01. feb. 2012 - 13:30
Skráðu niður nöfn íslenskra kvenna: 150 konur á „mjög lágu siðferðisstigi“ - Vildu flytja inn vændiskonur

Hermenn við æfingar á sandskeiði. US Army/Ljósmyndari ókunnur
Íslensk stjórnvöld höfðu svo miklar áhyggjur af umgengni íslenskra kvenna við erlenda hermenn að lögreglan skráði nöfn 500 kvenna sem áttu í „nánum samskiptum“ við setuliðið. Af þeim voru 150 taldar á „mjög lágu siðferðisstigi“. Til greina kom að flytja inn vændiskonur til landsins.
Þetta kemur fram í
lokaritgerð Írisar Cochran Lárusdóttur í sagnfræði við Háskóla Íslands. Ritgerðin ber nafnið
Það er draumur að vera með dáta og er vísun í frægt ljóð Bjarna Guðmundssonar. Ritgerðin leiðir hins vegar í ljós að fyrir margar konur voru samskiptin við dátana síður en svo draumur, ekki síst fyrir tilstilli íslenskra karlmanna.
Viðbrögð íslenskra karlmanna og stjórnvalda við komu breska herliðsins einkenndust af móðursýki, svo vægt sé til orða tekið. Ekki var liðinn sólarhringur síðan Bretarnir komu til landsins þar til finna mátti niðrandi ummæli í garð íslenskra kvenna í dagblöðunum.
Þannig lýsti Alþýðublaðið áhyggjum sínum af hegðun „siðlausra kvenna“ og Morgunblaðið sagði frá því að „götudrósir“ hafi gert sér dælt við hermenn svo að „velsæmdu fólki ofbauð“. Var stungið upp á því að stúlkurnar yrðu fluttar á afskekktan stað til að vinna og búa við strangan aga.
Vilmundur Jónsson, þáverandi landlæknir, lét málið til sín taka og varaði stjórnvöld sterklega við þróun mála. Sagði hann fjölda kvenfólks „allra lægsta þrepi skækjulifnaðar“. Þótt það væri svo sem ekki nýtt myndi vera setuliðsins eingöngu sína fram á hversu veikt íslenskt kvenfólk var á svellinu.
Lagði hann til líkt og Morgunblaðið að lögreglan hefðu hendur í hári þeirra kvenna sem lifðu og vændi og sendi þær á „vinnuhæli á afskekktum stað og léti þær búa þar við holla vinnu, gott atlæti og heilbrigðan aga“.
Rauði þráðurinn í báðum bréfum Vilmundar var að mikilvægt væri að takmarka sem mest samskipti kvenna og hermanna. Kjarninn í máli hans var að setja ungar stúlkur í nokkurs konar sóttkví enda sækti að þeim eins konar farsótt.
Í kjölfarið skipaði Hermann Jónasson sérstaka nefnd sem gera átti ítarlega rannsókn á ástandsmálum Í ritgerð Írisar segir:
Til grundvallar skýrslunni lágu rannsóknir lögreglunnar en hún hafði skrásett nöfn rösklega 500 kvenna sem talið var að hefðu „mjög náin afskipti af setuliðinu“. Athyglisvert er að konurnar voru á aldrinum allt frá 12 til 61 árs og hefur lögreglan því augljóslega fylgst með fjölda fulltíða kvenfólks. Af þessum 500 konum voru 150 taldar á „mjög lágu siðferðisstigi“.
Það var álit nefndarinnar að þessar 500 konur væru aðeins 20 prósent þeirra kvenna sem ungengjust setuliðið. Var sú ályktun dregin að hátt í 2.500 konur væru í ástandinu. Óttuðust nefndarmenn að kvenfólkið sækti meira í erlenda menn en innlenda og hyrfi þar af leiðandi af landi brott. En nefndin beindi einnig spjótum sínum að íslenskum karlmönnum.
Nefndin vildi þó að það kæmi skýrt fram að hér væri einnig við íslenska karlmenn að sakast því „að konur gerast ekki vændiskonur nema fyrir tilverknað karlmanna og ruddaskapur íslenskra karlmanna í umgengni við konur hefur síst verið til þess fallinn að skapa háttvísi og fagra siðu meðal íslenskra kvenna“. Lögreglan hafði raunar sterkan grun um að íslenskir karlmenn væru oftar en ekki milliliðir í viðskiptum kvenna við hermenn.
