07. feb. 2010 - 19:33
Sjálfstæðiskonur ósáttar með slæmt gengi - Sérstök karlremba í Garðabæ, segir Silja Bára

Silja Bára Ómarsdóttir. Mynd: Pressan/Gunnar
Sjálfstæðiskonur eru óánægðar með slæmt gengi þeirra í fjórum prófkjörum flokksins sem fram fóru í gær í Garðabæ, á Álftanesi, Mosfellsbæ og í Grindavík. Silja Bára Ómarsdóttir, aðjúnkt í stjórnmálafræði segir ákveðna tregðu í flokknum til þess að hleypa konum að, þegar Pressan náði tali af henni.
Ragný Þóra Guðjohnsen, sem tók þátt í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Garðabæ var viðmælandi í kvöldfréttum Stöðvar 2 en óánægja hennar leyndi sér ekki þegar hún sagði að niðurstaðan í Garðabæ endurspeglaði ekki aldur, kyn né áherslur flokksins á heildina, þar sem frambjóðendurnir fjórir séu allir karlar á svipuðum aldri með svipaða menntun. „Það virðist vera einhver sérstök karlremba í Garðabæ,“ segir Silja Bára.
„Sjálfstæðisflokkurinn sýndi það í borginni að þeir treysta konu, Hönnu Birnu, sem lenti í oddvitasæti eftir að Vilhjálmur sagði af sér. Það er eins og konur í flokknum þurfi að slysast inn í leiðtogastöðu til þess að geta sýnt sig og sannað þar,“ segir hún.
Silja Bára segir að niðurstöðurnar virðist endurspegla að einhverju leyti þá kenningu að karlar kjósi frekar til hægri og kjósi jafnframt frekar aðra karla. „Ýmsar rannsóknir sýna að karla kjósi karla og konur kjósi karla og konur. Mörgum er mjög illa við það, en til þess að ná konum ofarlega á lista þyrftu konur að kjósa einungis konur til þess að jafna hlutfallið.“
Fjallað var um málefni tengd konum í prófkjörum á RÚV í gær í þættinum Sveitastjórnarmál - Kjörlendi kvenna.
11.mar. 2010 - 22:17
Það er nógu slæmt fyrir einstaklinga að vera handjárnaðir af lögreglu eða öðrum yfirvöldum í eðlilegum klæðnaði. Hvað þá að vera handjárnaðir uppáklæddir sem Spiderman, lukkudýr einhvers íþróttaliðs eða bara í gervi Mjallhvítar, vinkonu dverganna sjö? Svo ekki sé talað um ef einstaklingur er í heilgalla sem trúður.
11.mar. 2010 - 21:06
Umræða um neyðarhnapp á samskiptavefnum Facebook hefur komið upp á Bretlandseyjum í kjölfar sífellt fleiri dæmi um barnaníðinga sem nýta sér samskiptamátann til þess að komast í tæri við ungmenni.
11.mar. 2010 - 20:41
Margrét Kristmannsdóttir, formaður SVÞ skaut harkalega á þingheim á aðalfundi samtakanna í dag. Margrét sagði það einfeldni að halda að 63 þingmenn þjóðarinnar, með takmarkaða reynslu af atvinnulífinu, kæmi Íslendingum upp úr kreppunni. Þá sagði hún að Vinstri grænir þyrftu að ákveða hvorum megin við borðið þeir væru og að þingmenn ættu að eyða minni tíma í innihaldslaust karp og viðræður við fjölmiðla í tímabundnum vinsældarkosningum.
11.mar. 2010 - 19:55
Anna Arrowsmith, sem hefur sérhæft sig í gerð mörg hundruð klámmynda, býður sig fram til setu á breska þinginu fyrir flokk frjálslyndra demókrata í kosningum í vor. Kjördæmi Arrowsmith er Kent. Hún biður kjósendur að dæma hana af skoðunum sínum í málum tengdum kvenréttindum, en ekki af störfum sínum í klámmyndaiðnaðinum.
11.mar. 2010 - 19:24
Flugumferðastjórar aflýstu í kvöld verkfalli sínu sem átti að hefjast kl. 7 í fyrramálið. Eins og Pressan greindi frá átti ríkisstjórn landsins að funda um málið kl. 19:30 og setja lög um vinnudeiluna. Ottó Eiríksson, formaður flugumferðastjóra segir í samtali við Pressuna að verkfall geti enn skollið á næstkomandi miðvikudag.
11.mar. 2010 - 18:55
Starfsmaður Fóðurblöndunnar var í dag sakfelldur í Hæstarétti fyrir þjófnað á 15 tonnum af gölluðum áburði hjá fyrirtækinu og gefið skyldfólki sínu. Starfsmaðurinn sagði að áburðurinn hefði verið ónýtur og gæti því ekki verið andlag þjófnaðar.
11.mar. 2010 - 18:16
Ríkisstjórnin virðist hafa misst þolinmæðina gagnvart verkfalli flugumferðarstjóra, því ríkisstjórnin kom óvænt saman til fundar nú kl. 18 í kvöld og Alþingi hefur verið kallað saman kl. 19:30 vegna fyrirhugaðrar lagasetningar á vinnudeiluna.
