08. feb. 2010 - 17:17
Sigurður Kári: Gunnlaugur er ekki vinur minn og hef aldrei séð hann í starfi flokksins

Sigurður Kári, aðstoðarmaður Bjarna Benediktssonar. xd.is
Sigurður Kári Kristjánsson, aðstoðarmaður Bjarna Benediktssonar formanns Sjálfstæðisflokksins, kannast ekki við að vera vinur Gunnlaugs Erlendssonar. Hann kannast heldur ekki við að hafa séð Gunnlaug bregða fyrir í flokksstarfi Sjálfstæðisflokksins.
Greint var frá því í morgun að breska lögfræðistofan Mishcon de Reya hafi rukkað Alþingi um 25 milljónir króna vegna álits í Icesave-málinu. Þar af fóru 10 milljónir til Gunnlaugs fyrir milligöngu hans í málinu. Í frétt DV í morgun er Gunnlaugur sagður virkur í Heimdalli, félagi ungra Sjálfstæðismanna í Reykjavík, sem og vinur Sigurðar Kára.
Sigurður Kári kannast hins vegar ekki við að vera vinur Gunnlaugs, í pistli sem hann skrifar á heimasíðu sína. Kannast hann heldur ekki við að þeir tilheyri sama vinahópi. Þá segist Sigurður Kári ekki muna til þess að Gunnlaugur hafi starfað fyrir Sjálfstæðisflokkinn.
„Ég hygg að fáir hafi á liðnum árum tekið jafn mikinn þátt í starfi ungliðahreyfingar Sjálfstæðisflokksins og ég. Þó nokkuð sé um liðið hef ég bæði átt sæti í stjórn Heimdallar og auk þess verið formaður Sambands ungra sjálfstæðismanna.
Á mínum langa ferli innan raða ungliðahreyfingar Sjálfstæðisflokksins hef ég ekki orðið var við að Gunnlaugur Erlendsson hafi verið þar virkur þátttakandi, þó Jóhann (Hauksson, blaðamaður á DV, innsk. blaðam.) haldi öðru fram. Raunar minnist ég þess ekki að hafa séð honum svo mikið sem bregða fyrir í störfum hreyfingarinnar.“
Sigurður Kári segir jafnframt liggja í augum uppi að hann, sem aðstoðarmaður formanns stjórnarandstöðuflokks, hafi ekkert haft með samningagerð fyrir hönd Alþingis eða fjárlaganefndar að gera.
16.mar. 2010 - 17:45
Kristján L. Möller, samgönguráðherra, er ekki á því að beita sértækum aðgerðum til að lækka bensínverð í landinu, þrátt fyrir að hafa kallað eftir slíkum aðgerðum þegar hann var í stjórnarandstöðu. Hann vonast til að bensínverð lækki eftir að samið verður um Icesave.
16.mar. 2010 - 17:40
Höldur-Bílaleiga Akureyrar og Suzuki bílaumboðið á Íslandi hafa skrifað undir kaup bílaleigunnar á að minnsta kosti 175 nýjum bílum af tegundunum Suzuki Swift og Suzuki Grand Vitara og hugsanlega verður bílunum fjölgað eitthvað þegar nær dregur sumri.
16.mar. 2010 - 17:05
„Það er þannig að hæstvirtur fjármálaráðherra samdi sérstaklega um það að það yrði árangurstengt launakerfi í ríkisbankanum,“ segir Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Hann telur réttast að Alþingi fjalli fyrst um bónusa Landsbankans áður en hjólað verður í aðra banka.
16.mar. 2010 - 16:04
Skorað hefur verið á forseta Íslands að taka þátt í átakinu karlar og krabbamein og láta sér vaxa yfirvaraskegg. En hvernig myndi forsetinn líta út með mottu?
16.mar. 2010 - 15:00
Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, segir að hefðbundnar vinaþjóðir hafi snúið baki við Íslendingum, sem treysti nú á Þjóðverja að aðstoða landið í þeim vandræðum sem nú steðja að landi og þjóð.
16.mar. 2010 - 14:13
Bónusgreiðslur til starfsmanna bankanna voru fordæmdar á Alþingi í dag. Lagt var til að þær yrðu annað hvort skattlagðar upp í rjáfur eða sett verði lög til að banna þær. Formaður viðskiptanefndar vill að Alþingi hóti að setja lög um afskriftir til skulda heimilanna til að fá uppgefið hvert svigrúmið er.
16.mar. 2010 - 12:58
Ríkisstjórnin og stjórnarandstaðan funda í dag með Lee Buchheit sem fer fyrir íslensku samninganefndinni í Icesave-málinu. Enginn formlegur fundur hefur verið boðaður með Hollendingum og Bretum. Ríkisstjórnin kannast ekki við að boltinn sé hjá Íslendingum í deilunni.