Ekki er þó að finna heimildir um að íslenskur karlmaður hafi verið handtekinn fyrir milligöngu um vændi fyrir hermenn, en sekt íslenskra karla var ekki rædd nánar opinberlega af stjórnvöldum. Bretar tóku skýrsluna óstinnt upp og féllust ekki á niðurstöður hennar.
Í greinargerð ástandsnefndarinnar, sem gerð var eftir að skýrslan kom út, var bresku hermönnunum komið til varnar og jafnvel lagt til að hingað yrðu fluttar inn vændiskonur.
Nefndarmenn tóku þó skýrt fram í greinargerðinni að ekki væri að sakast við setuliðsmennina sjálfa, þeir væru nú einu sinni karlmenn með eðlislægar hvatir. Þetta kristallaðist í einni tillögu nefndarinnar en þar lagði hún til að skoðað yrði hvort ekki væri hægt að óska eftir því að setuliðið flytti inn konur til að fullnægja kynþörf hermanna.
Viðbrögðin við ástandinu voru hins vegar mun ýktari og harðari en tilefni var til. Mikill ótti var við kynsjúkdóma, en tölur sýna sýfilistilfellum fjölgaði úr 14 í 142 á árunum 1939 til 1942. Þar af voru ekki nema 19 konur og smituðust 15 þeirra af íslenskum karlmönnum.
Svipaða sögu er að segja af lekandatilfellum en konur voru 48 af 246 sjúklingum. Er því greinilegt að karlmönnum hefði verið nær að „líta í eigin barm í þessum málum“
Þrátt fyrir að íslenskir karlmenn væru augljóslega í meirihluta þegar kom að kynsjúkdómum lágu íslenskar stúlkur frekar undir grun. Þær hafa greinilega þótt líklegri til að stunda kynlíf og lifa lausungarlífi, eins og sést af reikningum læknanna.
Það sama má segja um tölur yfir fæðingu óskilgetinna barna, en tölur sýna að íslenskar konur höfðu ekki meiri tilhneigingu til að eignast börn utan hjónabands á ástandsárunum heldur en fyrir stríð, þrátt fyrir sífelldar ásakanir um aukið lauslæti þeirra.
Í ritgerðinni segir að þessi hörðu viðbrögð megi að hluta rekja til afbrýðisemi íslenskra karla sem hafi misst einokunarstöðu sína á markaði, en stóran hluta skýringarinnar megi þó rekja til þjóðernishygmynda Íslendinga. Í niðurstöðum sínum segir Íris:
Íslenska þjóðin var aldrei í raunverulegri útrýmingarhættu á styrjaldarárunum. Að baki óttans við þessa hættu og aðgerðir til að stemma stigu við henni lá augljóslega hugmyndafræðin um hlutverk kvenna í íslensku samfélagi. Þær töldust landamæraverðir íslenskrar menningar og þjóðernis, á herðum þeirra væri framtíð Íslendinga. Því væri svo mikilvægt að þær menguðu ekki hinn íslenska kynstofn.
Ertu með athyglisverða ábendingu eða frétt sem á heima á Pressunni?
Sendu okkur póst á
pressan@pressan.is - Fyllsta trúnaðar gætt, sé hans krafist.
23.maí 2012 - 10:50
Englendingurinn Gary Martin frá Middlesbrough, sem hefur farið á kostum með liði Skagamanna í úrvalsdeildinni í upphafi keppnistímabilsins, er að drepast úr leiðindum á Akranesi, þar sem honum finnst ekkert hægt að gera. Hann segist þurfa að búa í Reykjavík.
23.maí 2012 - 10:10
Arion banki hagnaðist um 4,5 milljarða króna fyrstu þrjá mánuði ársins eftir skatta samanborið við þriggja milljarða kr. hagnað á sama tímabili í fyrra. Hagnaður bankans er því 1,5 milljarður kr. á mánuði það sem af er ári.
23.maí 2012 - 09:26
Pistill eftir Ölmu Rut Lindudóttir sem birtist á Bleikt hér á Pressunni í vikunni hefur vakið gríðarlega athygli og viðbrögð. Fjölmargir hafa gengið til liðs við hóp sem Alma Rut hefur sett á laggirnar sem hefur það að markmiði að sett verði upp útiskýli fyrir útigangsfólk í borginni.