11.mar. 2010 - 18:13
Hæstiréttur dæmdi í dag Sigurjón M. Egilsson, fyrrverandi ritstjóra DV, fyrir ærumeiðandi ummæli í garð sakbornings í kókaínmáli. Hann segist oft hafa verið kærður fyrir meiðyrði en ekki dæmdur fyrr en nú.
11.mar. 2010 - 17:02
Hæstiréttur dæmdi í dag Sigurjón M. Egilsson, fyrrverandi ritstjóra DV, og Erlu Hlynsdóttur blaðamann fyrir ærumeiðingar í garð Rúnars Þórs Róbertssonar, eins sakborninga í kókaínmáli sem Erla fjallaði um. Hæstiréttur sneri þar með sýknudómi héraðsdóms.
11.mar. 2010 - 16:30
Sjö konur hafa tilkynnt lögreglu á Norður-Sjálandi að maður, sem í dönskum fjölmiðlum er kallaður prumpkallinn, hafi áreitt þær með því að biðja um að þær leysi vind á sig. Lögreglan hvetur prumpkallinn til að gefa sig fram svo að hægt verði að veita honum viðeigandi sálfræðimeðferð.
11.mar. 2010 - 14:35
Í kjölfarið á sjálfsvígum tveggja ungmenna í Hafnarfirði með skömmu millibili hafa skóla- og félagsmálayfirvöld í bænum sent út hvatningu til foreldra um að huga sérstaklega vel að líðan barna sinna og hegðun. Þá er boðin fram aðstoð ef ástæða þykir til að hafa áhyggjur.
11.mar. 2010 - 14:23
Upplýst hefur verið hvað varð til þess að íbúar í franska þorpinu Pont-Saint-Espirit gengu af göflunum dag einn árið 1951. Bandaríska leyniþjónustan, CIA, setti ofskynjunarlyfið LSD í brauð þorpsbúa í tilraunarskyni. Íbúar þorpsins glíma enn við afleiðingarnar.
11.mar. 2010 - 14:10
EFLA verkfræðistofa og Reitir fasteignafélag hafa skrifað undir samning um leigu á 3800m2 húsnæði í nýjum skrifstofugörðum Reita að Höfðabakka 9. EFLA sem er eitt stærsta ráðgjafarfyrirtæki landsins er nú með aðstöðu á fjórum stöðum í Reykjavík en mun sameina þær í eina starfsstöð í húsnæðinu að Höfðabakka.
11.mar. 2010 - 13:30
„Ég myndi aldrei standa svona að þessu,“ segir Sigurður Sveinn Sverrisson, sem fer með upplýsinga- og kynningarmál hjá LÍU, er hann var spurður út í viðamikla auglýsingaherferð gegn fyrningarleiðinni í Viðskiptablaðinu. Hann segir blaðið sjálft eiga frumkvæði að herferðinni.
11.mar. 2010 - 13:13
Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra fer háðulegum orðum um fjármálaráðherra Svía í viðtali við sænskt dagblað. Hann segist vera miður sín yfir því að svo virtur stjórnmálamaður afbaki staðreyndir um þjóðaratkvæðagreiðsluna um Icesave.
11.mar. 2010 - 12:14
Íslensk klettaklifurkona, Elísabet Birgisdóttir, hrapaði niður 6 metra úr hömrum í Ástralíu og brotnaði á báðum höndum. Lögreglan í Adelaide segir að miðað við aðstæður sé óskiljanlegt að hún hafi ekki slasast meira. Elísabet gekkst undir aðgerð í morgun.
11.mar. 2010 - 11:50
Viðskiptabankarnir hafa verulegar efasemdir um hið svokallaða lyklafrumvarp sem lagt hefur verið fram á Alþingi. Telja þeir að frumvarpið geti jafnvel haft neikvæð áhrif á stöðu lægri tekjuhópa og að nær væri að styrkja þau úrræði sem eru í boði nú þegar.
11.mar. 2010 - 11:08
Utanríkisráðherra Noregs opnar á að veita Íslendingum lán þótt Icesavedeilan sé ekki leyst. Hann hittir norræna starfsbræður sína á fundi í Kaupmannahöfn síðdegis. Þar verða efnahagsmálin á Íslandi til umræðu.
11.mar. 2010 - 10:57
Álfheiður Ingadóttir, heilbrigðisráðherra, segir enga uppstokkun fyrirhugaða framundan innan ríkisstjórnarinnar. Ögmundur Jónasson hefur þrýst mikið á að komast aftur í stjórn og formaður flokksins hefur ekki aftekið að slíkar breytingar verði gerðar.
11.mar. 2010 - 10:20
Japanir kunna svo sannarlega að halda hjólum efnahagslífsins gangandi. Þeir byggja bara og byggja, jafnvel þótt engin þörf sé fyrir viðkomandi mannvirki. Það á við um hinn nýja alþjóðaflugvöll í Ibaraki sem tekinn var í notkun á dögunum. Þaðan fer aðeins eitt flug á dag.