09. júl. 2012 - 18:30

Snjallsímar auðvelda lífið en eru um leið tímaþjófar og streituvaldar - Myndband

Farsíminn býr yfir stöðugt fleiri aðgerðum sem eiga þátt í því að gera mönnum lífið auðveldara. En svokallaðir snjallsímar geta einnig átt þátt í því að valda alvarlegri streitu hjá þeim sem eiga erfitt með að leggja hann frá sér.

Snjallsíminn er vissulega snjallt tæki en hann er líka tímaþjófur,

segir Bjarne Toftegard, danskur streituráðgjafi.

Hann dregur athyglina frá vinnu þinni og fjölskyldunni þegar þú verð tíma með henni,

segir Toftegard.

Hann segir eftirtalin ráð gulls ígildi:

Taktu af hljóðið þegar ný sms-skilaboð berast. Skoðaðu skilaboðin eingöngu þegar þú hefur tíma til þess. Sjáðu til þess að síminn sæki ekki nýjan tölvupóst sjálfvirkt. Stjórnaðu því sjálfur hvenær þú sækir póstinn þinn. Reyndu að skipuleggja snjallsímanotkunina. Gerðu það upp við þig hvenær þú ert með símann á þér. Er til dæmis ekki skynsamlegt að slökkva á honum þegar þú ert með fjölskyldunni.

 

Ertu með athyglisverða ábendingu eða frétt sem á heima á Pressunni?
Sendu okkur póst á pressan@pressan.is - Fyllsta trúnaðar gætt, sé hans krafist.



19.maí 2013 - 18:00

7 hlutir sem allar konur ættu að prófa fyrir þrítugt

Öll þroskumst við á lífsleiðinni. Við prófum margt og lærum á því sem við gerum. Sumt gengur upp, annað ekki … En, það sem gerir lífið svo skemmtilegt og fallegt er einmitt að horfa til baka og sjá að við prófuðum þó. Hér eru nokkrir hlutir sem allar konur ættu að prófa fyrir þrítugt:
19.maí 2013 - 17:00

Arsenal hélt fjórða sætinu og fer í Meistaradeildina á næsta tímabili

Arsenel tekur þátt í Meistaradeild Evrópu á næsta tímabili. Lokaumferð ensku úrvalsdeildarinnar fór fram í dag þar sem einni spurningu var enn ósvarað. Lundúnalið Arsenal og Tottenham áttu í harðri baráttu um hið eftirsótta fjórða sæti, sem gefur jú sæti í Meistaradeild Evrópu.
19.maí 2013 - 16:55

Alex Ferguson lokaði ferlinum með markasúpu í leik númer 1500

Ferguson kvaddi enska boltann í dag. Í dag stýrði Alex Ferguson liði Manchester United í sínum síðasta leik á ferlinum. Það var vægast sagt mikið skorað á heimavelli WBA, The Hawthorns, í dag en leikurinn endaði með ótrúlegu 5-5 jafntefli. Ferguson að kveðja enska boltann með stæl!
19.maí 2013 - 15:30

Nautalundir notaðar sem gjaldmiðill í undirheimunum

Á skilti í einni Bónusverslun í Reykjavík segir: „Viðskiptavinir athugið. Nautalundir eru afgreiddar af lager. Vinsamlegast snúðu þér að næsta starfsmanni".  Er þetta gert til að reyna stemma stigu við þjófnaði á dýrari kjötvörum.
19.maí 2013 - 14:30

Tvöfaldur sigur Mjölnismanna á Írlandi

Stærri mynd má sjá hér að neðan. Það voru fleiri en Eyþór Ingi í sviðsljósinu á erlendri grundu í gærkvöldi. Á sama tíma og Eyþór tjáði fólki í Svíþjóð að hann ætti líf börðust tveir Mjölnismenn í blönduðum bardagaíþróttum í Dublin. Brynjólfur Ingvarsson og Damian Zorczykowski unnu báðir sína bardaga.
19.maí 2013 - 14:00

Gallað landbúnaðarkerfi: Íslenskir neytendur greiða eitt hæsta verð fyrir landbúnaðarafurð