22.maí 2012 - 22:44
Íslendingar eru í skýjunum með frammistöðu íslensku keppendanna Grétu og Jónsa í forkeppni Eurovision í Bakú í kvöld, en íslenska lagið komst áfram í lokakeppnina sem haldin verður á laugardagskvöld.
22.maí 2012 - 21:05
Ísland komst áfram í lokakeppni söngvakeppni Evrópu eftir mikla spennu í kvöld. Flutningur Grétu Salóme og Jónsa á laginu Never Forget þótti takast einstaklega vel. Íslendingar verða því meðal þjóða í úrslitakeppninni næstkomandi laugardagskvöld.
22.maí 2012 - 20:00
Ólafur Arnarson hagfræðingur gerir gys að þeim málflutningi útgerðarinnar að það hámarki afrakstur þjóðarinnar af sjávarútvegi að virðiskeðjan í greininni sé óslitin og öll á einni hendi. Í nýjum Pressupistli líkir hann óslitinni virðiskeðju í sjávarútvegi við miðstýrðan áætlunarbúskap í Sovétríkjunum sálugu.
22.maí 2012 - 17:23
Tveir fangar á Litla Hrauni hafa verið færðir í einangrunarvist á Litla Hrauni, grunaðir um að hafa veitt fanga alvarlega áverka með þeim afleiðingum að hann lést í fyrri viku.
22.maí 2012 - 17:00
Gunnar Birgisson, fyrrum stjórnarformaður Lífeyrissjóðs Kópavogs, og Sigrún Ágústa Bragadóttir framkvæmdastjóri sjóðsins, voru í dæmd til greiðslu 150.000 kr. sektar hvor fyrir ranga upplýsingagjöf til Fjármálaeftirlitsins. Málskostnaðurinn nam yfir átta milljónum kr. og var hann að mestu greiddur úr ríkissjóð. Gunnar segir að dómurinn hafi komið sér á óvart.
22.maí 2012 - 15:51
Sjálfur tel ég að tólf ár séu eðlilegur og jafnvel æskilegur tími í þessu embætti og er það drjúgur spölur í starfsævi manns, sagði dr. Kristján Eldjárn í nýársávarpi sínu 1. janúar 1980, er hann tilkynnti þjóðinni að hann hygðist hverfa úr embætti eftir tólf ár á forsetastóli.
22.maí 2012 - 15:00
Nýlega var ákveðið að loka 16 kirkjum í Kaupmannahöfn og margar kirkjur hafa einnig verið lokaðar á Jótlandi. Ástæðan er sú að prestar messa í síauknum mæli fyrir tómum bekkjum. Í Árrósum hefur fasteignasali nú þegar selt þrjár kirkjur sem tilheyra fríkirkjusöfnuðinum þar í landi og segir hann mikinn áhuga á kaupum á hefðbundnum þjóðkirkjum einnig.
22.maí 2012 - 14:10
Uppboðshaldari hjá Bruun Rasmussen í Danmörku segir í viðtali við Jyllandsposten að hann efist um að nokkur Dani hafi bolmagn til að eignast taflborð, taflmenn, skákklukku og borð sem Bobby Fischer og Boris Spassky tefldu við í einvígi aldarinnar í Reykjavík 1972. Munirnir verða boðnir upp hjá Bruun Rasmussen 14. júní næstkomandi.
22.maí 2012 - 12:11
„Ef hótun af þessum toga á að vera trúverðug þarf samfélagið að vera tilbúið að hóta höftum til áratuga. Hver er tilbúinn til þess?“ spyr Árni Páll Árnason, þingmaður og fyrrum efnahags- og viðskiptaráðherra sem telur svokallaða „íslensku leið“ Róberts Wessman óraunhæfa.
22.maí 2012 - 11:29
Kaupmáttur launa hefur aukist um 5,1% á síðastliðnum tólf mánuðum. Í mars hafði hann ekki verið jafnmikill síðan á hinu mikla neysluári 2007. Íslandsbanki telur hins vegar blikur á lofti og telur að verðlag hækki mun hraðar en laun þegar líður fram á haustið.
22.maí 2012 - 10:45
Hraðakstursbrotum og fíkniefnabrotum hefur snarlega fjölgað fyrstu fjóra mánuði ársins miðað við sama tímabil í fyrra. Í fyrra voru skráð 494 fíkniefnabrot á landinu fyrstu fjóra mánuðina en 650 fyrstu fjóra mánuði þessa árs.
