15.mar. 2010 - 07:40
Verið er að leggja lokahönd á skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis en heimildir herma að hún verði ekki eins kolsvört og látið var að liggja. Sölvi Tryggvason segir í pistli á Pressunni að einn svonefndra hrunmanna spái því að lesendur sem þoli sig ekki verði svekktir.
15.mar. 2010 - 07:00
Áströlsk kona er sökuð um að hafa myrt eiginmann sinn á heimili þeirra í Sydney, Ástralíu. Þetta þætti ekki í frásögur færandi hér hinum megin á hnettinum nema vegna þess að konan er níutíu og tveggja ára og manninn vantaði tvö ár í hundrað.
14.mar. 2010 - 22:08
Skiptastjóri Fons vill að Landsbankinn, Arionbanki og skilanefnd Glitnis leggi fram tryggingarfé vegna mögulegrar kyrrsetningar hjá Jóni Ásgeiri Jóhannessyni. Um er að ræða riftunarkröfu á milljarðsgreiðslu til Jóns Ásgeirs.
14.mar. 2010 - 20:22
Sigurður G. Guðjónsson lögmaður skýtur föstum skotum að skiptastjóra Fons í Pressupistli, gefur í skyn að gerningar hans og starfshættir standist ekki skoðun og að hann hafi ásamt aðstoðarmönnum sínum tryggt sér tugmilljóna króna þóknun með sölu hlutabréfa úr þrotabúinu.
14.mar. 2010 - 20:02
Mohamed Nasheed, forseti Maldivíeyja, fullyrðir að alþjóðlegt samsæri reyni að grafa undan trúverðugleika vísindamanna sem færa rök fyrir hnattrænni hlýnun. Stórfyrirtæki kosti miklu til við spuna sem sýni fram á annað.