Margrét Kristmannsdóttir, formaður SVÞ – Samtaka verslunar og þjónustu, segir að það hafi ekki komið sér á óvart að tillögur verkefnisstjórnar Samráðsvettvangs um aukna hagsæld hafi ekki fallið í kramið hjá formanni Bændasamtakanna.
19.maí 2013 - 12:45

Of fallegur til að geta verið hryðjuverkamaður

Dzokhar Tsarnaev sem framdi hryllileg ódæðsverk ásamt Tamerlan eldri bróður sínum í Boston á hóp aðdáenda sem hafa stofnað síður honum til heiðurs á netinu. Á vef Huffington Post segir að aðdáendurnir séu flestir unglingsstúlkur sem telja óhugsandi að svona myndarlegur ungur maður hafi hugsanlega skipulagt hræðilegar árásir á saklausa borgara.
19.maí 2013 - 11:00

Björn Bragi var tekinn í yfirheyrslu í morgun

Björn Bragi Arnarsson er fæddur árið 1984.  Hann er stúdent frá Verzlunarskóla Íslands og þá er hann með BSc-gráðu í viðskiptafræði frá Háskólanum í Reykjavík. Björn var fyrr í vetur kosinn sjónvarpsmaður ársins fyrir frammistöðu sína sem stjórnandi Týndu kynslóðarinnar og hlaut hann Edduna fyrir.
19.maí 2013 - 09:00

Öflugustu herskip sögunnar: Hvar eru bandarísku Nimitz-flugvélamóðurskipin stödd einmitt núna?

Öflugustu herskip sögunnar fyrr og síðar eru bandarísku flugvélamóðurskipin af Nimitz-gerð. Þau eru sjálf lítt vopnuð miðað við stærð og bera aðeins fáeina litla skotpalla með loftvarnaflaugum eða -byssum. En um borð eru líka um það bil níutíu þyrlur og flugvélar af flestum stærðum og gerðum, og það eru þessar vélar sem gera Nimitz-skipin að þeim ógnarlegu vopnum sem þau eru.
18.maí 2013 - 23:30

Beckham grét er honum var skipt útaf í sínum síðasta leik á ferlinum

Tilfinningaþrungið augnablik! Í kvöld lék David Beckham sinn síðasta fótboltaleik á ferlinum þegar hann leiddi lið PSG til 3-1 sigurs gegn Brest í franska boltanum. Beckham, sem bar fyrirliðaband PSG í leiknum í kvöld, var tekinn útaf á 83. mínútu og táraðist þá öll stúkan, líkt og Englendingurinn sjálfur.
18.maí 2013 - 22:25

Danir unnu Eurovision með glæsibrag

Eins og flestir Íslendingar vita fór Söngvakeppni Evrópskra Sjónvarpsstöðva fram í kvöld. Eyþór Ingi söng fyrir Íslands hönd og stóð sig frábærlega en það var hinsvegar Emelie de Forrest sem söng sig inn í hjörtu Evrópubúa með framlagi Danmerkur Only Tearsdrop.
18.maí 2013 - 22:00

Eurovision: Það besta af Twitter og Facebook - „Hvar eigum við að halda þetta 2014?“

Samskiptasíðurnar Twitter og Facebook loguðu á meðan söngvarar stigu á svið í Eurovision-keppninni. Líflegar umræður fóru fram um lögin og á báðum samskiptasíðunum mátti finna skemmtilega gullmola um hina ýmsu listamenn í keppninni.
18.maí 2013 - 20:30

Staðan eftir fyrri hring á fyrsta stigamóti sumarsins

Kylfingar í Þorlákshöfn í dag Kylfingar á Íslandsbankamótaröðinni þurftu að glíma við ansi erfiðar aðstæður á Þorlákshafnarvelli í dag þegar slegið var til leiks á fyrsta stigamóti sumarsins. Það er þó óhætt að segja að kylfingarnir ungu hafi komið vel undirbúnir til leiks því sjá mátti frábær tilþrif og mörg mjög góð skor.
18.maí 2013 - 20:00