22.maí 2012 - 09:30
72,4% allra sem svöruðu spurningum í skoðanakönnun Félags íslenskra bifreiðaeigenda, FÍB, aka sjálfir til og frá vinnu.
22.maí 2012 - 07:45
Ríkisolíufélag Noregs, Statoil, leggur nú mesta áherslu á aukna nýtingu úr þeim olíusvæðum þar sem vinnsla fer fram. Frá árinu 2010 til 2011 jókst nýtingin úr 49% í 50%. Þetta virðist lítil aukning en hún skilaði samt gríðarlegum verðmætum í ríkiskassann norska.
21.maí 2012 - 21:00
Það er þekkt að allt að 6 metrar langir bandormar geta lifað góðu lífi í innyflum fólks en í ljós hefur komið að lirfur þeirra eru jafnvel enn skaðlegri. Þær komast í heila manna og geta þar nærst á heilavefjum án þess að hýsillinn verði þess var. Heilabandormar, sem einnig kallast innsíklar, herja gjarnan á miðtaugakerfið og eru til umfjöllunar í nýjasta hefti Discover Magazine.
21.maí 2012 - 18:43
Hagfræðingarnir Ólafur Ísleifsson og Lilja Mósesdóttir, sem einnig er alþingismaður, fagna hugmyndum Róberts Wessman um svokallaða íslenska leið í gjaldeyrismálum þjóðarinnar. Lilja segir erlendra krónueign valda stöðugum þrýstingi til lækkunar á gengi krónunnar og það þýði rýrnun lífskjara og hærri verðbólgu.
21.maí 2012 - 18:00
Sá óvenjulegi atburður varð í dag að það slokknaði á Ólympíukyndlinu aðeins þremur dögum eftir að hann kom til Englands. Kyndillinn var við hlið hjólastóls David Folletts, sem er meistari í badminton fatlaðra.
21.maí 2012 - 16:58
Bjölluónæði er hvimleitt og ekki síst ef það á sér stað að næturlagi. Lögreglan er stundum kölluð til í slíkum málum og svo var einmitt raunin þegar íbúum fjölbýlishúss í Kópavogi var nóg boðið.
21.maí 2012 - 15:00
Verð á hlutabréfum í Facebook féll um 12% frá upphaflegu sölugengi þegar Nasdaq markaðurinn opnaði í dag. Upphaflegt gengi var 38 dollarar á hlut en strax við upphaf viðskipta féll það niður í 33,28 dollara.
21.maí 2012 - 13:45
Mistur hefur legið yfir höfuðborgarsvæðinu í gær og dag, 20. og 21. maí. Um er að ræða svifryk sem berst frá öskufallssvæðinu fyrir austan fjall.
21.maí 2012 - 12:45
Nokkrir helstu leiðtogar heims hittust á leiðtogafundi G8-ríkjanna í Camp David um síðustu helgi. Þeir stóðust ekki mátið og horfðu á vítaspyrnukeppnina í úrslitaleik Evrópumótsins í fótbolta á milli Bayern Munchen og Chelsea sem fram fór í Þýskalandi sl. laugardag.
21.maí 2012 - 11:30
Veiking á gengi krónunnar heldur áfram að gera okkur Íslendingum lífið leitt og nú hafa Íslenskar getraunir hafa ákveðið að hækka röð hverrar raðar í getraunum um 1 krónu, úr 17 krónum í 18 krónur. Tekur hækkunin gildi í dag, mánudaginn 21. maí 2012.
21.maí 2012 - 10:33
Hægt er að kaupa flugfarmiða til London og tilbaka eftir fjórar vikur á 31.400 krónur með Iceland Express. Ef flugið hefði verið bókað 21. mars sl. þá hefði WOW air verið ódýrasti kosturinn og verðið 39.544 krónur. Það borgar sig því ekki alltaf að kaupa flugmiðann með löngum fyrirvara.
21.maí 2012 - 09:29
Stjórnvöld í Quebec-fylki samþykktu um helgina neyðarlög til að koma hömlum á stúdentaóeirðirnar sem hafa geisað síðan um miðjan febrúarmánuð. Lögin fela í sér lokun nokkurra háskóla og fjársektir sem nema allt að fjórum milljónum króna fyrir mótmæli.
