13.mar. 2010 - 14:30
Einar Skúlason, sem leiðir lista Framsóknarflokksins í borgarstjórnarkosningunum í vor, segir að Reykjavík beri skylda til þess að skoða kosti og galla sameiningar við Álftanes. Jafnvel gæti verið hagkvæmt fyrir Reykjavík að sameinast Seltjarnarnesi og Mosfellsbæ.
13.mar. 2010 - 12:30
„Davíð Oddsson hefur skaðað Ísland meira en nokkur annar Íslendingur í íslenskri pólitík frá stríðslokum,“ segir Bubbi Morthens sem lætur Davíð fá það óþvegið í nýjasta Pressupistli sínum. Hann segir Morgunblaðið áróðurstæki sem Davíð notar til að endurskrifa söguna.
13.mar. 2010 - 11:30
Fótur og fit varð uppi á ítölskum veitingastað þegar tveggja ára dreng hafði tekist að skríða upp í sælgætisleiktæki og sat þar í mestu makindum innan um gnægð sælgætis. Enginn hafði hins vegar hugmynd hvernig hægt var að ná honum út.
13.mar. 2010 - 10:40
Kjartan Broddi Bragaon, hagfræðingur, segir afskriftir á skuldum eignarhaldsfélaga engin áhrif hafa á svigrúm bankanna til að afskrifa skuldir heimila og fyrirtækja. Þingmaður segir gæði lánasafnanna bankanna batna með auknum afskriftum.
13.mar. 2010 - 09:50
Ólíklegt er að lykla- og kröfufrumvörp Lilju Mósesdóttur verði að lögum, segja ráðherrar. Hins vegar verða þessi frumvörp, að einhverju leyti, fléttuð inn í aðgerðir ríkisstjórnarinnar fyrir skuldsett heimili og einstaklinga sem kynntar verða fljótlega.
13.mar. 2010 - 09:02
„Vonlaust er hins vegar að við náum sambærilegum lífskjörum á við hin velferðarhagkerfi Norðurlandanna ef þessari fátæktarstefnu VG í peningamálum verður ekki hrundið,“ segir Þorsteinn Pálsson, fyrrum forsætisráðherra.
12.mar. 2010 - 21:00
Það kannast allir við að eiga slæman dag í vinnunni. Sumir dagar eru verri en aðrir og þá getur verið freistandi að losa um hömlurnar og láta það bitna á því sem hendi er næst, svo sem vinnufélaganum eða borðtölvunni.
12.mar. 2010 - 20:00
Ný rannsókn leiðir í ljós að karlmenn telja sig taka fullan þátt í heimilisstörfunum, en konurnar taki bara ekki eftir því. Þeir vilja hins vegar ekki fara hátt með það að ótta við að konan fari að kvarta. Karlmenn segjast eyða að meðaltali 13 klukkustundum á viku í heimilisstörf.
12.mar. 2010 - 18:45
„Við lesum bara blöðin eins og aðrir og fáum ýmsar fréttir þaðan, en könnumst nú ekki mikið við þær,“ segir Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri grænna, um fyrirhugaða uppstokkun í ráðherraliðinu. Hann gefur lítið uppi um breytingar á ráðherraliðinu.
12.mar. 2010 - 17:50
Þýski þjálfarinn Rudi Assauer hefur varpað sprengju inn í knattspyrnuheiminn með stóryrtum fullyrðingum sínum um að samkynhneigðir ættu ekkert erindi í íþróttina. Sjálfur myndi hann sparka leikmanni sínum ef hann kæmi út úr skápnum.
12.mar. 2010 - 16:35
Gjaldþrota eignarhaldsfélög éta upp mest af þeim afskriftum sem fóru milli gömlu og nýju bankanna, segir efnahags- og viðskiptaráðherra. Bankarnir þurfa að afskrifa stórar fjárhæðir hjá þessum félögum og því skapast ekki svigrúm til afskrifta annars staðar.
12.mar. 2010 - 15:58
„Ég setti inn umsókn upp á von og óvon,“ segir sjónvarpsmaðurinn Egill Helgason, sem er einn þeirra sem sótti um stöðu dagskrárstjóra RÚV. Hann spyr sig þó þeirrar spurningar hvort hann verði betur settur þar en í þeirri stöðu sem hann er nú, enda auðvelt að verða óvinsæll í stöðu dagskrárstjóra.
12.mar. 2010 - 15:30
Sölustjóri tískurisans Prada í Japan hefur farið í mál við fyrirtækið eftir að yfirmaður hennar fyrirskipaði henni að gera átak í starfsmannamálum. Átakið fólst í því að losa sig við „gamla, feita, ljóta eða ógeðslega“ starfsmenn sem ekki hentuðu ímynd fyrirtækisins.
12.mar. 2010 - 15:04
Tveir karlar veita stofnunum ríkisins forstöðu á móti hverri einni konu. Konur hafa auk þess minni mannaforráð en karlar. Hlutfallið er konum mest í hag í forsætisráðuneytinu en síst í umhverfisráðuneytinu.
12.mar. 2010 - 14:28
Alls sóttu 37 manns um stöðu dagskrárstjóra RÚV sem auglýst var eftir að Þórhallur Gunnarsson lét af störfum. Meðal umsækjanda eru þekkt nöfn á borð við Felix Bergsson, Sigurjón Kjartansson, Þorfinn Ómarsson, Davíð Þór Jónsson og Ágúst Héðinsson.
12.mar. 2010 - 13:40
Fjármálaráðherra útilokar ekki að Alþingi setji lög á verkfall flugumferðarstjóra í næstu viku, eins og til stóð að gera í gær. Hann vonast þó að til þess þurfi ekki að koma. Hann segir kröfur flugumferðarstjóra háar og ekki í takti við efnahagslegan veruleika.
12.mar. 2010 - 12:40
Stéttarfélag hollenskra hjúkrunarfræðinga hleypti í dag af stokkunum átaki gegn kröfum sjúklinga um að kynferðisleg þjónusta verði eitt af reglubundnum verkefnum þeirra. Samtökin NU'91 nefna átakið „Hér dreg ég mörkin“.
12.mar. 2010 - 11:57
Samningaviðræður um Icesave hafa enn ekki hafist og vonast ríkisstjórnin til að af því verði í næstu viku. Engar tímasetningar hafa verið ákveðnar. Fjármálaráðherra segir óraunhæft að hafa ætlað að hefja viðræður í þessari viku eins og vonir stóðu til.
12.mar. 2010 - 11:22
Stórsýningin Netið 2010 verður haldin í Vetrargarðinum Smáralind dagana 12-14. mars, en sýningunni er ætlað að fræða almenning um þær nýjungar og möguleika sem netið býður upp á.
12.mar. 2010 - 11:16
Lilja Mósesdóttir, formaður viðskiptanefndar, hefur svarað bréfi Jóhannesar í Bónus til þingmanna og segist ekki skilja að hann upplifi sig fórnarlamb „pólitískra ofsókna“ nema því aðeins að hann hafi stöðu grunaðs manns. Og grunaðir menn eigi ekki að eignast fyrirtæki að aflokinni fjárhagslegri endurskipulagningu.