Forgangsverkefni nýrrar ríkisstjórnar

Helstu verkefni nýrrar ríkisstjórnar eiga að felast í því að takmarka stærð fjármálastofnana, stytta vinnutíma, draga úr álagi á umhverfið og stórefla lýðræðið. Þetta segir Kristinn Már Ársælsson í lýðræðisfélaginu Öldu. Eyjan hefur beðið hann og fleiri álitsgjafa úr þjóðfélaginu að setja á blað hver þau telja vera brýnustu verkefni nýrrar ríkisstjórnar.
18.maí 2013 - 18:30

Kveðja frá Eyþóri: Góða skemmtun í kvöld

Eyþór Ingi sem í kvöld flytur lagið Ég á líf í Eurovision-keppninni spjallaði á léttu nótunum við Davíð Lúther Sigurðarson. Þá sýndi hann skartið sem hann ber og ræddi um fataval fyrir stóru stundina.
18.maí 2013 - 17:35

Anna: Sigmundur er rómantískt ljúfmenni - Táraðist yfir ljótum ummælum

Anna Sigurlaug Pálsdóttir eiginkona  Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar segir að hún hafi um tíma tekið afar nærri sér allt baktal og ljót ummæli um eiginmann hennar í kommentakerfum fjölmiðlanna. Hún laumaðist í tölvuna á kvöldin, sat fram eftir nóttu og las ummælin með tárin í augunum.
18.maí 2013 - 16:25

Ræningjar skutu þrjá vegfarendur í Ängelholm í Svíþjóð í morgun

Af vettvangi: Sænska ríkisútvarpið segir að þrír hafi særst í skothríðinni Þrír grímuklæddir ræningjar rændu gullsmíðaverslun á Storgatan í Ängelholm á Skáni í morgunn. Eftir að þeir höfðu rænt verslunina skutu þeir mörgum skotum á fólk sem var fyrir utan verslunina og særðust þrír vegfarendur.
18.maí 2013 - 14:30

Líkfundur í Kaldbaksvík á Ströndum

Sjórekið lík fannst í fjöru í Kaldbaksvík á Ströndum í morgun. Ekki er vitað hvenær viðkomandi lést.
18.maí 2013 - 14:15

Skipting ráðuneyta: Ný ríkisstjórn að taka á sig mynd – Spáð í spilin

Stjórnarmyndunarviðræður Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks eru á lokastigi en þeim mun þó ekki ljúka fyrr en eftir hvítasunnuhelgina. Í dag og á morgun er talið að rætt verði við einstaka þingmenn. Stofnanir flokkana  verða líklega kallaðar til fundar á þriðjudag.
18.maí 2013 - 13:05

Einkennileg fagnaðarlæti Börsunga: Ætlaði Song að berja Pique?

Hvað er í gangi hér? Leikmenn Barcelona fögnuðu sigri sínum í La Liga nú á dögunum með því að keyra í gegnum Katalóníu á opnum bíl. Þar heilsuðu þeir stuðningsmönnum með tilheyrandi gleði og fagnaðarlátum. Eitthvað virðist þó hafa farið úrskeiðis um borð í bílnum.
18.maí 2013 - 12:00

Svona lítur hamborgarinn út í alvörunni

Flest gerum við okkur grein fyrir því að skyndibitamaturinn sem við kaupum lítur alltaf betur út í auglýsingunni en í raunveruleikanum. Ljósmyndarinn Dario D var hins vegar búinn að fá nóg af því að fá aldrei það sem auglýsingin lofaði honum.
18.maí 2013 - 11:10

Ingólfur Geir kominn í aðrar búðir á leið sinni á topp Everest

Ingólfur Geir Gissurarson Everest-farinn Ingólfur Geir Gissurarson kom í gær í aðrar búðir á leið sinni á toppinn. Í dag er hvíldardagur en snemma á morgun mun Ingólfur halda áfram upp í þriðju búðir. Ef allt gengur að óskum þá er stefnt að því að vera á toppnum að morgni 21. maí.
18.maí 2013 - 10:00