21.maí 2012 - 08:22
Stjórn Íslenskrar ættleiðingar hefur sent Innanríkisráðuneytinu tilkynningu um að ganga þurfi á varasjóð félagsins. Þær ráðstafanir kunna að hafa í för með sér að þegar félagið verður lagt niður verða ekki öruggar rekstrarforsendur til að ljúka málum er kunna að vera til meðferðar á vegum félagsins á þeim tíma.
20.maí 2012 - 23:51
Robin Gibb, einn hinna þriggja heimsfrægu Gibb-bræðra í hljómsveitinni Bee Gees er látinn, 62 ára að aldri. Banamein hans var krabbamein.
20.maí 2012 - 20:55
Íslendingar hafa fengið um 11 milljörðum króna meira úr styrkjasjóðum eða áætlunum Evrópusambandsins en þeir hafa greitt til þessara sömu sjóða.
20.maí 2012 - 19:27
Aldrei í sögunni hafa útlán verið jafnmikil í Noregi og núna, í miðri efnahagskreppu allrar Evrópu. Norsk heimili hafa aldrei haft meiri á milli handanna en skuldirnar hafa aldrei verið hærri.
20.maí 2012 - 17:30
Desmond Hatchett, 33 ára gamall maður frá Knoxville, Tennesee, hefur farið þess á leit við stjórnvöld að þau hjálpi honum við framfærslu á 30 börnum sem hann á með 11 konum.
20.maí 2012 - 16:00
Steingrímur J. Sigfússon, efnahags- og viðskiptaráðherra, segir gríðarlega tekjumyndun hafa verið síðastliðin fjögur ár í sjávarútvegi og greinin standi vel undir því að leggja meira af mörkum til eigenda auðlindarinnar.
20.maí 2012 - 14:00
Ísraelar hafa þróað öfluga njósnavél í formi fiðrildis sem getur flogið á bakvið óvinalínur og sent mynd á rauntíma. Fiðrildið vegur einungis 20 grömm og getur sent myndir innan úr byggingum.
20.maí 2012 - 12:24
Birgitta Jónsdóttir, þingkona, hefur ásamt sex öðrum, unnið mál gegn bandarískum stjórnvöldum fyrir rétti í New York vegna nýrra laga þar í landi sem hópurinn segir að gefi Bandaríkjaher heimild til að handtaka almenna borgara hvar sem er í heiminum og hneppa þá í varðhald án dóms og laga.
20.maí 2012 - 11:39
Tölvufyrirtækið Google hefur tilkynnt um nýja breytingu á hinni geysivinsælu leitarvél sinni. Með aukinni gervigreind og nýjungum í forritun er hugmyndin að koma með leitarvél sem muni geta hugsað meira eins og manneskja.
20.maí 2012 - 10:36
Markmið fjárfestingaáætlunar fyrir Ísland (2013-2015) sem kynnt hefur verið er að styðja við hagvöxt og fjölbreytni í atvinnulífi. Forsvarsmenn ríkisstjórnarinnar segja áætlunina lið í nýrri sókn eftir efnahagshrunið og henni sé ætlað að styðja við efnahagsbata og hagvöxt.
20.maí 2012 - 09:18
Björgunarskip og bátur Slysavarnafélagsins Landsbjargar í Snæfellsbæ var kallað út um þrjúleytið í nótt vegna rækjuskips sem var orðið vélarvana um 5 sjómílur norðan við Rif. Leki hafði komið að skipinu og þegar björgunarsveitarmenn komu að skipinu var tæplega eins metra hár sjór í vélarrúmi.
19.maí 2012 - 22:39
Þóra Arnórsdóttir fjölmiðlakona og forsetaframbjóðandi kveðst hálfklökk yfir öllum þeim fallegu og góðu kveðjum sem henni og Svavari Halldórssyni sambýlismanni hennar hafa borist í tilefni af fæðingu lítillar dóttur í gær.
19.maí 2012 - 21:52
Það var sem skrifað í skýin að Chelsea myndi vinna sinn fyrsta sigur í Meistaradeildinni eftir ævintýralega og dramatíska sigurgöngu í vetur og í úrslitaleiknum gegn Bayern Munchen í kvöld voru lukkudísirnar enn og aftur á bandi þeirra bláklæddu og Chelsea sigraði Bayern í vítaspyrnukeppni eftir framlengdan leik.