16.mar. 2010 - 12:32
Skattayfirvöld höfðu tvívegis gert tillögur um viðamiklar umbætur til að koma í veg fyrir skattaundanskot í bankakerfinu. Forsætisráðherra segir ljóst að enginn áhugi hafi verið hjá Sjálfstæðisflokknum að ráðast í slíkar umbætur þegar hann stjórnaði fjármálaráðuneytinu.
16.mar. 2010 - 11:59
Rökstuddur grunur leikur á að gömlu bankarnir hafi komið milljörðum króna undan skatti áður en þeir féllu. Ríkisstjórnin ætlar að koma á fót sérstakri sveit á vegum skattrannsóknarstjóra til að rannsaka umfangið.
16.mar. 2010 - 11:48
Fólksfækkun varð á landinu á árinu 2009 í fyrsta sinn frá árinu 1889. Brottfluttir útlendingar valda miklu um þessa fækkun. Íslendingum heldur áfram að fjölga.
16.mar. 2010 - 11:15
William Fall, fyrrverandi forstjóri Straums fjárfestingabanka, sem í gær var ráðinn í lykilstöðu hjá alþjóðasviði eins stærsta banka í heimi, Royal Bank of Scotland, gerði tillögu til Seðlabankans og Fjármálaeftirlitsins í október 2008 um að fella íslenska banka undir Straum í því skyni að komast að samkomulagi við erlenda kröfuhafa og tryggja eðlilegt greiðsluflæði frá Íslandi til útlanda.
16.mar. 2010 - 10:47
HönnunarMars, íslensk hönnunarhátíð fer fram í annað skipti á Íslandi, frá næsta fimmtudegi til sunnudags. Markmið hátíðarinnar er að kynna fyrir gestum nýjustu strauma og stefnur í íslenskri hönnun. Grasrót íslenska hönnunarsamfélagsins, yfir 500 einstaklingar, tekur þátt á hátíðinni og við skipulagningu ríflega 100 viðburða hennar.
16.mar. 2010 - 10:29
Bílaleiga Akureyrar-Höldur ehf. hefur samið við HEKLU um kaup á 200 nýjum Volkswagen og Skoda bifreiðum sem afhentar verða á vormánuðum.
16.mar. 2010 - 10:23
Fjölskyldufaðirinn og stjórnarformaðurinn Kristján Gíslason, segir í opnu bréfi til forsætisráðherra Danmerkur í danska fjármálablaðinu Börsen í dag, að Íslendingar skilji ekki af hverju Danir lyfta ekki litla fingri til hjálpar frændþjóð sinni. Íslendingar hafi heldur ekki skilið hvernig Íslendingar eignuðust þjóðargersemar í Danmörku.
16.mar. 2010 - 10:01
Sænska hljómsveitin ABBA var tekin inn í frægðarhöll rokksins, Rock and roll Hall of Fame, í nótt ásamt Genesis, Jimmy Cliff, The Hollies og The Stooges.
16.mar. 2010 - 08:48
Kristján Þór Júlíusson, alþingismaður Sjálfstæðisflokksins, segir að Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra sé þreyttur maður, sjálfum sér og öðrum til ama, og eigi að víkja.
16.mar. 2010 - 08:04
Heildarskuldir ríkissjóðs næstum fjórfölduðust við bankahrunið. Þær voru 310 milljarðar króna árið 2007 og fóru í 1176 milljarða 2009. Heildarskuldir ríkissjóðs sem hlutfall af landsframleiðslu voru 78% í lok árs 2009.
16.mar. 2010 - 07:36
Lyfjastofnun bannar dreifingu á kynningar- og fræðsluhefti um sykursýki frá Icepharma og krefst þess að það verði innkallað. Þá fer Lyfjastofnun fram á að Icepharma sendi út leiðréttingu á upplýsingum í heftinu um meðferðarmarkmið í blóðsykurstjórn.
16.mar. 2010 - 07:00
Hratt gengur á sparifé Davids Stopher, tæplega sextugs Breta, sem missti eiginleikann til að segja nei takk við ágenga sölumenn efir að hann fékk heilablóðfall. Hann lét pranga inn á sig tíu farsímum samtímis þótt hann noti aðeins einn.
15.mar. 2010 - 22:32
Með tilkomu internetsins rata fyrir sjónir almennings myndir sem ekki með nokkru móti er hægt að útskýra án þess að vita söguna á bak við þær. Spakmælið að myndir segja meira en þúsund orð fellur í þessum tilvikum um sjálft sig.