Fórnarlambið er enn á spítala eftir hrottalega árás í Breiðholti

Af vettvangi - skjáskot af fréttum Ríkissjónvarpsins Karlmaður sem slasaðist alvarlega þegar hópur manna réðst á hann í Breiðholti síðdegis í gær dvelur enn á sjúkrahúsi. Tveir menn hafa verið handteknir vegna árásarinnar en þeir hafa báðir hlotið dóm fyrir ofbeldisverk.
18.maí 2013 - 08:30

Mynd dagsins: Regnbogafánanum flaggað til stuðnings við hinsegin fólk

IDAHO-dagurinn, alþjóðlegur baráttudagur gegn hómó-, bi- og transfóbíu var í gær. Dagurinn hefur verið haldinn 17. maí ár hvert síðan árið 2005, en þann dag árið 1990 var samkynhneigð tekin út af sjúkdómalista Alþjóða heilbrigðisstofnunarinnar.
17.maí 2013 - 21:25

Kristur neðansjávar: Þrár stórar Jesú-styttur boða trú og kærleika hverjum kafara

Ef kristinn kafari færi að synda í flóanum San Fruttuoso á Rívíeruströnd Ítalíu, þá er hætt við að hann færi fljótlega á fund skapara síns.
17.maí 2013 - 19:30

Hrottaleg árás í Breiðholti: Landsþekktur handrukkari talinn vera einn af árásarmönnunum

Árásin átti sér stað í Breiðholti: Skjáskot af vef Ríkissjónvarpsins - af vettvangi. Karlmaður er mikið slasaður eftir að minnst þrír menn réðust á hann í Breiðholti síðdegis í dag. Íbúar við Ystasel telja að um handrukkun hafi verið að ræða en árásarmennirnir notuðu m.a. hafnarboltakylfu þegar þeir gengu í skrokk á manninum fyrir allra augum.
17.maí 2013 - 18:30

Stolin vörumerki: Nokkur áhugaverð dæmi

Það er ekki óalgengt að verðmætustu vörumerkjum heims sé stolið og þau seld undir breyttum nöfnum. Hér eru nokkur áhugaverð dæmi:
17.maí 2013 - 17:00

Kæra framkvæmd Alþingiskosninga

Þrír einstaklingar hafa kært framkvæmd nýafstaðinna Alþingiskosninga. Þeir vilja meina að undirbúningur þeirra og framkvæmd hafi ekki verið í samræmi við lög. Fleiri íhuga að leggja inn kæru.
17.maí 2013 - 16:10

Stórskemmtilegt myndband úr herbúðum Keflvíkinga

Léttur föstudagur í þessu... Þeir sem mættu á lokahóf körfuboltans í Keflavík nú á dögunum hafa eflaust skellt upp úr í þó nokkur skipti. Í myndbandinu taka leikmenn Keflavíkur krefjandi og skemmtilegar áskoranir. Þar sjáum við meðal annars Auðunn Blöndal og Gillz taka tvo leikmenn liðsins í kennslustund í bekkpressu. Logi Geirsson lætur finna fyrir sér í handboltanum og Almar Guðbrandsson, leikmaður Keflavíkinga, reynir fyrir sér í fimleikum, með vægast sagt skrautlegum árangri.
17.maí 2013 - 15:30

Eyþór Ingi: Hugsaði um dæturnar og unnustuna - Soffía táraðist á meðan hann flutti lagið

Eyþór Ingi sem í gær söng sig inn í hug og hjörtu margra Evrópubúa þakkaði Íslendingum og þá sérstaklega fólkinu í heimabæ sínum á Dalvík fyrir stuðninginn í gærkvöldi.  Þá sagðist hann hafa orðið meyr í miðju lagi þegar honum varð hugsað til dætra sinna og eiginkonu.
17.maí 2013 - 14:00

Nýr Mercedes-Benz S - stýrir sér sjálfur ef ökumaður dottar

Nýr Mercedes-Benz S-lína er og hefur ávallt verið flaggskipið í lúxusbílum af stærstu gerð. Ný kynslóð var afhjúpuð í Þýskalandi í fyrradag. Bíllinn er svo stútfullur af nýrri tækni að menn segja að nær sjálfvirkni í akstri hafi bílaframleiðendur ekki komist.