19.maí 2012 - 15:30
Netöryggi, netleynd, grænn rekstur tölvukerfa, stuðningur við rannsóknarstarfsemi og Netið sem frumkvöðlavettvangur eru meðal þess sem fjallað verður um á stórri ráðstefnu Samtaka rannsókna- og menntaneta í Evrópu (TERENA) sem fram fer í Háskólabíói í næstu viku.
19.maí 2012 - 12:45
Tveir mikilvægir leiðtogafundir eru haldnir í Bandaríkjunum um helgina. Fyrri fundurinn er leiðtogafundur átta helstu iðnríkja heims (G8) og að honum loknum tekur við leiðtogafundur Atlantshafsbandalagsins (NATO) í Chicago.
19.maí 2012 - 10:44
„Hringt var í föður minn úr skólanum þegar ég var sex ára. Kennarinn sagði pabba að hann ætti mjög heimska dóttur sem truflaði kennsluna. Vinsamlegast ekki senda hana aftur í skólann. Pabbi sagði, ók. Ég var sátt, því ég vildi ekkert endilega fara aftur í skólann og var svo lánsöm að hann kenndi mér sjálfur og svo fékk ég einkakennslu heima. Við vorum svo lánsöm að hafa efni á því.“
19.maí 2012 - 08:58
Búið er að tryggja áframhaldandi rekstur Vinjar, athvarfs fyrir geðsjúka, með samningi milli Rauða krossins, velferðarráðuneytisins, Velferðarsviðs Reykjavíkurborgar og Vinafélags velunnara Vinjar, sem undirritaður var í gær. Velferðarráðuneytið leggur samtals tæplega 21 milljón króna til rekstursins til ársloka 2014.
18.maí 2012 - 20:34
Flugvél Icelandair sem snúið var við skömmu eftir flugtak frá Keflavíkurflugvelli lenti heilu og höldnu klukkan 21:15. Vélinni var snúið við skömmu eftir flugtak eftir að í ljós kom að lendingarbúnaður vélarinnar hafði skemmst. Lendingin tókst með afbrigðum vel.
18.maí 2012 - 20:00
Kína er vinsælli meðal almennings en Bandaríkin, eftir því sem ný skoðanakönnun leiðir í ljós. 24.000 manns út um allan heim voru spurðir hvort þessi lönd og önnur hefðu áhrif til góðs eða ills í heiminum.
18.maí 2012 - 18:00
Hugmynd að viskíframleiðslu og byggingu verksmiðju til slíkrar framleiðslu á Austurlandi þótti besta viðskiptahugmyndin á Atvinnu- og nýsköpunarhelginni sem fram fór um síðustu helgi í Fjarðabyggð. Hugmyndin er hugarfóstur Gillian „Dillý“ Haworth.
18.maí 2012 - 16:00
Tvær tillögur um óháð mat á því hvort lög um verðbréfaviðskipti og innherjaupplýsingar hafi verið brotin voru felldar á ársfundi Lífeyrissjóðs Festu. Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness, segir að fulltrúar atvinnurekenda í sjóðnum hafi tífalt atkvæðavægi á móti fulltrúum sjóðsfélaga.
18.maí 2012 - 15:20
Margir þekkja þá óþægilegu tilfinningu að hafa læst sig úti. Öllu sjaldgæfara er að fólki sé óvart læst inni en kemur þó fyrir. Sú var einmitt raunin með ónefnda konu á höfuðborgarsvæðinu en konan býr í fjölbýlishúsi.
18.maí 2012 - 14:10
Þóra Arnórsdóttir fjölmiðlakona og frambjóðandi til forseta Íslands og Svavar Halldórsson sambýilismaður hennar eignuðust dóttur í morgun og heilsast móður og barni vel.
18.maí 2012 - 13:00
Danska ríkisstjórnin og verkalýðsfélög hafa komist að samkomulagi um að sleppa úr tveimur frídögum á hverju ári og skapa með því 20.000 ný störf. Með þessu móti á danski ríkissjóðurinn einnig að gildna um heila 80 milljarða króna á ári. Fækkun frídaga hefur aldrei komið til umræðu hér á landi en vilji er fyrir því innan Samtaka atvinnulífsins að færa til frídaga, einkum þá sem koma upp á fimmtudögum.