17.maí 2013 - 13:00

Pepsi-leikurinn: Tippmeistarar þriðju umferðar

Kassi af Pepsi og tveir miðar á leik í Pepsi-deildinni bíða sigurvegurum í höfuðstöðvum Vefpressunnar! Talningadeild Íþróttapressunnar var lengi að í nótt. Rétt fyrir sólarupprás lágu þó úrslit fyrir og í ljós kom að fleiri en fimm tipparar voru með alla sex leiki þriðju umferðar rétta. Það var því lítið annað í stöðunni en að draga úr hópi þeirra sannspáu. Það var sölustjóri Vefpressunnar, Guðjón Kristinsson, sem var yfirmaður dráttarins þessa vikuna. Kærur berist því til hans.
17.maí 2013 - 12:30

Efnahagsráðgjafi Obama sækir einkasamkvæmi Björgólfs

Tugir gesta sækja einkasamkvæmi sem Björgólfur Thor Björgólfsson heldur á Fríkirkjuvegi 11 í dag. Á meðal gesta er efnahagsráðgjafi Baracks Obama, Bandaríkjaforseta.
17.maí 2013 - 11:30

Sjáðu fyrsta myndskeiðið úr Íslandsþætti Simpsons-fjölskyldunnar: Norðurljós og álfar

Hljómsveitin Sigur Rós bregður fyrir í Simpsons þættinum The Saga of Carl Carlsson sem sýndur verður í Bandaríkjunum á sunnudaginn.  Nú hefur fyrsta myndskeiðið verið sett á netið og það má sjá hér fyrir neðan.
17.maí 2013 - 11:00

Guðmundur Þórarins skoraði beint úr aukaspyrnu í gær – Sjáðu markið!

Guðmundur Þórarinsson Guðmundur Þórarinsson, leikmaður Sarpsborg 08, skoraði stórglæsilegt mark gegn Rosenborg í norska boltanum í gær. Markið kom beint úr aukaspyrnu en Gummi Tóta hefur heldur betur verið að finna sig í liði Sarpsborg á þessu tímabili.
17.maí 2013 - 10:15

Lögregla kölluð til á barnaskemmtun: „Það ruddist hér inn hópur fólks í þeim tilgangi að ráðast á mig persónulega“

Myndir: Pressphotos.biz „Þetta var fólk frá barnabarninu mínu. Það ruddist hér inn hópur fólks í þeim tilgangi að ráðast á mig persónulega. Það var mjög ósmekklegt að ráðast á þjónustumiðstöðina með þessum hætti en ég bað þau um fara út.“
17.maí 2013 - 09:00

Tónlistin mun aftur óma í Kulusuk: Færa íbúum hljóðfæri á morgun

Ríkisstjórn Íslands lagði söfnuninni lið með 5 milljón króna framlagi og nú hafa safnast hátt í 10 milljónir króna. Laugardaginn 18. maí fer sendinefnd frá Íslandi til Kulusuk, á vegum Kalak, vinafélags Íslands og Grænlands, Skákfélagsins Hróksins, Flugfélags Íslands og fleiri velunnara Grænlendinga. Við þetta tækifæri verða afhent hljóðfæri, tæknibúnaður og fleiri gjafir, en tónlistarhúsið í Kulusuk brann til grunna í fárviðri í byrjun mars.
17.maí 2013 - 08:30

Banaslys á Akranesi

Banaslys varð á Akranesi í gær þegar ökumaður bifhjóls missti stjórn á hjóli sínu er hann ók austur Faxabraut á Akranesi.  Hafnaði hjólið á grjótgarði með þeim afleiðingum að maðurinn kastaðist yfir grjótgarðinn og niður í fjöru á Langasandi.
17.maí 2013 - 08:00

Leikið á skip: Fylgstu með Vessel Orchestra á netinu

Tæknin mun bjarga þeim sem ekki komast í miðbæinn í dag til að sjá einstakt átta mínútna skipaflautuverk Lilju Birgisdóttur. Lilja lofar tilkomumikilli sjón þegar hún stýrir verki sínu, Vessel Orchestra, í höfninni á Listahátíð í Reykjavík, en það er opnunarverk hátíðarinnar.
16.maí 2013 - 23:00

Sigmundur Davíð: Fráfarandi ráðherrar tala með allt öðrum hætti nú en fyrir kosningar

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, hvetur fjármálaráðuneytið til að birta fyrirliggjandi upplýsingar um stöðu ríkisfjármála. Hann segir ráðherra fráfarandi ríkisstjórnar segja allt annað í dag en þeir gerðu fyrir kosningar.
16.maí 2013 - 22:17

Gerðu hlé á sýningunni: Englar alheimsins syngja ,,Ég á líf"

Enginn á að þurfa að missa af Eurovision - hvorki leikarar né leikhúsgestir. Englar alheimsins gerðu stutt hlé á sýningu kvöldsins og sungu ,,Ég á líf" með Eyþóri og áhorfendum í beinni útsendingu á stóra sviðinu
16.maí 2013 - 21:45

Rjóminn af Twitter: „Ég fékk gæsahúð og tár í augu“ – „Átt þú ekki að vera mynda Ríkisstjórn?“

Á samskiptasíðunum Twitter og Facebook fóru fram líflegar umræður um Eurovisionkeppnina, þó Twitter hafi verið ótvíræður sigurvegari þegar kom að skemmtanagildi. Á Twitter má finna fjöldann allan af gullmolum frá íslenskum notendum sem réðu sér ekki fyrir kæti þegar framlag Íslands komst áfram í lokakeppnina sem fram fer í Malmö á laugardag.
16.maí 2013 - 21:00

Ísland komst áfram í Eurovision!

Framlag Íslands í Eurovisionkeppninni var valið eitt af tíu efstu lögunum í kvöld. Það er því ljóst að Ísland muni keppa til úrslita í aðalkeppninni á laugardaginn 18. maí. Eyþór Ingi og föruneytið stóð sig með eindæmum vel og fékk mjög góð viðbrögð hjá áhorfendum.
16.maí 2013 - 20:30

Norðmaður er víðförlasti maður heimsins: Hefur komið til allra 198 landa í heimi

Í síðustu viku lenti 37 ára gamall Norðmaður á Grænhöfðaeyjum, svolitlum eyjaklasa út af vesturströnd Afríku, sem hefur verið sjálfstætt ríki síðan 1975. Það var merkilegur áfangi því þar með taldist Norðmaðurinn, Gunnar Garfors að nafni, hafa komið til hvers einasta lands í heimi.
16.maí 2013 - 19:00

Íslenska ríkið sýknað af 53 milljarða skaðabótakröfu

Íslenska ríkið var í dag sýknað af 53 milljarða króna skaðabótakröfu þýska bankans DekaBank. Niðurstaðan er að líkindum fordæmisgefandi.
16.maí 2013 - 18:00

Mikael Torfason stýrir öllum fréttaflutningi 365

Allar fréttastofur 365 Miðla verða settar undir einn hatt og hefur Mikael Torfason verið ráðinn yfirmaður nýrrar fréttastofu fyrirtækisins. Starfsmönnum 365 var tilkynnt þetta á starfsmannafundi í dag.
16.maí 2013 - 17:10

Átta ára fangelsi fyrir að misnota tvö börn ítrekað: Stóð yfir í 13 ár

Maðurinn byrjaði að misnota drenginn árið 1997. Hæstiréttur dæmdi í dag karlmann í átta ára fangelsi fyrir margítrekuð og svívirðileg kynferðisbrot gegn tveim börnum. Hæstiréttur taldi rétt að þyngja dóminn en maðurinn var dæmdur til sjö ára fangelsisvistar í Héraðsdómi Reykjavíkur í nóvember sl.
16.maí 2013 - 16:25

Yfirlýsing frá David Beckham: „Nú er komið að mér að gefa til baka“

Beckham er hættur í boltanum Knattspyrnumaðurinn David Beckham gaf það út í dag að hann væri búinn að leggja skóna á hilluna frægu. Beckham, sem varð 38 ára fyrr í þessum mánuði, varð franskur meistari með PSG nú á dögunum. Hann þakkar fjölskyldu sinni í bak og fyrir í yfirlýsingu sem kappinn sendi frá sér í dag.
16.maí 2013 - 15:25

Áhugaljósmyndarinn sem var óvart titlaður bæjarstjóri Ólafsfjarðar

Gísli Kristinsson (52 ára) er mjög hæfileikaríkur áhugaljósmyndari sem búsettur er á Ólafsfirði. Hann vinnur sem húsvörður og kerfisstjóri í Menntaskólanum á Tröllaskaga en þegar hann er ekki í skólanum er hann yfirleitt á fullu að taka myndir af öllu mögulegu.
16.maí 2013 - 13:55

David Beckham hættur í fótbolta

David Beckham hefur gefið það út að hann sé hættur allri knattspyrnuiðkun. Sportsmail greindi fyrst frá þessu um klukkan tvö í dag en nú hefur Beckham sjálfur staðfest þessar sögusagnir. Þessi 38 ára gamli Englendingur hefur því spilað sinn síðasta fótboltaleik á ferlinum.


Sena_eBækur_Inferno
Pressupennarvinsælast í vikunni
Brynjar Nielsson
Brynjar Nielsson - 15.5.2013
Frekja?
Vilhjálmur Birgisson
Vilhjálmur Birgisson - 14.5.2013
Hamast á Sigmundi Davíð
Vilhjálmur Birgisson
Vilhjálmur Birgisson - 15.5.2013
Ógeðsleg pólitík
Brynjar Eldon Geirsson
Brynjar Eldon Geirsson - 13.5.2013
Óskiljanleg ákvörðun hjá Garcia á Players
Ólafur Már Sigurðsson
Ólafur Már Sigurðsson - 13.5.2013
Golf fyrir alla 3 (Brautarholtsvöllur) 5. hola - Myndband
Bubbi Morthens
Bubbi Morthens - 19.5.2013
Viktor Hólm
Sverrir Björn Þráinsson
Sverrir Björn Þráinsson - 13.5.2013
Grenningarhollráð Sverris
Ólafur Már Sigurðsson
Ólafur Már Sigurðsson - 14.5.2013
Lærðu vipp úr háu grasi - Myndband
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Hannes Hólmsteinn Gissurarson - 13.5.2013
Kúgun, flekun og nauðgun
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Hannes Hólmsteinn Gissurarson - 15.5.2013
Rangfeðruð skammaskrif
Fleiri pressupennar
Bubbi Morthens
Bubbi Morthens - 09.5.2013
Barmafull kokteilglös full af fordómum
Björn Jón Bragason
Björn Jón Bragason - 11.5.2013
Magnþrungin ræða
Brynjar Nielsson
Brynjar Nielsson - 15.5.2013
Frekja?
Vilhjálmur Birgisson
Vilhjálmur Birgisson - 14.5.2013
Hamast á Sigmundi Davíð
Sigurður G. Guðjónsson
Sigurður G. Guðjónsson - 12.5.2013
Good old times are back
Vilhjálmur Birgisson
Vilhjálmur Birgisson - 15.5.2013
Ógeðsleg pólitík
Vilhjálmur Birgisson
Vilhjálmur Birgisson - 10.5.2013
Vantraust á forseta ASÍ
Sigurður G. Guðjónsson
Sigurður G. Guðjónsson - 09.5.2013
Báknið er of stórt
Brynjar Eldon Geirsson
Brynjar Eldon Geirsson - 13.5.2013
Óskiljanleg ákvörðun hjá Garcia á Players
Ólafur Már Sigurðsson
Ólafur Már Sigurðsson - 13.5.2013
Golf fyrir alla 3 (Brautarholtsvöllur) 5. hola - Myndband
Þórhallur Heimisson
Þórhallur Heimisson - 12.5.2013
Fimmti hringur Vítis
Bubbi Morthens
Bubbi Morthens - 19.5.2013
Viktor Hólm
Sverrir Björn Þráinsson
Sverrir Björn Þráinsson - 13.5.2013
Grenningarhollráð Sverris
Ólafur Már Sigurðsson
Ólafur Már Sigurðsson - 14.5.2013
Lærðu vipp úr háu grasi - Myndband
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Hannes Hólmsteinn Gissurarson - 13.5.2013
Kúgun, flekun og nauðgun
Fleiri pressupennar